Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Blaðsíða 20
20
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_____________________
Jón Kristlnsson,
Hásteinsvegi 26, Stokkseyri.
85 ára________________
Elín Guðmundsdóttir,
Ánahlíð 2, Borgarnesi.
Gróa Guðmundsdóttir,
Álftártungu, Borgarnesi.
80 ára_________________________
Helga Stefánsdóttir,
Miðgarði 2, Egilsstöðum.
Jón G. Hermanníusson,
Efstahjalla 25, Kópavogi.
Ólafur Pétur Jensen,
Hæðargarði 29, Reykjavík.
75ára_________________________
Anna Guðrún Guðmundsdóttir,
Sólheimum 25, Reykjavík.
Jóhann Gunnar Guðmundsson,
Snorrabraut 52, Reykjavík.
Sigríður Stefánsdóttlr,
Borgarholtsbraut 47, Kópavogi.
Þormóður Helgason,
Karfavogi 40, Reykjavík.
Þórdís Sigurðardóttir,
Álfhólsvegi 26a, Kópavogi.
70 ára________________________
Gunnar Jónsson,
Hrísateigi 39, Reykjavík.
Hulda Jóhannsdóttir,
Núpalind 6, Kópavogi.
60 ára________________________
Helga Benediktsdóttir,
Jökulhæð 2, Garðabæ.
Öm Ásgeirsson,
Fannarfelli 8, Reykjavík.
50 ára________________________
Anna BJömsson,
Blátúni 1, Bessastaöahreppi.
Gyða Guðmundsdóttir,
Baröaströnd 51, Seltjarnarnesi.
Heiðar Karl Ólafsson,
Skarðshlíö 36b, Akureyri.
Margrét Anna Pálmadóttir,
Skipasundi 58, Reykjavík.
Rögnvaldur Jónsson,
Norðurtúni 17, Siglufirði.
Sara Hafsteinsdóttir,
Látraströnd 8, Seltjarnarnesi.
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir,
Álfatúni 27, Kópavogi.
Sigurður Kristján Runólfsson,
Mosabarði 12, Hafnarfiröi.
Úlrik Ólason,
Hrauntungu 56, Kópavogi.
40ára_____________________________
Peter Máté,
píanóleikari,
Skólagerði 7, Kópavogi.
Eiginkona hans er Lenka Mátéová
Uhlírová, organisti og kórstjóri.
Anna Lísa Guðmundsdóttlr,
Hraunbæ 132, Reykjavík.
Anna Sigríður Magnúsdóttir,
Ljósulind 10, Kópavogi.
Bjarney Aðalhelður Pálsdóttir,
Logafold 28, Reykjavík.
Einar Vilhjálmur Hálfdánarson,
Hólsgötu 7, Neskaupstaö.
Jóhanna Magnea Þórisdóttir,
Stigahlíð 36, Reykjavík.
Katrín M. Þorbjörnsdóttir,
Stapasíðu 17a, Akureyri.
Smáauglýsingar
550 5000
Andlát
Lars Erlc Hallbeck tæknifræðingur,
Skipasundi 74, Reykjavík, lést á heimili
sínu miövikud. 29.5.
Ólafur S. Ólafsson kennari, Miðleiti 5,
Reykjavík, andaðist á Landspítalanum
Fossvogi miövikud. 29.5.
Kristín Ó. Sigurðardóttir, Grýtubakka
32, Reykjavík, lést að kvöldi fimmtud.
16.5. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Elísabet Jónsdóttir, Laufásvegi 61,
Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sól-
túni föstud. 10.5. sl. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey.
Guðlaug G. Guðlaugsdóttir, Hrafnistu,
Reykjavík, áður til heimilis í Efstalandi
10, lést á Hrafnistu fimmtud. 30.5.
Bergþóra (Lóa) Valdimarsdóttir, Sól-
heimum 27, Reykjavík, lést á Landspít-
ala Hringbraut fimmtud. 30.5.
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002
DV
Níræður
Sigurgestur Guðjónsson
bifvélavirkjameistari í Kópavogi
Sigurgestur Guðjónsson, meistari
í bifvélavirkjun,’ Vogatungu 33,
Kópavogi, verður níræður á
morgun.
Starfsferill
Sigurgestur fæddist á Stokkseyri
og ólst þar upp til fjórtán ára aldurs
er hann flutti á Grímsstaðaholtið í
Reykjavík.
