Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Page 62

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2002, Page 62
- . 74 LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 Helgarblað DV lí f iö Lög sem tengjast kvikmyndum Bíó tríó, sem er skipað þeim Erni Árnasyni söngvara, Birni Thoroddsen gítarleikara og Jóni Rafnssyni kontrabassaleikara verður með skemmtidagskrá á Kringlukránni í kvöld kl. 21.30. Á efnisskránni eru að mestu lög sem á einn eða annan hátt tengjast kvikmyndum og þaðan kemur nafn tríósins. Tónleikar________________________ Einleikstónleikar Stefán Höskuldsson flautuleikari heldur tónleika í Ými í dag kl. 20.00 og á morgun kl. 16.00. Eiginkona hans Elizaveta Koppelman píanóleikari leikur undir hjá honum í nokkrum verkanna. Djass í Kaffi Reykjavík Robin Nolan tríó heldur tónleika í kvöld í Kaffi Reykjavík. Áöur en trióiö hefur leik kemur fram annað tríó, Hrafnaspark, og er þaö íslenskt. Útskriftartónleikar Dagný Marinósdóttir sem er aö Ijúka burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík heldur tónleika í dag kl. 14.00 í Salnum í Kópavogi. Queen tónleikar West End hópurinn er kominn til landsins og heldur tónleika í Lau|ardalshöllinni í dag ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands kl. 17.00. Á dagskránni eru lög sem flutt voru af hljómsveitinni Queen. Messa heilagrar Sesselju Söngsveitin Fílharmonía flytur Messu heilagarar Sesselju í Langholtskirkju á morgun kl. 23.00 og á þriöjudag á sama tíma. Fundir________________________ ► Öiíkir menningarheimar Málþing um ólíka menningarheima verður haldiö í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag og hefst þaö kl. 13.00. Málþingið er haldiö í tilefni 40 ára starfsafmæli Alþjóðlegra ungmennasamskipta. Háskólakynning Arlegur kynningardagur Háskóla Islands er í dag. Þar geta nemendur framhaldsskólanna gengið aö fulltrúum allra skóla á háskólastigi á einum stað og borið saman þá valkosti í menntun sem þeim bjóðast. Hvað rís úr djúpinu? Málþing veröur haldið í Hafnarborg kl. 13.15 í dag þar sem hópur skálda, fræöimanna og útgefenda velta fyrir sér fagurfræöilegum *"* möguleikum okkar tíma á 70 ára afmælisári Guöbergs Bergssonar. Ritþlng Gerðubergs í Gerðubergi veröur haldið í dag ritþing þar sem umfjöllunarefniö er Olafur Haukur Símonarson. Stjórnandi er Kristján Þóröur Hrafnsson, rithöfundur og bókmenntafræöingur. Spyrlar eru Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri og Guðrún S. Gísladóttir leikkona. Sýningar ............... Fuglar og fóík 'gp I dag opnar Magnús V. Guðlaugsson myndlista/sýningu í Galleríi Sævars Karls. Á sýningunni klæöir Magnús gínur í fatnaö frá verslun Sævars Karls og hefur að fyrirmynd íslenska fugla. Leiðindin mesta ognunin Ef ekki nýtur ofskynjana þá er um lítiö aö velja í dægrastyttingu. Vinur minn fékk hins vegar eitt stykki glaöbeitt- an Arafat í heimsókn til sín í veikindunum en áttaöi sig þegar fréttirnar byrjuöu: Arafat var í stofufangelsi ann- ars staöar á hnettinum og komst hvorki lönd né strönd. Eitt sinn skal hver deyja - upplifun blaðamanns á flensunni og ráðleggingar í rúmlegu Stundum er talaö um aö karl- menn séu lítt harðir af sér þegar þeir mæta veikindum og sársauka. Eru heimildir fyrir því að heilu saumaklúbbamir hafi að undan- fömu verið undirlagðir af slíkum umræðum. Þó er þess skemmst að minnast að Jesús Kristur var kross- festur og bar sig nokkuð vel og reyndar sérstaklega eftir dauða sinn. Við upplifum nú hastarlega flensutima. Heilu fjölskyldurnar kúra með