Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Page 31
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 HelQcxrblað I>V „Ég persónulega hef ekki þannig reynslu af irkinu. Hef hingað til bara notað það til að fylgjast með og spjalla við fólk um daginn og veginn. Fjöl- margir, kannski flestir, fara á irkið til að ræða við aðra, vini sína og ókunn- uga, um hin aðskiljanlegustu máleihi.“ En ekki má gleyma þeim sem eru beinlínis í hættulegum hugleiðingum. Menn hafa lært að misnota irkið - eins og raunar flest annað undir sólinni - og til eru úlfar í staffænni sauðargæru. „Það hafa komið upp óþverramál með bamaníðinga og aðra ofbeldis- menn inni á rásunum. Karlmaður um þrítugt reyndi til dæmis ítrekað í vor að ná til fjórtán eða fimmtán ára stráka gegnum þennan vettvang. Bauð þeim heim til sín eða í sund með sér, bauð þeim ókeypis klámspólur og jafiivel í heimsókn til að horfa á klám með sér. Ég tilkynnti lögreglunni um þetta en hún getur bara nánast ekkert gert svona fyrirfram nema hvatt fólk til að sýna varúð. Vegna þessa og svipaðra mála, sem farið var að bera á, fór í gang átak á vegum yfirvalda í vetur undir yfirskriftinni Öruggt spjall þar sem vakin var athygli á þessu og böm og foreldrar hvattir til að hafa varann á. Það er mjög erfitt að rekja eða fylgj- ast með svona úrþvættum og þess vegna nauðsynlegt að fólk geri sér grein fyrir þessu." Tölvunörd og stoltur af því Vatn streymir leið minnstrar fyrir- stöðu og fólki er líkt farið. Það er vel þekkt í vestrænu þjóðfélagi að bæði or- sök og afleiðing framfara almennt er að lífið verður sífellt auðveldara og væri þar hægt að tiltaka allt frá sjónvarps- kvöldverðum til netbankaviðskipta. Maðurinn stendur nú á þröskuldi þess að geta lifað lífmu, ef hann vill, án þess að sjá nokkum tímann framan í aðra manneskju. Á misjöfnu þrífast bömin best, segir einhvers staðar og kann að leynast sannleikskom í þeim orðum, að minnsta kosti er ljóst að áreynsla og þrekraunir innan skynsamlegra marka hvers og eins gera hverjum manni gott, þroska hann og þjálfa. Er irkið æski- legt út frá þessu sjónarmiði? Ættu þeir notendur irksins sem nota það vegna hræðslu við hefðbundin mannleg sam- skipti ekki annað hvort að leita sér hjálpar eða bara bíta á jaxlinn og taka skrefið í stað þess að eiga þess kost að geta flúið á náðir irksins, aldrei tekist á við fóbíu sína og með tímanum orðið verr haldnir? „Eins og ég segi: Ef allt annað er vonlaust er þetta alla veganna einn möguleiki. Fólk þarf þá ekki að vera í algerri einangrun. Það má svo aftur spyija hvort þetta sé endanleg lausn á þeirra vanda eða skammtímaúrræði til að brúa bilið á milli og búa það í hag- inn fyrir eitthvað meira.“ Heimsendaspámenn kynnu aó segja aó þessi tœkni gœti verið upphafiö að því aófólk hœtti hara alveg aó hittast, sitjiffekar hvert og eitt við sína tölvu og foróist óþœgileg og fyrirhafnarsöm mannleg samskipti eins og heitan eld- inn...? Bimbi glottir: „Jú, þetta hefúr maður heyrt. En ég held að fólk þoli ekki enda- laust að fela sig bak við texta. Hann getur verið innihaldsríkur, haft mikla merkingu og sagt mikið um fólkið en það er karakterinn sem skiptir mestu máli. Fólk reynir að sjá glitta í hann gegnum orðin, lesa milli línanna. Karakter er gerður úr svo miklu fleiri þáttum en hægt er að lýsa eða lesa úr orðum. Ég held þetta sé ekki raunhæf mynd, nema þarfir, eðli og persónu- leiki mannins komi til með að breytast verulega. Ekki hægt að segja til um það. Það játa líka flestir að útlitið gefi fyrsta neistann og það skiptir jafnvel mestu máli að margra mati.