Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2002, Blaðsíða 28
Með saltbragð í munni
Sigtinganámskeid ÍTR njóta ævinlega mikilla vinsælda, enda
þykir æskufólki fátt skemmtiiegra en að sigla út á Nauthóls-
víkina, ekki sist þegar segl eru þanin og beggja skauta byrs
nýtur. Særokið gefur ef til vill sumum saltbragð í munninn en
liklega er það ekki til annars fallið en að
herða krakkana og stæla á alla lund.
DV MYND: ÞÖK
Mold og hellusandur
Jaröefni - ótal gerðir
Grjót og grjóthleðsla
Flytjum sumarhús
Vörubílar - Kranabílar - Gröfur www.throttur.is
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz (íTi)
Loforð er loforð
MANUDAGUR 15. JULI 2002
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Eric Clapton:
Hefur náð
36 löxum
Veiðin i Laxá á Asum hefur heldur
betur tekið kipp eftir að hinn víðfrægi
tónlistarmaður, Eric Clapton, mætti á
svæðið fyrir tæpri viku. Á einni viku
hefur veiðin í ánni tvöfaldast en í gær-
kvöld höfðu Clapton og félagar landað
sjötíu og tveimur löxum. Sjálfur hafði
Clapton sett i 36 laxa. Allur aflinn var
tekinn á flugu, í flestum tilvikum á mjög
smáa flugu.
„Hann er lika með einn besta leið-
sögumann landsins, Áma Baldursson,
sem gjörþekkir Laxá á Ásum. Svo er
kokkurinn góður en Sturla Birgisson
matreiðslumeistari hefur séð um að
fæða mannskapinn. Ef laxinn hefði ekki
mætt núna hefði hann ekki komið í
^sumar þvi það er stórstraumur núna,“
sagði heimildamaður blaðsins spurður
um tfðindi af svæðinu.
Laxveiðin hefur glæðst mjög í lax-
veiðiám síðustu dagana. Mikið hefur
rignt og smálaxinn er farinn að sjást í
auknum mæli. Eric Clapton er, sam-
kvæmt heimildum blaðsins, afar ánægð-
ur með dvölina. Hann heldur af landi
brott í dag. -G. Bender
Mikið vatnstjón á
veitingastað
ikið tjón varð vegna vatns
Mikið tjón varð vegna vatnsleka
sem í kjallara veitingastaðarins Celtic
Cross við Hverfisgötu í gærkvöld. Til-
kynning barst um lekann kl. 20.48 og
var slökkvilið borgarinnar enn að
störfum þegar blaðið fór í prentun á
miðnætti.
Þegar slökkvilið kom á vettvang
var vatnið um 30 cm djúpt á u.þ.b. 70
fermetra gólffleti þannig að ljóst er að
um mikinn leka var að ræða. Orsakir
lekans eru ekki kunnar en talið lik-
legt að skolplagnir hafi brostið. -vig
Veðrið í vikunni
OBúast má við skýjuðu
veðri og skúrum fram eftir
_ u vikunni víða um landið.
» Áttin verður vestlæg og
reikna má með dálítilli rigningu á
Austurlandi um miðja viku. Á
flmmtudag á þó að birta tU og gæti sú
gula farið að láta sjá sig sums staðar.
Hitinn verður á bUinu 7-16 stig næstu
daga, hlýjast á Suður- og Austurlandi.
Hitastig á þó að fara hækkandi aUs
staðar á landinu eftir því sem líður á
vikuna og vindátt að verða suðlæg á
föstudag og laugardag. Þá hlýtur að
verða gott fyrir norðan.
FRETTASKOTI0
SIMINN SEM ALDREI SEFUH
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
I greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
I er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
I sólarhringinn.
550 5555
HOGGORMAR
PARADIS
Mikið framboð á svínakjöti:
Skilaverð til bænda
oft undir kostnaði
- kaupendamarkaður að myndast, segir formaður Svínaræktarfélags íslands
Skilaverð á svínakjöti til bænda
hefur að undanfomu i sumum tilvik-
um farið nokkuð
Kristinn Gylfi
Jónsson.
niður fyrir 150
krónur. Það er
langt undir kostn-
aði og eru svína-
bændur i slíkum
tilvikum að
greiða talsverðar
upphæðir með
framleiðslu sinni.
Algengt skilaverð
svínakjöts í dag
er í kringum 200
kr. en þyrfti að vera tuttugu til fjöru-
tíu krónum hærra að jafnaði eigi
framleiðslan á meðalbúi að standa
undir sér. Þetta segir Kristinn Gylfi
Jónsson, formaður Svínaræktarfé-
lags íslands, í samtali við DV. „Ég
vænti þess að staðan lagist og skila-
verð til bænda hækki eitthvað á
næstunni," segir hann.
Kristinn Gylfi segir að það sé ekki
nema í undantekningartiTvikum og
aðeins örfáir framleiðendur sem séu
að fá svo rýrt úr roði fyrir fram-
I stíunni
Svínakjöt fæst ódýrt en bændur fá
lítið í sinn hlut.
leiðslu sína sem að framan greinir.
Það séu þá helst svínabændur sem
séu að auka mikið við framleiðslu
sina og hafi ekki náð þar fótfestu
með traustum viðskiptasamböndum.
