Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2002, Blaðsíða 9
MANUDAGUR 15. JULI 2002
DV
Fréttir
Eigandi veitingastaðarins Club Clinton fær allar kærur felldar niður:
Ætlar í mál við
borgaryfirvöld
- fengu sínu framgengt á ólöglegan hátt, segir eigandi
Kristján
Jósteinsson.
„Eg fæ tilkynn-
ingu nú um miðj-
an maí um að öll
mál skuli látin
niður falla. Það er
ári eftir að lögregl-
an og borgaryfír-
völd neituðu að
endumýja vínveit-
ingaleyfi staðar-
ins. Frá þeim tíma
hef ég og mitt
starfsfólk lent í ýmsum hremmingum
og ég er t.a.m. búinn að missa hús-
næði mitt. Heildartap á þessu öllu
saman nemur tugum milljóna og nú
eru ég og lögfræðingur minn að und-
irbúa málsókn á hendur Reykjavíkur-
borg og dómsmálaráðuneytinu og
verður það tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur mjög fljótlega," segir
Kristján Jósteinsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri veitinga- og nekt-
arstaðarins Club Clinton, en hann
fékk tilkynningu í maí sl. þar sem seg-
ir að allar kærur á hendur honum,
alls 11 talsins, hafi verið látnar niður
falla.
Kristján er búinn að standa í marg-
víslegum deilum við yfirvöld síðasta
árið vegna þess að vinveitingaleyfl
fékkst ekki fyrir veitingastaðinn á
sínum tima.
í tilkynningunni segir m.a. „Rann-
sókn málsins er nú lokið og hafa
rannsóknargögn verið yflrfarin með
hliðsjón af 112. grein laga um meðferð
opinberra mála nr. 19, 1991. Hér með
tilkynnist yður, með vísan til fyrr-
nefndrar greinar, að rannsóknargögn
þykja eigi gefa tilefni til frekari að-
gerða í málinu. Eru málin því látin
niður falla.“
Mál þetta var mikið rætt í fjölmiðl-
um landsins síðasta sumar og þá voru
það aðallega íbúar í nágrenninu sem
kvörtuðu undan hávaða frá staðnum
og héldu því m.a. fram að menn fró-
uðu sér i bakgarðinum hjá sér að lok-
inni sýningu.
Kristján segir að skýrslur lögreglu
hafi undantekningarlaust sýnt að há-
vaðinn hafi átt rætur sínar að rekja
til annarra staða. „Heilbrigðiseftirlit-
ið kom nokkrum sinnum og gerði svo-
kallaða hávaðamælingu. Hún reyndist
alltaf í góðu lagi,“ segir Kristján.
Þrjár umsagnir
Kristján segir það hafa verið í jan-
Vikuferðir (7 dagar, 6 nætur)
30. júlí (Verslunarmannahelgi).....................6 sæti laus
13. ágúst..........................................8sæti laus
20. ágúst UPPSELT!..................................2 aukasæti laus
Innifalið: Flug, gisting í tvíbýli m/morgunv. á 3* hóteli í miðborginni, aksturtil
og frá flugvelli erlendis, 3 skoðunarferðir, íslensk fararstjóm og föst aukagjöld.
Club Clinton
Mál þetta var mikiö rætt í fjölmiölum landsins síöasta sumar og þá voru þaö
aðallega íbúar í nágrenninu sem kvörtuöu undan hávaöa frá staðnum.
Helgarferð til Parisar
II
23.-28. júlí (5 dagar - 4 nætur) Sértilboð á 9 sætum
Innifalið: Flug, gisting í tvíbýli m/morgunv. á 3* hótell í miðborginni, akstur til og
frá flugvelli erlendis, skoðunarferð um borgina.klst. sigling á Signu, íslensk
fararstjóm og föst aukagjöld. _________________ _____________ ________________________
TERRA
NÓVA Jsoi
-SPENNANDI VALKOSTUR-
Stangarhyl 3A
110 Reykjavik
Simi: 591 9000
www.terranova.is
úar í fyrra sem fyrsta umsögn frá lög-
reglu kom fram. „Samkvæmt henni
var allt með felldu en Reykjavíkur-
borg líkaði það ekki svo að þeir létu
meta ástandið upp á nýtt og vildu að
ég fengi eins konar skert leyfl," segir
Kristján og bætir við að það hafi ekki
verið fyrr en í þriðju umsögninni
sem lögreglan hafi látið segjast. „Þar
segir lögregla að ég sýni mikinn
brotavilja, sé hreinlega síbrotamaður
og óforbetranlegur, og mælir þar með
gegn því að ég fái leyfið endurnýjað.
