Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 16. MARS 2002
Utlönd
U*V"
REUTER-MYND
Morgan Tsvangiral
Leiötogi stjórnarandstööu Simbabve
segir aö brögð hafi veriö í tafii í for-
setakosningunum um síöustu helgi.
Afríkuríki undir
auknum þrýstingi
Vesturlönd beita Afríkuríki nú
auknum þrýstingi til aö fá þau til að
fordæma úrslit forsetakosninganna
í Simbabve þar sem Robert Mugabe
var endurkjörinn og taka þátt í að
einangra Mugabe á alþjóðavett-
vangi. Vesturlönd eru sammála
stjómarandstæðingum í Simbabve
um að Mugabe hafi viðhaft um-
fangsmikil kosningasvik.
Viðbrögð Afríkuríkja hafa til
þessa verið fremur jákvæð og eftir-
litsmenn frá Nígeríu og Suður-Afr-
íku lýstu því yfír að kosningamar
hefðu farið heiðarlega fram.
Til að bæta gráu ofan á svart lét
Mugabe umdeild lög um fjölmiðla
ganga í gildi i gær. Blaðamenn hafa
gagnrýnt lögin harðlega og segja
þau tií þess eins fallin að múlbinda
íjölmiðla og hefta tjáningarfrelsið.
Gott að vera
norskur Harry
Tíu Norðmenn sem heita Harry
fengu um tíu þúsund íslenskar
krónur að gjöf hver frá eigendum
stórmarkaðar í sænska landamæra-
bænum Tocksfors í gær, degi fyrr
en upphaflega stóð til.
Peningagjöfin var andsvar
sænskra kaupmanna við orðum
norska landbúnaðarráðherrans sem
skammaðist fyrir stuttu út í landa
sína sem fara í verslunarferðir til
Svíþjóðar þar sem vöruverð er
lægra. Kallaöi ráðherrann þá
„Harry“ en það er norskt uppnefni
fyrir ódannaðar smásálir.
Kaupmaðurinn í Kjöthöllinni í
Tocksfors sagði að níu Norðmenn
hefðu beðið fyrir utan verslunina
þegar opnað var í gær. Norðmenn
keyptu fyrir um 85 milljarða ís-
lenskra króna í Svíþjóð í fyrra.
Saddam Hussein
Hermt er aö ný öfgasamtök íslams-
trúarmanna í Kúrdahéruðunum í írak
noröanveröu hafi tengsl viö útsend-
ara íraksforseta á þeim slóöum.
Nýr öfgahópurí
norðurhluta íraks
Nýr hópur öfgafullra íslamstrúar-
manna, með hugsanleg tengsl við al-
Qaeda og Saddam Hussein, hefur
látið að sér kveða í Kúrdahéruðum
í norðanverðu írak síðustu mánuði.
Hópurinn hefur meðal annars
eyðilagt snyrtistofur, brennt skóla
fyrir stúlkur og myrt konur sem
neita að klæðast skósíöum kuflum,
eða burkum, á almannafæri, að því
er bandaríska dagblaðið Christian
Science Monitor hefur eftir þorps-
búum á þessum slóðum.
1 hópnum eru um 700 menn, þar á
meðal írakar, Afganar, Jórdanir og
Palestínumenn.
Bush fagnar brotthvarfi ísraelska hersins frá Ramallah:
Bjartsýnn á að
vopnahlé náist
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti bar í gær lof á Ariel Sharon, for-
sætisráðherra ísraels, fyrir að kalla
heim hersveitir sínar og skriðdreka
frá palestínsku borginni Ramallah á
Vesturbakkanum. Forsetinn sagðist
enn fremur vera vongóður um að
sendimanni sínum, Anthony Zinni,
tækist að koma á vopnahléi fyrir
botni Miðjarðarhafs.
„Þetta var jákvæð þróun,“ sagði
Bush um brottflutninginn. „Ég hef
sagt að eitt af því sem við þyrftum
að gera væri að skapa aðstæður fyr-
ir frið. Ég kann vel að meta ákvörð-
un Sharons forsætisráðherra."
Aðspurður sagði Bush að hann
væri vongóður um að Zinni tækist
ætlunarverk sitt í viðræðum sínum
við deilendur. „Annars hefði ég
ekki sent hann,“ sagði Bush.
Zinni ræddi við Yasser Arafat,
forseta Palestínumanna, í höfuð-
stöðvum hans í Ramallah, aðeins
REUTER-MYND
Grætur heimili sitt
Palestínsk kona grætur í rústum
húss síns í þorpinu Mograka á Gaza
sem ísraelskir hermenn eyðilögöu.
nokkrum klukkustundum eftir að
ísraelski herinn fór þaðan og skildi
eftir sig eyðilagða bíla og fellda raf-
magnsstaura.
Zinni hafði áður sagt við frétta-
menn, eftir fyrstu viðræður sínar
við ísraelska ráðamenn, að ástæða
væri til að vera vongóður um að
honum tækist að binda enda á
sautján mánaða átök ísraela og
Palestinumanna sem hafa kostað
rúmlega eitt þúsund manns lífið,
flestir Palestínumenn.
Arafat kallaði brottflutning ísra-
ela frá Ramallah sjónhverfmgu og
bandarísk stjórnvöld hafa krafist
brottflutnings ísraelsku hermann-
anna frá öllum palestínskum svæð-
um til að auðvelda Zinni starf sitt.
Palestínsk móðir og fjögur börn
hennar létu lífið á Gaza í gær þegar
sprengja sprakk undir asnakerru
sem þau ferðuðust með. Israelum
var kennt um sprenginguna.