„Þeir framleiðendur sem eru búnir
að koma sér betur fyrir njóta betri og
tryggari kjara. En ég get alveg stað-
fest að menn hafa verið að fá niður í
147 kr. fyrir kílóið og þá er ljóst að
menn eru að greiða talsvert með
hverju kílói,“ segir Kristinn.
Hann segist ekki telja að krafa
matvöruverslana nú um afsláttarkjör
á svínakjöti frá bændum sé meiri en
áður. En vitaskuld reyni hver að fá
jafnmikið fyrir sinn snúð og mögu-
lega er hægt. „Það er mikil fram-
leiðsla af svínakjöti um þessar mund-
ir og þá myndast og ríkir það sem
kallað er kaupendamarkaður. Sú er
einmitt staðan núna,“ segir Kristinn
Gylfi. „En hins vegar ber að taka
fram að svínakjötneysla hefur verið
að aukast og ég sé því fram á að það
gæti hækkað verðiö - og það gæti
gerst með haustinu.“
í verslunum hefur að undanfómu
mátt fá svínakjöt á hagstæðu verði.
Svinabógur hefur á góðum dögum
fengist á um 300 kr. kg og kótelettur
á um 600 kr. „Vissulega njóta neyt-
endur þessa lága verðs og milliliðim-
ir einnig, þeir sem slátra gripunum,
vinna kjötið og selja það. En það era
síst bændumir sem njóta þessa eins
og augljóst er,“ segir Kristinn Gylfi
Jónsson að síðustu. -sbs
Ugla besta
leikkonan
Ugla Egilsdóttir var valin besta leik-
konan á kvikmyndahátíðinni í Karlovy
Vary í Tékklandi sem lauk í gær. Verð-
launin hlaut hún
fyrir leik sinn í
kvikmyndmni
Mávahlátur eftir
Ágúst Guðmunds-
son og veitti hún
þeim viðtöku sjáif.
Þau era mikill
heiður fyrir hana
og alla sem að
Mávahlátri standa. Ágúst leikstjóri var
á staðnum ásamt Margréti Vilhjálms-
dóttur leikkonu og Kristínu Atladóttur
framleiðanda.
Kvikmyndahátíðin í Karlovy Vary
er alþjóðleg og ein af eftirtektarverð-
ustu kvikmyndahátíðum sem haldnar
eru í heiminum. Hún er í A-flokki og
eitt af ströngu skilyrðunum fyrir þátt-
töku þar er að myndir hafl ekki tekið
þátt í öðrum keppnum. Leikstjórar
leggja mikið upp úr að koma afurðum
sínum þar að enda vekja verðlauna-
myndimar ávallt mikla athygli. Átján
leiknar kvikmyndir kepptu til verð-
launa á hátíðinni í ár og var Mávahlát-
ur sú eina frá Norðurlöndunum. Tékk-
neska myndin Year of The Devil
hreppti aðalverðlaunin, kristalhnött-
inn. Ugla kom heim um miðnætti í
gærkvöld.
-Gun.
Orðaskipti í Eden í Hveragerði - þrætt um 42 mínútur:
Bragi kýtti við kraftakarla
Til nokkurra orðaskipta kom í gær
milli Braga Einarssonar, blómasala og
veitingamanns, og nokkurra helstu
kraffakarla landsins. Þeir voru um helg-
ina fyrir austan Qall þar sem haldin var
keppnin Suðurlandströllið 2002. Einn
liðurinn var burður á Húsavíkurhell-
unni, sem átti raunar að vera úrslita-
þáttur keppninnar. Hann átti að vera á
dagskrá klukkan 16.30 í gær en vegna
veðurs um helgina dróst nokkuð að
kraftakarlamir mættu á svæðið. Þeir
mættu þegar klukkan var tólf mínútur
gengin í sex. Við það sætti Bragi í Eden
sig ekki og kýtti hann nokkuð við
kraftakarlana vegna þessa.
DVWYND: EH
Tveir kraftakarlar og einn blómasali.
„Bragi var aðeins erfiður við okkur,"
sagði Andrés Guðmundsson kraftajöt-
unn í samtali við DV í gærkvöld. Hann
sagði rysjótta veðráttu helgarinnar hafa
sett dagskrá keppninnar um Suður-
landströllið lítið eitt úr skorðum og því
hefðu menn mætt vonum seinna í heliu-
burðinn við Eden. Vegna viðbragða
Braga var þessi liður keppninnar blás-
inn af og segir Andrés menn hafa sætt
sig við það, enda orðnir lúnir eftir afl-
raunir helgarinnar.
„Mér fannst rétt að bíða með þennan
Uð keppninnar úr því þeir komu svona
seint Þeir eiga þetta bara inni og eru vel-
komnir seinná,“ sagöi Bragi Einarsson.
Hann sagði marga hafa mætt í Eden til að
fylgjast með kraftakörlunum. Sér hefði
hins vegar fúndist að úr því þeir mættu
seint að dokað yrði við, fyrir svo utan að
úrhellið í Hveragerði hefði ekki boðið
upp á ævintýri utan dyra. -sbs/-eh
HEIMAGÆSLA
ÓRYGGISMIÐSTÖÐ ISIANDS
BORGARTÚNI31 • SlMI 530 2400
WWW.OI.IS
Sérfraeðlngar
í fluguveiði
3ar Á V.
Sportvörugerðin hf.,
Skiptiolt 5, s. 562 »383.