Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Blaðsíða 10
10 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 DV Jack Straw. Jack Straw hittir íransforseta í dag Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, var væntanlegur til írans í dag eftir aö hafa ferðast til Egypta- lands, Jórdaníu og Kúvæt þar sem hann hefur rætt íraks-málið við hátt- setta embættismenn og reynt eftir megni að afla stuðnings við fyrirhug- aðar hernaðaraðgeröir gegn Saddam Hussein. Búist er við að að Straw hitti Mohammed Khatami, forseta írans og aðra háttsetta embættismenn á fundi strax í dag en stirt hefur ver- ið á milli ríkjanna að undanfömu eft- ir að íranar höfðu neitað að taka við nýjum sendiherra Bretlands, eða þar til í síðasta mánuði. Sá sem tilnefndur haföi verið, David Reddaway, var sak- aður um að vera njósnri gyðinga og var því hafnað. Málið var siðan í bið- stöðu í sjö mánuði og á endanum var Richard Dalton skipaður sendiherra í Teheran og er hann í fylgdarliði Straws sem er í sinni þriðju heimsókn í Teheran síðan 11. september. Lög sett á hafnar- verkbann í BNA Bandarískur alríkisdómstóll hef- ur orðið við kröfu Bush forseta um að setja 80 daga lög á verkbann hafnaryfirvalda á vesturströndinni til að hægt verði að hefja vinnu við losun meira en 200 skipa sem beðið hafa losunar síðustu tíu daga. Dómari kvað upp úrskurðinn á þeim forsendum að verkbannið væri þegar farið að valda veruleg- um skaða sem efnahagur landsins þyldi engan veginn, en auk þess hafi vöruskortur verið farinn að segja til sín og ýmis viðkvæmur vamingur legið undir skemmdum. Lögunum er ætlað að gefa verka- lýðsforystunni og vinnuveitendum 80 daga frest til að semja um sín mál sem komin voru i hnút. Minnir á Cole Sprengingin í olíuskipinu Limburg viö Jemen minnir á árásina á banda- ríska herskipiö Cole í Aden. Vísbendinga leit- að í olíuskipinu Jemenskir og franskir sérfræð- ingar leituöu í gær að vísbending- um sem gætu skorið úr um hvort sprengingin um borð í olíuskipinu Limburg á Adenflóa á sunnudag heföi verið hryðjuverk eða óhapp. Ráöamenn í Jemen segja að sprengingin, og eldurinn sem fylgdi í kjölfarið, hafi átt upptök sin í skip- inu. Eigendur skipsins segja aftur á móti að áhöfnin telji að lítill bátur hlaðinn sprengiefnum hafi siglt á Limburg þar sem það beið eftir að vera fylgt inn til hafhar. Fréttamaður Reuters sem flaug yfir segir að skemmdimar bendi til að árás hafi verið gerð á skipið. Tólf ára telpa féll í áframhaldandi aðgerðum á Gaza: Sharon ver næturárás- irnar í Khan Younis - segir þær hafa verið árangursríkar Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, varði í gær aðgerðir isra- elska hersins á Gaza-svæðinu þar sem sextán Palestínumenn lágu í valnum og varaði um leið við frek- ari aðgerðum á svæðinu þrátt fyrir harða gagnrýni alþjóðasamfélagsins og auknar áhyggjur bandarískra stjórnvalda. Hann notaði þó tækifærið til þess að lýsa harmi sínum vegna falls óbreyttra borgara í fyrrinótt, en sagði það aöeins sanna að hryðju- verkamenn væru hvergi óhultir jafnvel ekki innan um óbreytta borgara. Palestínsk yfirvöld kölluðu aö- gerðirnar fjöldamorð og fullyrtu að allir sem létust auk þeirra áttatiu sem særðust heföu verið óbreyttir borgarar. Á móti fullyrði ísraels- menn aö flestir hinna föllnu hafi verið hryðjuverkamenn. „Aðgerðimar voru árangursríkar og herinn stendur sig vel,“ sagði Sharon við fréttamenn í gær og Ariel Sharon. bætti að að aðgerðum gegn hryðju- verkamönnum yrði haldið áfram. „Ég harma það þegar óbreyttir borg- arar falla en taka verður tillit til þess að herinn notar öll tækifæri til að stöðva hryðjuverkin," sagði Sharon. íasraelski herinn hélt áfram að- gerðum í gær eftir næturárásimar á Khan Younis í fyrrinótt og sögðu palestínsk yfirvöld að tólf ára göm- ul stúlka heföi verið skotin til bana í bænum Rafah. Talsmenn ísraelska hersins staðfestu að komið heföi til skotbardaga í bænum eftir að palestínskir byssumenn heföu hafið skothríð. Sjúkrahúsyfirvöld í Rafah sögðu að stúlkan hefði orðið fyrir skoti úr stórri hríðskotabyssu og hún heföi látist samstundis. Sjónarvottar segja að tveir skriðdrekar hafi fyrir- varalaust hafið skothríð á hóp óbreyttra borgara. Jakob KeUenberger, forseti al- þjóöanefndar Rauða krossins, sem staddur er í ísrael, sagði í gær að ástandið á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna væri skelfilegt og heföi ekki