Þá var borgin mjög snögg að afgreiða
málið og ég fékk að sjálfsögðu ekki
leyfið mitt,“ segir Kristján. Staður-
inn hélt reyndar áfram starfsemi um
tíma án áfengissölu og segir Kristján
það hafa verið aðallega gert til að
starfsfólk gæti fengið smátíma til að
ganga frá sínum málum.
Kristján kærði þessa niðurstöðu til
dómsmálaráðuneytis en þar fékk
hann snögga afgreiðslu; „Ef lögreglan
heldur þessu fram þá höflrni við ekk-
ert út á það að setja“ var svarið sem
Kristján segist hafa fengið frá dóms-
málaráðuneyti.
„í stuttu máli hefur nú komið í ljós
að öll vinnubrögð yfirvalda í þessu
máli voru hreinlega bara steypa. Þau
svipta mig ekki leyfi heldur neita að
endumýja. Þetta var allt úthugsað
hjá þeim. Þau eru búin að ná sínu
heldur betur fram og vel það, og það
gerðu þau einfaldlega á kolólöglegan
hátt,“ segir Kristján. -vig
Samþykkja reglugerð um vopnaburð flugmanna:
íslenskir flugstjórar
munu ekki bera skotvopn
„Það hefur ekkert verið rætt um að
gera slíkt hið sama á íslandi enda er
íslenskum þegnum bannað að bera
skammbyssur," sagði Heimir Már Pét-
ursson, upplýsingastjóri Flugmála-
stjórnar íslands, þegar DV innti hann
eftir því hvort íslensk stjórnvöld
mundu ræða þarrn möguleika að flug-
stjórar beri skammbyssur meðan á
flugi stendur. „Það yrði að breyta svo
mörgum lögum á Islandi til þess að
þetta komi til greina. Ég hef ekki
heyrt neina umræðu um það á íslandi
frekar en annars staðar í Evrópu að
flugmenn hafi vopn undir höndum,"
segir Heimir Már.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hef-
ur samþykkt lög sem kveða á um að
flugmenn þar í landi hafi leyfi til að
bera vopn á sér meðan á flugi stendur
og sé það gert til að komast hjá
hryðjuverkum. Frumvarpið, sem áður
hafði verið hafiiað af öldungadeild
þingsins, var samþykkt með 310 at-
kvæðum gegn 113.
muni ekki nýta sér þennan möguleika
þar sem ýmsir háttsettir aðilar sem
koma að flugstjórnarmálum í Banda-
ríkjunum, þar með talið ríkisstjóm
George Bush, hafa efasemdir um mál-
ið. Þeir telja að flugstjórar eigi að ein-
beita sér að því að fljúga vélinni og
segja að sterkari hurðir á flugstjórn-
arklefum og vopnaðir lögreglumenn
sem yrðu meðal farþega hljóti að telj-
ast betri valmöguleiki.
Að sögn Guðjóns Amgrimssonar,
upplýsingafulltrúa Flugleiða, verður
öllum flugfélögum sem fljúga til og frá
Bandaríkjunum, þar með talið Flug-
leiðum, gert skylt að styrkja dyr að
flugstjómarklefum í flugvélum sínum
seinna á árinu. „Það er samt sem áður
aðeins bráðabirgðalausn og á næsta
ári mun Boeing-fyrirtækið, sem fram-
leiðir allar þotur Flugleiða, ljúka end-
urhönnun sem unnið er að tfl að
styrkja dyraumbúnað flugstjórnar-
klefa allra Boeing-farþegaþotna," seg-
ir Guðjón. -aþ
Útimálning
á stein, þak og timbur
40%
afsláttur
HÚSASMIDJAN
Simí 525 3000 * www.husais