Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Page 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002
Sport
DV
Þriðja jafntefli Framara í fjórum leikjum:
Steingrimur
- bjargaði stigi fyrir Fylkismenn gegn Frömurum í Árbæ
Ómar Hákonarson, hjá Fram, stendur hér af sér tæklingu frá Fylkismannin-
um Hrafnkeli Helgasyni. Ómar lagöi upp tvö fyrstu mörk Framara en þaö
dugöi ekki til því Fylkismenn náöu aö jafna leikinn. DV-mynd ÞöK
til þess að laga stöðuna eftir hlé en
Framarar juku forskotið eftir glæsi-
lega einleiksrispu Þorbjörns Atla í
vítateig Fylkismanna. Fylkismenn
geröu þá nokkrar breytingar á liði
sínu og er óhætt að segja að þær hafi
gengiö upp. Nýju mennirnir komu
með baráttu inn í liðið og fengu
Framarar engan frið til þess að
hyggja upp sóknir. Einn þessara
manna var Steingrímur Jóhannes-
son og hann minnkaði muninn með
dæmigerðu marki.
Þrautseigja Fyikis
Fylkismenn komust lítið áleiðis
eftir þetta og staða Framara vænkað-
ist enn þegar Gunnar Bachmann
Ólafsson rak endahnútinn á glæsi-
lega skyndisókn þegar 9 mínútur
voru eftir af leiknum. Fylkismenn
minnkuðu muninn áðm- en mínúta
var liðin með marki Jóns Hermanns-
sonar og eftir stöðuga pressu bar
þrautseigja Fylkismanna árangur
þegar Steingrímur skoraði sitt annað
mark eftir góðan undirbúning Jóns í
síðustu sókn Fylkis i leiknum.
Spiluöum illa í fyrri hálfleik
„Við spiluðum mjög illa í fyrri
hálfleik og vorum heppnir að vera
ekki meira undir en við sýndum
mikla baráttu í seinni hálfleik, gáf-
um okkur alla í þetta og það skilaði
stigi. Við gerðum nokkrar taktískar
skiptingar en það sem skipti máli er
að menn fóru að leggja sig fram. Við
höfum ekki staðið okkur vel að und-
anfórnu og þurfum núna að vinna
okkur út úr þessu,” sagði Valur
Fannar Gíslason, Fylkismaður sem
lék nú gegn sínum gömlu félögum.
-HRM
Maður leiksins hjá -Sporti:
Steingrímur Jóhannesson, Fylki
0-1 Andri Fannar Ottósson (20., skot úr teig, fyrirgjöf Ómars Hákonarsonar).
0-2 Þorbjöm Atli Sveinsson (54., skot úr teig, eftir einleik og sendingu Ómars).
1-2 Steingrimur Jóhannesson (62., skot úr markteig, skalli Ómars Valdimarssonar).
1- 3 Gunnar B. Ólafsson (81., skot úr teig, fyrirgjöf Þorbjöms Atla).
2- 3 Jón Hermannsson (82., skot úr teig eftir hælsendingu Steingríms).
3- 3 Steingrímur Jóhannesson (90., skot úr teig, sending Jóns B. Hermannssonar).
Fylkir (4-4-2)
Kjartan Sturluson ......2
Valur Fannar Gíslason ... 3
Hrafnkell Heigason .....4
Þórhailur Dan Jóhannsson 2
Gunnar Þór Pétursson .... 3
Sverrir Sverrisson......2
(59. Ómar Valdimarsson .. 3)
Finnur Kolbeinsson......4
Kristinn Tómasson ......2
(55. Theódór Óskarsson ... 4)
Jón B. Hermannsson......4
Sævar Þór Gíslason......2
Bjöm Viðar Ásbjömsson .. 3
(53. Steingrímur Jóhanness. 4)
Dómarv Egill Már
Markússon (4).
Áhorfendur: 1411.
Gul spiöld:
Bjöm Viðar
(43.) Fylki,
Viðar (70.),
Gunnar (84.)
Fram.
Rauð spiöld:
Engir.
