Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 11 Skoðun voga þér að tala svona til mín. Ekki stjóma ég vísi- tölunum," sagði ráðgjafmn og skeUti á. Maðurinn hlustaði undrandi á slitr- óttan tóninn í símanum og lagði síðan á. „Það er vist sama hvort við lifum eða deyjum. Það koma engar milljónir,“ sagði hann við konu sína. Nokkrum dögum síðar fengu þau bréf frá lögfræð- með kröfu um hærra ið- fyrir spuminguna. „Nei, þetta er allt í lagi. Við hljótum að geta greitt nokkur þúsund á mánuði fyrir allar miiljónimar,“ sagði hann eyðilagð- ur yfir að hafa traðkað á góð- mennskunni með þessum hætti. Konan lét hjónin hafa afrit af öll- um blöðunum sem þau höfðu skrif- að undir. Hjónin og hundurinn fylgdu henni til dyra. Ráðgjafinn leit á klukkuna og hún sagðist þurfa að flýta sér. „Bæ,“ sagði hún og háifhljóp í burtu. „Voðalega lá manneskjunni allt í einu mikið á,“ sagði maðurinn ást- úðlega við konu sína og þau féllust í faðma. Framtíðin beið þeirra full af fyrirheitum um dijúpandi smjör á hverju strái. „Er ekki lífið dásam- legt,“ sagði maðurinn klökkur af gleði. reyndu að átta sig á því hve mikið vantaði upp á 25 milljónimar. „Hvað þýða þessir mlnusar aftan við mánaðargreiðslurnar," spurði konan. Maðurinn vissi það ekki en taldi að þetta væri eitthvað í sam- bandi við ávöxtunina. Eftir nokkrar vangaveltur ákvað hann að hringja í verðbréfafyrirtækið og leita skýr- inga. Hann spurði eftir ráðgjafan- um og var spurður um nafn og beð- inn að bíða augnablik. „Hún tekur ekki síma þessa dag- ana,“ sagði röddin á símalínunni. Það var farið að síga í manninn og hann bað um einhvern sem gæti skýrt yfirlitsblaðið. Eftir annað „augnablik" kom loks maður i sím- ann. „Ég vil vita hvað þessir mínusar þýða,“ sagði maðurinn. Sá sem varð fyrir svömm var óþolinmóður þeg- ar hann saði að mínusinn þýddi auðvitað að ávöxtunin væri nei- kvæð. „Peningarnir hafa rýmað,“ sagði hann. „Fæ ég þá ekki 25 millj- ónir ef ég verð gamall?" spurði mað- urinn. Hinn sagðist ekki mega vera að þessu og kvaddi. Hjónin skutu á skyndifundi. Mínusamir þýddu að 10 þúsund krónur sem þau reiddu af hendi urðu að átta þúsund krónum á einu ári. Hið áhyggjulausa ævikvöld virtist vera tálsýn ein. Þau botnuðu ekki neitt í málinu. Línurit ráð- gjafans sem öll lágu til himins stemmdu ekki við þessa niðurstöðu. „En líftryggingin er þó í fullu gildi,“ sagði maðurinn hug- hreystandi. „Já,“ sagði konan og þau þögðu það sem eftir lifði kvölds og hvort hugsaði sitt. Ráðgjafinn hringir Næstu dagana vom þau döpur enda var búið að taka af þeim ann- aðhvort gullið eða grænu skógana. Þau voru að byrja að jafna sig á þessu og sætta sig við að dauðinn einn gæti gert þau rík þegar síminn hringdi. Maðurinn svaraði og kunn- ugleg rödd ráðgjafans glumdi í eyr- um hans. „Hæ. Ég er að hringja út af líf- tryggingunni," sagði hún. Maður- inn var hissa og hann benti á að ekki þyrfti neina umræðu um hina farsælu líftryggingu þar sem hjónin væru bæði ofar moldu. „Það er komið upp smá vanda- mál,“ sagði ráðgjafinn. „Vísitölurn- ar hafa hækkað svo mikið að ég ætl- aði að bjóða ykkur að hætta við trygginguna eða lækka bótaupp- hæðina til að sleppa við hærri mán- aðargreiðslur," sagði hún og gamal- kunnur málrómur sem bar keim af ótæmandi góðmennsku tók sig upp að nýju. Manninum var nóg boðið. „Ertu að segja mér að við fáum ekki milljónir, hvorki lífs né liðin? Var þetta allt ósatt sem þú sagðir gullið og grænu skóg- ana?