Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Síða 16
16 Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aðalritstjóri: Óli Bjórn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiósla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreífing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Höfuð í sandi Vinstri vængurinn í landsmálapólitikinni á íslandi er brotinn. Þaö sýnir nýjasta könnun DV. Hún staðfestir enn og aftur að vinstri öflin bíta ekki á stjórnarflokkunum. Vinstri grænir mælast vissulega enn þá ofan kjörfylgis, en fylgisþróun þeirra á siðustu mánuðum hlýtur samt að vera forvígismönnum flokksins mikið áhyggjuefni. Sýnu verri er staða Samfylkingarinnar. Að visu tekur formaður flokksins lítið mark á skoðanakönnunum DV. Hann telur einfaldlega að þær mæli flokkinn ákaflega illa. Viðbrögð formannsins eru einkar athyglisverð. Hann kýs að gera lítið úr könnun blaðsins og telur sig geta talað þar af reynslu. Orðrétt segir formaðurinn í DV í gær: „Reynslan sýnir að Samfylkingin hefur mikla meira fylgi en kannanir DV sýna.“ Það var og. Og þar með er væntan- lega ljóst að kannanir blaðsins á fylgi eins af helstu stjórn- málaflokkum landsins hafa sýnt hreina og klára vitleysu í árafjöld. Einu gildir þó sömu kannanir komist gjarna næst úrslitum í kosningum. Þær eru samt vitlausar! Það getur verið þægilegt að stinga höfðinu i sandinn. Formaður Samfylkingarinnar stakk reyndar höfðinu upp þegar talið var upp úr kjörkössunum i nýliðnum mánuði, enda var árangur flokksins með ágætum víða í bæjum og borg - og reyndar glæsilegur á stöku stað. Það breytir ekki þeirri staðreynd að Samfylkingin hefur ekki náð að festa sig í sessi þau þrjú ár sem hún hefur starfað í lands- málum. Það sýna nær allar kannanir DV sem formaður Samfylkingarinnar tekur litið mark á. Miklar væntingar voru gerðar til Samfylkingarinnar i aðdraganda kosninganna 1999. Þá var hugur í jafnaðar- mönnum, enda virtist stór hluti þjóðarinnar vera á bandi þess nýja flokks sem verið var að stofna. Könnun DV sem birtist 18. mars, hálfum öðrum mánuði fyrir þingkosning- ar, gaf til kynna að góður þriðjungur kjósenda myndi gjalda Samfylkingunni atkvæði sitt þá um vorið. Þessi könnun gaf mikil fyrirheit. En vafalítið var hún jafn vit- laus og aðrar mælingar DV á sama flokki. Það kom enda á daginn að Samfylkingin fékk tíu pró- sentum minna fylgi í vorkosningunum 1999 en flokknum hafði verið spáð i mars það sama ár. Svo virðist sem kosn- ingabarátta flokksins siðustu vikurnar fyrir kjördag hafi mistekist. Kannanir DV siðustu daga fyrir kjördaginn sýndu það svart á hvitu að byrinn frá því í mars hafð snú- ist í mótvind. Þrjár siðustu kannanir blaðsins fyrir kjör- dag sýndu að rétt rífur fjórðungur kjósenda myndi kjósa Samfylkinguna. Og það gekk algerlega eftir. Fylgismælingar á Samfylkingunni frá síðustu alþingis- kosningum sýna miklar sveiflur. Þær sýna öðru fremur að línan hefur legið niður á við frá því flokkurinn mældist með meira en 35 prósenta fylgi í mars 1999. Aðeins einu sinni hefur flokkurinn mælst ofan kjörfylgis í þeim þrett- án könnunum sem DV hefur gert á fylgi flokkanna frá síð- ustu þingkosningum en það var i janúar á síðasta ári þeg- ar flokkurinn mældist með 27 prósenta fylgi. En ef til vill var það jafn röng mæling og hver önnur. Samfylkingin