Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Side 28
28
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002
Sport
DV
^ Stjarna Brasilíumanna ætlar aö sanna sig á ný á HM:
Eg verð bestur
- segir framherjinn Ronaldo með sjálfstraustið í lagi
Brasilíski framherjinn Ronaldo
segist ætla að sanna það fyrir heim-
inum á HM í sumar að hann sé
besti knattspyrnumaður heims.
„Ég hef verið lengi frá vegna
meiðsla og það eru margir sem hafa
ekki trú á mér. Ég ætla hins vegar
að koma þeim á óvart og gleðja þá
sem hafa haft trú á mér með frá-
bærum leik í heimsmeistarakeppn-
inni,“ sagði Ronaldo.
Ronaldo hefur mikla trú á því að
hann og félagar hans, Rivaldo og
Ronaldinho, eða R-in þrjú eins og
þeir eru stundum kallaðir, eigi eftir
að valda andstæðingum Brasilíu
miklum erfiðleikum í keppninni í
sumar.
„Þetta tríó á eftir að valda mikl-
um usla á HM. Við erum allir frá-
bærir knattspyrnumenn og eigum
eftir að spila stórkostlega knatt-
spymu,“ sagði Ronaldo og bætti við
að hann hefði ekki miklar áhyggjur
af vamarmönnum Kínverja sem
Brasilíumenn mæta í C-riðli.
„Ég hef aUtaf skorað mörk gegn
bestu vamarmönnum í heimi og fer
varla að missa svefn yflr vamar-
mönnum Kína,“ sagði þessi magn-
aði knattspyrnumaður sem ætlar
sér svo sannarlega, þegar heims-
meistarakeppnin hefst, að bæta fyr-
ir þau þrjú ár sem hann hefur misst
úr með brasilíska landsliðinu. -ósk
NBA í nótt
New Jersey Nets vann í nótt
ellefu stiga heimasigur, 103-92, á
Boston Celtics í fimmta leik úr-
slitaeinvígis liðanna í Austur-
deildinni og geta Nets þar með
tryggt sér farseðilinn í úrslitaleik
NBA með einum sigri tO viðbótar
í stöðunni 3-2.
Það var fyrst og fremst frábær
leikkafli í fjórða leikhluta í stöð-
unni 74-73 sem skóp þennan góða
sigur Nets en þá gerði liðið sér
lítið fyrir og skoraði tuttugu stig
gegn einu stigi Celtics og breytti
stöðunni í 94-74. Eins og oft áður
var Jason Kidd bestur hjá Nets
með 18 stig, 12 fráköst og 7 stoð-
sendingar en Kittles var stiga-
hæstur með 21 stig. Hjá Celtics
skoraði Pierce mest, eða 24 stig, og
tók 12 fráköst. -EK
ItjDREA jAF
Kasey Keller, markvöróur banda-
riska landsliósins, meiddist á
vinstri olnboga á æflngu í gær og
gæti misst af fyrstu leikjum liðsins á
HM. Keller fór í læknisskoðun í gær
en óvist er hversu alvarleg meiðslin
eru. Þar með er nokkuð ljóst að það
verður Brad Friedel, markvörður
Blackbum, sem stendur á milli stang-
arrna í fyrsta leik Bandaríkjamanna
gegn Portúgal næstkomandi miðviku-
dag.
Tyrkneski varnarmaöurinn Alpay
Ozalan, sem leikur með Aston Villa,
segist ætla að taka Ronaldo í bakarí-
ið þegar Tyrkland og Brasilía mætast
í fyrsta leik C-riðils næstkomandi
mánudag.
,J2g skil ekki af hverju allir segja aö
ég þurfi að hafa svona miklar áhyggj-
ur af Ronaldo. Ég spila gegn frábær-
um framherjum eins og Jimmy Floyd
Hasselbaink, Emile Heskey, Dennis
Bergkamp og Thierry Henry í ensku
úrvalsdeUdinni um hverja helgi og
þarf því ekki að hræðast Ronaldo,"
sagði Alpay.
Zlatko Zahovic, helsta stjama Sló-
vena, hefur varað félaga sína 1 sló-
venska liöinu við hættunni sem
stafar af spænska framherjanum Raul
Gonzalez en Slóvenía og Spánn eru
saman í B-riöli heimsmeistarakeppn-
innar.
,Mérflnnst Raul vera besti leikmaö-
ur heims og hann getur farið Ula með
okkur ef við erum ekki á tánum,"
sagði Zahovic. -ósk
Ronaldo i barattu við leikmann
malasíska landsli&öins i æfinga
leik liðanna fyrir skömmu.
Brasilia vann leíklnn, 4-0, og
skoraði Ronaldo eitt mark.
Reuters
Ljungberg
meiddur
Ekki er vist að miðjumaður-
inn snjalli, Fredrik Ljungberg,
verði með Svíum á fyrsta leik
þeirra á HM á sunnudaginn gegn
Englending-
um. Ljung-
berg þurfti
að hætta á
æflngu í gær
vegna
meiðsla á
mjöðm og
viðurkenndi síðan að hann hefði
verið slæmur í rúma viku.
