Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Side 17
16 DV MIÐVTKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aftalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aftstoftarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíft 24, 105 Rvík, síml: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aórar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.ís - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerft og prentun: Árvakur hf. DV áskiiur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmæiendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Laxinum ógnað Laxveiðimenn og veiðiréttar- hafar hafa lengi varað við sam- býli náttúrunnar við kvíaeldi á laxi. Óttinn við að eldisfiskur gangi í íslenskar veiðiár og gangi smátt og smátt en örugg- lega af íslenska laxinum dauð- um er því miður raunverulegur. Morgunblaðið greindi frá þvi i gær að fimm laxar úr sjókvíaeldi hefðu fundist í vistkerfi hins villta íslenska lax. Þrír fengust í net í Suðursveit en tveir veiddust á stöng, annar í Botnsá og hinn í Úlfarsá. Þegar Óðinn Sig- þórsson, formaður Landssambands veiðifélaga, segir þetta hörmungarfréttir er hann síst að draga úr. í sam- tali við Morgunblaðið sagði Óðinn orðrétt: „Það er að fara af stað nákvæmlega sama hringavitleysan og fyrr á árum er fiskeldið fór á fullt og laxar sluppu í stórum stíl og gengu í árnar. Þetta er það sem við óttumst mest.“ Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi. Um eða yfir 1200 bú- jarðir hafa meiri eða minni tekjur af lax- og silungsveiði. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra lýsti því yfir í timaritaviðtali fyrir tveimur árum að ekkert stuðlaði fremur að því að halda landinu í byggð en þessar „veiði- jarðir, hvort sem um er að ræða silungs- eða laxveiði, og sú góða löggjöf og félagshyggja sem hefur ríkt í kringum veiðiskapinn. Bændur verða að leita allra leiða til að hafa sem mest út úr þeirri auðlind sem veiðiárnar eru.“ Frá þvi þessi orð voru sögð hefur mikilvægi veiði- tekna síst minnkað fyrir bændur. Veiðileyfamarkaður- inn veltir vel á þriðja milljarð króna á hverju ári og stór hluti fer til veiðiréttarhafa. Þegar þessum hagsmunum er ógnað hljóta bændur að hugsa sér til hreyfings. Fyrir réttu ári birtist fróðleg grein hér í DV um reynslu Skota af eldislaxi. Á aðeins tveimur árum hafði fjöldi laxa sem slapp úr eldiskvíum fimmfaldast. Árið 1988 er talið að 95 þúsund fiskar hafi sloppið en árið 2000 var íjöldinn kominn upp í 491 þúsund fiska. Fjórir af hverjum fimm löxum sem stangaveiðimenn veiða í skoskum ám eru eldisfiskar sem sloppið hafa úr kvíum. í norskum ám eru níu af hverjum tíu löxum sem veiðast eldisfiskur. Því miður virðist vera beint samhengi milli uppbygg- ingar í laxeldi og hnignunar skoskra laxveiðiáa. Árið 1983 gáfu árnar af sér 1.220 tonn af villtum laxi en 4.000 tonnum af eldislaxi var slátrað. Sex árum síðar var af- rakstur eldisstöðvanna 127 þúsund tonn en veiði úr ánum var aðeins 200 tonn - sex sinnum minna en 1983. Við vesturströnd Skotlands, þar sem kvíaeldið er mest, skilar aðeins 1% af laxi sem gengur i sjó sér í árnar aft- ur. Á austurströndinni, þar sem eldið er miklum mun minna, skila sex sinnum fleiri sér aftur í ámar til að hrygna. Enn liggur ekkert fyrir hvaðan eldislaxarnir fimm eru. Hvort þeir eru úr Mjóafirði, þar sem sjókvíaeldi er hafið, eða frá Færeyjum, Skotlandi eða Noregi liggur ekki fyrir. En eitt er víst að ekki hafa allir eldisfiskar sem nú ógna íslenska laxinum veiðst. Það er ekki að ástæðulausu þegar varað er eindregið við þeirri eitrun sem eldisfiskur hefur alls staðar haft í för með sér. Og taki menn ekki mark á sjónarmiðum náttúruverndar ættu þeir hinir sömu að minnsta kosti að huga að þeim gríðarlegu viðskiptahagsmunum sem í húfi eru um allt land. Óli Björn Kárason Ofurveldi á villigötum Hjörleifur