Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Blaðsíða 13
13
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002
DV
_______Þetta helst
■'fTrjirtm LTrr!73reT;i
HEILDARVIÐSKIPTI 3.601 m.kr.
Hlutabréf 2.442 m.kr.
Húsbréf 608 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Búnaöarbankinn 931 m.kr.
o SÍF 640 m.kr.
Pharmaco 569 m.kr.
MESTA HÆKKUN
© Íslandssími 5,7%
Q Búnaöarbankinn 2,1%
Q Pharmaco 1,4%
MESTA LÆKKUN
© Marel 3,2%
© SR-Mjöl 1,4%
© Kaupþing 0,8%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.304
- Breyting 0,47%
Krónan styrkist mest
gagnvart dollar
Frá því um áramótin hefur gengis-
visitala krónunnar styrkst um 8,8%.
Mest hefur styrkingin verið gagnvart
bandariskum og kanadiskum dollara
eða um 15,3% i hvoru tilviki. Gengi
krónunnar hefur styrkst um 10,4%
gagnvart japönsku jeni, 8,6% gagnvart
sterlingspundi, 6,2% gagnvart evru og
6,1% gagnvart dönsku krónunni.
Gengi krónunnar hefur veikst um
2,4% gagnvart norsku krónunni.
Krónan veiktist mikið á haustmánuð-
um síðasta árs og fór gengisvísitaia
hennar upp í 151 stig. Krónan hefur
aftur á móti styrkst það sem af er ári
vegna mun betri þróunar verðbólg-
unnar og viðskiptahallans en bjart-
sýnustu menn þorðu að vona. Þannig
hefur gengi krónunnar verið í kring-
um 125-130 síðustu vikur.
Morgundreifing
Viðskipta-
blaðsins efld
Dreiflng Viðskiptablaðsins að
morgni miðvikudags hefur verið
stórlega efld með samningi við
Morgunblaðið. Með samningnum
tekur Morgunblaðið að sér alla
dreiflngu Viðskiptablaðsins á höf-
uðborgarsvæðinu og á Akureyri.
Prá og með deginum í dag eiga því
allir áskrifendur Viðskiptablaðsins
á höfuðborgarsvæðinu og á Akur-
eyri kost á því að fá Viðskiptablað-
ið til sín í morgundreifingu að
morgni útgáfudags.
Öflugt dreifikerfi Morgunblaðs-
ins tryggir útburð á Viðskiptablað-
inu á miðvikudagsmorgnum til
áskrifenda þannig að á höfuðborg-
arsvæðinu á útburði að vera lokið
kl. 7.00 og á Akureyri kl. 8.00.
Stefnt er að því að útvíkka dreif-
ingarsamstarfið þannig að það nái
einnig til landsbyggðarinnar allrar
þegar fram llða stundir.
JP Morgan gefur
út greiningu
á deCODE
JP Morgan hefur gefið út greining-
arskýrslu á deCODE og er ráðgjöf
þess hlutlaus sem er óbreytt afstaða
frá síðasta verðmati. í greiningunni
kemur fram að samningurinn við
Merck breyti ekki í grundvallarat-
riðum mati JP Morgan á væntri arð-
semi deCODE og að ekki sé ástæða
til að breyta fyrri afkomuspá upp á 1
dollara tap á hlut árið 2002 og 0,75
dollara tap á hlut 2003. Á hinn bóg-
inn segir að samningurinn við
Merck sé viðurkenning á skilningi
deCODE á virkni gena og aðferða-
fræði félagsins sem geti nýst til þró-
unar nýrra lyfla. Þá segir að með
samningnum hafi deCODE fundiö
leið tU að markaðssetja gagna-
grunnskerfi sitt (Clinical Genome
Miner) án þess að veita of víðtækan
aðgang að grunninum. JP Morgan
spáir að tekjur félagsins nemi 73
milljónum dollara á næsta ári en fé-
lagið sé vel í sveit sett tU að víkka út
samstarfið við Merck og ná samning-
um við fleiri stór lyfjafyrirtæki.
Viðskipti
Útlánavöxtur lífeyr-
issjóða eykst á ný
Útlánum lífeyrissjóða
/ janúar 1999 námu útlðn lífeyrissjóöanna til sjóöfélaga 40 milljöröum króna.
