Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Side 52
64
Helgarblað
LAUGARDAGUR 16. MARS 2002
J
Métið er
lwtri
Egils
Appelsín
í nýjum
umbúðum
Rétta stærðin
skipttr máli
byssur, ferðalög, ferðaþjónusta,
fyrir ferðamenn, fyrir veiðimenn,
gisting, golfvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijösmyndun, llkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaður... tómstundir
550 5000
I>V
Hljómsveitin sem ætlar aö rokka fyrir krakkana
Þetta eru þau Jón Ólafsson, sem spilar á hljómborð og syngur, Ólafur Hólm, sem slær á trumbur, Stefán Már Magn-
ússon, sem plokkar kassagitar og mandólín, Guðmundur Pétursson, sem leikur á rafgítar og Haraldur Þorsteinsson
sem leikur á bassa.
Ryksugan á fullu
- rokkað fyrir krakkana í Borgarleikhúsi
Á morgun, sunnudag, verður
einstæður eða einstakur menning-
aratburður á íjölum Borgarleik-
hússins í Kringlumýri. Þá verður
rokkað fyrir krakka á öllum aldri
svo þakið á þessu virðulega húsi
gæti sem best lyfst örlítið í mestu
hviðunum.
Tilefni rokktónleikanna er 30
ára afmæli. Um þessar mundir er
verið að halda upp á það að einn af
vinsælustu rithöfundum þjóðar-
innar, afkastamikið leikskáld, tón-
skáld og textahöfundur, hefur
starfað meðal vor í 30 ár. Þetta er
enginn annar en Ólafur Haukur
Símonarson sem hin síðari ár hef-
ur einkum látið að sér kveða sem
leikskáld en á mörg vopn í sínum
mal og er jafnvígur á þau flest.
Ólafur gaf út hljómplötu fyrir
nærri 27 árum sem bar heitið Eniga
Meniga. Þar voru lög og textar eftir
Ólaf fyrir böm um böm. Það var
hinn ástsæli fálkaorðuhafi, Gunnar
Þórðarson, sem annaðist útsetning-
ar og hljóðfæraleik að miklu leyti
og stjómaði upptökum þegar þetta
var gert.
Það var Olga Guðrún Ámadóttir
sem söng öll lögin á plötunni og
söng sig eiginlega lóðbeint inn í
hjarta þjóðarinnar. Lög eins og
Ryksugan á fullu, étur alla drullu,
tralalalalalalalalalala, og Það vantar
spýtur og það vantar sög, það vant-
ar málningu og fjörug lög. Það leið
ekki á löngu áður en foreldrar og
böm til sjávar og sveita voru farin
að tralla með þessari fjölskyldu-
vænu rokktónlist.
Því má nefnilega halda fram að
þegar þessi plata kom út hafi í
fyrsta sinn borist íslendingum til
eyrna rokk og ról sem var ætlað
bömum. Rokkið þekkir auðvitað
engin aldursmörk og flestir varð-
veita einhvem snefil af bami í sál
sinni og þess vegna tók þjóðin því
Svona var hún ‘75
Olga Guðrún Árnadóttir gerði allt vit-
laust 1975 með Ryksugulaginu og
hún ætlar aö koma fram á tónleik-
unum á sunnudag. Einhvern veginn
svona leit Olga Guðrún út árið 1975
eða þar um bil.
ástfóstri við þessa plötu sem raun
ber vitni.
Það hefur sem sagt verið hóað
saman í hörkuband sem ætlar að
stíga á svið í Borgarleikhúsinu
klukkan tvö og flytja lög af þessari
umtöluðu Eniga Meniga-plötu og
Fólkinu í blokkinni og Hattur og
Fattur og áreiðanlega eitthvað fleira
sem þeim dettur í hug þar og þá.
Sérstakur gestur tónleikanna
verður sjálf Olga Guðrún Ámadótt-
ir sem ætlar að syngja með hljóm-
sveitinni en hún hefur ekki sungið
þessa tónlist á sviði í nærri 27 ár
svo þetta er auðvitað „kombakk"
sem sætir nokkrum tíðindum.
DV sló á þráðinn til Olgu og bað
hana að rifja upp hvemig það kom
til að hún var fengin til að syngja
þessi lög þama um árið.
„Ég var góð vinkona Ólafs
Hauks,“ sagði Olga.
„Ég hafði lítið verið að syngja en
þó aðeins komið fram á ýmsum
samkomum, sérstaklega undir
merkjum róttækrar afstöðu í stjóm-
málum, og söng þá gjaman ádeilu-
tónlist sem vinsæl var á þessum
árum.“
Olga var sem sagt ráðin án mikill-
ar reynslu og flaug út til London til
þess að vinna þar með útsetjaranum
og poppstjörnunni Gunnari Þórðar-
syni að gerð plötunnar.
„Ég vissi varla í hvorn endann á
míkrafóni ég ætti að syngja í en
þetta gekk allt saman afskaplega
vel, enda Gunnar einstakur ljúfling-
ur og gott að vinna með honum.
Hann fékk mig meira að segja til
þess að leika á píanó í þó nokkuð
mörgum lögum á plötunni, nokkuð
sem ég hélt að væri ekki mögulegt."
Olga segir að engan sem kom að
gerð plötunnar hafi grunað að hún
yrði svona vinsæl.
„Þetta kom okkur mjög skemmti-
lega á óvart. Þetta gekk svo langt að
sumarið eftir fór ég einn hring um
landið með vinsælli sveitaballa-
hljómsveit sem hét Cabaret og flutti
sérstaka dagskrá þar sem ég söng
lög af plötunni. Þá kom í ljós að full-
orðið fólk kunni ekki siður að meta
þetta en börnin.“
Olga segist ekki hafa komið fram
opinberlega og sungið þessi lög síð-
an 1975 en viðurkennir þó að hafa
komið fram í einkasamkvæmi fyrir
skömmu og sungið hið vinsæla
Ryksugulag.
„Ég áttaði mig á því á sínum tíma
að sennilega myndi ég finna mér
annan vettvang fyrir tónlist en að
syngja á sveitaböllum en þetta var
allt saman góð og indæl reynsla og
er í endurminningunni ekkert
nema hamingja."
-PÁÁ