Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2002, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2002
DV
Fréttir
Álver aö komast á beina braut og flaggað verður eystra:
Mörgum Austfirð-
ingum er létt
- segir formaður Afls fyrir Austurland - afar glöð segir iðnaðarráðherra
Stuttar fréttir
mmm
„Það er mörgum Austfirðingum
létt eftir að þessi niðurstaða er
fengin í málið,“ segir Einar Rafn
Haraldsson, formaður Afls fyrir
Austurland. Sem kunnugt er sam-
þykkti stjórn bandaríska álrisans
Álcoa á stjórnarfundi sínum fyrir
helgina að halda áfram samninga-
viðræðum sínum við íslensk
stjórnvöld vegna byggingar fyrir-
hugaðs álvers við Reyðarfjörð.
Viljayfirlýsing þar um verður
væntanlega undirrituð síðari hlut-
ann í þessari viku og ætla forsvars-
menn Afls fyrir Austurland að
beita sér fyrir því að í fjórðungn-
um verði íslenski fáninn dreginn
sem víðast að húni af því tilefni.
„Samningavið-
ræðurnar við
Alcoa hafa geng-
ið mjög hratt
fram og trúverð-
uglega. Ef til vill
geta komið ein-
hverjar hindran-
ir sem gætu tafið
þetta mál lítið
eitt, en ég held
að ekkert geti
komið í veg fyrir að álver risi og
allir endar vegna þess verði hnýtt-
ir snemma á næsta ári,“ segir Ein-
ar Rafn.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra staðfestir að stefnt sé að
Einar Rafn
Haraldsson.
undirritun vilja-
yfirlýsingar
milli Alcoa og ís-
lenskra stjórn-
valda siðari hlut-
ann í þessari
viku. Á þessari
stundu sé verið
að yfirfara og
finpússa texta yf-
irlýsingarinnar,
sem lúti að öll-
um helstu tímasetningum fram-
kvæmdaþátta. Er þá miðað við að
álverið verði tilbúið í árslok 2006.
„Þeir vilja sem fyrst byrja að
bræða fyrir austan og það viljum
við raunar líka,“ segir Valgerður.
Valgerður
Sverrisdóttir.
Segist hún vænta þess að hægt
verði að hefja undirbúningsfram-
kvæmdir við Kárahnjúka seinna í
sumar. I stórframkvæmdum uppi á
öræfum sé hvert sumar afar dýr-
mætt. Því sé best að nýta tímann
sem best og byija sem fyrst.
„Ég er afar glöð með hvernig
þetta mál hefur þróast," segir Val-
gerður Sverrisdóttir. Hún segir að
vissulega megi til sanns vegar
færa að álvers- og virkjunarfram-
kvæmdir hafi mikil þensluáhrif á
íslenska hagkerfið. Menn mættu
þó ekki hræðast stórframkvæmdir,
enda sköpuðu þær þjóðinni bætt
lifskjör þegar til lengri tima væri
litið. -sbs
Patreksf j örður:
Slegist og brotin
rúða í löggubíl
- upptök átaka óljós
„Ég veit ekkert hvernig þessi
slagsmál upphófust og get ekki svar-
að því hvort menn voru að slást út
af stelpum eða einhverju öðru,“
sagði lögreglumaður á Patreksfirði i
samtali við DV. Til harðra átaka
kom á og eftir dansleik sem haldinn
var vestra á föstudagskvöldið en þar
réðust nokkrir heimamenn að að-
komumönnum. Einn þeirra leitaði
vars í lögreglubíl sem var úti fyrir
samkomuhúsinu, en slikur var móð-
ur eins Patreksfirðingsins að hann
braut rúðu í lögreglubílnum til að
ná manninum út. Það tókst honum
ekki en glerbrotum rigndi aftur á
móti yfir lögreglumennina sem
voru í bílnum.
Tveir aðkomumannanna, annar
þeirra lögreglumaður úr Hafnar-
firði, þurftu að leita til læknis eftir
þessa leiftursókn. Annar með skurð
á enni, hinn nefbrotinn. Allt þetta
mál er nú í rannsókn hjá lögregl-
unni á Patreksfirði - og ljóst að
kærur verða lagðar fram.
