Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2002, Síða 6
G
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2002
Fréttir 3DV
Týndur feluhellir, sem líklega enginn núlifandi maður hefur séð, fundinn:
Hellir Ármanns útilegu-
manns á 11. öld fundinn
- merkur fundur, segir Örlygur Hálfdanarson útgefandi - stoltur, segir finnandinn
Ármannshellir, þar sem útilegumað-
ur og sauðaþjófur frá 11. öld hafðist við
áður en hann var drepinn, fannst í síð-
ustu viku. Samkvæmt upplýsingum
eldri manna af Barðaströnd hefur eng-
inn núiifandi íslendingur komið í hell-
inn enda hefur hann hreinlega verið
týndur þar sem erfitt er að frnna þenn-
an fyrrum felustað Ármanns sem tor-
fært var að komast að. Ármann hafði
drepið fé Gests spaka Oddleifssonar í
Haga og tókst aö leynast og síðan verj-
ast Gesti vegna legu hellisins áður en
sá síðamefndi sá við þjófnum. Staður-
inn er við ána Amarbýlu ofan Tungu-
múla á Barðaströnd. Hellirinn er um 3
metrar að breidd en um 2,5 á dýpt. Þeg-
ar vatn er í ánni fyrir neðan hellinn er
vart hægt að komast í hann nema síga.
Örlygur Hálfdanarson bókaútgefandi
segir þennan fund mjög merkan.
Búin að ganga allt gilið ...
Það var Þórður Gísli Ólafsson, lækn-
ir í Reykjavík, sem fann hellinn ásamt
eiginkonu og syni í síðustu viku eftir
að hafa leitað kirfilega í landslagi þar
sem erfitt er að fara um. Árfarvegurinn
var hins vegar nánast þurr og því
skárra að komast.
„Áhugi minn á að finna þennan helli
vaknaði þar sem enginn vissi hvar
hann væri. Faðir minn þekkti mann
sem hafði komið í hellinn en sá maður
er nú látinn. Mér var sagt að hellirinn
væri við ána Amarbýlu. Þar er gljúfur
en þar sem miklir þurrkar hafa verið
var viða hægt að ganga um það,“ segir
Þórður Gísli sem fór með eiginkonu
sinni, Jónínu Jónasdóttur, og Hjalta
Jóni, syni sinum, til að reyna að finna
hellinn.
„Við vorum búin að ganga upp allt
gilið þegar við komum að líklegum
stað - okkur sýndist hellismunni geta
verið austanvert i gilinu. En þama var
hvergi hægt að fara niður í gilið. Ég
þorði ekki vegna brattans en ákvað að
fara inn í enda gilsins, innst í dalnum.
Þar fór ég ofan í, gekk svo til baka og
komst þannig að þessum munna. Nú
kom þokkalegur hellir í ljós og hefði
getað rúmað vel mann og það sem hon-
um fylgdi,“ sagði Þórður Gisli.
Honum fannst hellirinn nokkuö
breiður, um þrír metrar og svipað inn
í berg. Hann segir talsvert hafa hranið
inn í hellinn en einnig úr honum og
niður í gljúfrið. „Ég þurfti því að ldifra
upp skriðu að hellismunnanum. Áður
fýrr var talið að ekki hefði verið skriða
þama heldur hefðu menn þurft að lesa
sig upp í hellinn," segir Þórður Gísli.
Hann segir að unnt sé að komast nið-
ur í hellinn með því að síga. En þá þurfi
menn að vita nákvæmlega hvar hellinn
er að finna fyrir neðan. „Ég get þó varla
séð fyrir mér annað en að hægt sé að
síga í hann ef eitthvað er í ánni - á að
giska 100 metrum ofar i ánni er hægt að
klifra niður gjábakkann, austan megin
við gljúfrið en þar er hellirinn.“
Hélt þetta væri þjóðsaga
„Ég var farinn að halda að þessi hell-
Þórður Gísli í hellismunnanum. Gatiö er lítiö og verfitt aö sjá þaö.