MikUl vöxtur hefur verið í útlán-
um lifeyrissjóða tU sjóðfélaga und-
anfarin ár. í janúar 1999 námu útlán
lífeyrissjóðanna tU sjóðfélaga 40
mUljörðum króna. Síðan hafa útlán-
in tvöfaldast og námu þau tæplega
81 miUjarði króna í lok júlí 2002.
Um þetta er fjaUaö í Hálf fimm
fréttum Búnaðarbanka íslands. Þar
kemur fram að um áramótin
2000/2001 fór vöxtur útlána á föstu
verðlagi yfir 25%, hvort sem litið er
tU síðustu þriggja, sex eða tólf mán-
aða. Vöxturinn fór siðan lækkandi
aUt fram tU mars í ár þegar þriggja
mánaða vöxtur, umreiknaður á árs-
grundvöU, fór niður í 8,6%. Síðan
hefur vöxturinn hins vegar aukist
og er kominn yfir 15%, hvort sem
litið er tU síðustu þriggja eða sex
mánaða.
Þrátt fyrir aukinn útlánavöxt líf-
eyrissjóða undanfarna mánuði, má
lesa úr tölum Seðlabankans fyrir
lánakerfið í heUd að heUdarútlán tU
heimUa vaxi ekki með sama hraða
og áður. Því virðist sem um tU-
færslu sé að ræða frá bönkunum tU
lífeyrissjóða, að því er segir í Hálf
fimm fréttum.
Samkvæmt tölum frá Seölabanka
íslands námu brúttóskuldir heimU-
anna 694,3 mUljörðum króna í árs-
lok 2001. Skuldir heimUanna hjá líf-
eyrissjóðum námu því 10,6% af
heUdarskuldum þeirra. Sambæri-
legt hlutfaU var 8,7% í lok árs 1999.
GreiningardeUd Búnaðarbankans
segir að aukna markaðshlutdeUd líf-
eyrissjóðanna megi skýra með ýms-
um hætti. í fyrsta lagi hafi flestir líf-
eyrissjóðir hækkað hámarkslán
sjóðfélaga fyrir nokkrum árum um
aUt að helming, í 4 miUjónir króna.
1 öðru lagi hafi fasteignaverð hækk-
að gríðarlega á síðustu árum sem
þýðir aukna veðhæfni. I þriðja lagi
bjóði lífeyrissjóðirnir mjög góð kjör
á lánum, enda fylgi fasteignaveð
lánsumsókn.
Umsjón: Viðskiptabladiö
Sameining
EFA og Þróunar-
félagsins
samþykkt
Hluthafafundir Eignarhaldsfé-
lagsins Alþýðubankans og Þróun-
arfélags íslands samþykktu á
mánudag sameiningu félaganna.
Sameinað félag ber nafn Þróunar-
félags Islands en forstjóri verður
Ásmundur Stefánssón, fráfarandi
framkvæmdastjóri EFA. Félagið
mun nýta fjárfestingabankaleyfi
EFA. Hlutafé sameinaðs félags
verður 2.441 miUjónir króna og
kemur 55% í hlut fyrrum hluthafa
EFA en 45% í hlut fyrrum hlut-
hafa Þróunarfélags íslands. Sam-
runi félaganna miðast við mitt ár
2002 en heildareignir félaganna
samkvæmt samrunaefnahags-
reikningi eru 11,8 milljarðar
króna. Ljóst er að með sameining-
unni verður til öflugri eining sem
betur er í stakk búin tU að taka
þátt í áhættusömum fjárfesting-
um, sprotafyrirtækjum og um-
breytingarverkefnum. Þá mun
stærri eining að öðru óbreyttu
gefa færi á hagkvæmari fjármögn-
un og yfirstjórn. Gagnvart íjárfest-
um felur stækkun félagsins í sér
færi á að gera lægri ávöxtunar-
kröfu tU sameinaðs félags en tU
EFA og Þróunarfélagsins hvors
um sig. Væntanlega mun seljan-
leiki hlutabréfa sameinaðs félags
sömuleiðis verða meiri.
Investor Relation Magazine:
Össur og Opin kerfi hljóta verðlaun
Árlega veitir tímaritið Investor
Relations Magazine skráðum fé-
lögum viðurkenningu fyrir góð
samskipti og góða upplýsingagjöf
tU fjárfesta. í flokki stórra og með-
alstórra fyrirtækja var Össur hf.
hlutskarpast á íslandi (e. Best IR
by a Icelandic Company) en sigur-
vegarar í sams konar flokki ann-
ars staðar á Norðurlöndunum
voru Nokia í Finnlandi, TDC (Tele
Danmark) í Danmörku, Norske
Skogindustrier í Noregi og Telia í
Svíþjóð. Verðlaunahátíðin fór
fram í HolmenkoUen í Ósló að
kvöldi 2. október að viðstöddum
fuUtrúum frá skráðum félögum,
kauphöUum NOREX og tímaritinu
IR magazine sem stendur að hátíð-
inni og sams konar hátíðum um
allan heim.
