Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Side 36
* 48
LAUGARDAGUR 16. MARS 2002
Helgarblað
DV
Skottulæknir á
Bræðraborgarstíg
- reyndi að framkvæma fóstureyðingar með rafstraumi
Á íslandi hefur öldum saman lif-
að góðu lífl trú á ýmsar óhefð-
bundnar lækningaaðferðir og á
hverjum tíma hafa alltaf verið til
læknar sem hafa starfað utan al-
faraleiðar, ef svo má að orði komast.
Þeir hafa verið kallaðir skottulækn-
ar eða ýmsum nöfnum i þá veru og
hafa ekki hikað við að beita ýmsum
óhefðbundnum meðulum til að
koma sjúklingum sinum til fullrar
heilsu á ný.
Á fyrstu áratugum aldarinnar bjó
í Reykjavík maður sem fékkst við
smáskammtalækningar. Smá-
skammtalækningar eða hómópatía
var þá eins og nú nálægt því að vera
viðurkennd lækningaaðferð. Þeir at-
burðir sem hér á eftir verður lýst
gerðust í Vesturbænum í Reykjavík,
nánar tOtekið við Bræðraborgar-
stíg, snemma á fjórða áratug aldar-
innar. Þar bjó þá roskinn smá-
skammtalæknir sem var árið 1934
62 ára að aldri og hafði leyfi yfir-
valda til þess að stunda smá-
skammtalækningar og hafði haft
slíkt leyfi allt frá aldamótunum
næstu á undan eða í ríflega þrjátíu
ár.
Vildi losna við fóstrið
Snemma árs 1934 kom ung kona
til smáskammtalæknisins og sagði
farir sínar ekki sléttar. Hún sagðist
vera með barni og vildi fá aðstoð
hans til þess að eyða því. Læknirinn
tók því, að hennar sögn, vel og sagði
henni að mæta í 14 skipti. Meðferð
hans var fólgin í því að hún var lát-
in liggja á legubekk undir sterkum
rafljósaperum í allt að eina klukku-
stund á dag. Auk þess fékk hún raf-
magn annan hvom dag á þann veg
að læknirinn setti rafmagnstæki
inn i kynfæri hennar og hleypti
sterkum straumi á. Hún taldi að
hver slík tilraun hefði staðið í 10-15
mínútur og undir það síðasta í allt
að hálftima. Hún bar fyrir dómi að
læknirinn hefði auk þess verið klúr
í orðum við sig og falast eftir sam-
forum við sig í að minnsta kosti eitt
skipti. Talsverður sársauki fylgdi
rafmagnsmeðferðinni en læknirinn
sagði henni að hún yrði að þola
hann.
Tveim dögum eftir að meðferð-
inni lauk fékk stúlkan lítUs háttar
blæðingar sen hættu þó von bráðar.
Um þessa meðferð reit stúlkan þá-
verandi landlækni Vilmundi Jóns-
syni bréf sem hann lagði fram tU
Bræöraborgarstígurlnn er falleg gata
Við þessa götu voru gerðar undarlegar lækningatilraunir á fjórða áratugnum þar sem reynt var að framkvæma
fóstureyðingar með rafstraumi. Þær báru ekki árangur.
lögreglunnar og í framhaldi af því
var hafm rannsókn á starfseminni á
Bræðraborgarstíg.
Kannaðist ekki við neitt
Rannsóknin hófst með því að
smáskammtalæknirinn var settur í
gæsluvarðhald og í framhaldi af þvi
vistaður um stundarsakir á Nýja-
Kleppi sem svo er nefndur í máís-
skjölum, þar sem dr. Helgi Tómas-
son skyldi rannsaka hann og geð-
heilsu hans.
Læknirinn kvaðst við fyrstu yfir-
heyrslur aUs ekki kannast við að
nefnd kona eða stúlka hefði verið
barnshafandi. Hann sagði stúlkuna
hafa leitað tU sín og kvartað um
slappleika, hjartveiki og hvít klæða-
foU. TU þess að lækna umrædd hvít
klæðafoU kvaðst ákærði hafa sett
gler númer níu sem hann kaUaði
svo, inn í kynfæri hennar og hleypt
teslastraumi á en aldrei lengur en
frnirn mínútur í einu. Hann neitaði
því alfarið að hafa haft í frammi
klúrheit við stúlkuna en viður-
kenndi að hafa „slegið því upp í
gamni“ hvort hún vUdi ekki hafa
samfarir við sig. Ennfremur benti
hann á að hún hefði einungist greitt
Rennidagar
19.-20. mars stendur Fossberg ehf. fyrir
kynningu á TITEX- og TUNGALOY-
skurðverkfærum (borar, fræsarar,
renniverkfæri, snittverkfæri). Kynningin fer
fram í sýningarsal okkar að Suðurlandsbraut
14, Reykjavík. Nánari upplýsingar í síma 57
57 600. Kynningin fer fram á ensku en
sölumenn okkar verða til aðstoðar.
