Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2002, Side 1
i
i
i
t
i
i
m LIFLEG MIÐBORG A
LAUGARDEGI. BLS. 36
DAGBLAÐIÐ VISIR
159. TBL. - 92. ARG. - MANUDAGUR 15. JULI 2002
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
áthne-systur vema
„Veiöin mætti vera betri en þaö er '§
fallegt hérna;“ sögöu hinar frægu
Wathne-systur, Þórunn, Scffía og Berg-
Ijót, viö DV. Þær hafa síöujstu daga veriö
við veiðar á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldai
og hafa fengiö nokkra fisk|a. Þær heim-
sækja ísland áriega tjl að jrenna fyrir lax
og hafa þá veriö í ýrngum þf þekktustu
veiöiám landsins. DV-myncj G. Bender
\\ I * I il i 1 lH 'í
i
! Kópavogur með 38% kjósenda
P - í nýju Suðvesturkjördæmi en aðeins tvo sitjandi þingmenn
Vægi Kópavogs eykst til mikilla
muna viö kjördæmabreytinguna sem
kosið verður eftir í fyrsta sinn við
næstu alþingiskosningar, eða úr 29% í
38% af kjósendum i kjördæminu sem
bærinn tilheyrir.
Eftir breytinguna tilheyrir Kópa-
vogur nýju Suðvesturkjördæmi, sem
er eins konar „kragakjördæmi" utan
um Reykjavík og samanstendur af
Hafnarfirði, Garðabæ, Bessastaða-
hreppi, Kópavogi, Seltjamamesi,
MosfeUsbæ og Kjósarhreppi. Þessi
sveitarfélög tilheyrðu áður Reykjanes-
kjördæmi og við síðustu þingkosning-
ar var vægi 15.855 kjósenda í Kópa-
vogi 29%.
Við síðustu sveitarstjómarkosning-
ar hafði kjósendum í bænum fjölgað í
17.580. Þeir eru því rétt tæp 38% kjós-
enda í Suðvesturkjördæmi. Næstflest-
ir eru kjósendur i Hafnarfirði, 30% af
kjósendum kjördæmisins. Þá koma
Garðabær með 13%, MosfeUsbær 9%
og Seltjamames 7% kjósenda.
Kópavogur á aðeins tvo af átta sitj-
andi þingmönnum nágrannasveitarfé-
laga Reykjavíkur, þau Gunnar I. Birg-
isson, Sjálfstæðisflokki og Rannveigu
Guðmundsdóttur, Samfylkingu.
Gunnar I. Rannvelg Guð-
Birgisson. mundsdóttir.
„Það er eðlUegt að stærsta sveitar-
félagið í kjördæminu hafi töluverð
áhrif og það verður örugglega krafa
okkar í Kópavogi," segir Gunnar, ann-
ar maður á lista sjálfstæðismanna í
Reykjaneskjördæmi fyrir síðustu
kosningar. „Ef fara ætti eftir fólks-
Öölda ætti Kópavogur að fá fjóra þing-
menn og ég vona að þeim fjölgi í
næstu kosningum. Auðvitað getur
hins vegar komið gott og duglegt fólk
úr fámennari bæjarfélögum. Það er
þess vegna ekki einhlítt að fara eigi
eftir fólksfjölda," segir Gunnar.
Rannveig Guðmundsdóttir, sem
leiddi lista Samfylkingarinnar í
Reykjaneskjördæmi síðast, segir að
áður fyrr hafi Kópavogur að sumu
leyti verið olnbogabam í flokkunum.
„Nú er þetta gjörbreytt og það mun
endurspeglast í kröfum um styrk
Kópavogs inni í flokkunum. Ég mun
sækja það fast að halda forystusætinu.
Ég tel að þingmönnum bæjarins muni
Qölga hægt og sígandi - það gerist
ekki á einni nóttu - en þess hefur
ávallt verið gætt í Reykjaneskjördæmi
að þingmenn endurspegli svæðið allt.
Það væri ekki gott ef niðurstaðan í
nýja kjördæminu yrði átök á milli
tveggja stærstu bæjanna," segir Rann-
veig.
Fjallað verður um Suðvesturkjör-
dæmi í fréttaskýringu í DV á morgun.
-ÓTG
ÚR LEIK í INTERTOTO-
KEPPNINNI:
Frábær barátta
FH-inga skóp
jafntefli
17
HÓLAVATN:
Veiöiskapur-
inn gengur
mjög vel
24
BILASPRAUTUN OG RETTINGAR
ik. AUÐUNS jm
Nýbýlavegi 10 og 32
200 Kópavogi
S: 554 2510
Bílaréttingar
Bílamálun