Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Kaupþing komið með fjórðungs ítök í Skeljungi:
Óskaði eftir við-
ræðum við Shell
- forstjóri Skeljungs býst samt ekki við breytingum á yfirstjórn
Kristinn Bjöms-
son, forstjóri Skelj-
ungs, staðfesti í
samtali við DV að
hann hefði vit-
neskju um að
Kaupþingsmenn
hefðu óskaö eftir
viðræðum við The
Shell Petroleum
Co. sem fram und-
ir þetta hefur verið
stærsti einstaki eigandinn í Skeljungi.
Hann segist svo sem ekkert hafa út á
það að setja að stórir hluthafar ræði
saman. Ljóst er þó að undirliggjandi
em hörð átök um ráöandi eignarhlut í
Skeljungi. Núverandi stjóm Skeijungs
fer hins vegar með meirihluta atkvæða
í félaginu í umboði og með tilstyrk
Shell.
Forsvarsmenn Kaupþings þvertóku
fyrir í samtali við DV í gær að nokkuð
væri hæft í því að þeir hefðu gert tilboð
í 20,7% hlut The Shell Petroleum Co.
fyrir nokkm, né átt fundi með forsvars-
mönnum félagsins.
Afgerandi eignarhluti
í DV í gær var greint frá átökum um
yfirráðin yfir Skeljungi þar sem greint
var frá því að Kaupþing væri búið að
auka hlut sinn úr 15,2% í 20,1%. Krist-
inn Bjömsson segir hlut Kaupþings
orðinn mjög afgerandi. Hann telur að
hlutur Kaupþings sé í raun orðinn tals-
vert meiri, eða um 25%. Það er með
ítökum í hlutum fleiri hluthafa, svo
sem Kaupþings Bank og fleiri sjóða.
Verðmæti þess samkvæmt núverandi
gengi er um 2,5 milljarðar króna.
Skeljungur er búið að vera á mark-
aði síöan 1990 og Kristinn segir að eðli-
lega verði stjóm félagsins að þola
markaðsaðstæður hverju sinni. „Við
höfum hins vegar verið í góðu sam-
starfi við stærsta hluthafann, Shell
Intemational, sem hefur stjómað þessu
félagi. Því hefur verið þannig háttað að
forstjóri og stjómarformaður hafa farið
með umboð fyrir Shell Intemational.
Við höfum því verið þeirra fulltrúar í
stjóm en annars hefúr Shell þar ekki
sérstakan fulltrúa. Síðan hefur stjómin
verið skipuö fulltrúum fyrir nokkra af
stærstu hluthöfunum. Ég hef því ekk-
ert haft við það að athuga að Kaupþing
væri að kaupa í félaginu, nema hvað að
þetta þýðir að hluthöfúm hefur fækkað
töluvert. Þeim hefur líklega fækkað á
einu ári um 150 vegna þess að Kaup-
þing hefur verið að kaupa upp hlut-
hafa, eins og hluti lífeyrissjóða og
fleiri.“
Höfuðstöðvar Skeljungs
Félagið er með hlutfallslega mjög
sterka markaðsstöðu á vörum fyrir
Shell á landsvísu og reyndar þá
sterkustu sem þekkist í heiminum.
Næststerkust er markaðsstaða
Shell í heimalandinu Hollandi.
Rætt við Kaupþing
Kristinn segir að stjómin hafi rætt
við fúlltrúa Kaupþings vegna vaxandi
hlutdeildar þeirra í félaginu. „Þeir hafa
fúllvissað okkur um að þeir væm að
þessu vegna þess að þeir hefðu trú á
því að Skeljungur væri gott og öflugt fé-
lag og fjárfestingin væri góð.“
Þrátt fyrir þessi orð Kaupþings-
manna þá er ljóst að ráðandi hluthafar
í Skeljungi hafa miklar áhyggjur af
framvindu mála. Auk hins erlenda fé-
lags Shell, þá eru þar á bak við
Burðarás sem nýverið jók hlut sinn í
tæp 14%, Sjóvá-Almennar og Trygg-
ingamiðstöðin.
Býst ekki við breytingum
Kristinn segist ekki hafa heyrt um
að Shell hyggist selja sinn hlut, en einn
af aðalforstjórum Shell kom hingað í
heimsókn í sumar að kynna sér að-
stæður. Staða Shell hérlendis er afar
sterk og markaðsstaða fyrirtækisins er
hvergi meiri á heimsvísu, ekki einu
sinni í heimalandi Shell, Hollandi. Þá
em nefiid ýmis spennandi sameiginleg
verkefiii eins og uppbygging vetnis-
stöðvar Shell hér á landi sem opnuð
verður næsta vor. Þá hefúr Shell lýst
yfir ánægju sinni með samstarfið við
núverandi stjóm og stjómendur Skelj-
ungs. Kristinn sagðist því ekki búast
við öðra en að samstarfið við Shell
héldist áfram þó enginn viti hvað
morgundagurinn beri í skauti sér.