Skot (á mark):
19 (8) - 11 (5)
Horn:
4-3
Aukaspyrnur:
15-14
Rangstöður:
0-3
Varin skot:
Kjartan 2 -
Gunnar 3.
Fram (4-4-2)
Gunnar Sigurðsson......2
Bjami Þór Pétursson .... 3
(60. Gunnar B. Ólafsson . . 3)
Ingvar Ólason..........3
Andrés Jónsson.........2
Bjami H. Aðalsteinsson .. 3
Daði Guðmundsson.......3
Freyr Karlsson ........2
Viðar Guðjónsson ......4
Ómar Hákonarson........4
(68., Edilon Hreinsson ... 2)
Þorbjöm Atli Sveinsson . 4
(88. Ásmundur Amarsson -)
Andri Fannar Ottósson .. 4
Gæði leiks:
Fylkismenn komust i hann krapp-
an á heimavelli sínum í gærkvöld
gegn sprækum Frömurum og það
var ekki fyrr en á síðustu minútu í
uppbótartíma sem þeir náðu í jafna í
3-3 eftir að Framarar höfðu verið yf-
ir mestallan leikinn. Framarar áttu
kannski skilið aö fá meira út úr þess-
um leik en þeir sofnuðu á verðinum
þegar mest lá við. Framliðið hefur
nú gert þrjú jafntefli I fyrstu fjórum
leikjum sinum og eru Safamýrarpilt-
ar eflaust orðnir langeygir eftir
fyrsta sigrinum.
Framarar sterkari
Leikið var við bestu aðstæður í
Árbænum og kunnu bæði lið greini-
lega vel að meta það. Framarar voru
mun betri í fyrri hálfleik og eftir
nokkrar snarpar sóknir kom fallegt
mark frá Andra Fannari Ottóssyni
eftir snögga sókn upp hægri kantinn.
Fylkismenn höfðu reyndar átt betri
færi fram að þessu og komst Bjöm
Viðar Ásbjörnsson næst því að skora
þegar hann skaut í stöng af stuttu
færi. Framarar tóku öll völd á vellin-
um eftir markið og áttu varnarmenn
Fylkis í miklum erfiðleikum með að
hemja þá Daða Guðmundsson og
Ómar Hákonarson þegar þeir óðu
upp kantana. Andri Fannar og Þor-
bjöm Atli vom stórhættulegir þegar
þeir fengu boltann, sérstaklega sá
fyrrnefndi sem átti sláarskot undir
lok fyrri hálfleiks.
Fylkismenn virtust ekki líklegir
m v
^ SÍMA
DEILDIN
Grindavik
Keflavík
KR
Fyikir
Þór Ak.
KA
FH
ÍBV
Fram
ÍA
Markahæstir
Grétar Hjartarson, Grindavik .... 4
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV . 4
Jóhann Þórhallsson, Þór Ak......3
Sigurvin Ólafsson, KR...........3
Þorbjöm Atli Sveinsson, Fram ... 3
Næstu leikir
ÍBV-Fylkir................lau. 8. júní
KA-ÍA .................lau. 8. júní
FH-Grindavík...........sun. 9. júní
Fram-Þór Ak.................sun. 9. júní
Keflavík-KR..........mán. 10. júní
Fylkir-Fram 3-3 (0-1)
Lakers í úrslitin
Los Angeles Lakers tryggði sér sæti í úrslitum NBA-deOdarinnar gegn New
Jersey meö 112-106 sigri á Sacramento Kings í framlengdum oddaleik í úr-
slitum Vesturdeildarinnar en leikurinn fór fram i fyrrinótt í Sacramento.
Sjö leikja einvígi endaði því á eins jafnan hátt og hægt var en meistarar
tveggja siðustu ára komust þama yfir erfiðustu hindmnina á þessum tveim-
ur árum og fögnuðu sigri eftir að hafa veriö 2-3 undir og verið sekúndubroti
frá því að verða 1-3 undir. Þetta var 23. einvígið í röð sem lið undir stjóm
Phil Jackson vinna en hann er á góðri leið að níunda titli sínum sem þjálfari.
