Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Page 6
6
ÞRIDJTJDAGUR 4. JÚNÍ 2002
I>V
Fréttir
Kristján
Þór.
Meirihluti B- og D-lista:
Vilja eigin
ráðgjafarstofu
um fjármál
£íýr málefna-
samningur meiri-
hluta framsókn-
armanna og sjálf-
stæðismanna hef-
ur verið sam-
þykktur á Akim-
eyri. í málefna-
samningnum er
m.a. kveðið á um
að stofnuð verði
ráðgjafarmiðstöð
um fjármál heimilanna á Akureyri
auk þess sem nýi meirihlutinn
hyggst beita sér fyrir auknu íbúa-
lýðræði. Þannig verði haldið íbúa-
þing Akureyrar og reynt að fá fram
sjónarmið ibúanna um framtíðar-
stefnumótun Akureyrar. Jafnhliða
verði unniö áfram að stofnun
hverfafélaga í öllum hverfum bæjar-
ins og vefsíða Akureyrarbæjar nýtt
svo íbúar geti komið skoðunum sín-
um á framfæri og fengið svör við
spumingum sem á þeim brenna.
Málefnasamningurinn var borinn
upp hjá flokkunum um helgina og
samþykktur samhljóða hjá báðum
aðilum. Fyrir liggur að Kristján Þór
Júlíusson verður áfram bæjarstjóri
og Jakob Björnsson, B-lista, formað-
ur bæjarráðs. Forseti bæjarstjómar
verður af D-lista en skipun í nefnd-
ir og ráð á vegum bæjarins verður
ekki tilkynnt fyrr en á næsta bæjar-
stjómarfundi, 11. júni nk.
Skv. heimildum DV fá framsókn-
armenn forræði yfir félagsmálunum
en sjálfstæðismenn framkvæmda-
umsýslu. -BÞ
Samfylkingin á NA:
Slagur
fram undan
Oktavía Jóhannesdóttir, leiðtogi
Samfylkingarinnar á Akureyri, seg-
ir að félag Samfylkingarinnar á Ak-
ureyri útOoki
ekki þátttöku í
alþingiskosn-
ingaslagnum
næsta ár. „Það er
ómögulegt að
svara þvf en við
efstu menn list-
ans ætlum að
minnsta kosti að
stuðla að því að
flokkurinn fái
góðan framgang hér í alþingiskosn-
ingunum," sagði Oktavía í samtali
við DV í gær.
Fyrir er Svanfríður Jónasdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar fyr-
ir Norðurland eystra, en með kjör-
dæmabreytingunni næsta ár bætast
tveir þingmenn við úr nágranna-
kjördæmunum í slaginn. Kristján
Möller kemur frá Siglufirði inn í
nýtt kjördæmi og Einar Már Sig-
urðarson frá Neskaupstað. „Þetta
verður hörkuslagur og það er
ákveðin krafa um að Akureyringar
fái inn þingmann," sagði einn odda-
maður Samfylkingarinnar í samtali
við DV.
Fjöldi kjósenda Samfylkingarinn-
ar strikaði nafn Oktavíu út af kjör-
seðli í kosningunum um síðustu
helgi og segist Oktavía hafa sinar
skýringar á því. Hins vegar vilji
hún ekki tjá sig opinberlega um það
mál að svo stöddu. -BÞ
Hvalamiðstöðin
opnuð
Hvalamiðstöðin á Húsavík verður
opnuð með formlegum hætti laugardag-
inn 15. júní nk. Von er á ýmsum ráða-
mönnum að sögn forstöðumanns s.s.
menntamálaráðherra og forseta Alþing-
is. Þá hefur sendiherrum Bretlands og
Japans verið boðið að koma og hefur
forstöðumaður spendýradeildar breska
náttúrufræðisafnsins í London þegið
boð Húsvíkinga. Flestir þingmenn kjör-
dæmisins eru einnig væntanlegir og
verður því mikið um dýrðir, að sögn Ás-
bjöms Björgvinssonar, forstöðumanns
Hvalamiðstöðvarinnar. -BÞ
50 ára fyrirtæki skiptir um eigendur:
íslensk Amer-
íska kaupir ORA
- áfram rekiö af fyrri eigendum
Hið þekkta matvælafyrirtæki
ORA, sem framleitt hefur ýmsar
niðursoðnar vörur, svo sem Lúxus
síld, grænar baunir og fleira, hefur
skipt um eigendur. Fyrirtækið er
50 ára á þessu ári en kaupandi er
íslensk Ameríska verslunarfélagið
hf.
Egill Ágústsson, framkvæmda-
stjóri íslensk Ameríska, staðfesti
þetta í samtali við DV í morgun.