Eftir almenn störf á unglings-
árum réð Sigurgestur sig á bifreiða-
verkstæði Jóhanns Ólafssonar & Co
að Hverfisgötu 18 haustið 1929.
Jóhann hafði þá umboð fyrir bíla
frá General Motors (Chevrolet og
fleiri tegundir). Þar vann Sigur-
gestur samfleytt til 1956, í 27 ár,
síðari árin sem verkstjóri. Eftir það
vann hann við uppherslu og
stUlingar nýrra bíla hjá Bifreiðum
og landbúnaðarvélum um árabil og
ók jafnhliða á Sendibílastöðinni hf.
Á sjöunda áratugnum og fram á
þann áttunda var Sigurgestur einatt
kallaður til sem dómkvaddur
matsmaður og meðdómsmaður í
Borgardómi Reykjavíkur í málum
sem vörðuðu bifreiðir. Var það
drjúgur starfi þar sem sérþekking
hans og áralöng reynsla nýttist vel.
Árið 1965 hóf hann jafnframt að
meta bifreiðatjón fyrir Bruna-
bótafélag íslands hf., í litlum mæli
framan af, en er leið á áttunda
áratuginn og á þeim níunda var það
aðalstarf hans, síðustu árin fyrir
Vátryggingafélag íslands hf. Því
sinnti hann þar til hann hætti
fostum störfum snemma árs 1990
eftir að hafa starfað við bíla með
einum eða öðrum hætti í full sextíu
ár.
Sigurgestur var rúmlega tví-
tugur, 1935, er þeir menn sem unnu
að bílaviðgerðum í Reykjavík
stofnuðu með sér félag í því skyni
að afla sér formlegra iðnréttinda og
koma fram sem samningsaðili við
vinnuveitendur sína. Þeir stofnuðu
með öðrum orðum iðngreinina
bifvélavirkjun. Sigurgestur var einn
þeirra og var meðal fjögurra fyrstu
manna hérlendis til að gangast
undir sveinspróf í iðngreininni í
ársbyrjun 1936.
Á fyrsta starfsári Félags bifvéla-
virkja var Sigurgestur kosinn ritari
þess og gegndi því embætti óslitið í
aldarfjórðung, til 1960 er hann tók
við formannsstarfinu. Þegar hann
gaf ekki lengur kost á sér til þess,
1976, hafði hann setið í stjórn
félagsins í rúma fjóra áratugi og var
kjörinn heiðursfélagi þess.
Sem einn af forystumönnum
bifvélavirkja var Sigurgestur
kjörinn til að sitja fjölmörg Alþýðu-
sambandsþing, hann var jafnframt í
forystusveit við gerð kjarasamninga
fyrir félaga sína og fulltrúi í stjórn
Málm- og skipasmiðasambands
íslands og lífeyrissjóðs þess. Hann
sat enn fremur í stjórn Sendi-
bílastöðvarinnar hf. í rúma tvo
áratugi. Sigurgestur var meðal
stofnenda Stokkseyringafélagsins í
Reykjavík 1943 og gegndi trúnaðar-
störfum fyrir það um langt árabil,
var m.a. gjaldkeri þess 1955-66.
Fjölskylda
Sigurgestur kvæntist 10.6. 1933
Vigdísi Hansdóttur, f. 3.9. 1911, d.
27.2.1978, húsmóöur og prjónakonu.
Hún var dóttir Sesselju Engilrósar
Helgadóttur, f. 3.1 1889, d. 16.9 1962,
húsmóðir og fiskverkakona, og
Hans Sigurbjömsson, f. 8.8 1878,
sjómaður, fórst með togaranum
Gullfossi í lok febrúar 1941. Þau
bjuggu í Hafnarfirði og þar ólst
Vigdís upp með systkinum sínum.
Sesselja var af Setbergsætt, dóttir
Sigríðar Jónsdóttur, Guðmunds-
sonar á Setbergi. Hans fæddist í
Kjalardal í Borgarfiröi.
Böm Sigurgests og Vigdísar:
Hans Sigurgestsson, f. 10.10 1932, d.
20.2 1934; Hans Sigurgestsson, f. 11.7
1935, d. 26.3 1937; Hörður
Sigurgestsson, f. 2.6. 1938, fyrrv.
forstjóri, kvæntur Áslaugu Þ.
Ottesen, f. 1940 og eru böm þeirra
Inga, f. 1970, og Jóhann Pétur, f.
