Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2002, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2002
r>y
Fréttir
Samtök verslunar og þjónustu um að selja vín og bjór í matvöruverslunum:
Frekar spurt um
hvenær en hvort
- neyslan mun klárlega aukast, líka hjá unglingum, segir talsmaður Áfengis- og vímuvamaráðs
Samtök verslunar og þjónustu
hafa dreift bæklingi í flestum mat-
vöruverslunum og bensínstöðvum
þar sem lögð er áhersla á að meiri-
hluti íslendinga, 67 prósent, vilji
geta keypt léttvín og bjór í matvöru-
verslunum. Vísað er í könnun frá
Emil B. Karls-
son, talsmaður
SVÞ, sagði við
DV að verslanir
vildu fá leyfi til
að veita þá þjón-
ustu sem við-
skiptavinir ósk-
uðu eftir.
„Okkur fmnst
meira spurning
um hvenær
þetta verður en hvort - þetta er þró-
un í samræmi við það sem leyft er í
nágrannaríkjum okkar. Þar aö auki
hefur neyslumynstrið á léttvíni og
bjór breyst mikið á undanförnum
árum. Það er farið að líta á þetta
sem hverja aðra matvöru,“ segir
Emil.
Hann segir að fólki finnist þægi-
legra að kaupa inn til heimilisins á
því í febrúar.
Eitthvaö fleira.
Matvöruverslanir meö vín og bjór?
Skoöanir eru skiptar. Flestir viröast þó vilja vín og bjór
til sölu í matvöruverslunum.
emum og sama
stað. „Við sjáum
líka hag í þessu fyr-
ir minni verslanir.
Léttvíns- og bjór-
sala myndi styrkja
rekstrarstöðu
þeirra mikið með
því að þurfa ekki
vera nálægt versl-
unum ÁTVR. Með
þessu móti myndi
vöruúrval smárra
verslana breikka.
Ég held að þetta
sé eindregin ósk
flestra, sérstaklega
fólks úti á landi. Þar
fyrir utan finnst
okkur ekki samræmi í sölustefnu
ÁTVR sem sögð er eiga að fylgja
áfengislögum. Markmið ÁTVR á aö
vera að vinna gegn misnotkun á
áfengi. Sölustefnan samræmist því
ekki - hún beitir söluhvetjandi að-
gerðum," sagði EmO.
Þorgeröur Ragnarsdóttir hjá
Áfengis- og vímuvamaráði segir að
könnun Gallups frá þvi í nóvember
hafi sýnt að helmingur svai’enda
hafi verið hlynntur en hinn andvíg-
ur. Hún hafi frekar sýnt að yngra
fólk á höfuðborgarsvæðinu hafi ver-
ið fylgjandi sölu léttvíns og bjórs í
matvöruverslunum. „Það er athygl-
isvert í ljósi þess að þeir hjá Sam-
tökum verslunar og þjónustu tala
um að þetta sé mikið þjónustumál
fyrir fólk úti á landi,“ segir Þorgerö-
ur.
„Það viðurkenna allir, meira að
segja Samtök verslunarinnar, að
áfengisneysla muni aukast verði
þetta leyft. Allar rannsóknir sem
við höfum benda til að það muni
ekki bara gerast hjá þeim sem mega
drekka áfengi heldur líka meðal
unglinganna. Mér fmnst það afleit
tilhugsun. Við eigum í nægum
vandræðum með unglingana okkar.
Neyslan mun aukast," segir Þor-
gerður.
Þorgerður segir að hér á landi
séu margfalt fleiri áfengisverslanir
en í Svíþjóð, miöað við hverja 100
þúsund ibúa. „í Bandaríkjunum,
vöggu frjálsræðisins, sé kvóti á hve
margir útsölustaðir áfengis og tó-
baks megi vera eftir svæðum en það
sé þó mismunandi eftir ríkjum. Ég
er ekki viss um að það muni bæta
úrval og þjónustu að leyfa sölu létt-
víns og bjórs í matvöruverslunum."
Þorgerður segir að Áfengis- og
víumvamaráð telji að léttvín og
bjór eigi ekki að vera til sölu í mat-
vöruverslunum heldur á sérstökum
útsölustöðum. Hún segir jafnframt
að ráðið taki ekki afstöðu til þess
hvort staðimir séu í ríkiseinkasölu
eða í höndum annarra. -Ótt
Fossvogsdalur:
Framkvæmd-
um að Ijúka
Nú er að ljúka framkvæmdum í
Fossvogsdalnum vestan við HK-
svæðið sem Reykjavíkurborg og
Kópavogsbær kosta í sameiningu.
