Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Side 36
AA
HelQorbloö JOV LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002
Sakamál
Umsjón
Páll Ásgeir
Ásgeirsson
Hörkulegir ástarleikir enduðu með ósköpum:
Leyndardómar
daunilla hússins
Þegar tíð hvörf qleðikvenna af götunum
voru orðin grunsamleg fór lögregluna að
gruna að raðmorðingi gengi laus og svalaði
óhuqnanlequm fqsnum sínum á aumum ftkl-
um sem urðu að selja sig til að eiga fgrir
daglegum skammti. Alqenqt var að konurn-
ar þgrftu að kaupa eiturefni fgrir 100 doll-
ara á dag. Þær voru ekki ídgrum flokki og
þurftu þvímarga viðskiptavini til að vinna
fgrir kaupinu sínu og voru ekki vandar að
mannvali. Flestar voru þær á sakaskrá fgrir
minni háttar afbrot og fæstar höfðu sam-
band við fjölskgldu sína eftir að þær lentu á
qötunni.
Gleðikonur í bænum Ploughkeepsie hurfu hver af
annarri á árunum fyrir aldamótin síðustu. í fyrstu
var því ekki veitt mikil athygli þar sem fólk í þessari
atvinnugrein kom og fór án þess að skýra frá breyt-
ingu á högum sínum. Bærinn er við Hudsonfljót, um
120 km norður af New York-borg. Þar er flest í niður-
níðslu og er staðurinn eftirsóttur af smáglæpamönn-
um, eiturlyfjaneytendum og sölumönnum sem sjá lið-
inu fyrir fíkniefnum. Aðalgatan er morandi af gleði-
konum sem flestar eru flklar og þurfa mikla peninga
til að fjármagna neysluna. Alls kyns flökkulýður
hefst við í bænum og er mannlíf þar fjölbreytt og
hættulegt og mála sannast að lögreglan er fyrir löngu
búin að gefast upp á að halda uppi lögum og reglu
þar. En það gerir staðinn aðeins enn eftirsóknarverð-
ari fyrir smáglæpamenn.
Fyrst hurfu þrjár gleðikonur af götunum og síðar
fleiri og þær voru orðnar sjö áður en yfir lauk. Lög-
reglan í bænum kallaði FBI til að aðstoða við að upp-
lýsa kvennahvörfin og voru athugaðar ekki færri en
500 vísbendingar án árangurs.
Allar konurnar sem hurfu voru þekktar á götum
bæjarins. Allar utan ein voru hvítar á hörund, af Afr-
íkukyni og áttu sameiginlegt að vera smávaxnar og
pasturslitlar. Eins og títt var um konur í þessari at-
vinnugrein í bænum voru þær heilsuveilar og illa út
lítandi af fíkniefnaneyslu og óvelkomnum kynmök-
um.
Þegar tið hvörf gleðikvenna af götunum voru orðin
grunsamleg fór lögregluna að gruna að raðmorðingi
gengi laus og svalaði óhugnanlegum fýsnum sínum á
aumum fíklum sem urðu að selja sig til að eiga fyrir
daglegum skammti. Algengt er að konurnar þurfi að
kaupa eiturefni fyrir 100 dollara á dag. Þær voru ekki
í dýrum flokki og þurftu því marga viðskiptavini til
að vinna fyrir kaupinu sínu og voru þær ekki vandar
að mannvali. Flestar voru þær á sakaskrá fyrir minni
háttar afbrot og fæstar höfðu samband við fjölskyldu
sína eftir að þær lentu á götunni.
Leitað var að líkum kvennanna á líklegum stööum
með aðstoð hunda. Einnig var athugað hvort þær
hefðu leitað á aðrar slóðir í leit að viðskiptavinum
eða sætu í fangelsum fyrir einhver afbrot. Kafarar
könnuðu botn fljótsins. Lögreglumenn spurðust fyrir
um konurnar í húsum við miðbæinn þar sem helst
var von til að einhver kannaðist við þær. En hvergi
fannst tangur né tetur af horfnu gleöikonunum í
Ploughkeepsie.
Oft er mjög erfitt að hafa uppi á mönnum sem mis-
þyrma gleðikonum eða myrða þær. Það er einkum
vegna þess að þær fara með nánast hverjum sem vill
eiga við þær viðskipti og eru sjaldnast nein önnur
tengsl milli seljanda og kaupanda og fara kaupin
fram á mismunandi stöðum. Eftir því sem fleiri kon-
ur hurfu voru lögreglumenn vissari í sinni sök að
sami maðurinn ætti sök á hvarfi þeirra en lengi vel
voru þeir litlu nær um hver hann var.
