Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2002, Síða 7
7
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2002
r>V Fréttir
Útlendingar tíðir gestir í Fáskrúðsfjarðarhöfn:
Norsararnir bera
af í glæsileika
Síðastliöna tvo sólarhringa hafa
sex norsk loðnuskip, hvert öðru
glæsilegra, landað samtals 5000
tonnum af loðnu hjá Loðnuvinnsl-
unni á Fáskrúðsfirði. Aflann fengu
skipin utan íslensku fiskveiðilög-
sögunnar fyrir norðan land.
Auk þessa bárust á land 1875 tonn
fyrr í vikunni og eru því komin á
land hér á Fáskrúðsíirði tæplega
7000 tonn af loðnu þessa vikuna,
auk síldarfarms sem Hoffell SU 80
landaði í vikubyrjun og var saltaður
að hluta.
Á meðan landað var úr norsku
skipunum hefur beðið hér þýskt
skip sem taka á 1500 tonn af mjöli
frá Loðnuvinnslunni, en aðstæður
leyfa ekki að skipa út mjöli á meðan
verið er að landa.
Eins og áður segir eru norsku
skipin hin glæsilegustu, bera af í
snyrtimennsku og öllu viðhaldi,
eins og var hér á árum áður með
norsku línuskipin sem hér leituðu
hafnar og annáluð voru fyrir glæsi-
leika. -SH
DV-MYND SIGURJÓN HJALMARSSON
Fallegur
Hann er glæsilegur, þessi Norsari í Fáskrúösfjaröarhöfn í gærdag, og svona
eru þeir aitir, frændur vorir, sem landa á Austfjöröum þessa dagana.
DV-MYND ÓRN ÞÓRARINSSON
Duttu í lukkupottinn
Böövar Finnbogason, fulltrúi Frum-
herja, afhenti Kristjáni og Sigrúnu
vinninginn á dögunum.
Vinningarnir leita
í Skagafjörðinn
Hjónin Kristján Sigtryggson og Sig-
rún Svansdóttir, sem búa við Skeiðs-
fossvirkjun í Fljótum, höíðu heppnina
með sér á dögunum þegar júní-vinn-
ingur Frumherja og Flugleiða í lukku-
leiknum Flug og bíll var dreginn út.
Nafn Kristjáns var dregið út og hlutu
þau hjón þar með ferðavinning til út-
landa með Flugleiðum ásamt bíla-
leigubíl til afhota i eina viku. Er þetta
annar vinningurinn sem kemur í
Skagafjörö síðan lukkuleikurinn hófst
fyrir rúmu ári.
Lukkuleiknum Flug og bíll með
Frumherja og Flugleiðum er m.a. ætl-
að að hvetja landsmenn til að láta
skoða bíla sína á réttum tíma. Mark-
miðið er að vekja fólk til enn meiri
umhugsunar um öryggi bílsins og
einnig um umhverfismál og mengun
frá umferðinni. Með því að allir láti
skoða á réttum tíma er hægt að finna
veikleika eða bilanir í bílunum fyrr
og auka þannig öryggið í umferðinni.
Þess má að lokum geta að dregið verð-
ur í lukkuleiknum mánaðarlega fram
í nóvember og er einn ferðavinningur
í hverjum mánuði. Allir sem koma
með bílinn á réttum tima í skoðun
eiga möguleika á vinningi. -ÖÞ
Hveragerði:
Hátíðarhöldin
færð inn vegna
votviðris
Það var mikið um að vera á Hótel
Örk síðastliðinn laugardag en flytja
þurfti hátíðarhöld Blómstrandi daga
inn á hótel vegna votviðris. Veðurguð-
imir hafa það sem af er sumri verið
Hvergerðingum einstaklega vinveitt-
ir, en þeir virðast hafa kosið að vökva
gróður bæjarins nú um helgina. Því
var litið um útihátíðarhöld en þrátt
fyrir það var gestkvæmt í bænum og
tóku félagar í Hjálparsveit skáta á
móti fólki með því að gefa hverjum og
einum rós.
Á Örkinni sáu trúðar ásamt nem-
endum í Trúðaskólanum um að stóri
salurinn iðaði af fjöri. Margt fleira
var gert fólki til skemmtunar. -eh
Nissan Almera 1800 Luxury 3ja hurða
Vindskeið-aukahlutur á mynd
0% vextir!
1
: • • ' . I
Þennan getur þú eignast með
15.407 kr. afborgun á mánuði
eða sjálfskiptan fyrir
16.200 kr. á mánuði
Nú bjóðum við síðustu Nissan Almera bflana af árgerð 2002 með vaxtalausum lánum í 24 mánuði*
Komdu og nýttu þér hagstæðustu bílakaupin í dag til að eignast nýjan Nissan Almera.
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 526 8000
www.ih.is
Umboösmenn um allt land
Afborgun miðast við 84 mánaða bílalán,
innborgun 30% af bílverði
og vaxtalaust lán í 24 mánuði
Nissan Aimera 1500 Comfort 5 huröa
Þennan getur þú eignast með
14.527 kr. afborgun á mánuði
Vindskeið og álfelgur aukahlutir á mynd
jMA
■ ,
ALMERA