Investor Relation Magazine
veitir viðurkenningu fyrir það
hvemig skráð félög á hlutabréfa-
Samtök atvinnulífsins fagna
ábyrgu fjárlagafrumvarpi
Stjórn SA lýsir í ályktun ánægju
samtakanna með fjárlagafrumvarp
ríkisstjómarinnar. Hún leggur
áherslu á mikUvægi þess að útgjalda-
áætlunin vaxi ekki í meðfórum Al-
þingis né verði langtímahugsun fmm-
varpsins fómað, hvetur ríkisstjómina
tU að koma böndum á útgjaldaþenslu
heUbrigðiskerfisins og fagnar því að
hreyftng sé á ný komin á einkavæð-
ingu rikisfyrirtækja.
„Frumvarpið einkennist fremur af
langtimahugsun en þeirri staðreynd
að kosið er tU Alþingis á næsta ári,
sem lýsir sér vel í níu milljarða króna
framlagi tU að laga skuldastöðu lifeyr-
issjóðs ríkisstarfsmanna. Ráðgerður
eUefu mUljarða króna afgangur er
mjög viðunandi árangur í núverandi
árferði. Stöðugleiki er nú aftur að
nást í íslensku efnahagslífi og að-
haldssemi í opinberum útgjöldum er
mikUvæg forsenda þess að hann hald-
ist,“ segir meðal annars í ályktun
stjómar SA.
Samtök atvinnulífsins lýsa einnig
sérstakri ánægju með að hreyfing
virðist á ný komin á framkvæmd
einkavæðingar ríkisfyrirtækja, með
viðræðum við hugsanlega kjölfestu-
fjárfesta í ríkisbönkunum. „Það er
löngu tímabært að þeim kafla einka-
væðingarsögunnar ljúki og hér kom-
ist á sambærUegt fyrirkomulag á fjár-
málamarkaði við það sem ríkir í ná-
grannalöndum okkar. Með einkavæð-
ingu er stuðlað að virkari samkeppni
og aukinni framleiðni í efnahagslíf-
inu, sem aftur rennir styrkari stoðum
undir batnandi lífskjör í landinu,“
segir í ályktuninni.
markaði standa að upplýsingagjöf
og samskiptum við fjárfesta. í
fyrmefndum flokki fyrir íslensk
félög voru Bakkavör og íslands-
banki tilnefnd ásamt össuri. í
flokki smærri fyrirtækja voru
Flugleiðir og Opin kerfi tilnefnd
og hlutu Opin kerfi verðlaunin.
Fyrirtæki í flokki stórra fyrir-
tækja eru fyrirtæki sem eru í úr-
valsvísitölunni, en i flokki smærri
fyrirtækja eru fyrirtæki utan úr-
valsvísitölimnar.
Tilnefningamar voru byggðar á
viðtölum við ýmsa aðila á ís-
lenska markaðnum, svo sem
sjóðsstjóra og greiningaraðila. Að-
alverðlaun kvöldsins, Grand Prix
for Best Overall IR by a Nordic
Company, voru í boði NOREX-
samstarfsins. NOKIA hreppti þau
verðlaun núna eins og á síðasta
ári auk verðlauna í þremur öðr-
um flokkum.
Stafræn prentnn
* STAFRÆNA
PRENTSTOFAN
LETURP R E N T
Slðumúla 22 - Sími: 533 3600
Netfang: stafprentöstafprent.is - Veffang: www.stafprent.is
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Fundur fyrír foreldra nýnema
Kyrmingarfundur fyrir foreldra nýnema verður
fimmtudaginn 10. október kl. 20:00 - 21:30.
Þetta er tilvalið tækifæri til þess að skoða skólann
og hitta umsjónarkennara, námsráðgjafa og
stjórnendur.
Dagskrá: Stutt ávörp rektors og námsráðgjafa, kór
MH syngur, kaííl og kökur.
Vonumst til þess að sjá sem flesta forráðamenn.
Rektor