Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Blaðsíða 48
60
LAUGARDAGUR 16. MARS 2002
Helgarblað
r>v
Unnur Guðjónsdóttir fararstjóri.
Til Kína
með Unni
Kínaklúbbur Unnar býður upp á
tvær ferðir til Kína á þessu ári, ári
hestsins samkvæmt kínverska alm-
anakinu. Hver ferð tekur tuttugu og
tvo daga og farið verður frá íslandi
17. maí og 17. september. í báðum
ferðum er farið til Peking, Xian,
Guilin, Shanghæ og Suzhou. Þátt-
takendur kynnast menningu og
sögu þjóðarinnar á lifandi og
skemmtilegan hátt. Verðið er
350.000 og allt innifalið. Nánari upp-
lýsingar hjá Unni Guðjónsdóttur í
síma 551-2596. -Kip
Gistiheimili Halldóru
Gistiheimilið er í einbýiishúsi á
þrem hæðum. í garðinum eru leik-
tæki fyrir börn og aðstaða fyrir fuii-
oröna til að hafa það hugguiegt.
F j ölskylduvænt:
Gistiheimili
Halldóru
Gistiheimili Halldóru er í eigu ís-
lenskrar ijölskyldu sem hefur búið í
Hvidovre í 6 ár. Hvidovre er lítil
bær í átta kílómetra fjarlægð frá
miðbæ Kaupmannahafnar.
Gistiheimilið er í einbýlishúsi á
þrem hæðum og býður upp á sjö
herbergi, setustofu og eldhús þar
sem hægt er að elda léttar máltíðir.
í garðinum fyrir utan eru leiktæki
fyrir börn og aðstaða fyrir fuilorðna
til að hafa það huggulegt. Næg bíla-
stæði eru við húsið.
Gistiheimilið stendur við aðal-
götu í Hvidovre og því stutt í lest,
strætisvagna, veitingastaði, verslan-
ir, banka, sundlaug og krá. Lestar-
ferð frá aðallestarstöðinni i Kaup-
mannahöfn tekur um tíu mínútur.
Upplýsingar í síma 0045-36778886
og 0045-36775806 eða á heimasíðunni
www.gistiheimilid.dk. -Kip
Töfrar
Tékklands
Mimir-Tómstundaskólinn verður
með námskeið sem nefnist Töfrar
Tékklands og perlurnar í Prag
fimmtudaginn 21. mars, klukkan
20-23.
Það eru þau Anna Kristine Magn-
úsdóttir og Pavel Manásek sem
kenna á námskeiðinu. Pavel er
Tékki, sem búsettur hefur verið á
íslandi í 10 ár, en Anna Kristine er
landsmönnum kunn af störfum sín-
um fyrir fjölmiðla.
Á námskeiðinu fjalla þau um sög-
una og stikla á stóru í þróun lands-
ins. Bent verður á merka staði í
Prag sem vert er að heimsækja.
Skráning á námskeiðið fer fram hjá
Mími-Tómstundaskólanum i síma
588-7222 eða á mimir.is. -Kip
Hjaltland:
Heillandi andstæður
Sjálfala sauðfé
Hjaltland er klasi hátt á annað hundraö eyja. Fimmtán þeirra eru í byggö og íbúar
rúmlega 22.000. Hjaltlendingar eru fyrst og fremst Skotar og halda gamlar heföir
í heiðri. Fugla- og dýralíf er fjölbreytt á eyjunum, sauðfé gengur sjálfala í grænum
hlíðunum og þar er að finna hinn smávaxna Hjaltlandshest.
Þeir sem vilja sigla í sumarfríinu
ættu að hafa samband við Smyril
Line sem að vanda býður upp á ferð-
ir með Norrænu næsta sumar. Hægt
er að sigla frá Seyðisfirði til Hanst-
holm á Jótlandi með viðkomu í
Þórshöfn í Færeyjum, Bergen í Nor-
egi og Leirvík á Hjaltlandi.
Hjaltland heillar
Á Hjaltlandi eru miklar andstæð-
ur þar sem gamalt og nýtt mætist.
Gamlar breskar hefðir eru enn við
lýði og nýtískuleg oliuskip leggjast
að bryggju við stærstu olíuhöfn í
Evrópu. Á kvöldin er hægt að sjá
logana frá oliuborpöllunum bera við
sólarlagið eða horfa á sauðfé sem
gengur í grænum hlíðum. Náttúru-
unnendur geta fundið sér nóg að
gera því eyjarnar eru tilvaldar til
fuglaskoðunar og þar vaxa yfir átta
hundruð tegundir viiltra plantna.
