Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2002, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2002, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 Skoðun X>v Fylgistu með HM? Ebba Arngrímsdóttlr kennarl: Þaö er eitthvaö lítiö. Bn oft á morgnana. Slgurjón Þórðarson heilbrlgðisfulltrúi: Ég er ekki meö Sýn en ég horfi samt á fótboltann ruglaöan. Slf Siguijónsdóttlr 8 ára: Já, ég fylgdist meö í Danmörku, enda held ég meö Danmörku. Sigurður Arnason skrifstofumaður: Já, Englendingar eru mínir menn. Kristján Gunnarsson framkvæmdastjóri: Allt of lítiö. Danir eru mínir menn. Ingibjörn Slgurbergsson framkvæmdastjóri: Nei, ekki neitt. Áhugasviö mitt liggur annars staöar. Er ekki nóg komið? „Hvaöa öryggi veita eftirlitsmyndavélar?" Lögreglan á staönum er best. „Hvað þarf til þess að fá betri löggœslu? Hvað þarf til þess að maður heyri ekki bara tal- að um að betrumbæta lög- gœsluna en svo engin breyt- ing þegar fram í sækir? Já, hvað þarf til?“ verknað og loka þá bak við lás og slá í nokkur ár. Væri ekki fremur ráð að reyna að koma í veg fyrir að svona lagað geti gerst og þá með aukinni löggæslu? Hvar eru þeir sem sitja þing, setja lög og bönn? Sem ákveða hverjir fá sæmandi laun og hverjir ekki. Sem eru að bjóða sig fram í kosningabar- áttunni með loforð um betrumbætta hluti eins og styttri bið eftir leik- skólaplássi, hraðlest til Keflavíkur, byggð úti í Viðey. Af hverju ekkert loforð um aukna löggæslu? Hvemig var löggæslan á nýlegum NATO- fundi? Fólki var meinað að mæta til vinnu af ótta við mannskaða. Hvar er sú löggæsla? Af hverju ekki fyrir okkur, almennu borgarana? í minningu ungs manns, sem brosti við komandi framtíð en féll fyrir ógæfumönnum og lét lífið, vil ég spyrja: Hvað þarf til þess að fá- betri löggæslu? Hvað þarf til þess að maður heyri ekki bara talað um að betrumbæta löggæsluna en svo engin breyting þegar fram í sækir? Já, hvað þarf til? Hvað þarf mörg mannslíf til að geta sagt, nú er kom- ið nóg? Hvaö þarf til þess að fá við- hrögð? Hvað þarf mörg mannslíf í viðbót? Er ekki nóg komið? - Getur einhver svarað því? Ragnheiður Edda Viðarsdóttir skrifar: Hversu mörg líf og fórnarlömb þarf til að fá aukna gæslu í mið- borg Reykjavíkur? Hefur það fólk sem gegnir löggæslu næga burði til að sinna því mikilvæga starfi sem löggæslan er? Vegna lágra launa og hve lítið fjármagn er ætlað til löggæslunnar fæst ekki fólk sem í raun ætti að sinna þessu starfi. Staðreynd er að neysla flkni- efna er orðin miklu harðari og því mun hærri glæpatíðni hér en áður fyrr. En er löggæslan aukin þrátt fyrir það? Ekki sýnist manni það. Og hvað fáum við borgarbúar í staðinn? Jú, við missum ástvini út í opinn dauð- ann vegna þess að ekki var næg- ur mannafli á vakt - vegna fjár- skorts. En hvers vegna er löggæslan ekki aukin? Með fleiri lögreglu- mönnum, já, og vopnum ef út í það fer með hliðsjón af því hversu gífurlega hörð neysla flkni- efna er orðin í dag og ógæfufólk sem missir stjóm á sjálfu sér og beitir þá ógnvænlegu ofbeldi. Lögreglan verð- ur að ráða við þetta fólk. Mörg vitni urðu að því er ógæfumenn réðust á saklausan mann og börðu í götuna og héldu áfram að beita spörkum og höggum gegn lífvana fómarlambi sem enga björg sér gat veitt. Hvað gerðu landar þessa saklausa manns? Þeir stóðu og horfðu á!! Og þetta er ekki í fyrsta skiptið og eflaust ekki það síðasta. - Árásin þar sem ungur maður var barinn til óbóta átti sér stað í miðbæ Reykja- víkur og við hlið lögreglustöðvar. Eftirlitsmyndavél var á staðnum en hvar var löggæslan? Hvaða öryggi veita eftirlitsmyndavélar? Jú, það verður hægt að sanna hvaða ógæfu- menn frömdu þennan hryllilega