Þórarinn Hjaltason, bæjarverk-
fræðingur hjá Kópavogsbæ, segir
að markmið breytinganna sé að
fegra umhverfið og gera aðlaðandi
útivistarsvæði. í stað skurðanna,
sem Fossvogslækur rann í gegnum
og vora úti um allt á svæðinu, eru
komnar 20 cm tjarnir með aflið-
andi bökkum. Einnig hafa verið
byggðar brýr yfir þær.
Áætlaður kostnaður verksins
var 30 milljónir króna á hvort
sveitarfélag, eða alls 60 milljónir.
Að sögn Þórarins bendir allt til
þess að sú upphæð haldist óbreytt
í verklok, en þau eru áætluð í
vikunni.
-vig
Eftir breytingar
Eins og sjá má veröur Fossvogsdalur hinn glæsilegasti eftir framkvæmdirnar. Slysahættan, sem gömlu skurðirnir á
svæöinu mynduöu, er ekki lengur til staöar og tilkoma tjarnanna og brúnna gera dalinn aö mjög aölaöandi útivistar-
svæöi. Verklok eru áætluö í þessari viku.
Festi hf.:
Verið að
skoða málið
Landsmót skáta hefst á Akureyri á morgun:
Búist við allt að sex þús-
und gestum á landsmótið
Ásbjörn Ámason, framkvæmda-
stjóri útgerðarfélagsins Festi hf.,
segist aðspurður ekki geta svarað
því eins og er hvort útgerðarfélagið
Festi hf. hyggist fara í mál við norsk
yfirvöld. Festi hf. er útgerðarfélag
Guðrúnar Gisladóttur EK, sem
strandaði og sökk við Noreg í síö-
asta mánuði.
Sturla Einarsson, skipstjóri á Guð-
rúnu Gísladóttur, gagnrýndi norsk yf-
irvöld harðlega fyrir stjómleysi í ítar-
legu viðtali við DV um helgina. Þar
sagði hann m.a. að í sjókortum væri
hvergi að sjá þær grynningar sem
uröu skipi hans að fjörtjóni og þegar
hann hafi tilkynnt strandgæslunni
um ferðir sínar á landleiðinni og að
hann hygðist fara um sundið hafi
hann enga viðvörun fengið.
„Það er búið að vera svo margt í
umræðunni og mörg mál í gangi bæði
úti í Noregi sem og hér heima varð-
andi þetta mál og þau verða að fá að
skýrast betur,“ sagði Ásbjöm.
-vig
Landsmót skáta 2002 verður sett á
morgun en framkvæmd þess er nú í
höndum skátafélagsins Klakks á Akur-
eyri auk mótsstjómar skipaðri skátum
viða að af landinu. Þema mótsins að
þessu sinni er Álfar og tröll og fer það
fram á umhverfis- og útilífsmiðstöð
Klakks að Hömrum, ofan Akureyrar.
Guðmundur Pálsson mótsstjóri, úr Dal-
búum i Reykjavík, sagði í samtali við
DV í gær að búast mætti við allt að 6000
manns á mótsstað þótt erfitt væri að spá
nákvæmlega fyrir um það. Um 2300 þátt-
takendur verða á landsmótinu sjálfu
auk starfsmanna en óvissan snýst helst
um það hversu margir muni gista á fjöl-
skyldusvæði mótsins, það fari allt eftir
veðri og ýmsum utanaðkomandi að-
stæðum. Guðmundur segir hins vegar
góða stemningu fyrir mótinu.
Meðal þeirra sem heimsækja mótið
að þessu sinni er fjöldi erlendra skáta
frá 25 þjóðlöndum og funm heimsálfúm.
í óðaönn að undirbúa
Skátarnir höföu í nógu aö snúast í
gær enda stutt 1 landsmótiö.
Er þar um að ræða skátahópa sem taka
beinan þátt í mótinu auk annarra sem
munu starfa við það.
Undirbúningur fyrir mótið hefur
staðið frá því í mars árið 2000 og nær
hámarki sínu í dag enda ekki seinna
vænna þar sem mótssvæðið verður
opnað á hádegi á morgun. Að sögn Guð-
mundar á allt að vera klárt og dagurinn
í dag fer í flnni frágang.
Að vanda hafa skátar nóg við að vera
á landsmóti sínu og dagskráin er þétt-
skipuð og viðburðarík. „Þetta er hefö-
bundin dagskrá en á síðustu tveimur
mótum höfum við gefið út valverkefna-
hefti þar sem krakkamir geta valið úr
það sem þeir hafa áhuga á að gera.