Hæg er að stoppa í eina nótt eða
viku á Hjaltlandi eða hafa eyjamar
Hjaltland er tilvalió tll fuglaskoöunar
Náttúruunnendur geta fundiö sér
nóg að gera því eyjarnar eru tilvald-
ar til fuglaskoðunar og þar vaxa yfir
átta hundruð tegundir villtra
plantna.
sem áfanga á leiðinni til Englands.
Tilheyrðu Danakonungi
Hrafna-Flóki átti á sínum tíma
vetrardvöl á Hjaltlandi á leið sinni
til íslands og á stærstu eyjunni er
stöðuvatn sem heitir eftir dóttur
hans sem drukknaði í því.
Eyjamar voru öldum saman und-
ir stjóm Dana- og Noregskonunga.
Árið 1468 voru Orkneyjar og
Hjaltland veðsett Skotlandskonungi
sem heimanmundur vegna væntan-
legs brúðkaups dönsku prinsess-
unnar og James III, ríkiserfingja i
Skotlandi. Danakonungur leysti eyj-
amar aldrei út aftur og síðan hafa
þær verið hluti af Skotlandi.
Fjölbreytt dýralíf
Hjaltland era klasi hátt á annað
hundrað eyja, fimmtán þeirra eru í
byggð og íbúar rúmlega 22.000.
Hjaltlendingar eru fyrst og fremst
Skotar og halda gamlar hefðir í
heiðri. Fugla- og dýralíf er fjölbreytt
á eyjunum, sauðfé gengur sjálfala í
grænum hlíðunum og þar er að
finna hinn smávaxna Hjaltlands-
hest.
Höfuðborg eyjanna heitir Leirvík
og þar býr tæpur þriðjungur íbú-
anna, um 8000 manns. í byrjun nítj-
ándu aldar var höfnin í Leirvík við-
komustaður fiski- og hvalveiðiskipa
á leið sinni á miðin umhverfis ís-
land. Mikið var um smygl og lágu
göng frá höfninni í ólögleg vöruhús
á landi.
Samgöngur eru góðar á Hjaltlandi
en þeir sem vilja njóta frelsis til að
skoða eyjarnar vel ættu að hafa bíl-
inn með eða leigja sér bíl, en athug-
ið að á Hjaltlandi er vinstri umferð.
Líflegar krár
Lífið á kránum getur orðið ansi
líflegt á kvöldin og um helgar, sér-
staklega þegar flskiskipaflotinn er í
höfn. Á neðri hæð kránna er oft bar
þar sem menn sitja og drekka bjór
og snafs en á efri hæðunum veit-
ingahús sem bjóða upp á léttar mál-
tíðir og vín.
Þeir sem vilja góðan mat á eyjun-
um eiga að panta sér flsk eða lamb.
Á betri veitingahúsum er hægt að fá
úrvals fiskrétti, lax og skelflsk eða
lambakjöt af heimaöldu.
Á Hjaltlandi er rík tónlistarhefð
sem eyjaskeggjar segja að sé komin
frá huldufólkinu sem býr þar í
hverjum hól. Tónlistin einkennist af
liflegum fiðluleik og í april á hveiju
ári er haldin hátíð sem nefnist
„Folk festival" sem hljóðfæraleikar-
ar og áhugamenn um tónlist víða að
úr heiminum sækja.
-Kip
Nýfundnaland, Færeyjar, Noregur og Sviss:
Áhugaverðir staðir og
gestrisið fólk
Færeyingar í þjóöbúningum
Það er fallegt í Færeyjum og vel þess viröi að ferðast um eyjarnar og kynnast
menningu þeirra.
Vestfjarðaleið býður upp á ferðir til
St. John’s í Kanada, sextán daga rútu-
ferð um Færeyjar og Noreg og vikuleg-
ar ferðir til Sviss í sumar. Kristján M.