Guttormsson fyrrv. alþingis- maöur Kjallari Framganga Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi veldur æ fleiri undrun og áhyggj- um. Ofurveldið undir for- ystu Bush, sem fyrir tæp- um tveimur árum var kjör- inn forseti með minnihluta atkvæða, snýr baki við hverjum alþjóðasamningn- um á fætur öðrum og hót- ar nú að brjóta alþjóðalög með stríði gegn írak, hvað sem líður afstöðu Öryggis- ráðsins. Stuðningur Blairs hins breska við stríðsáformin sætir sívaxandi gagn- rýni heima fyrir sem m.a. birtist mönnum síðustu helgina í septem- ber í mestu mótmælagöngu sem sést hefur um langt skeið í Lundúnum. Ritstjóri Der Spiegel, Rudolf Aug- stein, vitnar i grein 26. september í svissneska sagnfræðinginn Jörg Fish sem telur árás á írak andstæða alþjóöalögmn og „alþjóðlegan glæp“. Jafnvel Henry Kissinger fordæmir áform Bandaríkjastjómar um að blanda sér með hótunum og jafnvel hervaldi í innanríkismál i írak þar eð slíkt sé í andstöðu við alþjóða- hefðir allt frá friðarsamningunum í lok þijátíu ára stríðsins 1648! „Stuðningur íslenska utanríkisráðherrans við stríðs- hótun Bandaríkjanna sœtir vissulega tíðindum og er í engu samræmi við afstöðu yfirgnæfandi meirihluta ís- lendinga eins og hún birtist í nýlegum Gallup-könnunum. “ - Halldór Ásgrímsson utanrikisráðherra. Tvöfeldni Bandaríkjanna Tvöfeldni bandarískra stjómvalda í samskiptum við írak, ekki síst i forsetatíð repúblikana, sýnir ótví- rætt að það em olíuhagsmunir en ekki hemaðarógn frá Bagdad sem er bakgrunnur núverandi árásar- stefiiu. Donald Rumsfeld hermála- Sandkom „Hann lamdi engan í hausinn“ Talsvert er spáð og spekúlerað um það, hvort skilja hafi átt bókstaflega þau ummæli Davíðs Oddssonar í Helgar- blaði DV, að hann hefði sem kennari í Verzlunarskólanum „lamið þá leiftursnöggt í hausinn", nemendur sem gerðu sig líklega til að spilla friðnum í tímum hjá hon- um. Davíð kenndi þama verslunarrétt veturinn ‘76—’77. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasam- bands íslands, tjáði sig í fjölmiðlum um málið og sagði slíka kennsluhætti bæði forneskjulega og ólöglega og Friður 2000 sendi harðorða tilkynn- ingu til ráðuneyta, fjölmiöla og fleiri. Til að skera úr um þetta kynduga mál hafði sandkornsritari uppi á einum nemanda Davíðs, Herdísi Jóns- dóttur hjúkrunarfræðingi. Hún segir að Davíð hafi aldrei lamið neinn í hausinn. „Það var altal- að hve hann var heillandi kennari og hann bar virðingu fyrir nemendum sínum,“ segir Herdís. Til að forðast misskilning hefði Davíð líklega átt að segja að hann hefði látið suma nemendur fá það óþvegið. Og þó - þótt það sé líklega löglegt er það klárlega siðlaust Ummæli Myndin af engum „Ég hef reynt nóg í blaðamennsku til að vita að forsíður verða ekki til fyrir slysni. Og aldrei - segi og skrifa aldrei - hefur ver- ið búin til forsíða á borð við þessa.... Rit- stjóramir vissu - inni í sér - að þeir voru að gera rangt. Þess vegna fóldu þeir mein- tan brotamann. Þess vegna bjuggu þeir til forsíðu og „frétt“ á borð við þá sem við sáum í biðröðinni í Bónus. Vitandi vits að þetta stæðist engar kröfur. Ekki einu sinni þeirra sjálfra. Slíkar sem þær eru.“ Kart Th. Birgisson í grein í Morgunbiaðinu. Um forsiéu blaésins Séö og heyrt þar sem „brengluð" Ijósmynd birtist undir fyrirsögninni: „Þjððþekktur álitsgjafi í sjðnvarpi ákærður fyrir nauögun." Hægri eða vinstri? „Þetta leiðir hugann að því að ansi margir hægri kratar, ungir að árum, hafa lýst því yfir að þeir hafi hug á þing- mennsku. Þeir vilja snúa Samfylkinguna meira til hægri til að ná í íhaldsatkvæði. Enda sjálfir mjög hægrisinnaðir. Þetta em hættuleg viðhorf sem mega ekki ná fótfestu í sandkorn@dv.is að refsa nemendum með því að fleygja í þá skítugum nær- buxum... Þú ert ágœtur! I þessu sambandi hafa menn hins vegar rifjað upp ágæta frásögn Hrafns Gunnlaugssonar í bókinni Krumma af því, þegar