Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Qupperneq 14
14 Menning MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 _______________________DV Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is Köld beinagrind Tékkneski píanóleikarinn Jaromir Klépác hélt tónleika í Salnum í Kópavogi á sunnu- dagskvöldið og lék hann fyrst ballöðu í g-moll opus 23 eftir Chopin. Heildarmynd verksins var sterk, Klépác vissi nákvæm- lega hvert leið lá og gat maður nánast heyrt endurómun lokatónanna strax í upphafi, eins og öfugt bergmál. Þennan stíl, að fóma smáatriðunum fyr- ir heildarsvipinn, hafa margir píanóleikarar tileinkað sér, og á ágætlega við í mörgum tónsmíð- um. Gallinn er þó sá að tónlist- inni hættir þá til að verða dálít- ið fyrirsjáanleg, það sem á að hljóma spontant hverfur og að- eins beinagrindin er eftir. Þannig var túlkun Klépács á Chopin, hún var kuldaleg og stíf, t.d. var hraðaramminn ósveigjanlegur, sumt var bein- línis óþægilega taktfast og þrátt fyrir ömgga tækni píanóleikar- ans var á tímabili eins og hann væri að spila undir í balletttíma hjá fitubollum. Svipað var upp á teningnum i a-moll sónötu Mozarts KV 310, túlkunin var gersamlega and- laus, styrkleikabrigði fátækleg og pedalnotkun í óhófi. Hið blíð- lega en tregafulla andrúmsloft sem ríkir í sónötunni var víðs fjarri, og var eins og Klépác væri að hrista flngraæfingu fram úr erminni. Vantaði í raun bara taktmæli upp á flygilinn og reiðan píanókennara gangandi um sviðið til að fullkomna atrið- ið. Þrátt fyrir þetta er Klépác mjög fær, hann er flinkur og ör- uggur þó listræn sýn hans á of- angreind verk hafi verið tak- mörkuð. Til marks um það vora hin verkin á efhisskránni, t.d. var konsertetýðan Við strönd- ina eftir Smetana stórglæsileg og naut þar sín mikil fingra- tæknin. Etýðan er afar áhrifa- mikil, brimið við ströndina birt- ist manni ljóslifandi í skrautleg- ustu hlaupum upp og niður hljómborðið og hafði Klépác ekkert fyrir þeim. Ekki var síðri flutningurinn á Sónötu Janáceks, Á götimni, þar sem píanóleikurinn var einstak- lega sannfærandi, öfgaminni en maður heyrir oft í þessu verki en fyrir vikið einlægari. Margir detta í þá gryfju að yfirdramat- ísera tónlist Janáceks en þá hættir henni til að verða tilgerð- arleg og leiðinleg og passaði Klépác sig vel á öllu slíku. Myndir á sýningu eftir Muss- orgsky var einnig prýðilega flutt, sumt, eins og Markaðs- torgið í Limoges, var að vísu óþarflega sterkt og byrjunin á siðustu myndinni, Borgarhlið- inu í Kænugarði, heldur passíf miðað við gauraganginn á und- an. Flest annað hitti beint í mark og er það til marks um hæfni Klépács að hann lék varla eina einustu feilnótu, þrátt fyrir þær gríðarlegu kröfur sem verk- ið gerir til fiytjandans. í heild var þetta því góður flutningur og kærkomin tilbreyting að heyra verk Mussorgskys í sinni upphaflegu mynd á tónleikum hér á landi en ekki í hljómsveit- arútgáfu Ravels sem er oftar dv-mynd gva leikin. Tékkneski píanólelkarinn Jaromír Klépác Jónas Sen Mjög fær, flinkur og öruggur en nokkuö stífur í sumum verkunum. ' >>. - Tónlist 'vrs-' : - ' >v t g'l.