Patreksfirðingamir sem stóðu að
þessari árás eru úr hópi ungra
manná í byggðarlaginu á aldrinum
19 til 25 ára, sem mjög hafa látið að
sér kveða á síðustu misserum með
ýmsum hvatvíslegum tilburðum. Á
liðnu hausti var haldinn fjölmennur
borgarafundur á staðnum vegna at-
gangs þeirra og krafist aðgerða, svo
sem eflingar lögreglunnar á staðn-
um. Um hríð varð rórra þegar ungu
mennimir hurfu á braut. Nú eru
þessir pörupiltar hins vegar komnir
aftur vestur á heimaslóðir sínar og
láta þar að sér kveða, eins og at-
burðir helgarinnar sýna best. -sbs
Banaslys í
Borgarfirði
Lögreglan í Borgarnesi heldur
áfram að rannsaka banaslysið
sem varð á tjaldstæðinu við
Varmaland í Borgarfirði á föstu-
dagskvöldið. Fimm ára gömul
stúlka varð þá fyrir stórum
sendiferðabíl sem ekið var inn á
tjaldstæðið en stúlkan var þar á
ættarmóti.
Slysið var tilkynnt til lögreglu
og voru tveir sjúkrabílar kallað-
ir til. Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar var send á staðinn og flutti
hún barnið á Landspítalann i
Fossvogi. Hún var úrskurðuð
látin er þangað kom. Ekki er
unnt að greina frá nafni
stúlkunnar að svo stöddu. -vig
DV-MYND: ÞOK
I fótspor föður sins
Bolli Pétur Bollason guöfræðingur var í gær vígður til prestsþjónustu við Seljakirkju í Breiðholti. Vígsluathöfn var í
Dómkirkjunni og vígslunni lýsti faðir guðfræðingsins, sr. Bolli Gústafsson vígslubiskup. Meðal votta voru systir Bolla
Péturs, sr. Jóna Hrönn miðborgarprestur, og eiginmaður hennar, sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju.
Má því segja að vígslan hafi öðrum þræði verið fjölskyldustund. í gærkvöld steig sr. Bolli Pétur svo í stólinn í Selja-
kirkju og meðal kirkjugesta þar voru foreldrar hans, þau séra Bolli og Matthildur Jónsdóttir.
Eldri borgarar ósáttir við kjör sín:
Stöðugleiki er aðalatriðið
- segir Katrín Fjeldsted. Vill ná sáttum í málinu
„Það er alveg ljóst að þessi hóp-
ur fólks hefúr misst af velferð-
inni,“ sagði ólafur Ólafsson, for-
maður Félágs eldri borgara í
Reykjavík, þegar niðurstöður út-
reikninga Einars Árnasonar, hag-
fræðings félagsins, voru tilkynntar
á blaðamannafundi sem Félag eldri
borgara hélt í lok síðustu viku.
Samkvæmt þeim er fólk að greiða
mun hærra hlutfall af tekjum sin-
um í tekjuskatt en áður og segir
Einar að þetta eigi sérstaklega við
þann hóp sem hefur hvað lægstu
tekjumar.
Að mati félagsins ættu skattleys-
ismörk að vera rúmar 82 þús. kr. á
mánuði en samkvæmt launavísi-
tölu 105 þús. kr., sé horft til þes að
mörkin voru 54 þúsund árið 1990.
Ólafur hefur sagt að niðurstöðurn-
ar sýni einfaldlega að láglaunafólk
yfir 70 ára aldri sé að borga hærri
skatta en áður og Steingrímur J.
Katrín
Fjeldsted.
. Olafur
Ólafsson.
Sigfússon, formaður VG, sagði í
DV um helgina þetta sýna kaldrifj-
aðar áherslur hægri stjórnar í
skattamálunum og tók mið af
stefnu ýmissa Norðurlandaþjóða í
þessum efnum.
„Eldri borgarar margir hverjir
hafa verið ósáttir við sinn hlut og
það virðist sem sjónarmið þeirra
og stjórnvalda stangist á,“ sagði
Katrín Fjeldsted, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks. „Ég hins vegar veit
að hluti aldraðra býr við óviðun-
andi kjör og það finnst mér afleitt.
En i mínum huga er aðalatriðið
hins vegar stöðugleiki og lág verð-
bólga, sem núverandi rikisstjórn
hefur staðiö fyrir. Það hafa fjöl-
margir eldri sjálfstæðismenn, svo
sem Guðmundur H. Garðarsson og
Þuríður Pálsdóttir, verið að minna
á síðustu árin; þ.e. á misræmi milli
þeirra kjara sem aldraðir búa við
og almennt gerist í þjóðfélaginu,“
sagði Katrín enn fremur.
