Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Blaðsíða 20
20 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára_________________________________ Friðgerður Friðriksdóttir, Bústaöavegi 77, Reykjavík. Hörður Kristófersson, Kópavogsbraut lb, Kópavogi. 80 Gra_________________________________ Brynjólfur Magnússon, Bergþórugötu 41, Reykjavík. Jóhanna Guðmundsdóttir, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi. 75 ára_________________________________ Eiríkur Sigurðsson, Smáratúni 12, Keflavík. Helga Guðmundsdóttir, Gullsmára 7, Kópavogi. Oddbjörg Ingimarsdóttir, Vesturgötu 125, Akranesi. Ólöf Bjartmarsdóttir, Kleppsvegi 64, Reykjavík. Stefán Bergmundsson, Lindasíðu 4, Akureyri. Tómas Óskarsson, Ránargötu 45, Reykjavík. 70 ára_________________________________ — Henning Finnbogason, Ljósheimum 18, "'i Eiginkona hans er Sigríöur Jóhannsdóttir sjúkraliöi. Afmælisbarniö verður í óvissuferö í dag í boöi frú Sigríðar. Blrna S. Krlstjánsdóttir, Stórhólsvegi 5, Dalvík. Garðar Þorgrímsson, Selnesi 32, Breiödalsvík. Halldóra Óiafsdóttir, Sjávargrund 15, Garöabæ. 6Q.ára_________________________________ Ása G. Norðdahl, Þrastarhólum 8, Reykjavík. Guðmundur Davíðsson, Hafnargötu 2, Siglufirði. Jón Már Richardsson, Heiðargeröi 8, Reykjavík. Jónasína Pétursdóttir, Uppsalavegi 18, Húsavík. Sigrún Margrét Einarsdóttir, Klettum, Selfossi. 50 ára_________________________________ Bertha Krlstín Jónsdóttir, Fiskakvísl 14, Reykjavík. Hrafnhlldur L. Baldursdóttir, Bjargartanga 11, Mosfellsbæ. Lidla Sigurjónsson, Neöstaleiti 2, Reykjavík. Líney Traustadóttir, Svarfhóli, Borgarnesi. Slgþrúður Slgurðardóttlr, Álakvísl 55, Reykjavík. 4Q árg_________________________________ Erla SJöfn Jónsdóttir, Birkiteigi la, Mosfellsbæ. Fanney Ósk Ingvaidsdóttir, Vogageröi 26, Vogum. Guðjón Þorkelsson, Funalind 3, Kópavogi. Guðmundur Þröstur Björgvinsson, Ásbúð 83, Garðabæ. Gunnar Ólafsson, Bólstaðarhlíð 27, Reykjavík. Helga Björnsdóttlr, Hraunbæ 60, Reykjavík. Hrönn Elnarsdóttir, Stapasíöu 21c, Akureyri. Ingvl Júlíus Ingvason, Álfaheiöi 9, Kópavogi. Margrét Hulda Rögnvaldsdóttir, Birkihlíö 14, Sauðárkróki. Þorkell Traustason, Foldahrauni 8, Vestmannaeyjum. Þorvarður Æglr Hjálmarsson, Þiljuvöllum 31, Neskaupstaö. Andlát Kristín GunnbJörg BJörnsdóttir, Brimnes- vegi 22, Rateyri, lést þriöjud. 24.9. sl. Útför hennar hefur þegar fariö fram. Björg LllJa Jónsdóttlr, hjúkrunarheimil- inu Sóltúni, áöur Álagranda 8, Reykja- vík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugard. 5.10. Hjörtur Guðmundsson frá Lýtingsstöö- um, Skúlalgötu 20, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 2.10. Ásta Einarsdóttir, Bergstaöastræti 12a, andaöist á itknardeild Landspítala, Landakoti, mánud. 23.9. Útför hefur far- iö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu Jóhann Jón Jónsson, áður kaupmaöur, Hvammi, Ólafsvík, síöast í Hvassaleiti 12, Reykjavík, lést fimmtud. 