sótthita undir sæng og vinnustaðir standa auðir. Flensan er ekkert grín. Það er ofboðslega leiðinlegt að vera veikur, nema sótt- hitinn sé slíkur að honum fylgi of- sjónir og ofskynjanir. Einungis það getur bjargað slappri sjónvarpsdag- skránni. Hér á eftir fylgir raunsönn lýsing á upplifun blaðamanns af flensunni sem nú gengur. Stundin að renna upp? Því að fá flensu fylgja yfirleitt mikil líkamleg óþægindi. Fyrst ber að nefna að hitastig líkamans, sem vanalega stendur i tölunni 37, hækkar verulega. Allt yfir fjörutíu gráður telst beinlinis lífshættulegt. Þessum hitabreytingum fylgir að manni verður ýmist mjög heitt eða mjög kalt og er ekki á vísan að róa í þeim efnum. Verður að teljast að slíkt ástand sé óviðunandi til lengri tíma. Nauösynleg viðbrögð við hækkuðum líkamshita er að halda kyrru fyrir á heimili sínu og þá helst í rúminu. Ég tók þá ákvörðun þegar ég taldi að líkamshiti minn væri nægilega nærri 37 gráðunum að halda út i frostið til að stunda vinnu mína, þrátt fyrir að margir teldu slíkt hið mesta óráð. Afleiðingamar voru þær að mér „sló niður“ og veiktist þvi meira og lýsti það sér helst í sví- virðilegum hausverk þvi ennisholur og ýmis göng í andliti sýktust og óþægilegar bólgur komu til. Á tima- bili sóttu á mig miklar og sterkar hugsanir um að ég væri bókstaflega að deyja. Og hvað gerir maður þeg- ar maður heldur að síðasta stundin sé að renna upp? Jú, maður fer á Netið og athugar hvaða lífshættu- legu sjúkdómar það geti verið sem herja á mann. Á Netinu er að finna ýmsar upplýsingar. Sumar eru eink- ar gagnlegar en aðrar em beinlínis hættulegar. Alvarlegur höfuðverkur með „dash“ af þunglyndi þegar ráf- að er um Netið gæti hugsanlega dregið verulega úr lífsvoninni en hún er eins og vitað er gríðarlega mikilvæg ef bati á að nást. Af ferð- um mínum um Netið komst ég samt að þvi að ég hafði ekki einkenni heilahimnubólgu og alvarlegustu heilaæxli voru út úr myndinni. Sálarlíf fegurðardrottninga Það alvarlegasta við flensuna er í flestum tilfellum ekki sjálf veikind- in heldur þau óbærilegu leiðindi sem þeim fylgir. Sjónvarpsdagskrá- in er sjaldnast heDlandi, sérstaklega ekki um miðjan daginn þegar end- ursýningar og skjáleikir vaða uppi. Sérstaklega er líklegt að veikindi hafi alvarleg áhrif á sálarlíf fegurð- ardrottninga því ferðalög og útivist öll er úr sögunni um nokkurra daga skeið. Lestur góðra bóka er í mörg- um tilfellum mögulegur en þegar höfuðverkur vex þá-er hann út úr myndinni líka. Og hvað tekur þá við? Ef ekki nýtur ofskynjana þá er um lítið að velja í dægrastyttingu. Vinur minn fékk hins vegar eitt stykki glaðbeittan Arafat í heim- sókn til sín í veikindunum en áttaði sig þegar hann sá fréttimar: Arafat var í stofufangelsi annars staðar á hnettinum og komst hvorki lönd né strönd. Hægt er að telja mínútumar milli þess sem skipt er um leguhlið, einnig er hægt að telja minútur miRi lyfjagjafa eða leika sér með töl- umar sem eru á lyfjaglösunum. AUt er þetta ótrúlega leiðinlegt en þó má segja að leiðindin nái hámarki sínu þegar maður er farinn að líta á hita- mælingarnar sem tómstundagaman. Það er ekki víst að læknavísindi viöurkenni að fólk geti dáiö úr leið- indum en það er eflaust hægt. Og í nútíma þjóðfélagi er ótrúlega margt til að láta sér leiðast yfir. Andlátsorðin undirbúin Upp skaltu á kjöl klífa, köld er sjávar drífa. Kostaöu huginn aö heröa, hér muntu lífiö veröa. Skafl beygjat þú skalli þó aó skúr á þig falli. Ást haföir þú meyja. Eitt sinn skal hver deyja. Þannig orti Þórir jökull á dauða- stundu