Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002
DV
7
Fréttir
DV-MYNDIR E.ÓL
Lukkulegir Kauphallarstarfsmenn
Þóröur Friöjónsson forstjóri ásamt starfsfólki sínu í nýju höfuöstöövunum viö Laugaveg.
Kauphöll ísland flutt í nýja glerhúsið við Laugaveg:
Nokkuð öruggt að
menn kasta ekki grjóti
- segir forstjórinn og er lukkulegur með útsýnið
Glæsllegt útsýni
Líklega er á fáum stööum í Reykjavík glæsilegra útsýni en á skrifstofu Þóröar
Friöjónssonar forstjóra. Þar má sjá iöandi umferöina fyrir utan, yfir austurbæ-
inn og Sundin, meö Esjuna í bakgrunni.
Starfsmenn Kauphallar íslands
vinna nú að þvi að koma sér fyrir
í nýjum og glæsilegum höfuð-
stöðvum Kauphallarinnar að
Laugavegi 180, nýja stóra glerhýs-
inu við gatnamót Laugavegar,
Kringlumýrarbrautar og Suður-
landsbrautar. Fyrsti eiginlegi
starfsdagurinn á nýja staðnum
var í gær.
Þórður Friðjónsson forstjóri
segist ánægður með nýja húsnæð-
ið og sér í lagi útsýnið. Þá sé líka
kostur að nokkuð öruggt sé að
menn kasti ekki grjóti úr gler-
húsi.
Þórður segir talsverðar breyt-
ingar verða við flutninginn á nýja
staðinn og unnið hafi verið að
þeim á undanfomum mánuðum.
„Það var stofnað eignarhaldsfélag
um Kauphöllina og Verðbréfa-
skráninguna í júní. Nú fiytjum
við í þetta nýja húsnæði og hug-
myndin er að Verðbréfaskráning-
in flytji einnig hér inn á sömu
hæð. Það þýðir aö þessi tvö fyrir-
tæki geta átt með sér nánara sam-
starf elns og stefnt var að með
stofnun eignarhaldsfélagsins."
Þórður segir starfsemi félag-
anna tveggja skylda að því leyti
að Kauphöllin sé á þeim endanum
þar sem viðskiptin byija og Verð-
bréfskráningin sér síðan um upp-
gjörsmálin á hinum endanum.
Margt í starfi félaganna sé þó þess
eölis að hægt sé að ná fram auk-
inni hagkvæmni og skilvirkni.
Um 20 starfsmenn vinna nú hjá
Kauphöll Islands og 10 em hjá
Verðbréfaskráningunni.
Þórður segir að ýmislegt sé í
pípunum varðandi frekar þróun
Kauphallarinnar.
„Við höfum t.d. mikinn áhuga á
sjávarútvegskauphöll og að leggja
áherslu á sérstöðu íslands á því
sviði. Ég geri mér vonir um að í
framtíðinni geti verið eftirsóknar-
vert fyrir erlend sjávarútvegsfyr-
irtæki að skrá sig í kauphöll á ís-
landi," segir Þórður Friðjónsson.
-HKr.
Vinstri grænir:
Vilja stytta rjúpna-
veiðitímann strax
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, mun í dag
flytja þingsályktimartillögu um að
umhverfisráðherra gripi tafar-
laust til aögerða til verndar
ijúpnastofninum og stytti veiði-
tímann niður í einn mánuö. Stein-
grímur vill að aðeins verði leyft að
veiða ijúpuna í nóvember og skuli
rannsóknir á viðgangi rjúpna-
stofnsins efldar eins og kostur er
og fylgst grannt með því hvort
aukin friðun skili sýnilegum ár-
angri. Áður en veiðitími hefjist
haustið 2003
skuli metið
hvort grípa
verði til enn
frekari aðgerða,
svo sem sölu-
banns eða alfrið-
unar stofnsins
um eitthvert
árabil.