3.10. Jóhann V. Gublaugsson lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnud. 6.10. MIDVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 DV Ásthildur Helgadóttir leikmaður ársins í knattspyrnu Ásthildur Helgadóttir, verkfræö- ingur og landsliðsfyrirliði, var kjör- in leikmaður ársins í kvennaflokki á lokahófi KSÍ á laugardagskvöldið var. Þá var hún markahæst í úr- valsdeildinni, ásamt Olgu Færseth. Starfsferill Ásthildur fæddist í Reykjavík 9.5. 1976 og ólst upp í Reykjavík fyrsta árið, síðan í Lundi í Svíþjóð til fimm ára aldurs, átti heima í Reykjavik til átta ára aldurs en hef- ur síðan búið í Kópavogi. Ásthildur var í Snælandsskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1996, stundaði nám í byggingarverkfræði við Vanderbilt University í Nash- ville í Tennessee í Bandaríkjunum og lauk þaðan verkfræðiprófi 2001. Ásthildur vann m.a. í Skátabúð- inni á sumrin og með skóla á ung- lingsárunum. Hún starfaði á Verk- fræöistofu Guðmundar og Kristjáns sumarið 1999, starfaði hjá ístaki við framkvæmdir á Reykjavíkurflug- velli sumarið 2000 og vann á Teikni- stofu Páls Zophaníassonar í Vest- mannaeyjum sumarið 2001. Hún hóf störf í febrúar sl. að námi loknu hjá verkfræðistofunni Linuhönnun og hefur starfað þar síðan, m.a. við gerð knattspymuvalla. Ásthildur hóf að æfa og keppa í knattspymu með Breiðabliki er hún var tiu ára og lék með félaginu til 1992, þar af með meistaraflokki frá 1991. Hún lék með meistaraflokki KR 1993 og 1994, með Breiðabliki 1995, 1996 og 1997 og hefur leikið með KR frá 1998. Þá lék hún með knattspymuliði Vanderbilt Uni- versity í Bandaríkjunum 1997-2000. Ásthildur varð íslandsmeistari meö Breiðabliki 1991, 1992, 1995 og 1996 og íslandsmeistari með KR 1993, 1998, 1999 og 2002. Hún varð bikarmeistari með Breiðabliki 1996 og 1997 og bikarmeistari með KR 1999 og 2002. Ásthildur lék með kvennalands- liöinu í knattspymu, sextán ára og yngri, 1991 og 1992, með landsliöinu tuttugu ára og yngri 1993, 1994, 1995 og 1996. Hún hefur leikið fimmtíu A- landsleiki, verið fyrirliöi A-lands- liðsins frá 2000 og hefur skorað fleiri mörk með A-landsliðinu en nokkur annar leikmaður, alls fimmtán mörk. Hún var valin efni- legasti leikmaðurinn 1996, var markahæst í úrvaldsdeildinni 1996, var valin íþróttakona ársins við Vanderbilt University 1998 og var í All American-liðinu, liði ársins yfir gjörvöll Bandaríkin 1998. Fjölskylda Systur Ásthildar eru Eva Bryndís Helgadóttir, f. 19.5.1972, lögfræðing- ur, búsett í Reykjavík, en maður hennar er Stefán Þór Bjamason lög- fræðingur; Þóra Björg Helgadóttir, f. 5.5. 1981, landsliðskona í knatt- spyrnu og nemi í stærðfræði við Duke University í Bandaríkjunum. Foreldrar Ásthildar eru Helgi Viborg, f. 6.8. 1950, sálfræðingur, og Hildur Sveinsdóttir, f. 7.1. 1948, fé- lagsráðgjafi. Ætt Helgi er sonur Hreiðars Viborg, klæðskera á ísafirði, Guðmundsson- ar, trésmiðs á Flateyri og ísafirði, Péturssonar. Móðir Hreiðars var María Hálfdánardóttir, hreppstjóra í Meiri-Hlíð, Örnólfssonar. Móðir Helga Viborg er Jóna Helgadóttir. Hildur er dóttir Sveins, flugstjóra hjá KLM, Gíslasonar, alþingisfor- seta, bróður Sveins á Fossi, fóður Páls landgræðslustjóra og Runólfs, sandgræðslustjóra, fööur Sveins landgræðslustjóra. Gísli var