Ailir áhugasamir velkomnir.
F0SSBERG
tvær krónur fyrir læknishjálpina.
Rétt er að geta þess að tæpum
átta mánuðum eftir umræddar raf-
loststUraunir hjá smáskammta-
lækninum ól umrædd stúlka lifandi
og heUbrigt bam.
Fleiri konur fundust
Lögreglan rannsakaði nú lækn-
ingabók ákærða og þar fundust nöfn
aUmargra kvenna. Sex þeirra vom
kaUaðar fyrir rétt og yfirheyrðar og
kom í ljós að í fimm tilvikum virtist
ákærði hafa framkvæmt á þeim það
sem rétturinn kaUar „ meinlaust og
gagnslaust lækningakák" og selt
þeim hefðbundin smáskammtalyf.
En ein kvennanna bar fyrir rétt-
inum að hún hefði veturinn 1934, í
febrúar og mars, gengið tU ákærða í
því skyni að fá hann tU að eyða
fóstri. Hún kvaðst hafa eignast barn
1928 og þá orðið mjög veik, meðal
annars í nýrum og óttaðist mjög
aðra meðgöngu. Bamsfaðir hennar
var með í ráðum og voru þessar til-
raunir gerðar í samkomulagi
þeirra.
Konan bar að þegar hún kom í
tíma hjá smáskammtalækninum
hafi hann látið hana fara úr buxun-
um, fletta upp um sig pUsinu og
leggjast á dívan. Hann setti síðan
rafmagnsljós á kvið hennar, fyrst
stutta stund en lengur eftir því sem
hún kom oftar. Hann setti einnig
gler inn í kynfæri hennar og var
glerið í sambandi við rafmagns-
straum, fyrst í 2-3 mínútur en allt
að 10 mínútur undir lok meðferðar-
innar.
Eftir skamma hríð hætti hún að
ganga til læknisins og varð ekkert
meint af þessum tUraunum hans og
ól barn sitt heUbrigt um sjö mánuð-
um seinna.
Lét undan þrábeiðni barns-
föður
Ákærði bar fyrir rétti að hann
hefði dregist á það fyrir þrábeiðni
barnsfóður konunnar að reyna að
eyða fóstrinu með ljósum en sagði
þá hafa samið um að engin meðul
eða verkfæri yrðu notuð tU þess
önnur en rafljós og rafstraumur.
Héraðslæknir sem mætti fyrir
dómnum taldi að tUraunir af þessu
tagi gætu hæglega valdið fósturláti
þótt ekki væri það einhlítt en taldi
sýnt að stúlkunni sem fyrr er nefnd
hefði legið við fósturláti og tækju
blæðingar hennar af aUan vafa um
það.
í dómsskjölum segir að þrátt fyr-
ir vífilengjur ákærða og undan-
færslur verði að ganga út frá því að
meðferð hans á konunum hafi veriö
alvarlega meint tUraun af hans
hálfu tU þess að eyða fóstnmum.
Með þessu taldi rétturinn að
ákærði hefði gerst brotlegur við lög
auk þess að fara langt út fyrir verk-
svið sitt sem smáskammtalæknir og
lagði tU að hann yrði auk refsingar
sviptur því leyfl sem hann hafði þá
haft frá aldamótum tU slíkra lækn-
inga.
Stríðmontið, minnislaust
gamalmenni
Niðurstaðan úr rannsókn dr.
Helga Tómassonar á ákærða er und-
arleg lesning en þar stendur meðal
annars:
„Hann er ekki fáviti en geðveikur
á vægu stigi, haldinn svonefndri
dementia senUis. Auk þess hefir
hann krónískan hryggsjúkdóm,
spondylitis og krónískan bronchitis.
Þó hann sennUega hafl aldrei rist
vitsmunalega nema grunnt, þá virð-
ist nú áberandi almenn sljóvgun hjá
honum, sem lýsir sér í athyglis- og
minnisbUun, einkum þó bUandi
næmi, svo og minnkuðum andleg-
um hömlum, hvað snertir almennt
velsæmi í orðum og athöfnum, sam-
fara þessu er aukið sjálfsálit og líf-
legar kynfýsnir en sennUega án tU-
svarandi getu, vegna almennrar lík-
amlegrar hrörnunar og yfirleitt lítið
maskulin kynmerkja. ■
Hann getur tæplega talist sakhæf-
ur eða fær um að taka út refsingu
þó auðvitað verði starfsemi hans
stöðvuð. Hann væri sennUega best
kominn á fámennu heimUi þar sem
eingöngu væri fullorðið fólk sem
vissi hvernig ástatt væri með hann
og hlypi ekki eftir sögum hans eða
ráðleggingum."
Þessi umsögn þýöir nokkum veg-
inn á mannamáli að um er að ræða
kalkað, stríðmontið, minnislaust
gamalmenni með ólæknandi kvef og
hryggskekkju, talsverðan áhuga á
kyiUífi en enga getu.
