Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2002, Blaðsíða 16
28
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2002
Skoðun DV
KMMŒm
Hvers konar tónlist
hlustar þú helst á?
(Spurt á Akureyri)
Anna Karen Þórisdóttir nemi:
Hiphop og píkupopp, t.a.m. Britney
Spears. Ég hlusta mikiö á FM og
einnig á efni af eigin geisladiskum.
Sonja Haraldsdóttir nemi:
Píkupopp, hiphop og örlítiö af klass-
ískri tónlist, aöallega af eigin
geisladiskum.
Steinn Kristinn Bragason nemi:
Rokk, aöallega sænsku hljómsveit-
ina Opeth. Þeir veröa samt aldrei
mjög vinsælir.
Baldvin Ringsted
framhaldsskólakennari:
lönaöarrokk og dægurtónlist. Ég
hlusta alltaf á Rás 2 en þó einnig á
tónlist úr eigin safni.
■
Jóhann Már Valdlmarsson neml:
Rokk í þyngri kantinum, Metallica og
Rammstein.
Brynjar Kristjánsson bílsmlður:
Ég hlusta mest á íslenska tónlist og
hef líka spilaö sjálfur meö hljómsveit-
um. Annars er U2 í miklu uppáhaldi.
Verra en Bandaríkin?
Spænskur ávaxtabóndi
- einn þeirra sem haft hafa uppi mótmæli viö höfuöstöövar ESB. Myndin
er tekin í síöustu viku.
Ámi Bergmann skrifar í
DV að Evrópusambandið
verði í framtíðinni engu
betra en Bandaríkin (BNA),
ólýðræðisleg, hrákapítalisk
og skeytingarlaus um
minni máttar heima og er-
lendis. Með þessu virðist
eiga að sannfæra baráttu-
fólk á íslandi fyrir frelsi,
jafnrétti og bræðralagi um
að engan stuðning sé að
hafa í þeirri viðleitni með
inngöngu í ESB, þvert á
móti. Árni verður þó að við-
urkenna röksemdafærsl-
unnar vegna að ESB sé á
margan hátt undir sterkum
áhrifum jafnaðarstefnunn-
ar, setji velferð íbúanna
fram fyrir einkahagsmuni,
gæti bróður síns og eyði
ekki miklu í vopn.
ESB er lýðræðislegt sam-
band Evrópubúa. Stjóm-
sýslan einkennist af gagn-
sæi, ábyrgð og ákvarðanir eru tekn-
ar eftir ítarlegar umræður fyrir
opnum tjöldum. Embættismenn
ESB eru fáir miðað við það sem
gengur og gerist í hirmi lýðræðis-
legu stjórnskipan Evrópuríkja og
stjórnsýslan lýtur nálægðarregl-
unni íbúunum til hagsbóta, ákvarð-
anir eru teknar eins nálægt fólki og
mögulegt er. Það hefur ekki gengið
of vel að koma á meginreglum jafn-
réttissamfélagsins hér á Islandi,
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla
sína tíð dregið lappirnar, sérstak-
lega í velferðarmálum, og sýnir ekki
frumkvæði þó hann hafi
valdataumana í sínum höndum,
skemmst er aö minnast yfirgangs-
ins gagnvart öryrkjum.
ísland er ekki það fyrirmyndar-
riki í velferðarmálum sem við vilj-
um stundum vera láta og helstu
réttarbætur til handa almenningi
undanfarin ár hafa orðið vegna
aukaaðildar okkar að ESB með
„Sjálfstœðisflokkurinn hef-
ur alla sína tíð dregið lapp-
imar, sérstaklega í velferð-
armálum, og sýnir ekki
frumkvœði þó hann hafi
valdataumana í sínum
höndum, skemmst er að
minnast yfirgangsins gagn-
vart öryrkjum. “
samningnum um evrópska efna-
hagssvæðið. Það var ekki meira en
svo að búið væri að stöðva barna-
vinnu á íslandi þegar hingað barst
fyrir fáum árum „tilskipun frá
Brussel" sem það gerði. Það er ekki
náttúrulögmál að þjóðfélög Evrópu-
sambandsins taki þróun í átt til
BNA eins og Ámi Bergmann segir,
heldur ekki þó hægri stjómir kom-
ist til valda í Evrópurikjum. Það er
miklu frekar verkefnið að koma
slíkum stjórnum frá völdum, hver í
sínu landi og saman að fylkja liði,
þvert á landamærin. Séu til svo
sterk öfl að þau geti neytt Evrópu-
sambandið á þá óheillabraut sem
spádómur Áma Bergmanns gengur
út á hvemig ætlar lýðveldið ísland
að standa gegn þeim?