sinni sem greint er frá í Sturl- unga sögu. Á þeim tíma lögðu menn mikið upp úr góðum og vönduðum andlátsorðum, nokkuð sem menn leggja mun minna upp úr í samtíman- um. Dauðastundin er kannski í mörg- um tilfellum lítilfjörlegri nú til dags, lítið um mannmarga bardaga nema á einstaka sveitaböllum og sjaldgæft að menn deyi í slíkum slagsmálum. í verstu höfuðverkjáhryðjunum vöknuðu spurningar um hversu minnugt starfsfólk heilbrigðiskerfis- ins væri. Myndu gangastúlkur leggja möguleg andlátsorð min á minnið eða yrðu þau loftræstikerfum stofhana að bráð? Ég var reyndar ekki kominn inn á neina stofnun heldur lá fá- klæddur í rúminu minu. Ég var fámáll. Fyrir mann sem fæst við orð á hverjum degi í vinnu sinni er mikilvægt að skilja við með vönduðum setningum á borð við þær sem Þórir jökull tvinnaði saman í kvæði. Síst af öllu vildi maður eiga andlátsorð á borð viö: „viltu rétta mér hitamælinn" eöa „ég er með svo stíflað nef, geturðu sagt mér hvort það er mjög mikil svitalykt af mér?“ En hvaða andlátsorð eru tilhlýðileg í nútímasamfélagi? Uppskriftina er auðvitað að finna í kvæði Þóris jök- uls. Hetjuskapurinn og hetjuleg róm- antík er fullkomnuð í orðum hans. í staðinn fyrir bátslikingamar þarf auðvitað eitthvað nútímalegra, kannski eitthvað mn Netið. Inn skaltu á vef vafra vaninn á serjóshafra. Eða er þetta of móðins? Borgar sig kannski ekki að gera nútímatæknina rómantíska í andlátsorðum. Líklega er best að sækja á sígild mið í and- látsorðum eða jafnvel storka örlögun- um með því að gerast eilítið hvers- dagslegur. Rímaður hversdagur er „in“ um þessar mundir að talið er. Verkjatöflur úr viðarskáp sefa sótthita. Liggur í skúffu lítt notaöur hetjuhitamœlir. -sm mnmm sigbogi@dv.is í Reynishverfi Snjóflóð féllu í Reynishverfi í Mýrdal um sl. helgi og ollu nokkrum búsifjum þar, enda þótt betur færi en á horfðist. Flóð féll meðal annars að bænum Lækjar- bakka. En hvar nákvæmlega í Mýrdalnum er Reynishverfi? Þorsteinn skáld Einn af virtustu skáldum þjóðar- innar er Þorsteinn frá Hamri. Ára- tugir eru síðan Þorsteinn kvaddi sér fyrst hljóðs á skáldaþingi og hefur margt gott látið frá sér fara í gegnum tíðina. Hann kennir sig ævinlega við bæinn Hamar, þar sem hann er fæddur og uppalinn. En hvar er bærinn sá? ✓ I Þykkvabænum Hvergi á ís- landi er meira ræktað af kartöflum en einmitt í Þykkavabæn- um, einn komma sjö kílómetra frá sænum, eins og Árni John- sen söng. í dag er Þykkvibær aðeins lítið sveitaþorp, en á þó að baki merka þéttbýlissögu. Hver er hún, í einni setningu sagt? Stefán Jóhann Um aUlangt skeið var Stefán Jó- hann Stefánsson áhrifamikill maður í íslenskum stjórnmálum og formaður stjórnmálaflokks slns á árunum 1938 til 1952. Hver var sá flokkur - og hvað var nefnd í daglegu tali sú ríkisstjórn sem sat 1947 til 1949 og Stefán var í forsæti fyrir? Svör: 'eiuBjajs pujau !F1 n3ai8ep i jea uin pinds ja aaq uias uiujofissiifiH smhou ssaj jngeuuoj jea 3o s5(i|ounQAtj[V jngBuiSui(j jba uos -suejois uuBuop uejojs ♦ 'dJodejiaAS bjb punsncj Bui>igq buiij uinuis b B[g iiuy igBjtJ5[S æqBA/qÁq iun 'qiABf^AaH j ua jeq JBnqi iJiau iuoa gia>[s uin 8o idjoq -BJiaAS QB JISJA JSBpuAlU JBij !QJBq umpio b Biuuiaus nuipuB[ p jngBjssijAqnad ijsp unej i ja jæqiAqqAq , 'igjyjBSjog ! giiqjBJOAq j ja um jjnds ja jaq rnas jbuibh umjasg , qpuBisj b jæq psgAs ‘jbqjbo nja Bujpugjjs qja uibjj jiuAag ja nuyjaAq ; jngBjsnfxJjM jBABfs pj uibjj nmnBfi gaui jnaSq 8o - UEfjsjuAaH JJ3AUBJS3A Q[A J3 ijjOAqsiuAaH ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.