verið verra síðustu 35 ár- ið og að meira en helmingur þjóðar- innar lifði við fátækt. REUTERSMYND Höfðinglegar móttökur lain Duncan Smith, leiötogi breska íhaldsflokksins, viröist kunna aö meta móttökurnar sem hann fékk þegar hann heimsótti ungmennamiöstöö í Bournemouth í gær. Stúlkan sem smellir kossi á leiötogann heitir Vicky Hopson og er þrettán árá. íhaldsflokkurinn þingar í Bournemouth þessa dagana. Sigur kannski dýrkeyptur Svo gæti farið að væntanlegur sigur Pervez Musharrafs, forseta Pakistans, í kosningunum á morgim geti reynst honum dýrkeyptur, að mati frétta- skýrenda og stjóm- arerindreka. Manréttindahópar og vestrænir diplómatar segja að her- inn hafi gert nánast aUt tU að tryggja úrslitin fyrir fram. Búist við meiri átökum Stjómvöld á FUabeinsströndinni eru að búa sig undir frekari átök við uppreisnarmenn sem hafa styrkt stöðu sína í borginni Bouake sem þeir hafa á valdi sinu. Forseti landsins segist aðeins ræða við þá leggi þeir niður vopn. Amerískur dáti drepinn Tveir Kúveitar hófu í gær skot- hríð á bandariska landgöngiUiða á heræflngu í Kúveit og drápu einn og særðu annan. Kúveiskur ráðherra kaUaði þetta hryðjuverkaárás. Lula aflar sér stuðnings Hinn vinstrisinnaði Luiz Inacio Lula da SUva, forsetaframbjóðandi í BrasUíu, hefur aflað sér stuðnings eins keppinauta sinna fyrir síðari umferð kosninganna 27. október. Hann gæti þar með verið búinn að tryggja sér forsetaembættið. Þingmenn fái meiri völd Danskir jafnaðarmenn vUja að þingmenn á Evrópuþinginu fái auk- in völd tU að tryggja lýðræðislega stjórnarhætti innan ESB. Huntiey sakhæfur Ian Huntley sem hefur verið ákærð- ur fyrir að myrða skólastúlkurnar Jessicu Chapman og HoUy WeUs í Englandi í ágúst er sakhæfur, að mati lækna sem hafa rannsakað geðheUsu hans. Huntley hefur verið úrskurðaður í gæslu- varðhald tU loka nóvember. Unnusta hans, Maxine Carr, er einnig ákærð í málinu. Kjörsókn fagnað Indversk dagblöð lýstu í morgun yfir ánægju sinni með 45 prósenta kjörsókn í hinu umdeUda Kasmír- héraði og sagði hana vera sigur yfir ógnaröflunum sem reyndu að rugla kosningamEU. Lögregla engu nær um launmorðingjann í Maryland: Almenningur ókyrrist Lögregla sem leitar að leyniskyttu sem hefur orðið sex manns að bana og sært tvo í nágrenni Washington, höfuð- borgar Bandaríkjanna, sagði í gær að hún væri liUu nær um hver heföi ver- ið þama að verki. Almenningur er far- inn að ókyrrast vegna málsins. „Erum við einhverju nær. Við von- um það svo sannarlega," sagði Charles Moose, lögreglustjóri í Montgomery- sýslu í Maryland, sem stjómar leitinni að leyniskyttunni. Skólar i sýslunni voru undir ströngu eftirliti lögreglunnar í gær, daginn eftir að þrettán ára gamaU pUt- ur var særður alvarlega þegar hann kom i skólann sinn i Bowie. Sjónvarpsstöðin CBS í héraðinu haföi eftir heimUdarmönnum sínum innan lögregluliðsins i gær að fundist heföi skothylki í skóglendi nærri árás- arstaðnum á frá því á mánudag. Þar heföi einnig fundist tarot-spU með Undir lögregluvernd Lögregluvöröur er viö fjölda skóla í grennd viö Washington DC vegna skotárása leyniskyttu síöustu daga. skUaboðum tU lögreglu frá byssu- manninum. Að sögn heimUdarmannanna voru skUaboðm skrifuð aftan á spUiö með myndinni af dauðanum og vom svohljóðandi: „Kæri lögregluþjónn, ég er guð.“ Talsmaður lögreglunnar sem Reuters-fréttastofan haföi samband við gat ekki staðfest frétt sjónvarpsstöðvar- innar. Gerald WUson, lögreglustjóri í Prince George-sýslu, sagði fréttamönn- um að lögregluvörður yrði við aUa skóla þar tU ódæðismaðurinn heföi ver- ið handsamaöur. í öUum skólum á slóðum skotárásanna var nemendum haldið innan dyra og öUum útUeikjum og ferð- um aflýst. Byssumaðurinn er vopnaður öflug- um riffli og hann hefur skotið aðeins einu skoti á hvert fómarlambanna. Arásum ekki afstýrt Louis Freeh, fyrr- um yfirmaður bandarísku alríkis- lögreglunnar FBI, sagði í gær að leyni- þjónustustofnanir Bandaríkjanna hefðu líklega ekki haft nægUegar upp- lýsingar tU að geta komið í veg fyr- ir hryðjuverkaárásimar 11. septem- ber í fyrra. Freeh sagði þetta við vitnaleiðslu í þinginu. Kramnik vann tölvuna Vladimír Kramnik, heimsmeist- ari í skák, hafði betur í þriðju viðureign sinni við skáktölvuna Deep Fritz. Sigur haföist eftir 51 leik. Kramnik hefur nú tvo og hálf- an vinning í keppninni sem fram fer í Persaflóaríkinu Bahrain.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.