*;-,;-:; . Óvænt perla á djasshátíð Bandarísku gestimir sem sátu við næsta borð við mig á pönnukökutónleikum Jazzhátíð- arinnar brostu næstum því vorkunnsamlega þegar söngkonan kynnti aukalag sitt, Georgia on my Mind, með dálítið óamerískum fram- burði. En það voru sömu Ameríkanar sem fögnuðu henni innilega þegar laginu lauk. Það var auðséð og heyrt að eistneska söngkonan Margot Riis haföi unnið hug þeirra og hjörtu, svo og allra annarra áheyrenda sinna. Pönnukökudjass Jazzhátíðarinnar er nú orðinn fastur liður í hátíðahöldun- um. Á boðstólum er ávallt sígild djass- tónlist og að minnsta kosti þrjár teg- undir af gómsætum pönnukökum, enda er pönnukökudjassinn vel sóttur af fólki á öllum aldri, ekki síst fjölskyldufólki, sem e.t.v. kemst ekki á hefðbundna kvöldtónleika. Ber sérstaklega að þakka aðstandendum Jazzhátíðar Reykjavíkur og ekki síst forráða- mönnum Kaffi Reykjavíkur sem hafa búið þess- um tónleikum einkar góða umgjörð. En hver er Margot Riis? Margot er tónlistarkennari sem flutti til ís- lands árið 1998. Hún kennir söng í tónlistar- skólanum á Laugum í Þingeyjarsýslu og Húsa- vík. Hún hefur sungið lítið eitt fyrir norðan með eigin tríói en þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur fram á Jazzhátíð Reykjavíkur - væntanlega ekki í það síðasta. Meðleikarar hennar í þetta sinn vom ekki af verri endanum, þeir Gunnar Gunnarsson pí- anóleikari, Gunnar Hrafnsson bassaleikari og Eric Qvick trommuleikari. Þessir ágætu djassleikarar eiga það sameigin- legt að geta leikið með, bæði fallega og smekklega, þegar um er að ræða söng af þessum kaliber. Enda stóðu þeir sig með prýði (utan örlítis flýtis sem gerði vart við sig í Don’t Get Around Much Anymore sem að öðru leyti var óaöfinnan- legt). Hrafnsson spilaði hreinar sveiflukenndar línur sem auðheyrilega smituðu nafna hans Gunnarsson. Qvick spilaði smekklega og aldrei of mikið. Það er ekki öllum trommurum gefið undir svona kringumstæðum. Ég minntist á söng af þessum kaliber. Ef ég ætti að reyna að flokka söng Margot Riis (en maður á helst aldrei að flokka söngvara eða aðra listamenn) þá væri ég ekki lengi að nefna söngkonur eins og Cris Connor, June Christy, Jo Stafford, Anitu O’Day og Dakota Staton. En Margot er með bjarta rödd og stíl sem minnir eilítið á þessar allar og jafnvel örlitið á Dinah Washington til viðbótar. Þegar Margot söng lög eins og My One and Only Love og As Time Goes by (með tilheyrandi inngangsversi) var auðheyrt að hér er á ferðinni þjálfaður tónlist- armaður sem kann ýmislegt fyrir sér. Frasar voru léttir og leikandi, jafnvel scat-söngurinn var fyrsta flokks. Eina misfellan var túlkun þeirra allra á Lullaby of Birdland, gamalli lummu eftir Georg Skæringsson, sem þau kusu að leika í hálf-klassískum stil a la Bach útgáfu Jacques Loussier. Kæra þökk fyrir ánægjulega tónleika og góð- ar pönsur! Ólafur Stephensen Jazzhátíö Reykjavíkur: Margot Riis á pönnukökutónleik- um á Kaffi Reykjavík, 6.10.02. DV-MYND GVA Örtröð í Þjóð- menningarhúsi Það komu riflega 750 manns á sýn- inguna Handrit í Þjóðmenningarhús- inu á sunnudaginn, fyrsta daginn sem hún var opin almenningi. „Dagurinn var eins og hugur manns,” segir Mál- fríður Finnbogadóttir, skrifstofustjóri hússins, „það var fólk alls staðar í húsinu - í anddyrinu, í stiganum og á öllum hæðum.