“ spurði maðurinn sár og reiður. „Þú skalt ekki Tilhlökkun Næstu mánuðina leið ekki sá dag- ur að hjónin ræddu ekki um yfir- vofandi sælutíð sem virtist vera sitt hvorum megin við gröf og dauða. Að vísu höfðu þau aðeins hrokkið við þegar í ljós kom að 15 þúsund krónur hurfu sporlaust út af Visa- reikningnum mánaðarlega en það var ekkert vit í að ergja sig á slíku. Þetta voru peningar sem söfnuðust upp á bankareikningi úti í bæ og biðu þess að hjónin fullnægðu samningnum annaðhvort með lang- lífi eða ótímabærum dauða. Ráð- gjafinn hafði nefnt að þau fengju yf- irlit í pósti sem gæfi til kynna hvemig sjóðurinn dafnaði á ör- skotshraða. „Þetta er fljótt að safn- ast upp,“ hafði hún sagt. Daglega datt póstur inn um lúg- una en lengst af voru það bréf sem fólu í sér vonbrigði. Rafmagns- reikningar, símareikningar, Visa- reikningar og annað þesslegt bar hæst. Sjö mánuðum eftir heimsókn ráð- gjafans kom síðan bréfið sem þau höfðu beðið eftir. Yfirlit frá verð- bréfafyrirtækinu tíundaði allar þær greiðslur sem runnið höfðu í sjóðinn góða. Hjón- in sett- ust niður með yfir- litið „Niðursagað og sérpakkað“ Ritstjórnarbréf Óli Björn Kárason aöalritstjóri Á stundum er nauðsynlegt að rifja upp gamla tíma - þó ekki væri til annars en auka vonina um að þrátt fyrir allt muni hlutimir verða lagfærðir. Þetta á ekki síst við þeg- ar kemur að þvi að reyna að skilja íslenskt landbúnaðarkerfi, en neyt- endur hafa enn á ný horft upp á varðmenn kerfisins grípa til vama fyrir kerfið sjálf en ekki neytendur eða bændur. íslenskt þjóðfélag hefur gengið í gegnum róttækar kerfisbreytingar á undanfomum 10-15 árum - breyt- ingar sem leitt hafa til stórkostlegra framfara og bættra lifskjara. En minni fólks er svikult og ungt fólk sem ekki kynnist af eigin raun þvingun og opinberri haftastefnu tekur flesta hluti sem sjálfsagða. Okkur hefur miðað vel á veg þó ým- islegt sé óunnið frá því útsala á sér- pökkuðu lambakjöti var hluti af efnahagsaðgerðum ríkisstjómar Steingríms Hermannssonar sumar- ið 1989. Nú er sá tími sem betur fer að baki að fjölmiðlar birti ljósmynd- ir af starfandi fiármálaráðherra, líkt og gert var þegar Ólafur Ragnar Grímsson var á forsíðu Þjóðviljans með sérpakkað lambakjöt. í yfirlýsingu ríkisstjómarinnar - vinstri stjómar Steingríms Her- mannssonar - um aðgerðir í efna- hagsmálum 19. júní 1989 sagði með- al annars: „Einnig hefur verió ákveöió aö bjóóa á nœstu 3-4 mánuöum sérunn- ió lambakjöt á tilboósveröi. í þessu felst aö kjöt í sérstökum umbúöum veröur selt á 20-25% lœgra veröi en annaö kjöt. Kjötiö veröur til sölu alls staóar á landinu, þannig aö verö- lœkkunin skili sér til allra lands- manna. Kjötiö veröur niðursagað og sérpakkaö í neytendaumbúðir og selt i hálfum skrokkum. Frá veröa tekn- ir þeir hlutar, sem ekki nýtast nema í sérvinnslu." Breyttir tímar? Þegar yfirlýsing ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar um sér- staka útsölu á lambakjöti (og það sér- pökkuðu) er höfð í huga viröist kjúklingamálið sem DV hefur greint frá síðustu daga ekki vera sérlega merkilegt. Að minnsta kosti eru kjúklingar ekki hluti af efnahagsráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar og lík- legast dettur engum heilvita stjórn- málamanni í hug að efna til sérstakr- ar útsölu á landbúnaðarvörum á veg- um ríkisins. Þó eru ekki nema þrett- án ár síðan forráðamenn ríkisstjórn- ar létu taka af sér sérstakar myndir með lambakjötið í fanginu. Fyrir þrettán árum gekk ríkis- stjórnin hart fram í því að bjarga loð- dýrarækt (gæluverkefni stjórnmála- manna) og haft var í hótunum við viðskiptabankana sem töldu sér ekki fært að taka þátt í sértækum pólitísk- um lífgunartilraunum. Fyrir þrettán árum var reynt að hefia enn á ný rík- isvæðingu atvinnulífsins. í