- Hefur verið gert ráð fyrir að huldu-
fólk og aðrar vættir fái sitt pláss á svæð-
inu?
„Já. Við fundum það þegar við kom-
um hingað að þetta er fjörugur staður
og mikið um góðar vættir. Þeir sem
stunda mikið útivist og eru mikið úti í
náttúrunni upplifa það sterkt að það er
víða líf. Við búum í lifandi landi við lif-
andi sögu og því viljum við halda á loft.
Það er ekki allt sem sýnist og við viljum
leiða út frá því á ýmsa vegu,“ sagði Guð-
mundur Pálsson. -ók
Þrír slasast áVestfjörðum:
Gekk slasaður
tæplega
kilómetra
Tvö alvarleg umferðarslys urðu á
Vestfjörðum um helgina. Tæplega tví-
tugur piltur var fluttur með sjúkraflugi
til Reykjavíkur eft-
ir að hafa ekið á
vegg í Vestfjarða-
göngunum á laug-
ardagsmorguninn.
Að sögn lögregl-
unnar á ísafirði
sást fyrst til
mannsins þar sem
hann ók á miklum
hraða inn Súgandafjörð. Þegar lögregla
kom á vettvang haföi pilturinn ekið á
gangavegg við gatnamótin í jarðgöng-
unum, billinn lagst saman og ökumað-
urinn sat fastur í bílnum. Beita þurfti
klippum slökkviliðs til að ná honum út
úr flakinu. Loka þurfti göngunum í
tæpa klukkustund á meðan mmið var á
slysstað en bíllinn er gjörónýtur. Sam-
kvæmt upplýsingum læknis á Land-
spitalanum í Fossvogi hlaut piiturinn
skrámur á andliti en annars reyndust
meiðsli hans ekki mikil.
Ökumaðurinn er grunaður um ölv-
un við akstur og rannsakar lögreglan á
ísafirði málið sem slíkt.
Alvarleg bílvelta varð í Trékyllisvík
aðfaranótt laugardags og voru tveir
menn fluttir með sjúkraflugi á Land-
spítalann í Fossvogi. Talið er að slysið
hafi átt sér stað um klukkan hálffjögur
um nóttina en samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni á Hólmavík barst til-
kynning um slysið ekki fyrr en um sex-
leytið. Haföi þá annar mannanna, en
báðir köstuðust út úr bílnum, gengið
mjög þrekaður áleiðis að ættarmóti,
sem þeir höföu verið á fyrr um kvöld-
iö, og tilkynnt um slysið. Talið er að
maðurinn hafi gengið tæpan kílómetra.
Að sögn lögreglu var ljót aðkoma á
slysstað en bíllinn, sem gjöreyðilagðist,
er talinn hafa farið margar veltur. Að
sögn læknis á Landspítalanum í Foss-
vogi er líðan mannanna eftir atvikum
en þeir eru ekki í lífshættu. Annar
þeirra fór úr mjaðmarlið en hinn hlaut
áverka i brjóstholi. -vig
Borgarfjörður:
Maóur slasast
í bílveltu
Maður slasaðist í bflveltu á Holta-
vörðuheiði í gærmorgun. Var bifreiðin
á norðurleið um kl. 5 um morguninn
þegar hún lenti utan vegar og valt. Að
sögn lögreglunnar í Borgamesi er bill-
inn mikið skemmdur, ef ekki ónýtur.
Ökumaðurinn var einn í bílnum og að
sögn lögreglu slasaðist hann nokkuð.
Hann var fluttur með sjúkrabifreið á
slysadeild Landspftalans í Fossvogi.
Ekki fengust upplýsingar þaðan um
líðan mannsins.
Annar útafakstur varð svo um sex-
leytið í gærkvöld við Galtarholt. Að
sögn lögreglunnar í Borgamesi urðu
engin slys á fólki en bíllinn, sem valt
þó ekki, er töluvert skemmdur. -vig
VÍS á markað:
Lífleg viðskipti
Lífleg viðskipti voru á verðbréfa-
markaði á föstudaginn með hlutabréf
í Vátryggingafélagi íslands, fyrsta
daginn sem félagið var á markaði.
Var VÍS annað veltumesta félagið á
hlutabréfamörkuðum dagsins og alls
námu viðskipti með bréf félagsins 93
milljónum króna. Gengi við upphaf
viðskipta var 24, en yfir daginn
hækkaði það um einn heilan og var 25
þegar mörkuðum var lokað. -sbs