“ Þó að ásóknin væri langmest á handritasýninguna varð örtröðin aldrei svo mikil að það þyrfti að hemja aðgang að henni því fólk kom nokkuð reglulega allan daginn og fór líka á aðrar sýningar í húsinu. Á mánudag var aðsóknin líka mikil, þá komu skólaböm, ferðaskrifstofuhópar og einstaklingar. „Mest finnst mér til um hvað fólk nýtur þess að skoða handritin," segir Málfríður, „það er gaman að áhuginn skuli vera svona mikill á þeim enn þá.“ Sýningin er opin alla daga vikunn- ar kl. 11-17 og er ókeypis inn á sunnu- dögum. Konur og kinnhestar í hádeginu á morgun, milli kl. 12 og 13, verður dr. Auður Magn- úsdóttir sagnfræðingur með rabb í stofu 101 í Lögbergi. Rabbið nefn- ist „Konur og kinnhestar. Ofbeldi og kynhlutverk á íslandi á miðöld- um“. Á seinni árum hefur opnast um- ræða um ofbeldi kvenna gagnvart bömum sem lengi var dulið. Önn- ur ofbeldisverk kvenna hafa einnig komist í sviðsljósið, en dómar fyrir ofbeldisverk þykja enn fara eftir kynferði hins ákærða. Hefur þá ofbeldishneigð kvenna aukist, eða hefur hún ein- faldlega komið fram í dagsljósið? í rabbinu um konur og kinnhesta ætlar Auður að líta á ofbeldi kvenna gegn körlum eins og því er lýst í íslendingasögum, og hún spyr hvort þjóðfélags- og hjúskap- arstaða hafi haft áhrif á hvernig ofbeldi kvenna var tekið. Auður Magnúsdóttir lauk dokt- orsprófi frá Gautaborgarháskóla 2001. Doktorsritgerð hennar ber heitið „Fruar och Frillor. Politik och samlevnad pá Island 1120- 1400“. Auður kennir við sagn- fræðideild Gautaborgarháskóla. Bækurnar sem mótuöu mig Annað kvöld kl. 20 verður Bókakaffi ís- landsdeildar IBBY og SÍUNG á Súfistanum við Laugaveg. Þar spjalla Steimmn Jóhannesdóttir og Ármann Jak- obsson við gesti um bækur sem hafa lifað með þeirn allt frá æsku. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Vattarsaumur í kvöld kl. 19.30 hefst námskeið hjá Heimilisiðnaðarskólanum í svonefndum vattarsaumi. Vattar- saumur er ein af elstu einfoldu textílaðferðunum, mikið notuð á jámöld og víkingatímanum, aðal- lega í Norður-Evrópu og Rúss- landi. Þetta er eins konar millistig milli prjóns og hekls og notuð er kröftug nál til verksins. Algengast var að vinna úr sauðfjár- eða geitaull í sokka og vettlinga en hrosshári í skó og sóla, einnig hafa fundist dæmi um vattarsaum úr basti og öðrum plöntutrefjum. Draumar barna Kemur ein- hver hlaup- andi upp í til þín á nætum- ar undan öskr- andi ljónum og tígrisdýr- um? Eða full- yrðir kannski að það sé bjamdýr undir rúminu sínu? Eða skrímsli inni í skáp? Hjá Vöku-Helgafelli er komin út bókin Draumar barna og merking þeirra eftir Amöndu Cross í þýðingu Önnu Maríu Hilmarsdóttur. Þar má lesa sér til um slíkar uppákom- ur, fmna útskýringar á algengustu fyrirbærum og táknum í draumum bama og gagnleg ráð handa þeim sem þurfa að kljást við martraðir og ótta hjá bömum. f inngangi bókarinnar er spurt: „Hvar var bamið þitt í nótt? Barð- ist það við dreka hjá gríðarstórum kastala eða ferðaðist það til tungls- ins með ofurhetjunni sinni?" Og aöalspumingin er sú hvort þetta merkir eitthvað. Höfundur bókarinnar er á þeirri skoöun að draumar barna séu mik- ilvæg vísbending um sálarlíf þeirra og með því að fylgjast með hvað bömin dreymir geti fullorðnir átt- að sig betur á því sem bærist innra með þeim: Vonum þeirra og vænt- ingum, vonbrigðum og áhyggjum. Draumar barna er bók október- mánaðar í bókaverslunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.