„Með öUu er
óviðunandi að
því sé borið við haust eftir haust
að ekki sé tími til aðgerða fyrr en
að ári liðnu. í því sambandi er rétt
að fram komi að flutningsmaður
tillögu þessarar lagði fyrirspum
fyrir umhverfisráðherra þegar í
upphafi þings síðasta haust um
hvort fyrirhugaðar væru aðgerðir
til verndar ijúpunni. Því miður sá
ráðherra sér ekki fært að svara
fyrirspuminni fyrr en eftir að
veiðitíminn var hafinn og var því
þá eðlilega borið við að of seint
væri að aðhafast nokkuð á því
hausti," segir Steingrímur í grein-
argerð með tillögunni. -BÞ
Stelngrímur J.
Sigfússon.
Samband íslenskra sveitarfélaga:
Efla hagsmuna-
gæslu gagnvart
Evrópusambandinu
Aðalfundur Sambands islenskra
sveitarfélaga samþykkti að vinna
að stækkun og eflingu sveitarfé-
laganna þannig að hvert sveitarfé-
lag myndi heildstætt þjónustu- og
atvinnusvæði og geti staðið undir
lögbundinni þjónustu sinni. Til að
ná því markmiði skal sambandið
hafa frumkvæði að því að stofna
til sérstaks samráðs milli sveitar-
félaga á vettvangi sambandsins.
Sambandið á að upplýsa sveitarfé-
lögin um þróun erlendis sem get-
ur haft veruleg áhrif á hagsmuni
þeirra og möguleika þeirra til að
nýta sér erlenda samvinnu.
Einnig á Sambandið að efla hags-
munagæslu sina gagnvart laga-
setningarvaldi Evrópusambands-
ins með því að byggja á hagkvæm-
an hátt upp sjálfstæða hagsmuna-
gæslu sem er markviss og fagleg. í
stefnumörkuninni segir einnig að
Sambandið skuli vinna að því að
sjálfstjómarréttur sveitaifélag-
anna sé virtur og að þau hafi sem
mest frjálsræði til að haga ákvörð-
unum og athöfnum með hliðsjón
af staðbundnum aðstæðum og við-
horfum. Stefnt skal að því að lög-
gjöf sem varðar þjónustu sveitar-
félaga verði sem frekast er unnt i
formi ramma- og markmiðslaga í
þeim tilgangi að auka svigrúm og
sjálfsforræði sveitarfélaga.
Sambandið á að vinna að því að
skilgreina og einfalda verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga, marka
stefnu um formleg samskipti og
samvinnu um málefni sem varða
hagsmuni sveitarfélaganna og að
saman fari ábyrgð á þjónustu,
framkvæmd og fjárhag. Einnig að
sveitarfélög h£ifi með höndum þá
þjónustu við íbúa sína sem heppi-
legt er að leysa með tilliti til stað-
bundinna aðstæðna þannig að
stuðlað sé að auknum gæðum í
þjónustu við íbúana. Jöfnunar-
sjóður sveitarfélaga skal uppfylla
það hlutverk sitt að draga úr að-
stöðumun milli sveitarfélaga í
landinu.
Sambandið hvetur sveitar-
stjómarmenn til þess að sinna
vöktun og kynningu væntanlegra
laga, reglugerða og Evróputilskip-
ana á sviði skipulags- og umhverf-
ismála, veita upplýsingar um
væntanleg áhrif þeirra á stéufs-
hætti og fjárhag einstakra sveitar-
félaga og standa fyrir fræðslu um
aðferðir til að hrinda þeim i fram-
kvæmd. Einnig að taka virkan
þátt i norrænu, evrópsku og al-
þjóðlegu samstarfi sveitarfélaga á
sviði umhverfismála og miðla
upplýsingum þar um til íslenskra
sveitarfélaga.
-GG
, _ I - :
...pottþétt ^
Laugavegur 118
-heppilegur staður!