sjávarút- vegi var skipulega unnið að ríkis- væðingunni í gegnum Hlutabréfasjóð og aðra opinbera og hálfopinbera sjóði. Forsjárhyggjan var við lýði og eina hugmynd stjórnvalda til að koma í veg fyrir atvinnuleysi var að auka framkvæmdir á vegum hins op- inbera. Þá mætti forsætisráðherra glaðbeittur á aðalfund Vinnuveit- „Einnig hefur verið ákveðið að bjóða á nœstu 3-4 mánuðum sérunnið lambakjöt á tilboðsverði. í þessu felst að kjöt í sér- stökum umbúðum verður selt á 20-25% lœgra verði en annað kjöt. Kjöt- ið verður til sölu alls staðar á landinu, þannig að verðlœkkunin skili sér til allra landsmanna. Kjötið verður niðursagað og sérpakkað í neytenda- umbúðir og selt í hálfum skrokkum. Frá verða teknir þeir hlutar, sem ekki nýtast nema í sér- vinnslu. “ endasambands íslands og sagðist geta tekið undir það að stjórnvöld hafi á undanfórnum árum átt að gera margt með öðrum hætti en gert var, en hins vegar væri það billegt að kenna ríkinu einu um þvi víða í þjóð- félaginu hafi verið haldið óskynsam- lega á málum. Og ekki sá ráðherrann ástæðu til að horfa til landbúnaðar- kerfisins, til offiárfestingar eða til Sambands íslenskra samvinnufélaga. Nei, Steingrímur beindi spjótum sín- um til Vestmannaeyja og sagði: „ Við höfum alls ekki lœrt aö taka á þessum gífurlegu sveiflum sem fylgja okkar atvinnusamsetningu. Viö höf- um aldrei lœrt aö taka af toppunum og reyna að geyma til erfiöu áranna. Mér er til deemis sagt aö eftir mjög góöa vertíö í Vestmannaeyjum nú, þá fari þeir um landið og kaupi báta. En þeir ætla ekki aö borga neinar skuld- ir. Þeir ná í báta þar sem erfiölega gengur og menn œtla aftur í lotteríiö og treysta á að nœsta vertíö veröi góö. “ Um svipað leyti og forsætisráð- herra lét þessi orð falla bárust fréttir um sívaxandi halla á ríkissjóði og skuldasöfnun ríkissjóðs hjá Seðla- bankanum. Og til að kenna öðrum var forsætisráðherra Grænhöfðaeyja boðið til landsins til viðræðna um þróunaraðstoð íslands við eyjarnar á sviði stjómsýslu og skatta. í frétt Morgunblaðsins sagði meðal annars: „1 viðræðum ráðherranna var tæpt á nýjum þáttum í aðstoð íslendinga við íbúa eyjanna. Steingrímur sagði að meðal annars hefði verið samþykkt að íslenskur sérfræðingur á sviði skattheimtu héldi til Grænhöfðaeyja. Einnig kom aðstoð tengd jarðhita á eyjunum upp á borðið í viðræðunum. Þá lýsti forsætisráðherra Grænhöfða- eyja yfir áhuga á því að eyjaskeggjar fengju aö kynna sér íslenskt stjórn- kerfi og stjómunarhætti." Bjartsýni Þegar litiö er til sögunnar er ástæða til töluverðrar bjartsýni. Þrátt fyrir allt hafa vindar atvinnu- frelsis fengið að blása. Líkt og nú þykir það hjákátlegt að ríkisstjórn efni til sérstakrar útsölu á sérpökk- uðu lambakjöti, þá munu menn gera góðlátlegt grín að þeirri stað- reynd eftir fiórtán ár að ekki hafi fengist leyfi til að flytja inn kjúklinga og selja neytendum fyrir hagstætt verð. En breytingar undangenginna ára hafa ekki komið af sjálfu sér. Fyrir þeim hefur þurft að berjast og aukið frjálsræði í landbúnaði mun heldur ekki koma af sjálfu sér. Eins og bent var á í leiðara DV síðastlið- inn fimmtudag mun markaðsvæð- ing landbúnaðarins ekki ná fram að ganga á meðan varðliðar kerfisins fara sínu fram án mikillar and- stöðu. Þær hömlur sem settar eru af hálfu ríkisins á frjálsa starfsemi á íslandi í stórum hluta efnahagslífs- ins hafa verið framsæknum fyrir- tækjum fiötur um fót og neytendum og launþegum til tjóns, enda annars vegar leitt til minni hagvaxtar en ella og hins vegar til lægri launa og hærra vöru- og þjónustuverðs.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.