Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 Blanco tryggði sigurinn Mexíkó vann Króatíu, 1-0, í gær í fyrsta leik G-riðils á HM í knattspymu. Það var framherjinn Cuauhtemoc Blanco sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 60. minútu eftir að Boris Zivkovic hafði brotið á honum og uppskorið fyrsta rauða spjald keppninnar. Mexíkóar voru sterkari aðilinn í leiknum, sérstaklega eftir að þeir voru einum manni fleiri, og hefðu getað bætt við fleiri mörkum áður en yfir lauk. -ósk j<^REA|APAN Þýski midjumaðurinn Michael Ballack er sannfærður um að Þýska- land muni sýna styrk sinn gegn ír- um á morgun. „Við spiluðum vel gegn Sádi Arabíu og ég hef trú á því að við spilum jafn vel gegn baráttu- glöðum Irum. Það verður erfiður leik- ur en við erum með frábært lið,“ sagði Ballack. Allt bendir til þess að vamarmaður- inn sterki Roberto Ayala og framherj- inn Claudio Caniggia verði í byrjun- arliði Argentínu gegn Englendingum á fostudaginn. Þeir misstu báðir af fyrsta leik Argentínumanna á HM gegn Nígeríu vegna meiðsla en eru búnir að ná sér. Franski snillingurinn Eric Cant- ona hefur ekki mikla trú á því að landar hans nái að verja heims- meistaratitil sinn að þessu sinni. Cantona sagði í við- tali viö bresku sjónvarps- stöðina SkySport að hann hefði miklar áhyggjur af mið- vörðum franska liðsins, þeim Marcel Desailly og Frank Le- boeuf. „Þú vinnur ekki ekki heimsmeist- arakeppnina með lélegum varnar- mönnum. Desailiy og Leboeuf eru ekki nógu góðir og það á eftir að fella franska liðiö,“ sagði Cantona. Cantona, sem hefur skoðanir á flest- um hlutum og er óhræddur við að láta þær heyrast, lét þess einnig getið í sama viðtali að hann teldi að Roy Keane væri of mikill atvinnumaöur fyrir trska liðið. „Þeir skilja hann ekki því hann er of mikill atvinnu- maður fyrir írsku áhugamennina. Ég vona að þeir læri það í fram- tíðinni að þeir eiga hlusta á leik- menn eins og hann og fara eftir því sem þeir segja,“ sagði Cant- ona Frakkar geta andaö rólegar því þeirra mikilvægasti leikmaður, Zinedine Zidane, sparkaði í bolta í fyrsta sinn í gær frá því að hann meiddist aftan á læri fyrir rúmri viku. Menn þar á bæ vonast nú eftir að hann verði orðinn leikfær þegar Frakkar mæta Úrúgvæum á fimmtudaginn en það kom glögg- lega í ljós gegn Senegal í fyrsta leik Frakkanna hversu mikilvæg- ur hann er. Roger Lemerre, þjálfari franska liðs- ins, hefur sagt í viðtölum að það væri kraftaverk ef Zidane yrði með gegn Úrúgvæ og Zidane sjálfur segist ekki ætla að spila nema að hann verði orðinn alheill. „Ég vona að sjálfsögöu að ég veröi orðinn heill fyrir leikinn á fimmtudaginn en það verður bara að koma í ljós. Ég ætla ekki að plata neinn. Ef ég get ekki beitt mér að fuilu þá mun ég ekki spila. Þá er betra að einhver félaga minna spili. Frakk- land hefur áður unnið leik annarra leikmanna og mun gera það aftur,“ sagði Zinedine Zidane í viðtali við franska fjölmiðla. -ósk Svöruðum spurningum - sagði Giovanni Trappatoni, þjálfari ítala, eftir leikinn Giovanni Trappatoni, þjálfari ítalska landsliðsins, var hæst- ánægður með sína menn eftir sigur á Ekvador, 2-0, í fyrsta leik liðsins í G-riðli í gær. „Ég verð að segja að með leik okkar i fyrri hálfleik svöruðum við spurningum þeim sem italskir fjölmiðlamenn spurðu mig að í gær um það hvemig við myndum spila leikinn. Ég sagði þeim að við gætum ekki beðið eftir því að Ekvadorar myndu sækja á okkur og því yrðum við að geta sótt á þá. Og þannig varð það. Við spiluðum mjög vel í fyrri hálfleik en í þeim síðari misstum við hraða í leik okkar en það mátti svo sem búast við þvi. Það er erfitt að byrja keppnina á leikvangi eins og í Sapporo. Rakinn og þakið yfir vellinum gerði það verkum að erfitt var að ná andanum," sagði Trappatoni. „Ég er búinn að vinna með mínum leikmönnum síðan 11. maí og ég var mjög ánægður með þá í leiknum." Trappatoni breytti um leik- aðferð frá því í undankeppn- inni. Hann spilaði leikaðferðina 3-4-1-2 alla undankeppnina með Francesco Totti sem frjálsan mann fyrir aftan framherjana tvo en gegn Ekvador mætti hann til leiks með fjögurra manna vöm, fjögurra manna miðju og tvo sóknarmenn, þá Totti