Böndin berast að viðskiptavini
Undir áramótin 1999 bárust sögur um undirheim-
ana að sölukonur ástarunaðar kvörtuðu undan manni
sem beitti þær hörku og ofbeldi á meðan á atlotum
stóð. Honum var lýst sem stórum og sterklegum
blökkumanni sem barði þær jafnvel til meðvitundar-
leysis og hótaði enn hroðalegri misþyrmingum á meö-
an hann neytti aflsmunar á þeim og brjálaðastur var
náunginn þegar kom að þeim punkti sem kynlífsfræð-
ingar helgarblaðanna kalla fullnægingu. En orðróm-
urinn um ofbeldisfulla blökkumanninn barst ekki til
lögreglunnar fyrr en löngu eftir að allir I subbuhverf-
unum vissu um athafnir hans.
Kendall Francois var vel þekktur í melluhverfi
Ploughkeepsie. Hann bjó í sjúskuðu hverfi í bænum.
Þegar lýsing á honum barst lögreglunni fór að kvikna
á perunni. Gleðikona var nýbúin að kæra hann fyrir
að hafa þjarmað að sér á meðan á samforum stóð og
þegar farið var að róta í kærum varð ljóst að fleiri
konur, sem svipað stóð á fyrir, höfðu kvartað undan
ofbeldi mannsins en kærunum var stungið undir stól,
eins og svo mörgu öðru í þessum bæ.
Þar sem lögreglan hafði engan annan grunaðan um
raðmorðin var Kendall settur undir strangt eftirlit og
fylgst með honum dag og nótt með aðstoð mynd-
bandavéla. í heila viku aðhafðist hann ekkert sem gaf
tilefni til handtöku. Á hverjum morgni ók hann móð-
ur sinni til vinnu en hún er hjúkrunarkona á geð-
veikrahæli. Að þvi loknu hélt hann beint í þær götur
sem gleðikonurnar héldu sig og sýndu.
Að viku liðinni var Kendall kallaður á stöðina og
yfirheyrður. Hann svaraði öllum spurningum kurt-
eislega og yfirvegað. Ekkert tilefni fannst til að úr-
skurða hann í varðhald eða kæra fyrir eitt eða neitt.
Þá var það áriðl999 að gleðikona ein kærði Kendall
Francois fyrir árás og barsmíðar. Hún bar að hann
hefði ekið á hvítum fjögurra dyra bíl að gangstéttinni
þar sem hún var að falbjóða sig. Hún kannaðist við
Kendall, hafði oft séð hann á þessum slóðum og fór
upp í bílinn með honum. Hann kvaðst ætla að aka
henni heim til sín. Þegar þangað kom fóru þau inn í
svefnherbergi á götuhæð. Það þar þess merki að vera
herbergi systur hans.
Þegar inn var komið heimtaði maðurinn að gaman-
ið skyldi hefjast strax en konan vildi fá peningana
fyrst, að öðrum kosti yrði hann að aka henni heim án
tafar. Þá brjálaðist maðurinn og barði hana og
kastaði henni hálfmeðvitundarlausri á rúmið og hélt
með annarri hendi kyrkingartaki um háls henni og
barði hana með hinni og juðaði á henni á fullu skriði.
Konan streittist ekki á móti þar sem hún bjóst við að
þá myndi sá harðhenti sturlast enn meira og jafnvel
ráða henni bana. Eftir að hafa lokið sér af róaðist of-
beldismaðurinn og ók konunni aftur í lauslætishverf-
ið og skilaði henni upp á gangstéttina þar sem þau
hittust upphaflega. Hún kærði hann umsvifalaust.
Lílianisleifar finnast
Sagan um að raðmorðinginn væri fundinn flaug
um og fyrr en varði voru blaðamenn og sjónvarpsbíl-
ar komnir á vettvang og reyndu að komast sem næst
húsinu sem Kendall bjó í ásamt foreldrum sínum og
systur. Lögreglan lokaði götunni og hóf húsrannsókn.
Francois-fjölskyldan var ekki vinsæl i hverfinu, þótti
skrýtin og hús hennar draugalegt. Það stóð andspæn-
is bálstofu þar sem útfarir fóru fram. Krakkarnir í
hverfmu kölluðu það fýluhúsið, þar sem vonda rotn-
unarlykt lagði frá þvi, eins og af sorphaug.