hefur haft þrjú ár til að sanna sig í ís- lenskri pólitik. Á þeim tima hefur stuðningur við þessa stjórnmálahreyfingu verið frá 13,5 prósentum og upp í kjörfylgi hennar. Á þessum þremur árum hefur fylgi Sam- fylkingarinnar að jafnaði mælst vera innan við fimmtung, eða sem nemur 18,5 prósentum. Flokkurinn mælist því þráfaldlega vera hálfdrættingur á við það sem hann vildi verða. Samfylkingarfólk hlýtur að spyrja hvað sé að. Nema það hugsi eins og formaðurinn. Sigmundur Ernir ___________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 DV Skoðun Vetrarvertíðin nærri horfna Samkvæmt fornri venju hófst vetrarvertíð hinn 4. febrúar ár hvert og iauk hinn 11. maí. Vetrarvertíð markaði ákveðin tímamót vegna þess að hún var einn helsti uppgripatími ársins í strandbyggðum sunnanlands og vestan alit frá Hornafirði, ef ekki enn austar, og vestur til Súðavíkur. Fyrir tiltölulega fáum árum kom stór hluti botníiskafla íslendinga á land á vetrarvertíð sem bátafiskur, veiddur að mestu í net, á línu, færi eða í botnvörpu. Veiðar i dragnót voru almennt ekki stundaðar fyrr en komið var fram á sumar. Stærri bátarnir hófu humarveiðar og þeir minni rækjuveiðar áður en vetrar- vertíð lauk. I lok vetrarvertiðar verður nokkur breyting á veiðar- færanotkun bátaflotans - lína og net eru tekin upp og hafnar veiðar i botnvörpu og reknet í ríkari mæli, auk þess sem humarveiðar aukast, en eins og við er að búast er ávallt töluverður botnfiskafli með- afli humars. Það var síðan ekki fyrr en kom fram á haust að bátar sem höfðu stundað netaveiðar á vetranærtíð og skipt yfir í botnvörpu yfir sum- arið hófu aftur veiðar í net. Hið venjubundna vertiðarmynstur bátaflotans heflr því verið marg- breytilegt; ráðist af aðstæðum og hefð hverju sinni. Óljóst er þó hvort alltaf hafi náðst hámarks- afrakstur miðað við veiðarfæra- notkun sem getur hafa stafað af breytilegum umhverfisþáttum frá ári til árs. Þannig gat netaveiði ver- ið dræm eitt árið þótt vel hafi veiðst á línu og öfugt. Kannanir hafa þó sýnt að einstök ár hefði einsleitt veiðarfæramynstur hentað bátaflotanum best, eða einstökum stærðarflokkum báta. Afkoma stóru bátanna sem stunduðu neta- veiðar gat verið betri en báta sömu stærðar sem reru með línu á með- an hið þveröfuga átti við um minni skip. Þegar kom fram á sumarver- tíð var hugsanlegt að þeir bátar sem stunduðu almennar botnfisk- veiðar ættu að halda sig við vörpuna, að undanskildum þeim allra minnstu sem höfðu tekið upp netin. Hagur þeirra væri best tryggður með veiðum á línu. Að hausti gat sú staða komið upp að fyrir alla flokka báta væri línan hagkvæmasti kosturinn nema fyrir þá er hugðu á síldveiðar. Skyldu þeir veiða í dragnót. Reknetum ætti helst ekki að dýfa í sjó. Öldin önnur Nú er öldin önnur þar sem afli báta hefir minnkað verulega frá því sem áður var og er kvótabundinn að auki. Forsendur eru því allt aðr- ar en við skilyrði frjálsra veiða. Vart fer fram hjá nokkrum að flsk- veiðar íslendinga eru komnar að krossgötum. Tölur um aflamark, stofnstærð botnfiska, aldursdreif- ingu afla og dánarstuðla segja sína sögu. Á einhvem hátt verður að bregðast við minnkandi afrakstri mikilvægustu fiskstofna okkar. Hinn mikli arður sem íslensk fiski- mið geta gefið af sér hefir á óskilj- anlegan hátt glutrast niður. Vart er við neinn einn að sakast. Eflaust