Baldursson, sölu- og markaðsstjóri,
segir að fýrirtækið sé sífellt að bæta
við áfangastöðum og auka fjölbreytn-
ina. „Undanfarin ár höfúm við boðið
upp á verslunar- og skemmtiferðir til
St. John’s, höfúðborgar Nýfundna-
lands í Kanada. Ferðimar vöktu strax
í upphafi mikla athygli og við fáum oft
sömu farþegana aftur.“
Litrík saga
St. John’s á sér litríkari sögu en
nokkur önnur kanadísk borg. íbúamir
era ákaflega gestrisnir og þeir halda
fast í arfleifð forfeðra sinna frá Evr-
ópu. Kristján segir vandfundna borg
þar sem betra er að versla þvi verðlag-
ið sé lægra en gerist annars staðar í
Kanada. „í ár bjóðum við upp á ferð
þangað um hvítasunnuna, 16.-20. maí,
og aftur í nóvember. Hvítasunnuferðin
er nýjung og upplagt tækifæri fyrir
fólk að kynnast borginni og njóta sum-
arsins. Þeir sem viija geta farið í golf,
gönguferðir eða stundað veiði, farið í
fugla- og hvalaskoðun eða kajaksigl-
ingu. Nóvemberferðin er fjögurra daga
ferð en á sama tíma er haldin stór jóla-
skrúðganga og glæsilegur jólamarkað-
ur í borginni. Því er upplagt að nota
ferðina til að gera hagstæð jólainn-
kaup og komast í jólaskap.”
Lítíð ykkur nær
Um miðjan júní býður Vestfjarða-
leið upp á sextán daga rútu- og skoðun-
arferð um Færeyjar og Noreg. Kristján
segir að það sé upplagt tækifæri fyrir
þá sem vilja líta sér nær og kynnast
náttúra, menningu og sögu nágranna
okkar og frænda. „Brottfor er 12. júní
og ekið sem leið liggur til Seyðisfjarð-
ar, gist þar og síðan siglt til Færeyja.
Þremur dögum er varið í að skoða eyj-
amar af landi og sjó. Á þjóðhátíðardag-
inn 17. júní er siglt til Bergen og þaðan
lagt upp í hringferð um Vestur- og Suð-
ur-Noreg.“ Að sögn Krisljáns er margt
fallegt að sjá í Noregi - tilkomumikla
firði, dali og fjöll, fallega fossa, jökla og
einstakar menningarminjar. Á leið-
inni er komið við í Harðangursfirði,
Ósló, Lillehammer, Guðbrandsdal,
Geiranger og Sognfirði, svo eitthvað sé
nefnt.
Flug tíl Genf
„Við bjóðum líka upp á ferðir til
Sviss einu sinni í viku í sumar, frá 14.
júní til 17. ágúst. Flogið verður til Genf
með svissneska flugfélaginu Crossair.”
Kristján segir að Genf henti vel sem
upphafsstaður fyrir skoðunarferðir
um Evrópu. „Þar era tilkomumiklir og
áhugaverðir ferðamannastaðir allt í
kring og við aðstoðum fólk eftir bestu
getu, útvegum því bOaleigubila og gef-
um góð ráð. Einnig höfúm við í undir-
búningi einnar viku gönguferð um
svissnesku Alpana á svæði sem heitir
Bemese Oberland.” -Kip
Ævintýraferö um arabalönd
/ ferðinni verður lögð áhersla á
sérstæða menningu landanna,
náttúrufyrirbæri og líf fólksins í
borgum og sveitum.
Forvitnilegir staðir:
Sýrland og
Líbanon
Arabalöndin njóta sivaxandi vin-
sælda meðal ferðamanna og á hveiju
ári streyma þangað sífellt stærri hóp-
ar frá Norðurlöndunum og Þýska-
landi.
Flugleiðir og Jóhanna Kristjóns-
dóttir stefna að því að bjóða ferða-
þyrstum íslendingum upp á spenn-
andi ævintýraferð tO Sýrlands og Lí-
banon í vor ef þátttaka verður næg.
Jóhanna hefur farið nokkrar ferðir
um þessar slóðir áður, talar arabísku
og gjörþekkir svæðið. í ferðinni verð-
ur lögð áhersla á sérstæða menningu
landanna, náttúrufyrirbæri og líf
fólksins i borgum og sveitum.
Flogið er tO Libanons og dvalið þar
í nokkra daga, Líbanar era fjölbreyti-
leg þjóð með margslungna sögu. Þvi
næst er farið austur yfir landamærin
tO Sýrlands og áð í höfúðborginni
Damaskus sem er ein elsta höfuðborg
í heimi, í nokkra daga. Farið verður í
vikulanga ökuferð um eyðimörkina í
norðurhluta Sýrlands og komið við í
Homs, Aleppo, Krak og Hamas.
Ferðin tekur aOs um sextán daga
og verð hennar er um 185.000 krónur.
Þeim sem hafa áhuga er bent á að
hafa samband við Jóhönnu í síma 551
4017 og fá frekari upplýsingar. -Kip