Dómurinn lét álit dr. Helga um að
smáskammtalæknirinn væri ekki
sakhæfur sem vind um eyru þjóta
og dæmdi skottulækninn í betrun-
arhúsvinnu í átta mánuði, greiðslu
sakarkostnaðar að fuUu og svipti
hann leyfi tU smáskammtalækn-
inga. -PÁÁ
Ingólfur Arnarson mættur
Þann 17 febrú-
ar 1947 urðu
þáttaskU i ís-
lenskri útgerðar-
sögu þegar fyrsti
togarinn í flota svokallaðra nýsköpun-
artogara lagðist að bryggju í Reykjavík.
Þetta var Ingólfur Amarson RE og
koma hans tU landsins var aðalfrétt
allra blaða þann daginn. Skipið sigldi
fánum prýtt inn á höfnina og mikUl
mannfjöldi var mættur tU að fagna
komu þess og bæði borgarstjóri Reykja-
vfcur og sjávarútvegsráðherra héldu
ræður.
Ingólfur var hinn fyrsti af 32 togur-
um sem nýsköpunarstjómm svokaUaða
samdi um smíði á. Hann bar 500 lestir
og var knúinn oliukyntri gufuvél. Hér
mætti skrifa langan kafla um Ingólf og
ferU hans en þegar hann lagði að
bryggju I Reykjavík mun hann hafa
verið meðal fullkomnustu fiskiskipa í
hehninum og er haft fyrir satt að
Ingólfur hafi verið fyrsta fiskiskip í
heiminum sem var búið út með radar
en radarinn kom fram á sjónarsviðið í
stríðinu og var skUgreindur sem hem-
aðartæki. Skipstjóri á Ingólfi Amat*
syni var Hannes Pálsson.
Allir í framsóknarvist
Það má lesa um það
í Tímanum í febrúar
1947 að nýtt skemmt-
anaform sé að ryðja
sér tU rúms i félagslífi
þjóðarinnar. Það er
hin svokaUaða fram-
sóknarvist. I blaðinu
21. febrúar er auglýst
að spUuð verði fram-
sóknarvist í samkomu-
sal Mjólkurstöðvarinnar. Þegar verð-
launum hefur verið úthlutað flytur
Hermann Jónasson, fonnaður flokks-
ins, ávarp og Kjartan Ó. Bjamason
sýnir íslenskar kvUonyndfr sem hann
hefur sjálfm- tekið, meðal annars af
framsóknarvist í Listamannaskálanum.
Sfðan verður sungið og dansað fram á
nótt. Fólki er ráðlagt að panta miða og
sækja þá á innheimtustofu Timans eUa
verði þeir seldir við innganginn. Ekki
er kunnugt um önnur dæmi þess að ís-
lenskur stjómmálaflokkur hafi tekið
eitt spU sérstaklega upp á arma sina
með þessum hætti en enn þá munu
gamlir framsóknarmenn hafa gaman af
þvi að spUa nokkra hringi í framsókn-
arvist.
Flugbátur ferst í Hvammsfirði
13. mars 1947 varð
það hörmulega slys í
Hvammsffrði rétt fram-
an við bryggjuna í Búð-
ardal að Grumman-
flugbátur, sem var að
hefja sig tU flugs á firð-
inum, hrapaði í sjóinn og hvolfdi
skömmu eftir flugtak. Báturinn var f
farþegaflugi frá Reykjavík tU Búðar-
dals, Djúpav&ur og ísafjarðar og tók
fimm farþega í Búðardal. Aðstæður
vom nokkuð erfiðar og komst báturinn
ekki á loft fyrr en í þriðju atrennu og
þá með þessum afleiðingum.
Björgim barst fljótt úr landi en bát-
urinn sökk eftfr tæpan klukkutíma.
Fjórar ftUlorðnar manneskjur, tvær
konur og tveir karlar, fórust með bátn-
um og setti slys þetta mikinn óhug að
fólki en nær aUir íbúar Búðardals urðu
sjónarvottar að slysinu og björgunarað-
gerðum.
Sundhöllin tíu ára
SOKOMÖLI.IN ttltí Á*A
í dagblaðmu
Tímanum er
j sagt fráþviá
forsíðu24.
mars 1947 að
SundhöUin við
Barónsstíg eigi
tíu ára afmæli.
Á það er rækUega minnt að ffamsókn-
armenn eigi aUan heiður af byggingu
og rekstri SundhaUarinnar sem
skammsýnir menn hafi árum saman
barist gegn.
Þess er og getið á þessu tíu ára af-
mæli að einn maður hafi sótt SundhöU-
ina á hveijum degi frá opnun. Það er
Sverre Fougner Johansen bókbindari
sem af þessu tUefni gaf verulega fjár-
hæð í minningarsjóð um Ólaf Þorvarð-
arson, fyrsta sundhaUarstjórann, en
sjóðinn stofnaði Sverre sjálfur.