sonur Sveins, pr. og alþm. í Ásum, Eiríks- sonar. Móðir Sveins var Sigríður Sveinsdóttir, læknis og náttúru- fræðings í Vík, Pálssonar og Þór- unnar Bjamadóttur landlæknis Pálssonar. Móðir Þórunnar var Rannveig Skúladóttir landshöfð- ingja Magnússonar. Móðir Gísla var Guðríður, systir Páls, pr. og alþm. í Þingmúla, langafa Róberts Arn- finnssonar leikara. Annar bróðir Guðríðar var Páll í Hörgsdal, langafi Péturs Sigurgeirssonar bisk- ups. Guðríður var dóttir Páls, pr. í Hörgsdal, Pálssonar og Guðríðar Jónsdóttur, systur Þómnnar, ömmu meistara Kjarvals. Móðir Hildar er Áslaug, systir Sigrúnar, móður Stefáns Jóns Haf- steins borgarráðsmanns. Bróðir Ás- laugar er Dagfinnur flugstjóri. Ás- laug er dóttir Stefáns Ingimars, skipstjóra hjá Eimskipafélagi ís- lands Dagfinnssonar, sjómanns í Reykjavík, Jónssonar, b. í Hross- holti í Eyjahreppi, Jónssonar. Móðir Dagfinns sjómanns var Sesselja Sigurðardóttir. Móðir Stef- áns Ingimars var Halldóra Elías- dóttir. Móðir Áslaugar var Júníana Stefánsdóttir, trésmiðs í Reykjavík Guðmundssonar. Móðir Júníönu var Sigríður Þórólfsdóttir, b. í Hjarðamesi á Kjalamesi Þórðar- sonar, og Vigdísar Guðmunds- dóttur. Steinar S. Waage kaupmaður Steinar S. Waage kaupmaöur, Kríunesi 6, Garðabæ, er sjötugur í dag. Starfsferill Steinar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp hjá foreldrum sínum á Eiríksgötu 25. Hann lauk prófi frá iðnskólanum í Árósum í Danmörku og sveinsprófi í orthopædiskri skó- smíði í Árósum 1955, stundaði framhaldsnám i sömu grein í Gött- ingen í Þýskalandi og tók próf það- an í fótaaðgerðum innleggjasmiða 1956. Steinar hefur stundað þessa iðn- grein i Reykjavík frá 1956 og í sam- bandi við hana rekið skóverslanir. Steinar hefur starfað að félags- málum unglinga i KFUM, var einn af stofnendum KFUM-deilda í Garðabæ og Langagerði og hefur setiö í fjáröflunarnefnd KFUM og K. Steinar hefur veriö starfað lengi í Gideonfélaginu og verið formaður í Gideonfélaginu í Garðabæ. Hann hefur setið í stjóm Skókaupmanna- félagsins, í stjóm Stofnlánasjóðs Skó- og vefnaðarkaupmanna frá upphafi. Steinar var formaður Sjálfstæðis- félags Garða- og Bessastaðahrepps 1969-70, hefur setið í skólanefnd bama- og gagnfræðiskóla Garða- bæjar og Iðnskólans í Hafnarfirði, og enn fremur unnið nefndarstörf fyrir Sjálfsbjörg, félag fatlaðra. Einnig hefur Steinar verið í Rotary- félaginu Görðum. Fjölskylda Steinar kvæntist 1.1. 1957 Clöm G. Waage, f. 8.4. 1935, kaupmanni. Foreldrar hennar voru Alma Niel- sen, bóndi í Danmörku, og Georg William Grimmer, skipstjóri í Skotlandi. Börn Steinars eru Óli Skarphéð- inn Waage, f. 13.5.1957, kerfisstjóri í Danmörku og á hann þrjú börn; Elsa Waage, f. 18.2.1959, söngkona á Ítalíu, gift Emilio De Rossi forstjóra og eiga þau eitt bam; Snorri Waage, f. 18.10. 1966, framkvæmdastjóri í Garðabæ, kvæntur Kristínu Skúla- dóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjú böm Bræður Steinars eru Baldur Waage, f. 12.8. 1935, d. 30.8. 1979, vél- virki, búsettur í Keflavík, var kvæntur Kristínu Waage, og átti hann fjögur böm; Tómas Waage, f. 6.6. 