Shaquille O’Neal sýndi styrk sinn þegar mest á reyndi í síðustu tveimur
leikjunum og skoraði 35 stig í oddaleiknum. Shaq gerði 38 stig, tók 15 fráköst
að meðaltali og hitti úr 75% víta sinna í síðustu tveimur leikjunum. Kobe
Bryant skoraði 30 stig í síðasta leiknum auk 10 frákasta og 7 stoðsendinga og
líkt og Shaq steig hann upp þegar mest á reyndi i síðustu tveimur leikjunum
þegar liðið var uppi við vegg. Bryant skoraði í þeim 61 stig, tók 21 frákast og
gaf 12 stoðsendingar gegn aðeins einum töpuðum bolta.
Hjá Kings, sem vantaði aðeins herslumuninn til að stöðva sigurgöngu
Lakers, var Mike Bibby stigahæstur með 29 stig og kórónaði frábæra úrslita-
keppni sína en Chris Webber var með 20 stig, 11 stoösendingar og 8 fráköst.
Skotmennirnir Doug Christie og Peja Stojakovic bmgðust hins vegar og hittu
úr aðeins 5 af 23 skotum í úrslitaleiknum. Fyrsti úrslitaieikurinn milli LA
Lakers og New Jersey Nets fer fram aðfaranótt fimmtud. í Los Angeles. -ÓÓJ
Markalaust
Það var ekki rismikill fótbolti sem
boðið var upp á á frjálsíþróttavellin-
um i Kaplakrika þegar heimamenn í
FH tóku á móti Stjörnunni. Nokkurt
lífsmark var reyndar með liðunum í
fyrri hálfleik en sá seinni var arfaslak-
ur og stundum var engu líkara en
bæði liðin væru hæstánægð með þá
stöðu sem uppi var.
Stjarnan var heldur meira með bolt-
ann í fyrri háifleik en þó voru það FH-
ingar sem fengu færi. Olga Steinunn
Stefánsdóttir og Bryndís Sighvatsdótt-
ir komust báðar í ákjósanlegt færi en
náðu ekki til boltans og í lok fyrri hálf-
leiks prjónaði Olga sig laglega í gegn-
um vömina en náði ekki krafti í skot-
ið og María varði auðveldlega.
í síðari hálfleik var sá litli kraftur
sem var í liðunum í fyrri hálfleik end-
anlega horfinn og ekkert færi leit
dagsins ljós fyrsta hálftímann. Eftir
það færðist aðeins líf í Stjömuliðið og
varamaðurinn Björk Gunnarsdóttir
var tvívegis nálægt þvi að skora eftir
undirbúning Lilju Kjalarsdóttur en
nýtti það ekki.
FH-ingar hefðu getað farið í fyrri
hálfleikinn með forystu hefðu stúlk-
umar nýtt þau færi sem þær fengu en
í síðari hálfleik var litið að gerast
fram á við, kannski vegna þess að
Bryndís gat ekki leikið seinni hálfleik-
inn vegna meiðsla. Olga var þó ógn-
andi frammi og Sigríður Guðmunds-
dóttir og Gigja Heiðarsdóttir voru
sterkar í öftustu víglinu. Hjá Stjöm-
unni var LOja Kjalarsdóttir best og
gerði stundum usla í vöm FH. Freydís
Bjamadóttir og Guðrún Finnsdóttir
áttu einnig ágæta spretti.
-HI
FH-Stjarnan 0-0
Skot (á mark): 5 (2)-9(1) Horn: 1- 4 Aukaspyrnur: 4-15 Rangstöður: 2- 2 Varin skot: Sigrún 1 - María 2. r \
Best á vellinum: Lilja Kjalarsdóttir, Stjörnunni
@ Guðrún Sveinsdóttir, Sigríður
Guðmundsdóttir, Silja Þóröardóttir,
Olga Steinunn Stefánsdóttir og Gígja
Heiðarsdóttir, FH. Freydís
Bjamadóttir, Gréta Guðnadóttir,
Lilja Kjalarsdóttir og Guðrún Halla
Finnsdóttir, Stjömunni.