1975; Sigrún Sigurgestsdóttir, f. 28.1
1941, skrifstofumaður, gift Guðlaugi
B. Sumarliðasyni, f. 1931 og em
böm þeirra Sigurgestur, f. 1975, og
Tómas Vignir, f. 1978; Ásgeir
Sigurgestsson, f. 3.5 1947,
framkvæmdastjóri, kvæntur Stef-
aníu Harðardóttur, f. 1948 en
fósturböm þeirra em Ásta Sigriður
Guðmundsdóttir, f. 1964 og Hörður
Þórhallsson, f. 1967 en dóttir þeirra
Ásgeirs og Stefaníu er Vigdís, f.
1986; Ásdís Sigurgestsdóttir, f. 29.1.
1949, verslunarmaður, gift Þórami
Klemenssyni, f. 1947 og eru böm
þeirra Vigdís, f. 1973 og Ámý, f.
1979.
Hálfsystur Sigurgests, samfeðra,
vom Sólborg Guðjónsdóttir, f. 11.6.
1893, d. 5.8 1978; Guðrún Valgerður
Guðjónsdóttir, f. 24.6. 1896, d. 22.1.
1988.
Alsystkini Sigurgests vom
Áslaug Guðjónsdóttir, f. 13.7.1902, d.
13.3. 1989; Páll Guðjónsson, f. 23.7.
1904, d. 25.6. 1959; Hólmfríður
Guðjónsdóttir, f. 2.11. 1906, d. 11.3.
1991.
Foreldrar Sigurgests vom Guðjón
Jónsson, f. 8.12. 1870, á OrmsveÚi í
Hvolhreppi, d. 25.3 1952 í Reykjavík,
vinnumaður, sjómaöur, verka-
maður, brúarvörður við Þjórsá o.fl.,
og Jóhanna Jónína Jónsdóttir, f.
23.9. 1872, að Efstadal i Laugar-
dalshreppi, d. 8.7. 1960, í Reykjavík,
húsmóðir.
Guðjón og Jóhanna hófu búskap
að Hólmi á Stokkseyri 1902, en
fluttu á Grímsstaðaholtið í Reykja-
v’ík 1926 og byggðu sér húsið Stað
við Bjarnastaði.
Sigurgestur verður að heiman á
afmælisdaginn.
Margrét Hauksdóttir
lögfræðingur og aðstoðarforstjóri Fasteignamats ríkisins
Margrét Hauksdóttir, lögfræðing-
ur og aðstoðarforstjóri Fasteigna-
mats ríkisins, Laugarásvegi 9,
Reykjavík, varð fertug í gær.
Starfsferill
Margrét fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún var skiptinemi á
vegum AFS í Kalifomíu í Banda-
ríkjunum 1979-80, stundaði nám við
Corcoran High School í Corcoran í
Kalifomíu, lauk stúdentsprófi frá
MS 1983 og lauk embættisprófi í lög-
fræði frá HÍ 1989.
Margrét hóf störf hjá dómsmála-
ráðuneytinu 1989, var skipuð deild-
arstjóri þar 1993, vann viö starfs-
nám hjá aðalskrifstofu EFTA í Genf
1992-93 og var þá í leyfi frá störfum
í ráðuneytinu þann tíma, var
stundakennari við lagadeild HÍ
1994-99, var settur sýslumaður á
Hólmavík 1997, varð framkvæmda-
stjóri lögfræði- og rekstrarsviðs
Fasteignamats ríkisins 2000 og er
aðstoðarforstjóri þar frá 1.2. 2002.
Margrét hefur átt sæti í ýmsum
nefndum á vegum nokkurra ráðu-
neyta, er formaður ættleiðingar-
nefndar, situr í Flóttamannaráði frá
1999, var ritari siíjalaganefndar ad
hoc 1994-99, ritari nefndar um mál-
efni samkynhneigðra, endurskoð-
andi Minningargjafasjóðs Lands-
spítala íslands 1989-95, í Happdrætt-
isráði SÍBS frá 1997, sat í stjóm
Stéttarfélags háskólamenntaðra
starfsmanna stjómarráðsins 1993-99
og sat í foreldraráði Vogaskóla
1998-2001.
Fjölskylda
Margrét giftist 18.6. 1988 Hannesi
Guðmundssyni, f. 21.3. 1962, raf-
magnsverkfræðingi og aðstoöar-
framkvæmdastjóra Rafteikningar.
Hann er sonur Guðmundar Hannes-
sonar, fyrrv. verkstjóra hjá Rarik,
og k.h., Sólveigar Halblaub sjúkra-
liða.