Kynjamisrétti Markús skrifar:___________________________ Það er orðið manni ofviða þetta stöðuga kvennavæl í fjölmiðlum um kaup og kjör. Ég vona bara að málið leysist á einhverjum öðrum víg- stöðvum. Það eru bara svo margir minnihlutahópar sem hafa það „meira skítt“ en þessar konur. „Kar- rier“-konurnar eru samt fremstar i kvörtunarhópnum um kaup og kíör; fleiri leikskóla, meira frí, o.s.frv. Konur eru alls staðar í fremstu röð. Það er t.d. orðið undantekning ef karlmaður svarar í síma hjá opin- berum stofnunum, eða bara hvaða fyrirtæki sem er. Og eru þær þó ekk- ert hæfari til þessa starfs en karlar. Kaup og kjör ættu fyrst og fremst „Konur eru alls staðar í fremstu röð. Það er t.d. orðið undantekning ef karlmaður svarar í síma hjá opinberum stofnunum, eða bara hvaða fyrirtæki sem er. Og eru þær þó ekkert hæfari til þessa starfs en karlar. “ að grundvallast á framboði og eftir- spurn, líkt og annars staðar á mark- aðinum. Ef ég sem vinnuveitandi fengi til starfa hjá mér manneskju sem sættir sig við ákveðin laun og vinnur sitt starf vel væri ég ánægð- ur með það. Væri ég hins vegar sem vinnuveitandi skikkaður til að hækka launin þá teldi ég mig geta á móti aukið kröfurnar sem ég gerði til starfkraftsins. Eða skipt honum út fyrir annan sem ég teldi hæfari. Bjóði vinnuveitandi fólki lægri kjör en það sættir sig við, verður flótti úr „stéttinni". Og vinnuveit- andinn bregst aftur við með því að bjóða hærri laun. Það er líka þekkt að fólk grípi til sameiningarkraftsins og knýi fram breytingar með þeim hætti. En að það þurfi sértæk lög og jafnvel aðstoð Sameinuðu þjóðanna til þess að hjálpa fólki sem í raun hefur yfir engu merkilegu að kvarta, það er út í hött. - Það er heldur eng- inn minnihlutahópur til. Konur eru jú fleiri en karlar í þessum heimi. Garri Hápólitískar Guðrún Finnsdóttir, leikfimikennari í Réttar- holtsskóla, fékk óvænta heimsókn frá víkinga- sveit lögreglunnar í Reykjavík síðastliðið sunnu- dagskvöld. Guðrún, sem er annáluð fyrir að halda snyrtilegt og krúttlegt heimili og hefur til að mynda hlotið sérstaka viðurkenningu kenn- arafélags Réttarholtsskóla fyrir útsaum, hafði ný- lokið við að þvo upp eftir sorglega en saðsama sunnudagsmáltíð þegar hún heyrði i þyrlu yfir húsi sínu. Nágranni hennar, Friðbjöm Marteins- son, varð vitni að atburðunum. „Þeir renndu sér á köðlum niður úr þyrlunni og lentu á þakinu hjá Gunnu,“ segir Friðbjöm. „Síðan sveifluðu þeir sér fram af þakskegginu og inn um glugga á öllum hliðum hússins. Á sama tíma og þeir lentu á gólfinu komu fjórtán lögreglubilar að húsinu auk einnar sérútbúinnar Hummer-bifreiðar sem fengin hafði verið að láni hjá Vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Þetta var rosalegt." Yfirheyrslan Guðrún var flutt í jámum i leynilega fanga- geymslu Ríkislögreglustjóra í Maríubakka í Breiðholti. Eftir miklum krókaleiðum náði Garri sambandi við Guðrúnu seint í gærkvöld. Hér á eftir fer bútur úr yfirheyrslu Ríkislögreglustjóra. Lögreglumaður: Ert þú Guðrún Finnsdóttir leikfimikennari? nárateygjur Guðrún: Já. Lgrm.: Er það satt að þú stundir leikfimi og leggir auk þess sérstaka áherslu á pólitískar teygjur? Guðrún: Pólitískar teygjur? Lgrm.: Já. Guðrún: Ég skil ekki... Lgrm.: Þú er með frekar sérstæðar teygjur á nára, er það ekki? Guðrún: Jú, ætli það ekki. Lgrm.: Já, þær eru hápólitískar. Kínverska rikisstjórnin lítur þess vegna á þig sem óvin ríkisins. Guðrún: Hápólitískar teygjur? Lgrm.: Reyndu ekki að láta eins og þú skilj- ir ekki. Þú ert öfgamanneskja af verstu sort. Austur á morgun Guðrún: Ég hef ekki gert neitt af mér og fer fram á að mér verði sleppt. Lgrm.: Þér verður aldrei