Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2002, Síða 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2002
DV
"the perfect pizza"
John Baker
REUTERSMYND
Eyjarslagur í Mlðjaröarhafi
Spænskur varöbátur lónir úti fyrir ströndum spænsku smáeyjarinnar Perejil und-
an strönd Marokkó sem hertekin var af marokkóskri hersveit á föstudaginn.
Hertakan hefur valdiö mikilli spennu milli þjóöanna og hefur hvorug viljaö gefa
neitt eftir en stjórnvötd í Marokkó krefjast nú yfirráöa yfír eyjunni.
Osama bin Laden enn
á lífi í Afganistan
- segir yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar
Osama bin Laden í fullu fjöri
Líklegri til aögeröa núna en þegar
hann dvaldi í skjóli talibana, “ segir
yfírmaöur þýsku leyniþjónustunnar.
„Osama bin Laden er á lífi og fer
huldu höfði í fjallahéruðum Afganist-
ans viö landmæri Pakistans,“ segir
August Hanning, yfirmaður þýsku
leyniþjónustunnar, í viðtali við þýska
blaðið Welt am Sonntag.
Hanning segist byggja þessa skoðun
sína á áreiðanlegum upplýsingum
sem sannfæri hann um að bin Laden
sé á lífl og enn þá sami lykilmaðurinn
innan al-Qaeda-samtakaima þótt hann
sé ekki mikið á ferðinni og ekki leng-
ur í beinu sambandi við helstu
tengiliði sína víða um heim.
„Þaö liggur ljóst fyrir að allt að 5000
al-Qaeda-liðar fara enn þá huldu höfði
í Afganistan og Pakistan á meðan aðr-
ir hafi horfið til síns heima þar sem
þeir skipuleggja nýjar árásir. Þeir
munu gera allt tU að komast aftur af
stað og við því verðum við að vera við
því búnir,“ segir Hanning.
Biekkuhús
Fundu gen gegn
HlV-veirunni
Breskir vísindamenn vonast tU
að gen, sem nýlega uppgötvaðist í
mannslíkamanum og virðist virka
sem vöm gegn HIV-veirunni, muni
leiða tU þess að þróa megi nýja að-
ferð tU lækninga á alnæmi.
Vísindamennirnir uppgötvuðu að
HlV-veiran vinnur venjulega gegn
geninu, sem kaUað er CEM-15, með
því að framleiða prótín sem kaUað
er Vif. Með því að fjarlægja prótínið
úr HlV-veirunni væri hugsanlegt að
CEM-15 genið hindraði útbreiðslu
HlV-veirunnar.
Aukin spenna í Kasmírdeilunni:
27 fórust í skæru-
liðaárás í Jammu
-Stjórnvöld í Indlandi kenna Pakist-
önum um mannskæða skotárás
skæruliða aðskUnaðarsinna i einu af
fátækrahverfum borgarinnar Jammu
í Kasmír í fyrrakvöld þar sem að
minnsta kosti 27 óbreyttir borgarar af
hindúatrú, mest konur og böm, létu
lífið og meira en þrjátíu særðust al-
varlega.
Að sögn sjónarvotta læddust átta
skæruliðar, dulbúnir sem hindúar,
inn í Qasim Nagar-hverfið þar sem
þeir byrjuðu á því að henda hand-
sprengjum áður en þeir hófu skothríð
á óvarið fólkið. Að sögn yfirvalda
mun sumt fólkið hafa verið skotið þar
sem það sat og hlustaði á útsendingu
frá krikketleik mUli landsliða Eng-
lands og Indlands.
Þetta er mannskæðasta árás að-
skUnaðarsinna múslíma í Kasmír síð-
an 14. mai sl. þegar 34 létu lífið í árás
á indverska herstöð í nágrenni
Jammu sem varð næstum tU þess að
styrjöld braust út mUli Indverja og
Pakistana.
Tvær hreyfingar aðskilnaðarsmna,
sem bækistöðvar hafa í Pakistan, eru
Fallnir syrgðir í Kasmír.
grunaðar um að hafa staðið fym
árásinni sem örugglega á eftir að
auka spennuna á svæðinu tU muna og
sagði Yashwant Sinha, utanríkisráð-
herra Indlands,* í gær það ljóst væri
að hún hefði verið framkvæmd með
fullri vitund og hvatningu Pakistana.
efMAITHÍASAR
MIKLATORGI VIÐ PERLUNA
Sími 562-1717
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is Sjá fieiri myndir á www.bilalif.is
BMW316, árg. 2000. Ek. 55 þús. km. Verð 1.970 þús. M. Benz 200E Classic, árg. 1996 beinsk. Ek. 94 þús. Verð 1.870 þús.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is
Isuzu Trooper dísil, árg. 1991. Ek. 64 þús. Verð 2.480 þús. Iveco Turbo dísil, árg. 1991. Ek. 132 þús. Verð 780 þus.
