Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002
Helgarblað
Tilkoma Europris á matvörumarkaði ýtir undir frekari samkeppni:
Baráttan um brauðið
haröa samkeppni viö þær lágvöru-
verösverslanir sem fyrir eru á mark-
aðnum. Af viðbrögðum keppinaut-
anna má dæma að þeir eru hvergi
bangnir við aukna samkeppni og
taka henni fagnandi - eru í raun kok-
hraustir eins og lesa mátti í DV í
gær, þar sem Guðmundur Marteins-
son, framkvæmdastjóri Bónuss, sagði
að þar á bæ mundu mennn aldrei
gefa lægsta verðið eftir.
En hvað hefur fjölgun þeirra sem
flagga undir merkjum lágvöruverðs-
verslana að segja fyrir hag neytenda?
Hressir samkeppnina
„Ég fagna alltaf nýjum aðilum sem
koma inn á markaðinn því það ýtir
hressilega undir samkeppnina sem
aftur kemur neytendum til góða í
HaukurLárus
Hauksson
blaöamaöur
lægra vöruverði. Það hefur orðið
mjög jákvæð þróun á íslandi í þá
veru að íslendingar vilja ekki dýru
búðimar. Gott dæmi er Nýkaup sem
átti að vera „klassabúð" og hefur ef-
laust verið það. Vöxturinn er allur í
lágvöruverðsverslunum og það er
vegna þess aö aðilar í verslun vita að
meirihluti Islendinga beinir sínum
viðskiptum þangað - einfaldlega
vegna þess að þar er lægra vöruverð.
Ég fagna nýjum aðilum á markaðin-
um þó það fari svolítið í taugarnar á
mér aö þeir geti ekki notað íslensk
nöfn á búðirnar sínar,“ sagði Jó-
hannes Gunnarsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, við DV.
Jóhannes segir tilkomu Europris
jákvætt merki um þá þróun sem er
að verða í matvöruverslun. „Ég vil
hafa sem mesta fjölbreytni á þessum
markaði. Ég geng út frá því að menn
séu í þessu til að græða en sam-
keppnin spomar hins vegar gegn því
að menn safni ofsagróða. Það hefur
boriö á fákeppniseinkennum í mat-
vöruversluninni og því er af hinu
góða að tekið er spor í hina áttina.
Því má ekki gleyma að við stöndum
alltaf frammi fyrir því vandamáli að
íslenski markaðurinn er mjög lítill.
Þess vegna þarf að fara mjög gætilega
og mikilvægi samkeppnisyfirvalda er
aldrei meira en einmitt nú.“
Áformað er aö opna aðra Europris-
verslun í Skútuvogi um miðjan ágúst
en framhaldið ræðst siðan af móttök-
um viðskiptavina. Og þar komum við
að þvi sem mestu máli skipir í vexti
og viðgangi verslunar, hvort sem
hún er lágvöruverðsverslun eða ekki:
Viðskiptavinurinn á siðasta orðið.
Meö tilkomu Europris-verslunar-
innar, sem opnuð verður á Lynghálsi
4 í dag, hefur enn ein lágvöruverðs-
verslunin bæst í flóru slíkra verslana
hér á landi. I fljótu bragði má nefna
hátt í 10 slíkar verslanakeðjur en þar
hefur farið mest fyrir Bónus, Nettó
og Krónunni. Þá má einnig nefna
Samkaup og Sparkaup, Gripið og
greitt og Kaskó.
