Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
DV-MYND PSJ
Unnlö að slökkvistarfi
Vel gekk aö ráöa niöurlögum elds
sem kom upp í Hraöfrystihúsi Hell-
issands í gærkvöld.
Hraðfrystihús Hellissands:
Mikið tjón í
eldsvoða
Mikill eldur kom upp í húsnæði
Hraðfrystihúss Hellissands um
áttaleytið í gærkvöld. Eldurinn
barst í þak gömlu fiskmóttökunn-
ar en hún hefur verið notuð sem
geymsla fyrir veiðarfæri og felli-
hýsi. Slökkvilið Snæfellsbæjar og
Grundarfjarðar kom á vettvang og
gekk ágætlega að ráða niðurlögum
eldsins.
Talið er að eldurinn hafi komið
upp í plastkörum sem voru í porti
við hlið hússins og þykir liklegt
að hann hafi kraumað lengi áður
en hans varð vart. Mikið tjón varð
í eldsvoðanum og að minnsta
kosti 100 fiskikör eyðilögðust.
Eldsupptök eru ókunn en málið er
í rannsókn. -PSJ
Vatnavextir
lokuðu Þjóð-
vegi eitt
Miklir vatnavextir eru viða um
land vegna óvenjumikilla hlýinda.
Þjóðvegur eitt við Kotá í Öræfum
fór í sundur í nótt rétt sunnan við
Hof þegar áin ruddist gegnum veg-
inn. Jökull Helgason hjá Vegagerð-
inni í Hornafirði sagði í morgun að
vegurinn væri aftur fær öllum bíl-
um. Viðgerð stendur yfir og lýkur
eftir hádegið. Um miðnættið var 13
stiga hiti i öræfum, sem þýðir auk-
inn vatnsaga úr jöklum, auk þess
sem miklar rigningar hafa verið og
verða áfram samkvæmt veðurspá.
Vitað var i morgun um minni
háttar vegaskemmdir í Berufirði
þar sem rann yfir veginn og i Þvott-
árskriðum var varað við ástandinu,
en vegurinn var þó enn fær. -JBP
DV-MYND ÞGK
Mikill áhugi
Grindvíkingar, ekki hvaö síst forráöa-
menn barna í bænum, mættu og
hlýddu á mál Stefáns Karls Stefáns-
sonar regnbogabarns í gærkvöld.
Tíundi hver íbúi
hlýddi á fyrirlest-
ur um einelti
Nær tíundi hver íbúi Grindavík-
ur hlýddi í gærkvöld á erindi Stef-
áns Karls Stefánssonar, leikara og
forystumanns samtakanna Regn-
bogaböm - til fundar mættu yfir 200
íbúar. Þorsteinn G. Kristjánsson
sjómaður, formaður Foreldrafélags
Grannskólans í Grindavík, sagði
eftir fundinn að hann hefði verið
áhrifarikur og Stefán Karl heföi
flutt afburðagott erindi um einelti
en Regnbogaböm helga starf sitt
baráttu gegn slíku atferli. Stefán
tekur fast á vandamálinu auk þess
sem hann kryddar mál sitt og vekur
ófá bros. -JBP
Nýtt skref í stóriðjuáformum á Norðurlandi:
Umhverfismat
á súrálinu
- grunnvinnu lokið á þessu ári, að sögn forstjóra Hönnunar
Hönnun hf. hefur hafið undirbún-
ing við gerð umhverfismats fyrir
hugsanlega súrálsverksmiðju við
Húsavík. Verkkaupi er Fjárfesting-
arstofa og segir Bjöm Ingi Sveins-
son, forstjóri Hönnunar, að búist sé
við að grunnrannsóknaferlinu verði
lokið á þessu ári. Hann segir að fyr-
irtækið sé þegar farið að afla gagna
um sambærilega starfsemi í útlöndum
en of snemmt sé að spá nokkra um
framvindu málsins. Aðeins sé um
undirbúningsrannsóknir að ræða.
Á sínum tima kannaði staðarvals-
nefnd fyrir stóriðju kringumstæður
á Keilisnesi, á Reykjanesi, Dysnesi
við Eyjaíjörð og í Reyðarfirði en
Húsavík var aldrei inni í þeirri
mynd. Fyrir vikið vantar grannupp-
lýsingar um svæöið og er Hönnun
nú að afla slíkra gagna. M.a. verða
veðurfarsmælingar gerðar sem og
jarðskjálftaathuganir en lóðarval
liggur enn ekki fyrir.