„Þetta er öll starfsemin með hurð-
um og körmum sem við erum nú
búnir að kaupa og höfum við feng-
ið öll hlutabréfm afhent. Fyrirtæk-
ið verður rekið áfrarn meö
óbreyttu sniði af fyrri eigendum til
að byrja með. Það eru fjórar fjöl-
skyldur sem áttu þetta, allt fullorð-
ið fólk sem er afkomendur stofn-
endanna.
Við höfum tröllatrú á þessu fyr-
irtæki. Þama er mjög gott starfs-
fólk og það framleiðir góðar vörur
sem fara inn á hvert einasta heim-
ili á íslandi," sagði Egill Ágústs-
son. Hann sagði kaupverðið ekki
gefið upp, enda algjört trúnaðar-
mál.
Útflutningur er veigamikill þátt-
ur í rekstri fyrirtæksins. Hefur
Ora aukið umsvif sín á erlendum
mörkuðum umtalsvert á undan-
fomum 10-15 árum. Helstu fram-
leiðsluvörur fyrirtækisins til út-
flutnings eru hrogn og hrognaaf-
urðir, kavíar, fiskbollur, fiskisúp-
ur, síldarafurðir og lax- og skelfisk-
sósur.
Helstu markaðir fyrirtækisins
utan íslands em í Danmörku, Sví-
þjóð, Noregi, Englandi, Frakk-
landi, Belgíu, Þýskalandi, Austur-
ríki, Spáni, Ítalíu, Póllandi, Banda-
ríkjunum, Kína og Ástralíu.
Ora var stofnað árið 1952 af
Tryggva Jónssyni, Amljóti Guð-
mundssyni og Magnúsi J. Brynj-
ólfssyni sem nú eru allir látnir.
Fyrirtækið á 50 ára afmæli á þessu
ári og höfðu stofnendur það aö
markmiði að bjóða íslenskum
markaði upp á hágæða niðursuðu-
vörur. Hjá fyrirtækinu starfa í dag
um 45 starfsmenn og umboðsaðilar
eru um allt land. Framleiðsluvör-
urnar eru nú um 150 talsins og
framkvæmdastjóri er Magnús
Tryggvason. -HKr.
Úrslit á íslandsmótinu í fitness í uppnámi:
Hraustir menn á lyfjum
„Þetta er viðvörun til þeirra sem
standa að þessari íþrótt," segir Ellert
B. Schram, forseti íþróttasambands
íslands, um niðurstöðu lyflaprófunar
á íslandsmótinu í hreysti, eða fitness,
sem haldið var á Akureyri í lok
mars.
Efstu keppendur í hverjum flokki
undirgengust lyfjapróf og varð niður-
staðan sú að tveir í karlaflokki og ein
kona mældust með jákvæð sýni og
þar með á ólöglegum lyfjum. Vegna
þessa ríkir óvissa um úrslitin á mót-
inu.
Ellert segir það áhyggjuefni þegar
fólk sé að taka inn stera eða önnur lyf
í því skyni að bæta árangur sinn í
keppni.
„Því miður er sterum og fæðubótar-
efnum sem innihalda ólögleg efni
stöðugt haldið að fólki. Aðstandendur
mótsins óskuðu sjálfir eftir lyfiapróf-
un. Þeir vilja greinilega hafa hlutina í
lagi sem er góðra gjalda vert,“ segir
Ellert.
Hann segir að komi til þess að for-
svarsmenn Fitness-greinarinnar sæki
um aðild að ÍSÍ þá verði eflaust tekið
vel á móti þeim.
„En þeir verða að lúta ströngu eft-
irliti okkar og þeim reglum og skyld-
um sem gilda innan lSÍ,“ segir Ellert.
Auk þeirra sem leggja stund á fit-
ness eru kraftlyftingamenn utan lög-
sögu ÍSÍ og þar með ekki háðir lyfja-
eftirliti. -rt
DV-MYND NJORÐUR HELGASON
Frækið hús á ferð
Skátaheimiliö úr Hafnarfiröi áöi á Hellu. Heimamenn töldu aö nýr meirihluti í sveitarstjörn heföi brugöist svona snöggt
viö og komiö upp ráöhúsi. Reyndin var aö framsóknarmaöur úr Hafnarfiröi var þar á ferö meö húsiö sitt.
Skátaheimilið verður
bæði hótel og heilsulind
- segir Þorsteinn Njálsson læknir
Það vakti athygli vegfarenda sem
um Suðurland fóru um helgina, þetta
gamla hús sem dregið var af stórum
dráttarbíl um héruðin. Þama var á
ferðinni gamla skátaheimiliö í Hafn-
arfirði, sem Þorsteinn Njálsson, lækn-
ir og fyrrverandi bæjarfulltrúi úr
Hafnarfirði, er að flytja austur undir
Eyjafjöll. Húsið kom að Lambafelli
undir A-Eyjafjöllum í gærmorgun.