Böm Margrétar og Hannesar eru
Hildur Rut Hannesdóttir, 13.8. 1984,
nemi við MS; Haukur Hannesson,
13.11. 198ð, grunnskólanemi; Jón
Ágúst Hannesson, f. 5.5.1995, grunn-
skólanemi.
Systkini Margrétar eru Jón
Haukur Hauksson, f. 5.8. 1952, bú-
settur í Reykjavík; Brandur Hauks-
son, f. 14.1.1961, rafmagnsverkfræð-
ingur, búsettur í Kaupmannahöfn;
Ólafur Þór Hauksson, f. 10.3. 1964,
sýslumaður á Akranesi, búsettur á
Akranesi; Kristín Hauksdóttir, f.
24.5. 1966, myndlistarmaður, starfar
hjá Ljósmyndasafni Reykjavikur,
búsett í Reykjavík.
Foreldrar Margrétar eru Haukur
Haraldsson, f. 13.5.1931, fyrrv. deild-
arstjóri við Tryggingastofnun ríkis-
ins, og k.h., Auður Jónsdóttir, f.
12.11. 1930, húsmóðir.
Ætt
Haukur er sonur Haralds Guð-
mundssonar, forstjóra Trygginga-
stofnunar, alþm. og ráðherra, og
Jónu Margrétar Brandsdóttur.
Auður er dóttir Jóns Breiðfjðrð
Níelssonar, b. og vitavarðar í Elliða-
ey, Kristínar Pálsdóttur.
Margrét og Hannes halda sameig-
inlega upp á afmæli sín síðar.
Hreiðar Valtýsson útgeröarmaður,
Bjarmastíg 4, Akureyri, verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju þriöjud. 4.6. kl.
13.30.
Ragnar Ólafsson, bóndi á Birnufelli í
Fellum, verður jarðsunginn frá Áskirkju í
Fellum þriðjud. 4.6. kl. 14.00.
Guðlaugur Ægir Magnússon, Sigtúnum
13, Selfossi, veröur jarösunginn frá Sel-
fosskirkju þriðjud. 4.6. ki. 13.30.
Svanur Jónsson, Langholtsvegi 187,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju þriöjud. 4.6. kl. 13.30.
Grétar Hjartarson, fyrrv. skipstjóri, Lind-
arbyggð 12, Mosfellsbæ, veröur jarö-
sunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikud. 5.6. kl. 10.30.
Ellen Þóra Snæbjörnsdóttir, Stífluseli 8,
veröur jarösungin frá Hallgrímskirkju
fimmtud. 6.6. kl. 13.30.
Merkir Islendingar
Pétur Jens Thorsteinsson, útgerðarmað-
ur og stórkaupmaður, fæddist 4. júní
1854, sonur Þorsteins Þorsteinssonar,
bónda í Æðey, og Höllu Guðmundsdótt-
ur úr Helgafellssveit. Eiginkona Péturs
var Ásthildur, systir Muggs myndlist-
armanns. Hún var dóttir Guðmundar
Einarssonar, prests á Kvennabrekku,
bróður Þóru, móður Matthíasar
Jochumssonar. Meðal bama Péturs og
Ásthildar voru Muggur myndlistar-
maöur, Katrín, kona Eggerts Briem i '
Viðey, móðir Eggerts Briem stærðfræði-
prófessors, Eiríks Briem, framkvæmda-
stjóra Landsvirkjunar, og Péturs Thor-
steinsson sendiherra, Borghildur, amma
Ólafs B. Thors framvkæmdastjóra.
Pétur Jens Thorsteinsson
Pétur var einn helsti athafna- og framfara-
maður hér landi á árunum 1880-1910. Hann
rak þilskipaútgerð og verslun á Bíldudal
1880-1902, hafði þar mikið umleikis og
reisti þar griðarleg mannvirki á þeirra
tíma mælikvarða, s.s. hafskipabryggju,
vamargarð, vatnsveitu og íshús.
Pétur var síðan stórkaupmaður í
Kaupmannahöfn um nokkurt skeið.
Hann stofnaöi árið 1907, ásamt Thor
Jensen og nokkmm dönskum aðilum,
hið fræga Milljónafélag, P.J. Thor-
steinsson og Co, en það varð gjaldþrota
1914 og tapaði Pétur á því stórfé.
Þá gerði hann út togara frá Reykjavík og
Sandgerði. Hann var búsettur í Hafnarflröi
siðustu æviár sín og lést 27. júlí 1929.