REUTER-MYND
Bush kynnir sér vopn og verjur herafla síns
George W. Bush Bandaríkjaforseti fylgdist spenntur meö þegar honum var sýndur margvíslegur vopnabúnaöur í heim-
sókn til Fort Bragg herstöövarinnar. Bush vill fá auknar fjárveitingar til hermála í næstu fjárlögum.
Leiðtogar ESB ósammála um nauðsynlegar umbætur:
Spænska löggan lúskraði á
mótmælendum með kylfum
Spænska óeirðalögreglan beitti
kylfum til að dreifa hundruðum
andstæðinga hnattvæðingarinnar
sem höfðu safnast saman í miðborg
Barcelona í gær þar sem leiðtogar
Evrópusambandsins sitja á fundi.
Lögreglumenn sýndu mikla
hörku í aðgerðum sínum gegn
mannfjöldanum, að sögn frétta-
manna Reuters sem fylgdust með
þegar laganna verðir létu til skarar
skríða. Óeirðalögreglan á Spáni
mun vera þekkt fyrir hörku í tilvik-
um sem þessum.
Mótmælendumir höfðu safnast
saman við Licu-óperuhúsið á hinni
sögufrægu Römblu skammt frá
höfninni, nokkra kílómetra frá sjálf-
um fundarstaðnum.
„Þeir hafa engan rétt til að gera
þetta,“ sagði ungur maður eftir að
laganna verðir létu til sín taka.
Flöskur flugu svo og stólar frá
REUTER-MYND
Hörkutól í Barcelona
Spænska óeiröalöggan lumbraöi
hressilega á mótmælendum í gær.
nærliggjandi kaffihúsum og kaup-
menn lokuðu verslunum sínum í
snarhasti.
Leiðtogar ESB voru á einu máli
um það í gær að efhahagur landa
þeirra væri að rétta úr kútnum.
Þeim tókst hins vegar ekki að koma
sér saman um nauðsynlegar lang-
tíma umbætur sem þeir gera sér
vonir um að verði tU þess að Evr-
ópuríkin standi jafnfætis Bandarikj-
unum í efnahagslegu tilliti.
Lionel Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, tUkynnti á fundinum
að Frakkar myndu opna markað
sinn fyrir rafmagn tU fyrirtækja
innan nokkurra ára. Þar með stað-
festi hann að Frakkar væru tUbúnir
að faUast á málamiðlun í afnámi
rUíiseinokunar á orkumarkaði.
Þrettán riki sem hafa sótt um inn-
göngu í ESB tóku fiUlan þátt í um-
ræðunum á fundinum í gær.
Dómaraefni hafnað
Dómsmálanefnd öld-
ungadeildar Banda-
ríkjaþings hefur hafn-
að Charles W. Picker-
ing sem dómara við
áfrýjunardómstól.
Með því vUdi meiri-
hluti demókrata i
nefndinni benda Bush forseta á að
hann megi eiga von á vandræðum
með að fá íhaldsmenn sem hann tU-
nefnir tU dómarastarfa samþykkta.
Sprengt við sendiráð
Maður var handtekinn i gær fyr-
ir að kasta tveimur handsprengjum
aö húsakynnum bandaríska sendi-
ráðsins í Jemen. Engin meiðsl urðu
á fólki og engar skemmdir.
Efasemdir um mannfall
Bandariska blaðið New York
Times hefur haft uppi efasemdir um
meint mikið mannfaU í liði talibana
og al-Qaeda í bardögum i Afganist-
an síðustu vikur, eftir að fréttamað-
ur þess fór um svæðið.
Evrópa næst
Mohammad Khatami íransforseti
gagnrýnir Bandaríkin fyrir að hag-
nýta sér andrúmsloftið sem skapað-
ist eftir 11. september og segir að
Evrópa verði einn góðan veðurdag
talin með í öxli hins illa.
Erfitt að selja saltfisk
Færeyingum gengur erflðlega að
selja saltfiskframleiðslu sína um
þessar mundir, að því er kemur
fram i blaðinu Sosialurin. Verð hef-
ur lækkað og birgðir aukast.
Krafist lífstíðarfangelsis
Saksóknari í Sví-
þjóð krafðist þess í
gær að kúrdískur
innflytjandi yrði
dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir að
myrða dóttur sína,
Fadime, fyrir það
eitt að vUja lifa í
takt við nútímann í Svíþjóð. Stúlk-
an átti sænskan kærasta og fór það
mjög fyrir brjóstið á fóðurnum.
Svartfellingar lítt hrifnir
SvartfeUingum þykir lítið tU þess
samkomulags koma sem gert var
við Serbíu um að leggja Júgóslavíu
niður og mynda nýtt rikjasamband.
Þeir eru ekki hrifnir af að vera
áfram tengdir Serbíu.
Cheney á flugmóðurskipi
Dick Cheney,
varaforseti Banda-
ríkjanna, heimsótti
bandarískt flugmóð-
urskip á Arabíuflóa
í gær og fylgdist
með því þegar orr-
ustuvélar lögðu upp
í árásarferðir á liðsmenn al-Qaeda
og talibana í Afganistan.
ESB vill bætur
Evrópusambandið gerði lýðum
ljóst í gær að það ætlar sér að sækja
bætur fyrir verndartollana sem
Bush Bandaríkjaforseti setti á inn-
flutt stál á dögunum.
Takmarkað olíuframboð
Olíkuframleiðsluríkin í OPEC
ákváðu í gær að takmarka enn um
sinn framboð á olíu, enda þótt verð
kunni fara upp úr öUu valdi. Ekki
verður skrúfað almennUega frá fyrr
en eftir fund um miðjan júní.