á brottkast hlut að máli, veiðar á loðnu annan hlut og kostnaður við kvótakaup hinn þriðja. Deilt er um þátt hvala og vistvænar veiðar. Afdrifaríkasta atriðið gæti þó verið það að ákveðið veiðimynstur henti best við botnfiskveiðar. Það er að afla hlutfallslega mest á vetr- arvertíð sunnan lands og vestan með bátaflota, þó að teknu tilliti til dreifingar hráefnis til vinnslu í landi, að svo miklu leyti sem hún er enn fyrir hendi því víða er vinnsla sjávarafurða vart nema svipur hjá sjón. Mjög hefir hallað undan fæti fyrir henni á suðvestur- homi landsins. Á höfuðborgar- svæðinu var t.d. töluverð land- vinnsla til ekki mjög langs tíma en nú hafa vinnslustöðvar horfið af sjónarsviðinu eða þeim verið breytt. Þar sem áður var frystihús Júpíters og Marz á Kirkjusandi eru nú höfuðstöðvar íslandsbanka. „Á einhvern hátt verður að bregðast við minnkandi afrakstri mikilvægustu fisk- stofna okkar. Hinn mikli arður sem íslensk fiskimið geta gefið af sér hefir á óskiljanlegan hátt glutrast niður. “ Sandkorn Forseti án öryggisvarða Þegar Helgi Tómasson ballett- meistari var gerður að heiðurspró- fessor við Juilliard- háskól- ann í New York á dögunum mætti Ólafur Ragnar Gríms- son, for- seti ís- lands, til að vera við athöfnina. Mikil tauga- veiklun greip um sig þegar forset- inn kom inn af götunni ásamt Dor- rit Moussaieff, heitkonu sinni. Fjöldi starfsmanna skólans annað- ist undirbúning og framkvæmd at- hafnarinnar og margir þeirra supu hveljur þegar forsetinn dúkkaði upp. Þeir hafa af því reynslu að taka á móti bandarískum þing- mönnum sem ráðherrum og erlend- um stórmennum og þá þarf að við- hafa stranga öryggisgæslu og ráð- stafanir. En Ólafur Ragnar dúkkaði bara upp án öryggisvarða. Hann var settur í heiðursstúku en sjá mátti fóla upplýsingafulltrúa á stjákli í kring... Jón Baldvin í firamboð? Vaxandi líkur eru taldar á því að Jón Bald- vin Hanni- balsson, sendi- herra ís- lands í Banda- ríkjunum, leggi í kosninga- slag fyrir næstu þingkosn- ingar. Innan Samfylkingar eru há- værar raddir um að Össur Skarp- héðinsson formaður fylgi eftir nið- urstöðu þingkosninganna og stilli upp stórskotaliði fyrir kosningar. Jón Baldvin fari í Reykjaneskjör- dæmi en Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri og Össur svili hennar verði hvort sínum megin í Reykjavík. Innan úr Samfylkingu heyrist að Jón Baldvin sé alls ekki neikvæður en borgarstjóri spyrni nokkuð við fótum í sigurvímunni að afloknum kosningiun ... Alvöruvöllur KR-ingar eru stoltir af knatt- spymuvelli sínum i vesturbænum sem kemur iðjagrænn undan vetri. Stúkan í austri er til vitnis um stór- hug röndóttra og öll umgjörð á leikjum félagsins í efstu deild karla og kvenna er með miklum glæsi- brag. Fjöldi starfsmanna kemur að hverjum leik, þar á meðal gæslumenn sem þykja taka starfa sinn alvar- lega, jafnvel full alvar- lega. Þannig voru ljósmyndarar dagblaðanna reknir btut af vellinum á sunnu- dagskvöld þegar þar áttust við KR- ingar og KA-menn. Þetta vakti at- hygli, enda alþekkt sjón að sjá ljós- myndara vappa eftir endalínunni til að fanga þar augnablik leiksins. Nei, ekki á KR-vellinum. Þar mega ljósmyndarar dúsa uppi í stúku. Þeir segjast hvergi í heiminum hafa kynnst strangari öryggisregl- um, jafnvel ekki á HM ...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.