Upphafið má rekja aftur til apríl
1989 þegar Jóhannes Jónsson opnaði
fyrstu Bónusverslunina í Skútuvog-
inum. Sú verslun var opnuð í kjölfar
mikillar gjaldþrotahrinu á matvöru-
markaði og nægir þar að nefna gjald-
þrot Miklagarðs, Grundarkjörs og
Víðis. Því þarf ekki að koma á óvart
að svartsýni skyldi einkenna um-
sagnir um tilraun Jóhannesar á sín-
um tíma. Satt að segja biðu menn eft-
ir að Bónus færi á hausinn. En
reyndin varð auðvitað önnur eins og
sagan sýnir og síðan hefur Bónus
opnað hverja verslunina á fætur
annarri um allt land og mælist enn
með lægsta verðið í verðkönnunum
DV og fleiri aðila. Lágvöruverðs-
verslunin var einfaldlega komin til
að vera. Ekki löngu eftir tilkomu
Bónuss komu verslanir Nettós og
skriðan fór af stað. Neytendur höfðu
geflö tóninn; þetta vildu þeir.
Beinharður sparnaður
Tilkoma lágvöruverðslverslan-
anna er áhrifamikill kafli í verslun-
DV-MYND HARI
Meiri fjölbreytni á matvörumarkaöi
Ljóst er aö Europris, þaöan sem myndin er, fer í beinharöa samkeppni viö þær lágvöruverösverslanir sem fyrir eru á
markaönum. Jóhannes Gunnarsson, formaöur Neytendasamtakanna, fagnar nýjum aðiium á markaönum
því þaö hressi upp á samkeppnina.
arsögunni sem fært hefur íslenskum
neytendum ómældar upphæðir í
beinhörðum sparnaði. Eftir á að
hyggja var þetta eðlileg þróun á ferli
sem hófst með tilkomu stórmarkaöa
og um leið lægra vöruverðs en
þekkst hafði hjá „kaupmanninum á
horninu“. Drifkrafturinn var aukin
hagræðing og lægra vöruverð og
verður ekki gengið framhjá verslun-
um Hagkaupa í því sambandi. Lág-
vöruverðsverslanimar lækkuðu
verðið hins vegar enn meira í krafti
lágmarkstilkostnaðar í rekstri og
hagstæðra innkaupa. Samkeppnin
var meiri en íslenskir neytendur
höföu átt að venjast og um leið lækk-
aði kostnaðurinn við rekstur heimil-
anna umtalsvert.
Því til staðfestingar má nefna að
DV sýndi nýlega fram á að fimm
manna fjölskylda sparaði sem næmi
20.925 kr. í hverjum mánuði, eða
251.100 kr. á ári, með því að velja
ódýrustu verslunina í stað þeirrar
dýrustu við kaup á mat og hreinlæt-
isvörum. Sú fjárhæð sem þannig
sparast dugar næstum fyrir góðu
sumarfrii erlendis fyrir alla fjöl-
skylduna.
Stór innkaupalager
Með tilkomu verslunar Europris
er sleginn nýr tónn 1 lágvöruverðs-
verslun en vöruúrvalið verður, að
sögn aðstandenda, meira en fólk hef-
ur átt að venjast í hliðstæðum versl-
unum. Verslun Europris hér er sú
fyrsta sem er sett á laggirnar utan
Noregs en þar má finna um 120 slík-
ar verslanir. Þær eiga sameiginlegan
lager sem kaupir inn vörur milliliða-
laust alls staðar að úr heiminum.
Verslanimar hér verða í innkaupa-
sambandi við þær norsku og hafa að-
gang að lager þeirra. Allar verslanir
Europris era reknar með viðskipta-
leyfi eða „franchise", þ.e. hver versl-
un er rekin af sérstöku fyrirtæki.
Auk lágs vöruverðs gerir inn-
kaupasambandið við Norðmenn
versluninni hér kleift að bjóða upp á
„partí" af einstökum tilboðsvörum,
þ.e. vörur sem fást á ákveðnu tilboði
aðeins meðan birgðir endast og
kannski ekki aftur.
„Þetta er alveg ný tegund verslun-
ar hér á landi, með geysilega mikið
úrval af matvöru og sérvöru. Við
verðum með stórar búðir og vöruúr-
valiö verður mjög gott. Við munum
bjóða sem lægst vöruverð en beinum
spjótum okkar ekki að einum né
neinum keppinaut, enda ný tegund af
verslun á ferðinni," sagði Lárus Guð-
mundsson við DV, en hann er einn
aöstandenda nýrrar lágvöruverðs-
verslunar, Europris. Auk hans
standa þeir Ottó Guðmundsson og
Matthías Sigurðsson að versluninni
en Matthías verður framkvæmda-
stjóri og mun annast daglegan rekst-
ur.