Hrafn kynnti Davíð fyrir Vilmundi heitnum Gylfasyni á menntaskólaárum þeirra: „Vilmundur notaði stundum ákveðna stæla til að prófa menn; hann sló bylmingshögg í öxlina á þeim til að kanna hvort þeir hrykkju undan og fæm að hlæja eða væru fastir fýrir. Hlátursvið- brögð em oft merki um hugleysi eða tækifæris- mennsku, tilkynnti hann. Kvöldið sem ég kynnti þá Vilmund og Davíð lét Vimmi á þetta reyna. [...] Ég sagði: Þetta er Davíð Oddsson. Já, blessaður, sagði Vilmundur, gekk að Davíð og lamdi hann í öxlina. Davíð haggaðist aðeins við en lamdi hann jafn fast til baka svo Vilmundur hentist upp að húsveggnum og fór sjálfur að hlæja. Honum var ögn brugðið. Hann hætti eldsnöggt að hlæja og sagði: Fyrirgefðu, þú ert ágætur! Við skemmtum okkur vel það sem eftir liföi kvöldsins." flokknum. Flokkurinn hefur mesta sigurmöguleikana á því að vera skýr vinstriflokkur jafnaðarmanna, en ekki fiska í gruggugu vatni íhaldsins." Siguröur H. Einarsson á Samfylkingin.is Hagkvæm aðstoð sú eina rétta? „Við læknum ekki áfengissjúklinga til að spara kostnað við rekstur heilbrigðisstofhanna. Við hjálpum fólki ekki að komast út í þjóðfélagið á nýjan leik til að það geti farið að afla tekna og greiða skatta. Viö gerum það vegna þess að það er rétt! Þótt það geti verið snjallt áróðursbragð þegar til skemmri tíma er litið að hampa því hversu „arðbærar" áfengismeð- ferðir eru, þá er stutt í að slík röksemdafærsla leiði mann út á hálan ís. Hvað hefðu forsvarsmenn SÁÁ til dæmis gert ef útreikningar hagfræðingsins hefðu sýnt að það borgaði sig EKKI í krónum og aurum að þurrka upp alkohólista? Eða ef hann hefði sýnt frarn á að hagkvæmt sé að senda ungt fólk og miðaldra í meðferö, en ekki þá sem komnir eru yfir miðj- an aldur og eiga skamma starfævi eftir? Er kannski ekkert vit i að lækna heimavinnandi húsmæður, verkafólk eða aðra þá hópa sem greiða litla tekjuskatta?" Stefán Páisson á Murinn.is 17 Skálinn af Sánkti Kildu MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 Skoðun ráöherra, sem nú hefur stærst orð uppi um hættuna sem stafi af Saddam Hussein, var sendimaður Reagans forseta á níunda áratugn- um og leitaði sem slíkur eftir einka- viðræðum við einvaldinn. Frá 1983 studdu Bandaríkin írak- stjóm með ráðum og dáð í árásar- stríði hennar gegn íran, seldu írök- um vopn og miðluðu þeim hemaðar- upplýsingum sem aflað var með gervihnöttum. Allar götu síðan hafa Bandaríkin, sem nú gera mikið úr hættunni sem stafi frá írak, unnið gegn viðleitni aðþjóðasamfélagsins til að takmarka útbreiðslu gereyð- ingarvopna. Á síðustu mánuðum hafa bandarísk stjómvöld ítrekað gefið til kynna að þau hafi ekki áhuga á að herða eftirlit með efna- og sýklavopnum með frágangi á bók- un við alþjóðasáttmála á þessu sviði. Styður ísland árás á írak? Bandaríkin og Bretland reyna nú með öllum ráðum að fá Öryggisráð- ið til að fallast á ályktun sem rétt- læti hemaðarárás á frak. Halldór Ásgrímsson kvað upp úr um það i viðtali við Ríkisútvarpið 27. septem- ber að hann styddi kröfu Bandaríkj- anna um nýja ályktun og sagði mjög nauðsynlegt að leggja meiri pressu á írak. Með því væri gengið gegn því samkomulagi sem Kofi Annan, aðal- ritari Sameinuðu þjóðanna, hefur gert við stjómvöld í Bagdad um end- urkomu vopnaeftirlitsmanna til íraks án skilyrða. Stuðningur íslenska utanríkisráð- herrans við stríðshótun Bandaríkj- anna sætir vissulega tiðindum og er í engu samræmi við afstöðu yfir- gnæfandi meirihluta fslendinga eins og hún birtist í nýlegum Gallup- könnunum. í hinu orðinu segir Hall- dór að stríð við íraka .. væri af- skapalega slæmt fyrir heimsffiðinn og alla heimsbyggðina ...