Nokkur umræða hefur átt sér
stað um mengunaráhrif frá súráls-
Ámi Valgeröur
Finnsson. Sverrisdóttir.
verksmiðju en bæði framkvæmda-
stjóri Fjárfestingarstofu og Jón
Hjaltalín Magnússon hjá Atlantsáli
hafa sagt að umhverfisþátturinn sé
ekki stærsta fyrirstaða fyrirhugaðr-
ar framkvæmdar. Þeir segja að ný
tækni hafi leyst úrelt vinnubrögð af
hólmi en Ámi Finnsson, formaður
Náttúruvemdarsamtaka íslands,
staðhæfir að mengun súrálsverk-
smiðju sé mun umfangsmeiri en í
álbræðslu.
Húsvíkingar horfa vongóðir til
fyrirhugaðrar framkvæmdar enda
hefur Jón Hjaltalín látið hafa eftir
sér að allt að 900 manns gætu feng-
ið vinnu við súrálsverksmiðjuna.
Húsvíkingar binda vonir við að
Þeistareykjasvæðið geti orðið sá
orkugjafi sem súrálsverksmiðja
þarfnast en samhliða núverandi at-
hugunum er Atlantsál að kanna
grandvöll fyrir rekstri álbræðslu í
Eyjafirði.
Langt í land enn
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra sagði ótímabært í samtali
við DV í gær að tjá sig um vænting-
ar vegna stóriðjuáforma Atlantsáls.
Hún sagði að forvinnu ætti að vera
lokið í lok 2003 að undangenginni
hagkvæmniathugun. Menn myndu
sérstaklega fylgjast með framvindu
mála á Þeistareykjum en mjög yrði
að huga að umhverfísþættinum þar
sem súrálssframleiðsla væri óþekkt
til þessa á íslandi. „Spurningin er
hvemig dæmið lítur út að ári,“
sagði ráðherra. -BÞ
Mörg eru mannanna verk
Menn taka sérýmislegt fýrir hendur í amstri dagsins, þar á meöal þessi vaski iönaðarmaöur sem var kominn á ystu
nöfí viögerö sinni í slippnum í Reykjavík í gærdag.
Garðar Sverrisson um áskorun Öryrkjabandalagsins:
FBI vill íslensk vitni
Bandaríska alrík-
islögreglan, FBI, hef-
ur tilkynnt utanrík-
isráðuneytinu aö
fimm lögreglumönn-
um verði stefnt fyrir
rétt í Bandaríkjun-
um. Lögreglumenn-
irnir eiga að bera
vitni i máli ákæruvaldsins gegn
ffönskum flugþjóni sem er ákærður
fyrir að skrifa sprengjuhótun á spegil
á salemi flugvélar Virgin Atlantic.
Vélin nauðlenti á Keflavíkurvelli á
sínum tíma. Þá hefur verið ákveðið að
Jóhann Benediktsson, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli, fari með lögreglu-
mönnunum vestur um haf.
Tæknivætt einelti
Unglingar verða fyrir einelti á
spjallþráðum Netsins og í gegnum
SMS-skilaboð sem send eru með nafn-
leynd. Skólastjóri Réttarholtsskóla
segir í samtali við mbl.is að ágætlega
hafi tekist að koma í veg fyrir líkam-
legt og andlegt ofbeldi i skólanum en
með tækninni sé kominn nýr flötur
sem menn séu ekki búnir að átta sig
fyllilega á.
Slök uppskera
Kartöfluuppsker-
an er með slakasta
móti í ár að mati Sig-
hvats Hafsteinsson-
ar, formanns Lands-
sambands kartöflu-
bænda. Formaður-
inn áætlar að upp-
skeran verði um 7 til
8 þúsund tonn en til samanburðar má
nefna að uppskera síðasta árs nam 12
þúsund tonnum. mbl.is greindi frá.
Dauft yfir vinnumarkaöi
Uppsveifla á vinnumarkaði sem
venjulega verður á haustin hefur ekki
látið á sér kræla nú. Þetta segir Þórir
Þorvarðarson, ráðningastjóri Hag-
vangs, í samtali við mbl.is. Mikið
framboð virðist á fólki með tölvu- og
viðskiptafræðimenntun.
Stór samningur
Flugfélagið Atlanta hefur gert
samning við Malaysia Airlines Sy-
stems í Malasíu um þjónustusamning
á þremur Boeing 747 vélum félagsins.