Mér fmnst Ámi Bergmann sjálfur
nota þá forlagahyggju sem hann
varar þó við, að við hættum aö gera
ráð fyrir hinum frjálsa vilja og
möguleikum lýðræðisins. Viö meg-
um ekki láta nauðhyggju af þvi tagi
verða til þess að við hættum að taka
ábyrgð á vegferð þjóðarinnar og af-
skrifum þátttöku í best heppnaða
samstarfi ríkja um frið, velferð og
lýðræði sem sagan kann frá að
greina. Að sjálfsögðu hefur þjóðin
val, við getum valið að gripa tæki-
færið sem Evrópusambandið er til
þess að vinna að því að koma á vel-
ferðarríki á íslandi.
Þorlákur Axel Jönsson
menntaskólakennari skrifar:
Fyrir hvern eru rauðu strikin?
JMG
skrifar:
Jóhanna Sigurð-
ardóttir segir
brotalamir á örygg-
isneti velferðarkerf-
isins. Jóhanna vill
gera úttekt og skipa
nefndir. Atvinnu-
lausir em hluti
bótaþega og alþýðu-
samtökin hafa ekki tryggt þeim kjör
sem nálgast það sem gerist í nálæg-
um löndum. Sumum sem reynt hafa
finnst að stéttarfélögin sýni þessum
hópi tómlæti - jafnvel andúö. Verka-
Verkalýðsforingjamir em
ánœgðir því rauðu strikin
halda en ef fátcektin sem
Jóhanna talar um er stað-
reynd hlýtur maður að
spyrja fyrir hvern rauðu
strikin séu.
lýðsforingjarnir eru ánægðir því
rauðu strikin halda en ef fátæktin
sem Jóhanna talar um er staðreynd
hlýtur maður að spyrja fyrir hvern
rauðu strikin séu.
Jóhanna ætti að hafa samband
við tO dæmis forystumenn Eflingar,
sem er stórt félag i Reykjavik. Og
Jóhanna er þingmaður reykvískrar
alþýðu, Jóhanna þarf að frétta um
jafnvægið og rauðu strikin. Þvi mið-
ur hefur Eflingu mistekist í barátt-
unni fyrir bættum kjörum „litla
mannsins".
Efling virðist sjá ofsjónum yfir
kjörum opinberra starfsmanna og
amast við því að útlendingar fái hér
atvinnu og bera ýmsu við og sumu
broslegu. Stundum hefur íslensku
verkafólki þótt gott að fá vinnu er-
lendis, en það er gleymt.
Jóhanna
Slgurðardóttlr.
Garri
.Hæfur, hæfari, hæfastur
Garri hefur oftlega furðað sig á því hvemig
mannskepnunni tekst að gera einfalda hluti
flókna og flókna hluti enn flóknari. Enda kemur
það oftar en ekki á daginn að veruleikinn tekur
lyginni fram. I liðinni viku mátti lesa fréttir af
því að Leikhúsráð Akureyrar hefði, að mati
kærunefndar jafnréttismála, brotið jafnréttislög
þegar ráðið var í stöðu leikhússtjóra í vetur.
Veit betur
Tólf manns sóttu um stöðuna. Leikhúsráö
ákvað að ræða við þrjá umsækjendur, tvo karla
og eina konu. Ákvað leikhúsráð að ráða annan
> karlinn í stöðu leikhússtjóra. Konan kærði ráðn-
inguna til kærunefndar jafnréttismála þar sem
hún taldi að ráðning karlsins fæli í sér brot á
lögum um jafnan rétt kvenna og karla. Leikhús-
ráð taldi karlinn hafa meiri menntun en konan
og umtalsvert meiri reynslu að auki. En konan
taldi, eins og kærunefhdin, að hún væri mennt-
aðri en karlinn. Það eitt ætti að nægja til að hún
fengi stöðuna. Garri getur skilið aö fólk verði
svekkt telji það fram hjá sér sé gengið en skilur
ekki hvemig það getur verið brot á jafnréttislög-
um aö ráða þann hæfasta, að mati leikhúsráðs,
til starfans. Jafnvel þótt viðkomandi búi við þá
því að hafa pung lafandi milli lappanna sem aft-
ur felur i sér að þeir teljast ekki hæfir þrátt fyr-
ir að vera hæfir.
Cfiurri
fötlun að vera karlmaður. Leikhúsráð fer
með málefni leikhússins og ætti, eðli máls
samkvæmt, að vita best undir stjóm hvers
málefnum leikhússins sé best borgið. En
konan taldi sig vita betur og kærði niöur-
stöðuna. Taldi sér mismunað. Og kæru-
nefndin telur sig einnig vita betur en leik-
húsráð hver sé best til þess fallinn að
gegna stöðu leikhússtjórans.