Við vorum alveg að gefast upp á aö leita þegar ég sá allt í einu þverrifu í þergið út frá skriðu. Þetta gat verið hellis-
munni," sagði Þórður. Gatið reyndist vera Ármannshellir. Rétt ofan við hellinn var hrafnshreiður.
leifsson hafi búið í Haga á Barða-
ströndhafi verið uppi útilegumaður sá
er Ármann hét. Lagðist hann á fénað
Gests. Gestur hafi fýrir hvem mun vilj-
að ná honum en veittist það erfitt mjög
því Ármann lá í helli þessum. Síðan
segir:
„Steinn er þar í ánni og er sagt að
fræknustu menn fengu stokkið af hon-
um upp í hellinn. Nú á dögum er hrun-
ið nokkuð af honum og hefúr við það
lengst hlaupið að mun. Upp úr dalnum
era drög sem Amarbýlisdrög heita.“
Síðan er rakið hvemig Gestur náði Ár-
manni.
„...og hafði oft freistað þess áður
hann fengi komist í hellinn. Því vígi
hans var svo ömggt að eigi var kostur
að handsama hann þar. Gestur sat fyr-
ir honum þar nú heita Ármannslautir,
lét drepa hann þar og dysja við veginn
og heitir það síðan Ármannsleiði og
Ármannslautir. En löngu síðan er
Aron Hjörleifsson lá í helli þessum á
kosti konu þeirrar er bjó í Tungumúla
og Steinunn hét.“
í þjóðsögum Jóns Ámasonar segir
jafhframt að sumir hafi breytt nafni
hellisins og nefht hann Aronshelli. í
Sturlunga sögu segir að Aron Hjörleifs-
son hafi verið liðsmaður Guðmundar
Arasonar biskups. Hann dó árið 1255,
um tveimur öldum eftir að Gestur lét
DV-MYND ÞÖRÐUR GÍSU ÓLAFSSON
Gljúfrið við ána Arnarbýlu í Arnarbýlisdal á Baröaströnd
Erfitt er að komast niöur í gljúfriö og enn frekar ef meira er í ánni en sést á
myndinni. Ekki er hægt að komast niður í hellinn vegna bratta nema síga.
ir væri bara þjóðsaga. En ég varð him-
inlifandi, ánægður og stoltur að sjá
hann eftir að hafa leitað. Faðir minn,
Ólafur Kr. Þórðarson, og fleiri menn af
Barðaströndinni höfðu lengi leitað að
honum en ekki fundið," sagði Þórður
Gísli.
Örlygur Hálfdanarson, sem hefur
unnið að útgáfum á bókunum Landið
þitt, íslandshandbókin og Vegahand-
bókin segir hellisfundinn á Barða-
strönd afar merkilegan:
„Ég hef lengi vitað að þessi hellir var
til vegna starfa minna að útgáfumál-
um. Jafhframt vissi ég eftir Steindóri
Steindórssyni frá Hlöðum að hellirinn
var sagður týndur. Ailtaf þegar ég hef
ekið um Barðaströndina verður mér
hugsað til þessa hellis og langar mjög
til að sjá hann. Þar sem hann er nú
fundinn hlakka ég til að líta hann aug-
um þegar tækifæri gefst.“
Gestur lét drepa Ármann
í 4. bindi þjóðsagna Jóns Ámasonar
segir að þegar Gestur hinn spaki Odd-
ORKUMJOLK
Svalandi drykkur!
Orkumjólkin er sérþróuð með
það fyrir augum að vera
svalandi og hressandi
orkugjafi milli mála
eða með
bitanum.
www.ms.is
Ný bæjarstjórn á Blönduósi:
Jóna Fanney í stól
bæjarstjóra
Nýr meirihluti bæjarstjórnar
Blönduóss hefúr verið myndaður
og var ritað undir málefnasamning
í gær. Að nýja meirihlutanum
standa Á-listi, bæjarmálafélagið
Hnjúkar, og H-listi vinstri manna
og óháðra. Á sameiginlegum fundi
listanna í gær var tilkynnt að
næsti bæjarstjóri yrði Jóna Fann-
ey Friðriksdóttir. Hún sótti um
stööuna þegar hún var auglýst fyr-
ir um mánuði og var reyndar sá
umsækjandi sem fjögurra manna
nefnd hafði komist að samkomu-
lagi um að ráða í starfiö. Jóna
Fanney hefur störf um næstu mán-
aðamót.