“ Hér áóan minntist þú á þá tilhneig- ingu fólks aö „búa sér til sína eigin ímynd". Er mikið um þaö á irkinu aó fólk reyni aö vera eitthvað eóa einhver sem þaó er ekki? Aftengi sigffá veruleik- anum um leiö og þaó tengist inn á Net- ió og láti drauma sína rœtast í augum [sicj annarra? „Ég hef orðið hissa við að hitta fólk sem ég hef fram að því aðeins þekkt á irkinu. Maður veit bara ekki hvort ástæðna þess er að leita hjá fólkinu eða manni sjálfum. Það er stóra spuming- in. En í þeim hópi sem ég umgengst vanalega eru flestir á sömu línu og ég, það er nota sitt raunverulega nafri, eru ófeimnir við að sýna myndir af sér ef út í það fer og eru ekki að þykjast vera eitthvað annað en þeir eru, hvorki meira né minna. Svona taktar eru líka óneitanlega háðir þeim takmörkunum að samskiptin geta bara náð svo og svo langt áður en upp kemst um heila klabbið. Ef fólk hefúr áhuga á að hitta einhvem tímann þann sem það er að spjalla við getur verið bagalegt að hafa komið sér upp öðm sjálfi með lygum, hálfúm sannleika eða hálfkveðnum vís- um. Ætlar fólk þá að fara að standa í einhverri leiklist frammi fyrir bláó- kunnugu fólki úti í bæ?“ Hljómar eins og handrit að róman- tiskri gamanmynd, Fríða og dýrið á tölvuöld: „Hún hitti draumaprinsinn á Netinu en þegar hún sá hann breyttist draumurinn í martröð." Gæti reyndar líka verið hryllingsmynd, með sama slagorði. Þaó er mjög vinsœlt hjá svokölluöum Jaóarhópum" í þjóðfelaginu að kvarta af mismiklu tilefni yftr Jordómum" úr öllum áttum. Veróió þió irkarar fyrir einhverjum slíkum ófognuði? „Jájá, ég er auðvitað irk-nörd,“ lýsir Bimbi yfir kinnroðalaust. „Ég skrifaði grein í Moggann í vor þar sem ég var að kynna rásina okkar og segja fólki frá þessu öllu saman. Skömmu síðar kom frændi minn til mín og sagði: Sæll, frændi, ég sá greinina þína. Heyrðu, svo þú ert bara svona mikill nörd?! En ég tek þessu létt og læt ekk- ert á mig fá. Ég er tölvunörd og hef alltaf verið það. Er bara stoltur af því, kann að minnsta kosti eitthvað.“ Morðhótun á Þorláksmessu Hvaó er þaö einkennilegasta sem þú hefur lent í á irkinu? „Seint á síðustu Þorláksmessu kom dýrvitlaus maður inn á rásina sem ég stjóma og var að rífa kjaft við allt og alla, virkilega dónalegur. Ég henti hon- um út en hann kom rakleiðis aftur inn, valdi prívatspjall við mig og fór að ausa yfir mig svivirðingum og hóta mér. Meðal annars hótaði hann að limlesta mig og drepa, sagði til dæmis að ég skyldi ekki búast við því að vera lif- andi þegar kæmi að því að opna pakk- ana. Þegar hann spurði mig hvar ég ætti heima var ég svo bláeygur að gefa upp heimilisfangið mitt, hafandi ekkert að fela frekar en fyrri daginn. Bjóst líka ekki við að hann meinti mikið með þessu og sagði honum bara að koma. Kortéri seinna kom litli bróðir stráks- ins á irkið og sagði mér að strákurinn sem ég hafði verið að tala við og hafði hótað mér lífláti væri akkúrat þá stundina keyrandi heim til mín blind- fúllur og dópaður. Manni stóð nú ekki alveg á sama þá, komið fram á aðfanga- dag, að vera að gá við og við út um gluggann að kolbrjáluðum ofbeldis- manni fýrir utan húsið. Mætti ég þá frekar biðja um jólasveininn! En svo fór nú reyndar svo að þeir komu hvor- ugur.“ -fin ÍTALSKUR ÚTIARINN - GRILL TU sýnis i Smáralimi um htrlgim YfirNn. á baó Ntrgiaðmálai hxxnia lit xem er Htrgi aó leugia vtó gas Tihmliö i SHMarbmtaóinn Ganiitm Fleifi i$sk*t>*v °l ljeng-0.r-aj.riit vathlahleg! Uú l.ooo íssítáj>ur °g *-000 kehgurupnh runni, « i ^rWk Ö—Ö.W WV*™'* hef-ar far« fram úr okk-r vonum Og vfS Jjökítuiu fráfc»ra.r viífökur. Til J,eSSuM Mihla áhuga IteMur loha.sehíihg af voruM, 1.400 Íssftápar og 1.3,00 hehgúrupriR, lil Hndsins uM Miíjah SeJ>leMfcer. ÍÍOMCÍU slrax Meí BOINS Merhih þíh í XLkO i fíópavogi e3a BYfeo á Slerárlorgi, Altureyri og Merítlu þér íssháp eía Itehgúruprilt. vi? hofuM SVo saMfcahi J>ega.r vörurhur ItoMa. W@t ALírtltn,! 1 :ni K<x<«voeur Sfml. S64 0»t0 ÍKz sév'b hieira. Uhi leikíhh og vörurha.r á tíotííttíolsus Verð 49.900, kr KjmningtuvenI Verð 69.900, kr Kyimtngarvft'ó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.