Sjó fleiri myndir ú www.bilalif.is
Ford Econoline 350,
vsk., árg. 1993. Ek. 145 þús.
Verð 680 þús m/vsk.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is
Nissan Patrol dísil, árg. 1991.
Langur.
Verð 980 þús.
Skoðið einnig gífurlegt úrval annarra bíla á www.bilalif.is
e
Bush boðar aukinn halla
Bandarisk stjóm-
völd búast við að
minnsta kosti 165
milljarða dollara
haUa á rikisbú-
skapnum á þessu
fjárlagaári og er
það i fyrsta skipti
síðan árið 1997 sem
farið er yfir rauða strikið á þeim
bænum.
Bush varaði strax við hallanum í
febrúar en þá boðaði hann 106 mUlj-
arða dollara halla eftir 127 mUljarða
tekjuafgang á síðasta fjárlagaári
sem endaði 30. september. Áætlaður
haUi kemur ekki á óvart eftir hörm-
ungamar í fyrra en auk þess hafa
spiUingarmálin haft sín áhrif.
Grunur um morð
Grunur leikur á að breskur fjög-
urra bama faðir á fertugsaldri hafi
myrt böm sín á aldrinum þriggja tU
tólf ára og siðan bundið enda á eig-
ið líf um leið og hann bar eld að bif-
reið sinni á fjölförnum stað í aust-
urhluta Lundúna i fyrrakvöld. Fað-
irinn mun hafa átt í forræðisdeUu
við móður bamanna.
Skotinn I dómsal
Palestínumaður í hefndarhug
réðst í gær inn i dómsal í bænum
Khan Younis á Gazasvæðinu og
skaut tU bana manninn sem réttað
var yfir. Tilræðismaðurinn var ætt-
ingi þriggja Hamasliða sem fórust í
loftárás ísraelsmanna á Gazasvæð-
inu í síðasta mánuði og var Palest-
ínumaðurinn, sem réttaö var yfir,
ákærður fyrir að hafa unniö með
ísraelsmönnum og látið vita um
verustað þeirra. Þetta gerðist á
sama tíma og loftárásir ísraels
stóðu yfir í Gaza í gær og slapp tU-
ræðismaðurinn í skjóli þeirra.
Sjö særast í loftárás
Yfirvöld í írak
segja að sjö óbreyttir
borgarar hafi særst í
loftárásum Breta og
Bandaríkjamanna i
Zi Qar-héraði um
helgina í um 350
kUómetra fjarlægð
suður frá höfuðborg-
inni Bagdad. Bandarikjamenn segja
aö loftárásimar hafi verið svar við
loftvamaárásum íraka á eftirlitsvél-
ar þeirra yfir flugbannssvæðinu síð-
ustu daga.
Átján farast í Perú
Að minnsta kosti 18 manns hafa
látið lífið í miklum byl í suðurhluta
Perú á síðustu dögum. Alejandro
Toledo, forseti landsins, hefur þegar
lýst yfir neyðarástandi á svæðinu
og fór þangað sjálfur um helgina.
Þar lét hann dreifa hjálpargögnum
tU þeirra sem hafa orðið verst úti
vegna kulda og óveðurs. Að minnsta
kosti 30 þúsund manns hafa átt við
sárt að binda vegna veðurofsans, að-
aUega í AndesfjöUum.
Heróínsmygl stóðvaö
Yfirvöld í Rúss-
landi segja að þar-
lendir landamæra-
verðir hafi nýlega
gerð upptæk 215 kUó
af heróini á landa-
mærum Tadsjikist-
ans og Afganistans
sem sé það mesta á
síðustu tíu árum. Heróínið fannst
þegar tíu manns reyndu að læðast
yfir landamærin við Pyandzh-ána
og kom tU skotbardaga þegar þeir
vom stöðvaðir af landamæravörð-
um. Fjórir úr hópi smyglar-anna
féUu í skotbardaganum en hinir
komust undan tU baka yfir ána.