Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Page 1
'■*
lilfi
■ /£TT!R ASTHILDAR
HELGUDÓTTUR. BLS. 20
!í—
VO
LO
DAGBLAÐIÐ VISIR
231. TBL. - 92. ARG. - MIÐVIKUDAGUR 9. OKTOBER 2002
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
Ráðist inn í hús og jaxlar
dregnir úr karlmanni
- læknar verða oft varir við tilvik sem benda til misþyrminga og aukinnar hörku í undirheimum
Samkvæmt heimildum DV mun
hafa verið ráðist inn á heimili fólks
um miðja nótt í Garðabæ fyrir
skömmu og jaxlar dregnir úr hús-
ráðandanum á staðnum. Vart þarf
að taka fram að deyfing hefur ekki
verið viðhöfð við þessa aðgerð né
heldur að svæfmgalæknir hafi verið
viðstaddur. Þessi atburður mun
ekki hafa verið kærður til lögreglu,
væntanlega vegna ótta viö frekari
líkamsmeiðingar.
Jón Baldursson, yfirlæknir á
slysadeild Landsspítala háskóla-
sjúkrahúss, segir að slíkt tilfelli
myndi líklega frekar rata inn á borð
tannlækna. „Við höfum þó stundum
grun um að eitthvað æði misjafnt
hafi gerst þegar fólk kemur illa
haldið til okkar. Fólk gefur sagt
manni hvað sem er varðandi skýr-
ingar á slíku sem engin leið er að
sannreyna. Það er hætt við að menn
séu duglegir að fela hlutina, sérstak-
lega ef það tengist fikniefnaviðskipt-
um. Þetta fólk kærir ekki til lög-
reglu.“
Annað slagið berast sögur af ótrú-
legum fantaskap og misþyrmingum
sem beitt er í undirheimunum á
höfuðborgarsvæðinu. Fæst þessara
mála enda á borði lögreglu vegna
ótta við viðkomandi viö frekari lík-
amsmeiðingar. Meðal ungmenna í
Reykjavík er fuilyrt að skuldarar
séu stundum dregnir inn í herbergi
á afviknum stað i miðborginni þar
sem þeim sé misþyrmt. Gjaman sé
þá beitt borvélum og þá borað niður
í axlir manna eða hnéskeljar. Sögur
af þessum toga hafa þó ekki fengist
staðfestar þó starfsmenn fikniefna-
lögreglu kannist vel við þær. Jón
Baldursson segist líka kannast við
þetta, en ómögulegt sé að segja til
um orsakir áverka.ef gefnar séu upp
falskar ástæður. Því geti hann ekki
staðfest að slík tilfelli hafi komið til
þeirra.
Oftast er það sagt tengjast upp-
gjöri fikniefnaskulda þar sem menn
svífast einskis. Skemmst er að
minnast er ungum manni var rænt
í Hveragerði annan i hvítasunnu og
troðið inn í bifreið þar sem honum
var hótað með byssu og hamri. Mað-
urinn sem var 22 ára slapp við illan
leik i Hafnarfirði. Kærði hann mál-
ið, en dró síðan kæruna til baka
vegna ótta um frekari aðgerðir.
DV mun á næstu dögum fara frek-
ar í saumana á þessum alvarlegu
sögum um misþyrmingar í undir-
heimaveröldinni hér á landi og
birta greinaflokk á fréttasíðum
blaðsins þar sem rætt verður við
fjölda fólks sem tengist þessum
anga samfélagsins.
-HKr.
= - * m
Hildur Runa fær ser tesopa í
morgun en hún nærist á fáu
öðru í hungurverkfalli gegn
stóriðju og virkjunum. Hér
býður hún Wade Huges,
talsmanni Alcoa sopa í
$ morgunsárið. DV-mynd GVA
I GEGNUM ELDINN
AGORA, FAGSYNING
ÞEKKINGARIÐNAÐARINS:
■1*
Faum
unglingana
til að tala
saman
Vil gera
jafnt
við alla
Te í hungurverkfalli:
Blóöberg
og eyrarrós
„Ég lifi nú bara á vatni og
ýmsum islenskum tejurtum,
drekk te sem búið er til úr
þeim,“ sagði Hildur Rúna
Hauksdóttir hómópati í samtali
við DV. Hildur Rúna hefur hafið
hungurverkfall til að mótmæla
virkjunaráformum Landsvirkj-
unar og fyrirhugaðri stóriðju á
Austurlandi. Mun hún einungis
nærast á vatni og tejurtum á
meðan.
- En hvaða jurtir eru þetta?
„Þetta eru ýmsar jurtir sem
hægt er að tina í umhverfinu og
ekki síst á hálendinu. Þar eigum
við fjársjóði. Ég get nefiit blóð-
berg, eyrarrós og fleira."
Hildur Rúna sagði óvíst hve
lengi hungurverkfallið myndi
standa en hún yrði undir eftir-
liti vinkvenna sem væru hjúkr-
unarfræðingar og auk þess
sækti hún í eigin fræði, hómópa-
tíuna. Hún sagðist engu kvíða
þar sem sterkur stuðningshópur
væri á bak við hana. Hún
sagðist jafnvel eiga von á að
fleiri hæfu hungurverkfall með
sér.
Hildur Rúna hóf mótmæla-
stöðu við Borgartún 20 í morgun
ásamt fleirum og hafði þar
tesopa meðferðis á brúsa. -hlh
JVC
THA9
129.990,
Verð áður kr. 149.990
Eitt glæsilegasta
heimabíókerfið á markaðnum
í dag. Eitt með öllu.
Slónvamsmiðstöðin
RAFTÆKJAVERSLUIil • S10UMULA 2 • SIMl 5G8 S090