í þetta sinn viðurkenndi Kendall að hafa misþyrmt
gleðikonunni Christine Sala og bar að hún hefði ætl-
að að hætta leiknum þá hæst bar en samt fyrir leiks-
lok. Þá var hann spurður hvort hann vissi eitthvað
um afdrif kvennanna sjö sem horfnar voru meö dul-
arfullum hætti. Hann bað um að fá að sjá myndir af
þeim. Kendall viðurkenni þegar að hafa myrt fjórar
þeirra en var ekki alveg viss um hvort hann hefði
iðkað helreið með þeim hinum.
Eftir fleiri klukkustunda yfirheyrslur og játningar
sagðist morðinginn vera hissa á að ekki hefði komist
upp um hann fyrr.
Þegar lögreglan hóf húsleit neituðu foreldrar
Kendall er sterklega byggður maður og niikill um
sig. Það fór lítið fyrir smávöxnum gleðikonum í
faðmi hans og margar þeirra áttu þaðan ekki aftur-
kvæmt.
Kendalls og systir, sem öll bjuggu í húsinu, að vita
neitt um morðin. Hins vegar sögðu þau að Kendall
hefði sagt þeim að heil þvottabjarnarfjölskylda hefði
drepist uppi á háalofti og stafaði ódaunninn, sem það-
an barst, frá hræjunum.
Húsið var allt í sóðalegu ástandi og kvikt af maur-
um, músum og kakkalökkum. Óhrein matarílát fylltu
eldhúsvaskinn og skíturinn lak um öll herbergi. Ekki
virtist hafa verið skipt á rúmunum árum saman og
daunninn var illþolandi.
Kendall var beðinn að vísa lögreglumönnum á lík
kvennanna sem hann myrti og var sagt að leit að
þeim yrði ekki hætt fyrr en þau fyndust og væri auð-
veldast fyrir hann að segja til þeirra strax. Þá brá svo
við að morðinginn harðneitaði að hafa myrt konurn-
ar og tók fyrri játningar til baka. En það var skamm-
góður vermir því fimm lík fundust á háaloftinu. Þau
voru á misjöfnu rotnunarstigi en öll illa farin og föt-
in voru eins og druslur utan á rotnu holdi. í kjallar-
anum fundust þrjú konulík til viðbótar. Áttunda lík-
ið reyndist vera af aðkomugleðikonu sem enginn
hafði saknað og hafði hún því ekki verið á skrá yfir
týndar persónur.
Leitað var um allt húsið en fleiri lík fundust ekki.
Það var ærinn starfi að rannsaka likamsleifar kvenn-
anna og komast að því hver var hver. En það tókst að
lokum og ættingjar fengu líkin til greftrunar.
Lífstíðar- og dauðadómur
Kendall Francois var fæddur í húsinu þar sem lík-
in fundust og ólst þar upp. Hann varð ftjótlega mikill
á velli, hár og þykkholda. í framhaldsskóla lék hann
amerískan fótbolta en gafst upp á námi 1989. Þá gekk
hann í herinn, entist þar ekki lengi og varð að láta
sér lynda láglaunastörf til að framfleyta sér. Um tima
var hann húsvörður í skóla og þar kölluðu krakkam-
ir hann „skítalykt" og bráðlega var hann rekinn fyr-
ir ruddalega framkomu gagnvart skólatelpum. Þegar
hann var handtekinn var hann atvinnulaus.
Foreldrar og systir voru ásökuð um að hafa leynt
glæpum Kendalls en töldust varla sakhæf vegna
ástands þeirra og hirðuleysis. Þau báru að það hefði
verið erfitt að kæra yngsta barnið á heimilinu og af-
henda lögreglunni. Það hefði þýtt dauðadóm og að þvi
vildu þau ekki stuðla.
Eftir réttarhöld var Francois Kendall dæmdur fyr-
ir átta morö að yfirlögðu ráði og til vara fyrir átta
manndráp og eina líkamsárás. Dómsorðið hljóðaði
upp á lífstíöarfangelsi.
En örlögin tóku í taumana því eitt fórnarlamba
Kendalls kvað sjálft upp yfir honum dauðadóm og
fullnægir honum í fyllingu tímans. í fangelsinu þjáist
raðmorðinginn af alnæmi og biður þar síns skapa-
dægurs.