-HKr.
Fréttablað í farvatninu á Norðausturlandi:
Skýrist á næstu dögum
Benedikt Sigurðarson, stjómarfor-
maður KEA, segir að á næstu dögum
muni skýrast hvort nýtt fréttablaö líti
dagsins Ijós á Norðausturlandi. KEA
hefur haft forgöngu um að skoða mögu-
leika á að koma á fót nýju blaði en hvers
vegna?
„Þegar ljóst varð að starfsstöð DV á
Akureyri yröi að mestu skorin niður
síðastliðið vor var það samkomulag sem
eigendur Dags og Fijálsrar fjölmiðlunar
höfðu gert sjálfkrafa úr sögunni og þær
skuldbindingar sem því fylgdu. Eins og
menn muna var Dagur seldur irm í
Frjálsa fjölmiðlun á sínum tíma og því
fylgdu ákveðnar skuldbindingar um að
þáverandi eigendur yrðu ekki aðilar að
blaðarekstri. Síðar barst ákveðið ákall
um hvort ekki væri ástæða til að bregð-
ast við og koma á þjónustu sem myndi
kynna þetta svæði með öflugri hætti,“
segir Benedikt.
KEA hefur tekið miklum breytingum
á undanfómum mánuðum og misserum
og segir Benedikt að starfsemin sé
mörgum lítt sýnileg vegna þess að félag-
ið hafi ekki rekstrarumsvif og megnið af
eignum félagsins sé bundið í Kaldbaki
hf. Á vefsíðu KEA kemur fram að félag-
ið hefur losað um 550 milljónir með sölu
á eigin bréfum í Kaldbaki og hefur þeg-
ar tekið þátt í fjármögnun og kaupum á
Norðurmjóik hf„ keypt hlutafé í MT-bíl-
um í Ólafsfirði og komið að endurreisn
Skinnaiðnaðar hf. á Akureyri, auk fyrir-
hugaðrar blaðaútgáfu. -BÞ
DV-MYND GVA
Haustferð um hóllnn
Það er nauösynlegt aö viðra sig í hauststillunni en fara jafnframt meö gát um
götur og slóöa. Hér temur gamall og ungur nemur.
OR kaupir ljósleiðarann af Línu.Neti á 1,7 milljarða:
Lánin færö yfir á Orkuveituna
- fjárfesting sem stendur undir sér, segir stjórnarformaður OR
„Ef við færum út í þetta verkefni í
dag myndi það ekki kosta undir tveim-
ur milijörðum króna," segir Aifreð Þor-
steinsson, stjómarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur, um kaup Orkuveitunnar á
ljósleiðarakerfi dótturfyrirtækisins
Línu.Nets. Kaupverðið er um 1,7 millj-
arðar króna sem er nálægt bókfærðu
virði kerfisins í bókum Línu.Nets.
Meginbreytingin sem verður við
kaupin er að nær allar skuldir
Línu.Nets færast yfir á Orkuveitu
Reykjavíkur. í stað þess að eiga ljós-
leiðarann er gert ráð fyrir að Lína.Net
leigi hann af Orkuveitunni fyrir um 160
milljónir króna á ári. Segja má að
Lína.Net verði þannig nokkurs konar
umboðsaðili fyrir ljósleiðarann.
Eins og nærri má geta greiðir þetta
fyrir samruna Linu.Nets við önnur fjar-
skiptafyrirtæki. Viðræður standa yfir
við Íslandssíma og er stefnt að niður-
stöðu fyrir áramót.
Alfreð Þorsteinsson, stjómarformað-
ur OR, segir að leigutekjur frá Línu.Neti
dugi til þess að standa undir fjárfestingu
Orkuveitunnar, þ.e. rekstrarkostnaði og
afborgunum af lánum, og minnir á að
OR hafi aðgang að mun hagkvæmari
lánum en Lína.Net.
Alfreð segir af og frá, sem sjálfstæðis-
menn halda fram, að fjármunir hafi
glatast. „Eflir þennan gjöming eigum
við þetta ljósleiðarakerfi, sem er metið á
yfir 1,7 miiljarða og auk þess 67% hlut í
Línu.Neti sem er með 400 milljóna
króna veltu og skuldlítið,“ segir Alfreð.
Hann lítur á ijósleiðarakerfið sem
„Qórðu veitu" OR sem muni skapa mikl-
ar tekjur i framtíðinni.
„Ég minni á að þegar fyrirtækið varð
til fyrir þremur árum hafði Landssím-
inn hækkað símagjöld á almenning um
yfir 100%. Með tilkomu Línu.Nets lækk-
aði gagnaflutningskostnaður um 40%.