Ferðin þangað austur tók 3 nætur.
Það var flutt yfir Ölfusá um Óseyra-
brú, farið upp Skeið og Gnúpverja-
hrepp, yfir Þjórsá við Vatnsfell og nið-
ur Landveg.
„Fyrst og fremst er ég með þessu að
bjarga húsinu, það er að verða 100 ára
gamalt, var byggt árið 1903 af Ágústi
Flygenring og í því var rekin til
margra ára Edinborgarverslun sem
tengdist Edinborgarútgerð í Hafnar-
firði," sagði Þorsteinn Njálsson. Hús-
ið mun strax í næstu viku fá nýtt hlut-
verk undir Eyjafjöllum, því Þorsteinn
mun opna í því gistiheimili með 6
tveggja manna herbergjum og svefii-
pokaplássi í sal, undir nafninu Hótel
Edinborg
„Draumur minn hefur lengi verið
að geta blandað saman hefðbundnum
og óhefðbundnum lækningum og
vinna við það hér fyrir austan. Ég
vonast einnig til að lögum um heimil-
islækna verði breytt þannig að við
getum unnið sjálfstætt, án þess að
vera tengd heilsugæslustöðvum,"
sagði Þorsteinn. í haust áætlar hann
að byija með námskeið í hótelinu. „Ég
mun taka á móti fólki með heilsufars-
vandamál, fólki með líkamleg og and-
leg vandamál. Fólk er farið að viður-
kenna að heilsan; líkamleg, andleg og
sálræn, er mikils virði og öllum er
nauðsynlegt að hlúa sem best að
henni,“ sagði Þorsteinn Njálsson á
Lambafelli í gærkvöld. -NH
'iijJ sjíiyatiijj
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 23.38 23.23
Sólarupprás á morgun 03.13 02.59
Síðdegisflóð 13.54 18.37
Árdegisflóð á morgun 03.19 07.52
Veöriö í kvöli
Léttskýjað um land allt
Hæg norðaustlæg átt, austlægari í
nótt. Skýjað með austurströndinni í
dag en annars yfirleitt léttskýjað.
Hætt við þokubökkum við sjóinn
norðan til, einkum í nótt. Hiti 6 til
20 stig, hlýjast sunnanlands.
mm
Éjj fipfrjf'Ui
Suðlægar áttir
Snýst i suðlæga átt á morgun,
fyrst vestan til. Síðdegis á morgun
þykknar upp sunnan- og
vestanlands. Hiti 7 til 21 stig.
Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur
^3 d
HHi 8° Hití 8° Hiti 6°
tíl 38° til 20° til 17°
Víndun 8-13 m/s Vindur: 5-10 "V* Víndur: 5-10 "V*
Suölægátt, skýjaö og dátftil rigning SV- og V-lands. Annars skýjaö meö köflum. Áfram suttæg átt og skýjaö meö köflum. Hægari vlndur, elnkum N-lands. Hæg suölæg átt og rigning meö kóflum en þurrt NA- og A-lands.
3 t t
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviörí 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
AKUREYRI léttskýjað 4
BERGSSTAÐiR heiöskírt 6
BOLUNGARVÍK þokumóða 4
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 9
KEFLAVÍK heiðskírt 9
RAUFARHÖFN þokumóöa 3
REYKJAVÍK heiöskírt 7
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 8
BERGEN skýjað 18
HELSINKI skýjað 16
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 16
ÓSLÓ hálfskýjaö 18
STOKKHÓLMUR 20
ÞÓRSHÖFN súld 9
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 19
ALGARVE skýjað 16
AMSTERDAM skýjaö 14
BARCELONA alskýjaö 18
BERLÍN skýjaö 17
CHICAGO þokumóöa 17
DUBUN hálfskýjaö 10
HAUFAX skýjaö 9
FRANKFURT skýjaö 17
HAMBORG rigning 17
JAN MAYEN þoka 1
LONDON rigning 10
LÚXEMBORG alskýjaö 14
MALLORCA léttskýjaö 18
MONTREAL heiöskirt 8
NARSSARSSUAQ rigning 12
NEWYORK alskýjaö 12
ORLANDO alskýjaö 26
PARÍS skýjaö 16
VÍN skýjað 16
WASHINGTON alskýjaö 19
WINNIPEG heiöskírt 11
Ia;7.ViJ tliút-ii1