sleppt. Guðrún: Ég vil allavega að þessar keðjur verði teknar af mér. Lgrm.: Keðjurnar verða teknar ef þú vísar á aðra höfuðpaura í andófinu gegn kínverska rík- inu. Guörún: Andóf gegn kínverska ríkinu? Lgrm.: Við vitum allt um samtökin. Guðrún: Samtökin? Lgrm.: Þú veist vel hvað ég á við. Sam- tökin! Vorfreyj- umar! Guðrún: Áttu við leik- fimihópinn sem ég er í. Leikfimihóp- inn Vorfreyj- umar? Lgrm.: Við- urkennirðu að- ild að þessum hópi? Guðrún: Ég er í leikfimi- hópnum Vor- freyjurnar, já. Lgrm.: (kall- ar) Stjóri, hún brotnaði. Hún er búin að játa. Komdu með framsalseyðublöðin. Við sendum hana á morgun. CyXrri í flugtaki og lendlngu Öryggiö fyrir öllu. Rétt afstaða Flugleiða Jón Sigurðsson hringdi: Mér finnst viðkomandi ráðamenn hjá Flugleiðum hafa bmgðist rétt við varðandi óhappið við Ósló á sínum tíma þegar flug við völlinn orsakaði óróa hjá farþegum um borð. Nú hafa þessir flugmenn sem þama áttu hlut að máli hafið störf að nýju, en flug- stjórinn gerður að aðstoðarflugmanni a.m.k. um sinn og hinn heldur sinni stöðu sem aðstoðarflugmaður. Einnig er það rétt afstaða að knýja ekki fram að flugstjóri sem stóðst ekki læknis- skoðun fljúgi ekki sem slíkur, hvað sem líður stóryrtum yfirlýsingum lög- manns hans. Svona mál verða heldur ekki leyst í dómsalnum, heldur með læknisúrskurði. Flugleiðir eru því í góðum málum hvað öryggisþætti fé- lagsins snertir. Ekki bara í þessum málum, heldur yfirleitt. Hvar er 2. fl. kjötið? Kristinn Sigurðsson skrifar: Hvað skyldi hafa orðið af 2. flokks kjötinu sem áður var selt í matvöru- verslunum mun ódýrara en annað kjöt? Nú sést þetta kjöt hvergi. Allt virðist geta verið á „tilboösverði", en í raun er ekki um neitt tilboð að ræða. Það er bara blekking, því tilboðið reynist vera uppsprengt verð. Ekkert „unnið“ kjöt eða kjötvörur eru á til- boði þessa mánuðina. En fólk lætur blekkjast auðveldlega. Ég hélt t.d. að Nettó væri í ódýrari kantinum, líkt og Bónus hér í Reykjavík. En í Nettó virðist allt á „tilboði" en engu að síð- ur rándýrt. Og svo varðandi þessar „lækkanir" Hagkaupa - hvað varð um þær? Ég sé ekki neina lækkun á mat- vöru í þeim verslunum þessa dagana. Engir hvítir í liðunum? Þóra Stefánsdóttir hringdi: Ég hef horft á nokkra leiki í knattspymunni með ungum syni mínum þegar tími gefst. Það vekur athygli mina að í mörgum liðum Senegalliöiö Ewópumanna og brunar upp vlðar Þar sem Engir hvítir menn hvítir menn eru í í nQinu? forsvari eru ávallt .. nokkir þeldökkir líka. Sennilega keyptir vegna yfir- burða fæmi. En í liðum Afríkuliðanna hef ég ekki enn séð nokkum hvítan leikmann. Þetta vekur furðu mina. Það er eins og þeir í Afríkuríkjunum séu með einstefnu í þessum málum; að hafa ekki nokkum hvítan („ólitaðan") mann í sínum liðum. Er hægt að kalla þetta rasisma í reynd? Fer aldrei í fangelsi Hjördís Jónsdðttir skrifar: Nú er allt á fullu í héraðsdómi vegna Árna-málsins og opinber ákær- andi segir ekki annað koma til mála en að Ámi fái fangelsisdóm, í það minnsta tvö og hálft ár. Ég segi: Það má vel vera að hann verði dæmdur til fangelsisvistar í þetta langan tíma, en það mun ekki halda vatni nema fram að hæstaréttardómi. Þar verður dómi yfir vini okkar og fyrrverandi þing- manni breytt í skilorðsbundinn dóm. Ef þá bara nokkum. Það mun fyrr íjúka þak af Alþingi eða bara Hæsta- rétti áður en íslenskur þingmaður verður settur í fangelsi. Ég er ekki að óska Árna slíks, því hann er góð sál. En svona er bara okkar „þjóffélag". ÐV! Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.ls Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Skaftahlíð 24,105 ReyKJavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.