Það hefúr lengi legið í loftinu að minni
fjarskiptafyrirtæki myndu sameinast og
ég er sannfærður um að skrefið sem
stigið hefur nú mun efla samkeppnina,"
segir Alfreð.
Allflestar heilbrigðis-, mennta-,
rannsókna- og bankastofnanir, auk
ráðuneyta og nokkur þúsund fyrir-
tæKja og einstaklinga nýta sér í dag
ljósleiðaranet Línu.Nets.
Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfull-
trúi sjálfstæðismanna og stjómarmaður
í OR, segir sérkennilegt að fulltrúar eig-
enda Orkuveitunnar í stjóm fyrirtækis-
ins skyldu ekki hafa frétt af þessu fyrr
en í gærmorgun. Hann telur kaupin til
marks um uppgjöf.
„Menn fóm mikinn í byijun og töl-
uðu um þetta sem gróðafyrirtæki. Nú er
búið að eyða 1,5 miiljörðum af fé borgar-
anna í Línu.Net og tengd fyrirtæki. Það
liggur fyrir að ekkert þeirra markmiða
sem lagt var upp með hefur náðst og
skattgreiðendur hafa tapað gríðarlegum
fjármunum," segir Guðlaugur Þór.
Við kaupin minnkar hlutur OR í
Línu.Neti úr tæpum 76% í 67%. -ÓTG
Einkavæöing veröi stöðvuö
Þingflokkur Vinstri grænna flutti á
Alþingi í gær tillögu til þingsályktun-
ar um að einkavæðingamefnd yrði
leyst frá störfum og að frekari einka-
væðing yrði stöðvuð. Krafan er sett
fram i kjölfar þess að nefndarmaður í
einkavæðingamefnd ríkisstjórnarinn-
ar sagði sig úr nefndinni vegna þess
að hann taldi vinnubrögð hennar
mjög ámælisverð. Auk þess hefur for-
sætisráðherra óskað eftir því við Rík-
isendurskoðun að á hennar vegum
fari fram úttekt á tilteknum verkþátt-
um í starfi nefndarinnar. -BÞ
Stefán kom á óvart
Sterkasta skákmót sem hér hefur
verið haldið í þrjátíu ár, Mjólkurskák-
mótið á Selfossi, hófst í gær. Keppt er
í tveimur flokkum. í A-flokki þar sem
meðalstyrkleiki skákmanna er 2547 og
áskorendaflokki. Keppendur eru tíu í
hvorum flokki.
Helstu úrslit í gær vora þau að
yngsti alþjóðlegi meistari íslendinga,
Stefán Kristjánsson, sigraði hinn
sterka tékkneska stórmeistara Zbynek
Hracek með svörtu mönnunum. Önnur
úrslit urðu þau að Helgi Ólafsson gerði
jafiitefli við rússneska stórmeistarann
Pavel Tregubov en Hannes Hlífar Stef-
ánsson tapaði fyrir Predrag Nikolic,
Bragi Þorfmnsson tapaði fyrir Luke
McShane og Ivan Sokolov vann Thom-
as Oral. 1 áskorendaflokki gerði Ágúst
Sindri Karlsson jafiitefli við tékkneska
stórmeistarann Jan Votova. -HK
Augnaðgeröir kærðar
Tvær kærur hafa borist til land-
læknisembættisins vegna svokallaðra
leisiaðgerða á augum. Haukur Valdi-
marsson aðstoðarlandlæknir sagði við
DV í morgun að þetta gæti ekki talist
mikið miðað við að aðgerðir af þess-
um toga næmu þúsundum.
„Þegar kæra berst setur embættið í
gang ferli þar sem athugað er hvort
ekki hafi verið rétt aö málum staðið,"
sagði Haukur. „Síðan eru sett saman
drög að álitsgerð sem báðir aðilar fá
til skoðunar. Niðurstaða embættisins
að því búnu er ekki i formi áminning-
ar, heldur álits, sem það sendir til að-
ila.“ -JSS
Bónus í Borgarnes
Bónus opnar 18. verslun sína í
Borgamesi laugardaginn 19. október.
Jóhannes Jónsson kaupmaður sagði
í gær að þama yrði flutt í verslun
þar sem var áður Tíu-ellefu verslun.
„Við förum að óskum neytenda á
svæðinu, fjölmargir hafa óskað eftir
að fá Bónusbúð á þessu svæði. Við
verðum með snyrtilega, litla verslun
í Borgamesi. Verðlagið verður það
sama og í Reykjavík, ódýrasta mat-
vöruverðið á íslandi,“ sagði Jóhann-
es Jónsson í Bónus. -JBP
RDGUM Á MDRGUN
Fáðu þér mlða í síma 800 6611 eða á hhl.ls
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
i