Hún kvaðst vilja minna á að
samkomulag væri um hvaða vísi-
tölur væru notaðar sem viðmið á
hverjum tima í þessum efnum - og
vitaskuld þróuðust vísitölur ekki
allar á sama veg. Aðalatriðið væri
þó í sínum huga að ná sáttum milli
aldraðra og stjórnvalda um kjör
eldri borgara og gera þau viðun-
andi. Annað væri goðgá.
-sbs/vig
Þórður á Skógum á myndbandi
íslenski safhadág-
urinn var í gær. Á
Akureyri var görutíu
ára afmæli Minja-
safnsins fagnað með
garðveislu. Þar er
lokið endurbótmn á
hinum aldargamla
Minjasalhsgarði.
Myndband um Skógasafn í fylgd með
Þórði Tómassyni kom út á íslensku,
ensku og þýsku og leiðsögn var um
sýningu ljósmynda úr svokölluðum
Fox-leiðangri í Þjóðmenningarhúsinu
við Hverfisgötu.
Seldi eftirlíkingar
íslenskur kaupsýslumaður hefur
verið dæmdur af Héraðsdómi Reykja-
víkur til greiðslu 800 þúsund króna
sektar vegna brota á vörumerkja- og
samkeppnislögum. Honum var gefið að
sök að hafa selt Baugi stuttermaboli
með eftirlíkingum af vörumerkjum fyr-
irtækisins Stussy Inc. Heildverslun
hins ákærða var einnig dæmd til
greiðslu 700 þúsund króna sektar og til
að sæta upptöku á 300 þúsund krónum.
Fornleifar við Skriðuklaustur
Við Skriðuklaustur í Fljótsdal er haf-
inn uppgröftur klaustursins sem starf-
rækt var á staðnum á árunum 1493 til
1552. Það er fomleifafræðingurinn
Steinunn Kristjánsdóttir sem er verk-
efnisstjóri framkvæmdanna. Austur-
glugginn sagði frá.
Tvö fá rannsóknarieyfi
Iðnaðarráðuneytið
hefur heimilað tveim-
ur fyrirtækjum að
rannsaka Brenni-
steinsfiöll með tilliti
til virkjunar varma.
Það eru Hitaveita
Suðumesja og Orku-
veita Reykjavíkur.
Hvomgt fyrirtækið fær þó forgang að
nýtingu á svæðinu og er forsvarsmað-
ur Hitaveitu Suðumesja ósáttur við
það. Hann telur ófært að eyða pening-
um í rannsóknir án þess að fá að nýta
svæðið ef það reynist hagkvæmt.
Dregur úr fólksflótta
Mjög virðist draga úr fólksflótta frá
Austurlandi. Fyrsta hálfa árið 2002
fluttust 29 manns þaðan umfram að-
flutta og miðað við að þróunin verði sú
sama síðari helming ársins samsvarar
það að sjálfsögðu 58 manns. í fyrra
fækkaði hins vegar um 135 manns á
Austurlandi og árið þar áður um 187
þannig að þróunin er jákvæð fyrir
landshlutann. Austurglugginn sagði
frá.
Rústir frá 11. öld
Rústir sem fundist hafa við Glaum-
bæ í Skagafirði virðast vera frá önd-
verðri 11. öld, samkvæmt rannsóknum
bandarískra fornleifafræðinga. Þær
virðast vera leifar af langhúsi en ekki
er ljóst hvort um mannabústað hafi
verið að ræða. Bandaríkjamennimir
hafa stundað rannsóknir í Skagafirði
undanfarin tvö sumur á jarðmyndun-
um og breytingum á búnaðarháttum,
samkvæmt fréttum RÚV.
Húðkeipasmíði
Námskeið í smíði húðkeipa á græn-
lenska visu mun fara fram á ísafirði
um næstu helgi. Leiðbeinendur era
tveir reyndir húðkeipasmiðir frá vina-
bæ ísafjarðar á Grænlandi, Nanortalik.
Námskeiðið er haldið í tengslum við
hina árlegu hátíð, Siglingadagar á ísa-
firði. BB sagði frá. -Gun