Gefa ekkert eftir
Hvað sem einstökum útfeerslum
líður er Ijóst að Eouropris fer í bein-
Ausur til efnisflutninga
á vinnusvœðum
m
Sýnlngartœkl á staðnum
VÉlAVERt
Lágmiílí 7 Keytjav/k Sími: 58* 2600 • Akoreyri Sími 461 4007 • www.velaver.is
Álversyfirlýsing undirrituð
Undirrituð var í gær viljayfirlýs-
ing milli íslenskra stjórnvalda,
Landsvirkjunar og bandaríska álris-
ans Alcoa um byggingu álvers á
Reyðarfirði. „Þetta er stór dagur,“
sagði Valgerður Sverrisdóttir iönað-
arráðherra þegar Scunningar voru
undirritaðir. Alcoa hefur lýst yfir
áhuga á því að kaupa Reyðarál,
þannig að álver eystra geti risið
sem fyrst með tilliti til umhverfis-
mats. Fulltrúar Norsk Hydro og
Alcoa hafa hins vegar ekki náð sam-
an um málið.
Svínaverð í lágmarki
Skilaverð á svínakjöti til bænda
hefur í sumum tilvikum upp á
síðkastið farið niður fyrir 150 kr. og
í slíkum tilvikum eru svínabændur
að greiða talsverðar upphæðir með
framleiðslu sinni. Algengt skilaverð
er í dag i kringum 200 kr. á kg og
þarf að hækka, að mati Kristins
Gylfa Jónssonar, formanns Svína-
ræktarfélags íslands. Hann segir
milliliði og neytendur njóta þessa
lága verðs, en síst bændur.
Vilja flytja inn kjúklinga
Hagkaup vilja
flytja inn 300
tonn af kjúkling-
um og lofar 30%
verðlækkun. Þá
færi kílóverðið
úr 2.000 kr. niður
í 1.300 kr.
Kjúklingafram-
leiðendur boða
10% hækkun á
framleiðslu sinni og gera það í
skjóli þröngs eignarhalds á mark-
aði, segir Finnur Ámason, fram-
kvæmdastjóri Hagkaupa. Á þriðju-
dag auglýsti fyrirtækið útsölu á
kjúklingum. Landbúnaðarráðherra
segir það koma sér spánskt fyrir
sjónir að tala um skort á kjúkling-
um og auglýsa um leið útsölu.
Banki í kjúklingum
Búnaðarbanki íslands hefur verið
mjög í sviðsljósinu þessa vikuna. Er
það ekki síst vegna frétta DV af
ítökum bankans í framleiðslu
kjúklinga og í fóðurblöndunarstöðv-
um. íslenskir framleiðendur hafa
gagnrýnt þetta mjög, enda er Búnað-
arbankinn kominn í lykilaðstööu á
markaðnum sem eigandi fram-
leiðslu fyrirtækisins Reykjagarðs og
um leið einn helsti viðskiptabanki
stærstu keppinautanna. Virðist sem
eignarhald Búnaðarbankans í grein-
inni sé farið að skapa mikinn
vanda.
íslendingur í Njarðvík
Gengið var á þriðjudag frá samn-
ingum um kaup á víkingaskipinu
íslendingi hingað til lands, þar sem
Reykjanesbær er forgönguaðili. Um
60 millj. kr. skuldum verður létt af
skipinu með því að greiða þær upp
eða semja út af borðinu. Gunnar
Marel Eggertsson skipstjóri mun á
næstu dögum halda utan að ná i
skipiö sem í framtíöinni veröur
ataösett í Njarövík. „Þetta verður
sterk landkynning," segir Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
-sbs