Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Qupperneq 54
66 LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 Helgarblað DV Viltu gift- ast mér? Á valdi ástarinnar Pariö Drífa Viðarsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. - DV tekur þátt í leitinni ad besta bónorðinu meira í það þangað til hann byrjaði að leita eins og óður maður að myndavélinni (þið getið ímyndaö ykkur). „Myndavél," hugsa ég. „Til hvers þarf maðurinn myndavél?" Enda nánast vonlaust að finna hana í einhverjum af þessum ótalmörgu pappakössum sem lágu eins og hrá- viði úti um allt. En minn maður gafst ekki upp og myndavélina fann hann með hjálp mömmu og systra sem staddar voru á staðnum. Jæja, við erum semsagt að fara út að borða um kvöldið. Hann kemur feiminn með uppástungu um að klæða okkur „dálítið upp“, sem við gerum. Þarna var ég nú farin að hafa gaman af og gat ekki annað en brosað að þessu leynimakki hans því ég mátti ekkert vita hvert við værum nákvæmlega að fara, hvort við færum bara tvö eða með fleira fólki eða Guð má vita hvað, ekki minnstu hugmynd um neitt! Við fengum besta borðið á Einari Ben, kertaljós og ljúf tónlist ómaði um staðinn. Rómantíkin sveif yfir. Við lyftum glösum og skáluðum í rauövíni fyrir okkur, afrakstrinum af öllum framkvæmdunum og fram- tíðinni aö sjálfsögðu. Forrétturinn kom og rann ljúflega niður og eftir að honum lauk segir hann allt í einu, upp úr þurru. „Heyrðu, hver syngur aftur þetta lag?“ Sungiö fyrir hana Ásgeir í stúdíóinu aö syngja inn á geisladisk fyrir sína heittelskuöu. Þessi elska var semsagt búinn að undirbúa þessa stund talsvert lengi, fékk mág sinn til að semja lagið við textann, vinna að laginu í hljóðveri og taka það upp á geisladisk og síð- ast en ekki síst fór hann fyrr þenn- an umrædda dag niður á Veitinga- staðinn Einar Ben og talaði við þjónana um að setja lagið í spilar- ann á milli forréttar og aðalréttar, sem þeir gerðu. Þeirra þjónusta var til fyrirmyndar þetta kvöld. Allt var fullkomið." PÁÁ Besta bónorðssagan Halldóra María frá auglýsingadeild DV afhendir Drífu Viöarsdóttur vinninginn. Með henni á myndinni eru, Snædís Birta Ásgeirsdóttir, dóttir þeirra (sú minni), og Hrefna Björk Jónsdóttir frænka. Ásgeir Ásgeirsson er erlendis. Ég byrja að hlusta á fyrstu tón- ana, sem mér fannst vera byrjun á einhverju rólegu Jet Black Joe-lagi, og ætla mér að svara því galvösk, en viti menn! Þegar söngvarinn hefur upp raust sína, renna á mig tvær grímur. „Guð minn góður," hugsa ég, undrandi og hrærð. Þennan texta þekki ég (því þetta er ástarljóð sem ég skrifaði til hans þegar við vorum nýlega byrjuð saman), þessa rödd þekki ég. „ÁSGEIR! Ert þetta þú?“ Tárin byrja að læðast niöur kinn- arnar, hvert á eftir öðru, enda hormónaflæðið alveg að gera út af við mig. Þetta var unaðsleg stund, hinir gestimir og þjónamir hurfu líkt og í þoku og við vorum bara ein í heiminum, horfðumst í augu og héldumst í hendur og hlustuðum á lagið saman. Á endanum var ég far- in að hágráta Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur? Næstum eins og í amerískri sápuóp- eru ...VÁ!) í lok lagsins ber hann fram bón- orðið og þar sem ég átti erfitt með mál vegna niðurbælds ekka umlaði ég bara: „Ummhu.“ Svo tókst mér að lokum að segja - „JÁ!“ Helgina 8.-10. mars var DV með bás á brúðkaupssýningunni Já í Smáralind. Sýningin tókst mjög vel enda hafa áreiðanlega allir áhuga á brúðkaupi, bæði þeir sem hafa þá indælu reynslu að baki og eins hin- ir sem enn hafa ekki stigið skrefið. í bás DV lá frammi nafnalisti sem tilvonandi brúðhjón gátu skráð sig á. Þau sem skráðu sig á þennan lista fá brúðkaupsgjöf frá DV. DV fitjaði síðan upp á skemmti- legum brúðkaupsleik. Markmið hans var að fá fram reynslusögur fólks af bónorðum og leitin hafði þann tilgang að finna frumlegasta bónorðið. Mörg skemmtileg bónorð bárust i leiknum og margar frásagn- ir til þess fallnar að koma út tárun- um á lesendum. En álit dómnefndar var samhljóða um að vinningshaf- inn væri ótvírætt Drífa Viðarsdótt- ir. Saga hennar snerti viðkvæma strengi í hjörtum allra og þótti eiga verðlaunin skilið. 1 verðlaun fær Drífa glæsilegan málsverð og dekur í Bláa lóninu ásamt gistingu. Það er Bláa lónið sem gefur vinninginn og þarf varla að taka það fram að hann gildir fyrir tvo. Það var eins og fyrr segir Drífa Viðarsdóttir sem skilaði inn sög- unni sem flestum fannst vera sú hjartnæmasta og fallegasta sem kom fram í keppninni og því var ákveðið að veita henni verðlaunin. Þetta er sagan af því hvemig henn- ar heittelskaði, Ásgeir Ásgeirsson, bræddi hjarta hennar eitt eftir- minnilegt kvöld á veitingastaðnum Einari Ben. Hér á eftir fer sagan í eigin orðum Drífu. Hvaöa lag er þetta? „Þann 8. maí árið 2000 gerðist það! Þá var ég komin rétt tæpa 9 mán- uði á leið, við vorum að standsetja og vinna í íbúð sem við höfðum fest kaup á og stóðum því í flutningum ásamt öllu sem fylgir og að pakka niður með góðri hjálp vina og fjöl- skyldu og síðast en ekki síst vorum við að sjálfsögðu að bíða eftir komu fyrsta bamsins okkar með mikilli tilhlökkun. Það var sem sagt alveg vitlaust að gera þetta vor. í miðju pappakassaflóðinu nefnir hann það við mig ósköp blátt áfram að hann ætli að bjóða mér út að borða á mánudaginn! Þar sem það var föstu- dagur eða eitthvað álíka hugsa ég með mér hvaða stress sé í mannin- um, því yfirleitt ákveðum við ekki svona með nokkurra daga fyrirvara. Á mánudeginum fannst mér hann eitthvað undarlegur í hegðun, eitt- hvaö annars hugar, alltaf að skreppa eitthvað sem ég mátti ekki vita hvert og þ.h. en ég spáði ekki Mahð er siwm SMtri fúW. :X Pepsi Max í nýjum umbúðum Rétta stærðin skiptir máli j
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.