Eins og kunnugt er slitnaði upp
úr samstarfi Á-lista og sjálfstæðis-
manna á dögunum þar sem ekki
náðist samkomulag um ráðningu
bæjarstjóra.
Forseti bæjarstjórnar verður
Valgarður Hilmarsson af H-lista og
Nýi meirihlutinn
Gengið var frá málefnasamningi Á-
lista og H-lista á Blönduósi i gær.
formaður bæjarráðs verður Valdi-
mar Guðmannsson af Á-lista. Aðr-
ir bæjarfulltrúar af þessum listum
eru Hjördís Blöndal og Jóhanna
Jónasdóttir af H-lista og Þórdís
Hjálmarsdóttir af Á-lista. Hinn nýi
meirihluti hefur alls fimm menn í
bæjarstjórn, H-listi þrjá menn og
Á-listi tvo. Sjálfstæðismenn sitja í
minnihluta með tvo menn. -jö
MÍÍIfeilHffi
BB REYÍCIAVÍK
Sólarlag í kvöld 23.28
Sólarupprás á morgun 03.40
Síödegisflóö 22.27
Árdegisflóö á morgun 11.01
mmm-
AKUREYRI
23.41
02.51
14.39
03.00
Hlýjast noröan- og austanlands
Sunnan og suðvestan 5-10 m/s og
skúrir eða dálítil rigning sunnan- og
vestanlands. Heldur hægari vindur
og skýjað með köflum norðaustan til.
Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Norðaustur-
og Austurlandi.
Skýjaö
Snýst í norövestan 5-10 vestan til á
landinu, dálítil rigning. Skýjað með
köflum norðaustan til. Hiti 9-18 stig,
hlýjast á Norðaustur-og Austurlandi.
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
Hití 8° Hiti 7° Hití 10°
tíl 16° tii 16° til 17°
Vindur: 4-6 n»A Vindur: 4—6m/* Vindur: 4-6 m/s
Fremur hæg vestiæg eöa breytlleg átt og skúrir. Hlti 8 til 16 stig, hlýjast austan til. Fremur hæg breytileg étt og’ skýjaö meö köflum. Yfirleltt þurrt en dálítil rigning um landiö austanvert. Hltl 7 til 16 stig. Vestiæg átt og víöa bjartviörl en skýjaö aö mestu vestan til. Heldur hlýnandi veöur.
bbsbhk
Logn m/s 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Ailhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
1 Veðrið kl . 6
AKUREYRI skýjað 15
BERGSSTAÐIR skýjað 13
BOLUNGARVÍK súld 10
EGILSSTAÐIR hálfskýjaö 15
KIRKJUBÆJARKL skýjað 12
KEFLAVÍK úrkoma í gr. 10
RAUFARHÖFN skýjaö 16
REYKJAVÍK rigning 12
STÓRHÖFÐI skúr 10
BERGEN skýjað 18
HELSINKI léttskýjað 25
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 23
ÖSLÓ skýjaö 21
STOKKHÓLMUR 25
ÞÓRSHÖFN skýjað 12
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 20
ALGARVE léttskýjað 29
AMSTERDAM skýjaö 19
BARCELONA skýjaö 25
BERLÍN rigning 18
CHICAGO heiöskírt 18
DUBLIN skýjaö 19
HAUFAX skýjaö 17
FRANKFURT rigning 19
HAMBORG skúr 20
JAN MAYEN þokumóöa 8
LONDON skýjaö 22
LÚXEMBORG alskýjaö 17
MALLORCA súld 21
MONTREAL heiöskírt 21
NARSSARSSUAQ skýjaö 9
NEW YORK alskýjað 23
ORLANDO skýjaö 25
PARÍS skýjaö 18
VÍN léttskýjaö 26
WASHINGTON rigning 18
WINNIPEG heiöskírt 20
MPttlSVXOiSmW íiy- .laíiUJHi imujie Ití i/iloi i'iog