1939, veggfóðrunarmeistari, bú- settur í Reykjavík, kvæntur Guð- rúnu Waage og á hann tvö börn; Magnús Waage, f. 25.6. 1945, raf- magnsverkfræðingur, búsettur í Reykjavík, kvæntur Kittý Waage og á hann eitt barn. Foreldrar Steinars voru Skarp- héðinn Waage, f. 24.12. 1909, d. 24.7. 1987, verkstjóri í Reykjavík, og k.h., Málfríður T. Waage, f. 11.3. 1914, d. 13.12.1967, húsmóðir í Reykjavík. Ætt Skarphéðinn var sonur Magnúsar Waage Guðmundssonar, b. í Mýrar- húsum í Arnarfirði, og k.h., Himin- bjargar Jónsdóttur húsfreyju. Málfríður var dóttir Tómasar, steinsmiðs og skósmiðs í Reykjavík, Snorrasonar, sjómanns í Reykjavík, Tómassonar. Móðir Málfríðar var Ólafía Bjamadóttir, b. í Bakkakoti í Seltjamameshreppi, Kolbeinssonar. Móðir Ólafar var Margrét Illuga- dóttir. Laugardaginn 12. okt., frá 17 til 20, verður opiö hús hjá Steinari og Clöru að Kríunesi 6. Vonast þau til aö sjá sem flesta af ættingjum, vin- um, kunningjum, og samstarfsfólki og félagsvinum í gegnum tíðina. Þeir sem vilja gleðja Steinar með gjöfum er bent á að láta Gideonfé- lagið eða Samband íslenskra kristniboðsfélaga njóta þess. Merkir Islendingar Þórarinn Olgeirsson útgerðarmaður fæddist 1. október 1883. Foreldrar hans voru þau Olgeir Þorsteinsson og kona hans Steinunn Einarsdóttir að Valdastöðum. Með fyrri eiginkonu sinni, Nancy Little, dóttur Joe Little skipstjóra, átti Þórarinn þrjú böm og eitt með seinni eiginkonu sinni, Guðrúnu Zoega. Þórarinn hóf ungur sjómennsku þegar hann var ráðinn háseti á Agnesi frá Reykjavik árið 1899. Hann vann á ýmsum bátum eftir það. Árið 1909 útskrifaðist Þórarinn úr stýrimanna- skólanum og var orðinn skipstjóri á Eldeyjar-Hjalta. Fleiri skipum stýrði Þórarinn, þ. á m. þrjú ár King Sol, einu Þórarinn Olgeirsson stærsta togara Breta fyrir seinni heimsstyrjöldina, þangað til togarinn var nýttur til hemaðarþarfa. Þórarinn var umboðsmaður íslendinga i ísviðskiptum í Bretlandi um langt skeið, auk þess var hann vararæðismaður íslands í Bretlandi árið 1948 og ræðismaður árið 1954. Þórarinn var sæmdur riddarakrossi árið 1948 og stórriddarakrossi árið 1953. Auk þess kom Þórarinn að gerð nýsköpunartogaranna. Þórarinn var alla tíð mikill aflamaður og dugnaðarmaður við öll sín störf fram á elliár. Þórarinn lést árið 5.8 1969, þá 81 árs að aldri. Jarðarfarir Jóna Vilborg Jónsdóttlr, Kleppsvegi 134, Reykjavík, varö bráðkvödd á heim- ili sínu 30.9. Útförin fer fram frá Foss- vogskapellu 9.10. kl. 15.00. Jaröarför Ásgelrs Áskelssonar vélstjóra, Álfabyggö 5, Akureyri, fer fram frá Akur- eyrarkirkju fimmtud. 10.10. kl. 13.30. Hallfríður K.H. Stefánsdóttir ökukenn- ari, Sogavegi 180, veröurjarösungin frá Fossvogskirkju. 10.10. kl. 15.00. Adda Sigríður Arnþórsdóttir, Dísarási 16, Reykjavík, veröur jarösungin frá Grafarvogskirkju fimmtud. 10.10. kl. 13.30. Benedlkt Þór Helgason veröur jarösung- inn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtud. 10.10. kl. 15.00. Anna Ingadóttlr, Hlíöarhúsum 3, Reykja- vík, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju föstud. 11.10. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.