Flugið hófst í gær en vélamar verða
með bækistöð í Kuala Lumpur.
Bond á leiðinni.
Die Another Day, nýjasta kvik-
myndin um ofumjósnarann James
Bond, verður frumsýnd 29. nóvember
nk. Eins og kunnugt er var veigamik-
ið atriði í myndinni tekið upp við Jök-
ulsárlón og SkálafeUsjökul.
Látum ekki leiða okkur
eins og lömb til slátrunar
„Þetta snýst um að þaö gerist eitt-
hvað,“ segir Garöar Sverrisson for-
maður Öryrkjabandalags íslands,
aðspurður um hvort Evrópuár fatl-
aðra, sem efnt verður til á næsta ári
að frumkvæði Evrópusamtaka fatl-
aðra, snúist fyrst og fremst um
hækkun grunnlífeyris og tekju-
tryggingar. Öryrkjabandalagið birti
áskorun til ríkisstjómarinnar í heil-
síðuauglýsingu í Morgunblaðinu í
gær, þar sem slík hækkun er lögð til
sem grandvöllur fyrir því að sam-
starf geti tekist á milli bandalagsins
og stjómvalda á Evrópuári fatlaöra.
Garðar segir Öryrkjabandalaginu
ekkert aö vanbúnaði aö halda ár
fatlaðra upp á eigin spýtur gangi
stjómvöld ekki að þessu. „En við
ætlum ekki aö láta leiða okkur þar
eins og lömb til slátranar, sitjandi
fyrir á ljósmyndum með ráðamönn-
um. Þeir sem halda að það eigi bara
að nota árið til
þess að tala, án
þess að sýna vilja
í verki, misskilja
alveg hlutverk
sitt,“ segir Garð-
ar.
Páll Pétursson
félagsmálaráð-
herra sagði við
DV í síðustu viku
að undirbúning-
ur af hálfu stjómvalda vegna Evr-
ópuárs fatlaðra væri „á fleygiferð“
og yfir tuttugu manna hópur ynni
að honum. Garðar Sverrisson segir
þessa samstarfstilburöi meingallaða
meðal annars vegna þess, að stjóm-
völd ætli sér ekki að einangra verk-
efnið viö fatlaða heldur víkka það út
til „allflestra hópa í þjóðfélaginu".
Á dögunum var felld tillaga sjálf-
stæðismanna í borgarstjóm Reykja-
víkur um að hækka um 50% tekju-
viðmiö vegna niðurfellingar fast-
eignaskatta aldraðra og öryrkja.
Garðar er spurður hvers vegna Ör-
yrkjabandalagið hafi ekki mótmælt
þessu.
„Við eram fyrst og fremst að
hugsa um þá í okkar hópi sem eru
verst settir. Því miður eru þeir ekki
í eigin húsnæði, þannig að gjöld af
fasteignum er ekki það sem brennur
á því fólki, þótt ég vildi óska að svo
væri,“ segir Gaiðar - þess vegna sé
þetta mál ekki sett á oddinn. Spurð-
ur um hvort hann sé hlynntur til-
lögunni svarar Garðar: „Persónu-
lega þætti mér brýnna aö verja
þessu fé til að koma til móts við þá
félaga okkar sem líða hvað mest fyr-
ir þá fátæktarstefnu sem Bjöm
Bjamason hefur tekið virkan þátt í
að reka á undanfomum árum.“
-ÓTG
Sex skjálftar
Sex skjálftar, 4,6
til 5,5 stig á Richter,
mældust sunnarlega
á Reykjaneshrygg
aðfaranótt sunnu-
dagsins og á mánu-
dag. Ragnar Stefáns-
son jarðskjálftafræð-
ingur sagði í samtali
við mbl.is að full ástæða væri til að
fylgjast grannt með gangi máli enda
væru líkur á að virknin kynni að fær-
ast norðar og nær íslandi.
Bæta við framlag
Ríkisstjómin ætlar að bæta 5 millj-
ónum króna við framlag Rauða kross-
ins sem varið verður til að styðja
hjálparstarf alþjóðaráðs Rauða kross-
ins í ísrael, á herteknu svæðunum og
sjálfstjómarsvæðum Palestínumanna.
Framlagið verður þannig samtals tíu
milljónir.
Afkoma bænda
Afkoma sauðfjárbænda fór ver-
sandi á síðasta ári samanborið við
árið á undan. Á sama tima batnaði af-
koma kúabúa hérlendis.
-aþ
Garöar
Sverrisson.