Tímabært heljarstökk
í lögum um jafnan rétt karla og kvenna
segir að ekki megi mismuna fólki eftir
kynferði en um leið er mismunun leyfð
verði hún til að koma á jafnrétti kynj-
anna. Jákvæð mismunun heitir þetta víst
á mannamáli og telur jafnréttisráö að
beita hefði átt þess konar mismunun og
ráða konuna í starfið. Virðist ljóst að kon-
an eigi heimtingu á allt að 6 mánaða leik-
hússtjóralaunum í sárabætur vegna þess
að sá er talinn var hæfastur var ráðinn. Garri
mælir með því að löggjafinn taki löngu tíma-
bundið heljarstökk inn í nútímann í þessum efn-
um og tryggi körlum jafnan rétt á viö konur á
grundvelli þeirrar augijósu fotlunar sem fylgir
Hávaöa- og
hörkustjórnun
Ari skrifar:
Ég hef tekið eft-
ir því hvað ís-
lenskir stjómend-
ur eru oft slakir
og sinna lítt verk-
efni sínu. Svo
rakst ég á afar
fróðlega grein,
Stjórnun, eftir
Matthías Johann- Matthías
essen fyrrverandi Johannessen.
ritstjóra Morgunblaðsins, sem birt-
ist í Bifröst sem útskriftamemar í
Samvinnuháskólanum gefa myndar-
lega út. Þessa grein ættu stjómend-
ur, bæði slakir og góðir, að lesa.
Þama segir Matthías meðal annars
að hávaði og hörkustjómun sé veik-
leikamerki. Og síðan segir Matthí-
as: „Góður stjómandi verður þá
einnig að þekkja vinnustað sinn út í
æsar og helzt fólkið sem þar starfar.
Hann verður að vera tilbúinn til að
ganga í hvaða starf sem er og vinna
þá með sínu fólki eins og ekkert sé.
Vinna helzt meir en allir aðrir. Og
þá ekki sízt í teymi, ef svo ber und-
ir. Ekki endilega sem yfirmaður,
heldur jafningi."
Farmiöapakki
fyrir krakkana
Seyðfirðingur hringdi í talhólfift
(s. 550 5035 allan sðlarhringinn):
Er það hugmyndin að fordæmi
nýs bæjarstjóra okkar á Seyðisfirði
verði til þess að allir starfsmenn
sem ráðnir eru hingað tímabundið
fái pakka af farmiðum handa krökk-
um sínum sem búa í Reykjavík?
Tryggvi Harðarson segir í viðtali
við DV að ekki sé annað en eðlilegt
að borgað sé fargjald fyrir krakkana
þegar unnið er tímabundið úti á
landi. Ég bendi á að sjálfur borga ég
ýmsan kostnað krakka minna úr
eigin vasa, þar með talin fargjöld
með Flugleiðum. Forráðamenn bæj-
arins þurfa að svara því hvort t.d.
kennarar sem fengnir eru til bæjar-
ins fái það sama, þetta 10 ferðir á
vetri. Kannski er þetta almenn
stefna. Einstæðir foreldrar verða þá
nokkuð þungir á fóðrum fyrir bæj-
arfélögin.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
- ofnotuö?
Þyrlurnar má
ekki ofnota
ST skrifar:
Það er enginn vafi á að þyrlur
auka mjög öryggi við björgun fólks.
Oft hafa þjrrlur Gæslunnar og Vam-
arliðsins bjargað mannslífum þegar
hver mínúta er dýrmæt. En við
megum ekki ofnota þyrlur til björg-
unar og sjúkraflutninga. Þaö læðist
að manni sá grunur að svo kunni að
vera. Stjómstöð í Reykjavík á ekki
gott með að meta þörfina fyrir
þyrluflutning og reiðir sig á lýsing-
ar þeirra sem era á slysstað. Nýlega
flutti þyrla konu norðan úr landi á
sjúkrahús í Reykjavík þar sem kom
í ljós að meiðsl eftir að hafa dottið
af baki voru lítil sem engin og hún
útskrifuð eftir stutta stund. Maður
var nær drukknaður við laxveiðar,
en einnig það tilvik fór vel, en litlu
munaði að þyrla væri send á stað-
inn. Fleiri dæmi mætti nefna.
Vissulega er skiljanlegt að menn
vilji þyrlu til sjúkraflutninga,
spumingin er bara hvort það sé
ekki oft gjörsamlega óþarft.
I33BS.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíóa DV,
Skaftahlíft 24.105 Reykjavík
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.