Læknar sænska liðsins telja þó
að Ljungberg verði klár fyrir
leikinn gegn Englendingum.
Ljungberg er sá leikmaður í
sænska liðinu sem Englendingar
hræðast mest enda lék hann frá-
bærlega með Arsenal á nýafstað-
inni leiktíð og Ijóst að þeir
myndu gráta fjarveru hans.
-ósk
Vieri verður
markakóngur
Fredrik Ljungberg
Hector Cuper, þjálfari Inter
Milan, hefur mikla trú á því að
framherji hans hjá Inter, ítalinn
Christian
Vieri, verði
markakóng-
ur heims-
meistara-
keppninnar í
sumar.
„Vieri er
og hefur allt
Christian Vieri
frábær framherji
sem hægt er að biðja um 1 einum
leikmanni. ítalska liðið er mjög
sterkt og það á eftir að koma
Vieri til góða. Hann á eftir að
skora mörg mörk og ég hef trú á
því að hann verði markakóngur
keppninnar," sagði Cuper. -ósk
Vill frekar spila
illa og vinna
Juan Sebastian Veron, miðju-
maður argentínska liðsins, segir
að það skipti engu máli hvemig
hann spili í heimsmeistara-
keppninni, svo lengi sem lið
hans vinnur keppnina.
„Ég vil frekar spila illa og
vinna í stað þess að spila vel og
detta fljótt út. Það besta væri að
sjálfsögðu að bæði mér og liðinu
gengi vel en liðið er það sem hef-
ur forgang,“ sagði þessi snjalli
leikmaður sem verður án efa
lykilmaður í argentínska liðinu í
sumar. -ósk
Elliðaárnar í Reykjavík:
Formaðurinn sá ekkert
„Hún styttist verulega biðin eftir að laxveiðin byrji
fyrir alvöru en við opnum Norðurá í Borgarflrði á
laugardaginn og þar hafa sést laxar á nokkmm stöð-
um,“ sagði Bjarni Ómar Ragnarsson, formaður Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur, er DV-Sport hitti
hann við Elliðaárnar í gær. Ekki var neinn
iax að sjá í fossinum þrátt fyrir að mikið
væri horft. Það er kannski fullsnemmt að
litast um eftir laxi í ánum en fiskar hafa þó
oft verið gengnir í árnar á þessum tíma.
„Maður veit ekki hvort laxinn er kominn
héma en að minnsta kosti sést hann ekki.
Ein og ein bleikja var að skjótast í fossin-
um. Það verður gaman að sjá hvernig veiðin
byrjar í Norðurá. Laxinn er allavega kominn
og við byrjum veiðiskapinn snemma á laug-
ardagsmorgun í ánni. Veðurfarið hefur ver-
ið gott og vatnið er flnt, skilyrðin em bara
mjög góð. Þetta er allt að fara á fleygiferð og
síðan verður hver laxveiðiáin opnuð af
annarri. Veiðar hefjast i Elliðaánum 15. júní
og það er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri sem opnar þær og vonandi verður
þá kominn lax hérna í fossinn," sagði Bjarni
Ómar Ragnarsson, formaður SVFR.
-G.Bender
Bjarni Ómar Ragnarsson, formaður SVFR, litast um ( Fossinum í
Elliðaánum í gær en enginn lax hefur sést. DV-mynd G.Bender
Rofar til í herbúðum Englendinga:
Beckham og Dyer
- líklega klárir fyrir fyrsta leik
Allt viröist vera að smella saman
hjá Englendingum fjórum dögum
fyrir fyrsta leikinn á HM gegn Sví-
um.
Kieron Dyer og David
Beckham, sem báðir hafa
átt við meiðsl að stríða,
æfðu báðir með liðinu í
gær og var það í fyrsta
sinn sem allir 23 leikmenn
liðsins æfðu saman síðan
liðið kom til Suður-Kóreu
til undirbúnings fyrir
keppnina.
Miklar vangaveltur hafa
verið um það hvort þessir
tveir leikmenn yrðu klárir fyrir
fyrsta leik en samkvæmt því sem
Steve McClaren, aðstoðarmaður
Svens Görans Erikssons, segir hafa
þeir báðir tekið miklum framfórum
undanfama daga.
„Beckham er í frábæru formi frá
náttúnmnar hendi og hann þarf
ekki að æfa í marga daga til að vera
klár í slaginn á sunnudaginn. Beck-
ham hefur lagt mikið á sig undan-
famar vikur og á tímabili
fannst honum eins og hann
væri að ganga í gegnum
nýtt undirbúningstímabil.
Það getur verið erfitt en
hann er sterkur karakter,"
sagði McClaren.
„Það var skemmtilegt að
sjá þá báða á æfingu og
brosið á Kieron eftir æfing-
una sagði allt sem segja
þarf. Hann hefur verið und-
ir miklu álagi að fá sig góð-
an af meiðslunum en það lítur vel
út hjá honum núna,“ sagði
McClaren og bætti við að hraðinn
og gæðin á æfingunni, þegar þeir
tveir vom með, hefði verið mun
meiri en á æfingunum á undan og
gleðin í hópnum var mikil.
-ósk
David Beckham