og Christian Vieri. „Knattspyrnan er þannig að menn þurfa að bregðast við breyttum aðstæðum og það get- ur vel verið að við spilum ein- hverja allt aðra leikaðferð í næsta leik. Menn verða að vera viðbúnir hverju sem er,“ sagði Trappatoni glaður í bragði eftir leikinn Vorum ekki tilbúnir Hernan Dario Gomez, þjálfari Ekvadora, viðurkenndi eftir leikinn að lið hans hefði ekki verið tilbúið til að mæta ítölum. „Þetta var mjög erfiður leik- ur. Það er erfitt að mæta til leiks í fyrsta sinn í heimsmeist- arakeppninni og mæta Itölum í fyrsta leik. Leikmenn mínir voru mjög táugaveiklaðir og þeir voru ekki tilbúnir en við stóðum okkur ágætlega í seinni hálfleik og tökum það með okk- ur í næstu leiki,“ sagði Dario Gomez og bætti við að ítalska liðið væri mjög gott og senni- lega það sterkasta i allri keppn- inni ásamt Argentínumönnum. „Það er engin skömm fyrir okkur að tapa fyrir ítaliu. Þetta hefði getað endað mun verr en fyrir guðs mildi þá tóku mínir leikmenn sig saman í andlitinu í seinni hálfleik. Þetta var stór dagur í knattspyrnusögu Ekvador og við munum halda áfram að skemmta okkur.“ -ósk Þessi stuðningsmaður Ekvadora. klæddur i liki kondórfugls, eins af þjoðar táknum Ekvadors, setti skemmtilegan svip á leik ítala óq Ekvadora i gær. Góö byrjun ítala í heimsmeistarakeppninni: Vieri í ham - skoraði bæði mörk Itala í öruggum sigri á Ekvador Christian Vieri sann- aöi enn eina ferðina í gær hversu öflugur framherji hann er þegar hann skoraði bæöi mörk l'tala f sigrinum á Ekvador. Vieri varö næst- markahæsti leikmaður heims- meistarakeppninnar i Frakklandi áriö 1998 meö fimm mörk og ætlar sér væntanlega aö gera betur í þessari keppni. Reuters Christian Vieri, hinn frábæri frarn- herji Inter Milan og ítalska landsliðs- ins, byrjaði heimsmeistarakeppnina af krafti í gær en margir hafa spáð honum markakóngstitlinum í keppn- inni. Vieri skoraði bæði mörk ítala, fyrst á 7. mínútu með góöu skoti frá víta- teig eftir fallega sendingu frá Francesco Totti og síðan á 27. minútu þegar hann komst einn í gegn-um vöm Ekvadora og afgreiddi boltann í netið með viðkomu í markverði Ekvadora. ítalar léku frábærlega í fyrri hálf- leik og hreinlega völtuðu yfir tauga- veiklaða Ekvadora. Þeir gáfu aðeins eftir í seinni hálfleik en sigur þeirra var þó aldrei í neinni hættu. Það vakti athygli að Giovanni Trappatoni, þjálfari ítala, byrjaði með Francesco Totti og Christi- í an Vieri í framlínunni en \ geymdi gulldrenginn Al- essandro Del Piero á vara- manna bekknum. Sú ákvörðun virðist þó, eftir á að hyggja, hafa ver- ið hárrétt því Del Piero kom inn á í seinni hálfleik og náði sér engan veg- inn á strik f leiknum. Allt liöiö á heiöur skilinn Christian Vieri, hetja ítala, var hóg- vær eftir leikinn og þakkaði sigurinn sterkri liðsheild. „Frammistaða okkar i dag var mjög jákvæð. Ég skoraði tvisvar en það er jafnmikið liðinu að þakka og mér. Allt liðið á heiður skilinn fyrir góðan leik og það sem er kannski mikilvægast í þessu er að við þurftum ekki að hafa ofboðslega mikið fyrir sigrinum. Ég get ekki beðið eftir næsta leik,“ sagði Vieri eftir leikinn. Vieri vildi þó ekki gera mikið úr \ sigrinum á Ekvador og sagði ‘ösk: eins og ljóst má vera aö það væri langur og grýttur vegur að úrslitaleikn- um og heimsmeist- aratitlinum. „Þetta er aðeins fyrsta skrefið á erfiðri leið og við eigum langa leið fyrir höndum. Við höfum aðeins unnið einn leik en ef lið vill ná heimsmeistaratitlinum verður það aö vinna sjö leiki," sagöi Vieri. Fann mig vel Francesco Totti átti mjög góðan leik og brást ekki trausti Trappatoni. „Ég fann mig vel og sýndi að ég er að komast í gott form. Ég og Vieri náðum mjög vel saman og ég vona að ég komi enn sterkari til leiks í næstu leikjum. Allt liðið spilaði vel í leiknum. Við spiluðum frábæra knattspymu á köflum og hefðum getað skorað fleiri mörk ef ekki hefði komið til góð markvarsla markvarðar Ekvador," sagði Totti. Varnarmaðurinn sterki Al- essandro Nesta er ekki mikill aðdá- andi yfirbyggðra leikvanga eins og í Sapporo og sagði ef hann réði þá myndu aflir leikir fara fram undir berum himni. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.