Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2002, Page 38
> 46 He / c) a rb la cJ JO'V LAUGARDAGUR 20. JÚLf 2002 i ''' ^ Ókomin fomeskjan: „Týnda“ Þursaplatan Á myndinni sjást Þursar við vinnslu á „týndu'* plöt- unni, sennilega er hún tekin vorið 1983. Frá vinstri: Ásgeir Óskarsson, Egill Ólafsson og Tómas M. Tóm- asson. Þótt íslensk popptónlist eigi sér ekki longa sögu á hún sér gmsar goðsagnir sem poppá- hugamenn skeggræða gfir uínglasi og kom- ast sjaldan að einni niðurstöðu. Ein slík goðsögn er „tgnda“ Þursaplatan. Skömmu áður en Stuðmenn tóku upp þráðinn að ngju sumarið 1982 hófu Þursar gerð fimmtu plöt- unnar. Þeirri vinnu er ekki enn lokið og lík- sinni styrk og hann náði að dekka einn kvöldverð fyrir hljómsveitina á einhverju kaffihúsi í Reykjavík," segir Egill Ólafsson, söngvari Þursaflokksins, og útskýrir um leið ástand sem margir listamenn kannast við. „Það mætti enginn á tónleika með okkur,“ segir Tómas M. Tómasson bassaleikari og tekur í sama streng og Egill: „Við vorum kannski að spila fyrir fimmtíu manns á hverjum tónleikunum á fætur öðrum og það segir sig sjálft að þetta hefði aldrei getað gengið." Sumarið 1982 fóru flestir Þursar í Stuðmannafötin og gerð kvikmyndarinnar Með allt á hreinu hófst. Stuðmannaæði var í uppsiglingu. legast Igkur henni ekki íbráð. £n hi/ers uegna lauk hljómsveitin aldrei uið plötuna sem er að sögn nánast fullkláruð? Sú staðreynd að til er óútkomin Þursaplata er gremjuleg, ekki síst fyrir þær sakir að á síð- ustu plötu Þursa, Gæti eins verið?, var skö|): unargleðin í hámarki og væntanlega hefur sú gleði smitað gerð fimmtu plötunnar, alla vega til að byrja með. Þeir höfðu sett á fót hljóðver- ið Grettisgat nokkru áður og þar pældu þeir út og suður í nýjum lögum. En það var alltaf eilíft hark að vera Þurs og tíðin batnaði ekki í upphafi níunda áratugar- ins þegar íslendingar urðu allt í einu diskófrík á einni nóttu. Og um svipað leyti kom Grease- æðið sem bætti ekki úr skák. Hinn diskódans- andi almenningur vildi fremur sökkva sér i nostalgíuna og bömpa við plastbítið en að pæla í framúrstefnulegri rokktónlist úr smiðju Þursa. Plötur þeirra seldust að vísu ágætlega en ísland var og er lítill markaður og hljóm- sveitin gat ekki lifað eingöngu á plötusölu. „Svona hljómsveit hefði einungis getað lifað á styrkjum frá hinu opinbera. Við fengum einu Afturhvarf til fortíðar Eftir að tökum á kvikmyndinni lauk hófu Egill, Tómas og Ásgeir Óskarsson trommari vinnu við fimmtu Þursaplötuna. Þetta var haustið 1982 og báru þeir þrír hitann og þungann af vinnslu nýju plötunnar. Þegar þörf krafði var hóað í Þórð Árnason gítarleik- ara og Rúnar Vilbergsson fagottleikara en bann hafði hætt í hljómsveitinni í maí 1980. Að sögn Egils voru nýju lögin þyngri en á Gæti éins verið? sem skýrir kannski þátttöku Rúnars í hljómsveitinni að nýju. „Við vorum kannski eilítið að hverfa aftur til upprunans á fimmtu plötunni. Þetta voru átta lög sem viö unnum að og öll voru þau í lengri kantinum og flóknari en á plötunni á undan,“ útskýrir hann. Platan átti að heita Ókomin forneskjan og lögin voru flest eftir Egil. Meðal þeirra voru Fjandsamleg návist II og Þórdís sem bæði áttu eftir að rata á sólóskífur Egils, það fyrra á Tifa tifa (1991) og hið síðarnefnda kom út á hinni stórgóðu plötu Nýr engill í fyrra. Lögin voru í mótun þegar Þursar héldu í sína fimmtu og jafnframt síðustu tónleikaferð um landið vorið 1983. Það var fátt nýtt undir sólinni og líkt og áður fjölmenntu Islendingar ekki á tónleika hjá hljómsveitinni. Líklega hefur þetta áhugaleysi ekki hjálpað til þegar leggja átti lokahönd á nýju plötuna en engu að síður hélt hljómsveitin áfram að vinna í hljóð- verinu og lögin voru smám saman að taka á sig endanlega mynd. „í raun var platan nánast fullkláruð," segir Egill. „Við áttum eftir að hljóðblanda hana og bæta einhverju smávægi- legu við.“ Menn urðu að eiga fyrir salti í grautinn og því fóru Stuðmenn aftur i gang sumarið 1983 og fylgdu eftir gríðarlegum vinsældum Með allt á hreinu. Nú var sannkallað Stuðmanna- æði skollið á. Túrinn hófst áður en Þursum tókst að ljúka við plötuna en að honum lokn- um tóku þeir upp þráðinn að nýju. En nú voru lögin „farin að eldast“, eins og Tómas orðar það og greinilega farið að fenna í sporin sem hljómsveitin hafði þegar tekið veturinn 1982-83. Hljómsveitin hélt áfram að hittast af og til en líklega ekki af sama eldmóði og áður ef marka má orð Tómasar. Menn voru komnir á kaf í önnur verkefni og þann 27. maí 1984 sam- einaðist Þursaflokkurinn í hljóðverinu i sið- asta sinn til að blása í glæðurnar. En platan vildi einfaldlega ekki klárast. Hljómsveitin spilaði á nokkrum tónleikum þetta vor og á þeim voru flutt lög af hinni óútkomnu plötu. Sennilega hefur hljómsveitin enn haft hugann við verkefnið þá um haustið því myndbönd voru gerð við tvö lög en líkt og platan hafa þau aldrei komið almenningi fyrir sjónir. Tveimur árum síðar stóð til að klára plöt- una og útgáfufyrirtækið sáluga Grammið ætl- aði að gefa hana út en allt kom fyrir ekki. Eg- ill útskýrir afdrif plötunnar sennilega best: „Menn höfðu þroskast frá þessu og það var ekki hægt að blása lífi í þetta eftir öll þessi ár.“ Endurkoma Þursa Vonir manna glæddust óneitanlega í hitti- fyrra þegar sú fregn barst til eyma að Þursar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.