“. Það leyfa greinilega fleiri en bandarisk stjóm- völd sér að leika tveimur skjöldum þegar um stríð eða frið er að tefla. Jónas Guðmundsson, rit- höfundur og stýrimaður, var orðheppnari en aðrir menn og lifa margar sög- ur eftir hann látinn. Eitt sinn sem oftar kom Jónas askvaðandi í siðdegiskaffið á Hótel Borg sem þá var mest sótta kaffihús landsins og sagðist karlinn hafa ver- ið á Kjarvalsstöðum. Hverjir vom þar? var spurt og Jónas svaraði: „Þar voru arkitektar og listamenn!" „Eru arkitektar þá ekki listamenn?“ spurði einhver og Jónas svaraði um hæl: „Jú, líklega eru þeir listamenn, að minnsta kosti eru þeir ekki arki- tektar!" Áföll við Austurvöll Kjallarahöfundi var svipað innan brjósts þegar hann gekk fram hjá nýjum og fínum þjónustuskála Al- þingis á fóstudaginn á lóðinni þar sem sögufrægur Listamannaskálinn stóð í eina tíð og hýsti myndlist Kjarvals og Karls Dunganon, her- toga af Sánkti Kildu. Spumingin er hvort skáli þessi sé eftir arkitekta eða listamenn, og nema hvort tveggja sé, eða jafnvel hvorugt? - Eða kannski er skálinn bara eftir sjálfan Dunganon hertoga? Lukkuriddarar hafa áður lagt til atlögu við alþingishúsið en þing- heimur borið gæfu til að hrinda hverri árás hingað til. Sumir vfldu bæta heilum Kárahnjúkavirkjunum við húsið og teygja langt út í Tjam- argötu, allar götur að Herkastalan- um á meðan aðrir létu sér nægja að rifa niður danska kórónumerkið á framhliðinni. Á tímabili var leitað langt yfir skammt að þjónustuhús- næði í nágrenninu og sjálfri Hótel Borg stefnt í voða þegar lausnin lá allan tímann í gamla og góða Lands- símahúsinu. Þá ortu götustrákar: „Þó forseta finnist þröngt á þingi /og þrotin bæði hús og torg/, þá sæmir það ekki íslendingi/ að eyði- leggja Hótel Borg!“ Borgin slapp með skrekkinn og götustrákar fengu eina með öllu í skáldalaun. Seinna kom Dunganonskálinn til sögunnar og nú átti þingið sér ekki undankomu auðið. Því miður. En hvað sem því líður er skálinn enn eitt afkvæmi Kuldabola í borginni og menn hneppa að sér við krapann í andblæ skálans. í dag er hvorki byggt á sandi né steini heldur gleri. Hrakhólar Alþingis Reykjavíkurborg morar í slysa- fóngum á borð við nýju borgar- menjamar við þinghúsið. Á milli Hótel Borgar og Reykjavíkurapóteks var troðið ömurlegu nývirki utan úr geimnum sem brýtur niður öll hlut- foll í Grófmni. Landsbanka íslands í Austurstræti og Ingólfshvoli í Hafn- arstræti var nauðgað saman með skelfilegu bíslagi utan á þessi falleg- „En hvað sem öðru líður er skálinn enn eitt af- kvæmi Kuldabola í borg- inni og menn hneppa að sér við krapann í andblæ skálans. í dag er hvorki byggt á sandi né steini heldur glerí. “ ustu hús Reykjavíkur. Gamli Út- vegsbankinn við Lækjartorg sligast nú grátandi undan þyngsta steypu- hlassi landsins. Og hvorki Þjóðleik- húsið né Landsbókasafnið ná andan- um innan um Seðlabanka og Hæst- an rétt í túnfæti Ingólfs. Á sínum tíma lagði kjallarahöf- undur til lausn á hrakhólum Alþing- is í þingsályktunartillögu og heldur hún gildi sínu í dag. í stað vindmyll- unnar miklu á milli Alþingis og Herkastalans vildi kjallarahöfundur láta hlaða nákvæma eftirmynd gamla og fallega þinghússins frá 1881 með kringlu á bakhliðinni og kórónu á framhliðinni. Húsið átti að rísa á lóð Alþingis við Vonarstræti þar sem Góðtemplarahúsið stóð í eina tíð og verkalýðurinn barði á bæjarstjóminni í alræmdum Gúttó- slag. Alþingishúsin tvö sneru þannig bökum að fallegum þinghúsgarðin- um hans Tryggva Gunnarssonar og garðurinn fengi nýtt hlutverk að tengja saman húsin tvö. Útlit húss- ins gátu allir sætt sig við þar sem það var spegilmynd gamla þinghúss- ins og hélt ekki dauðahaldi í það eins og Dunganonskálinn. Austur- völlur hefði því getað brosað áfram í kampinn og Tjömin fagnað nýju andliti við bakkann sem mildar ljót- an ráðhúsbraggann. Rauðir sokkar í Jeríkó Og talandi um ráðhúsbragga: Þær fréttir berast nú upp úr Tjöminni, að bragginn mari í hálfu kafi vegna ofhleðslu á rauðsokkum og á meðan hverri Kvennalistakerlingunni á fætur annarri er troðið miskunnar- laust á launaskrá hljóta borgarmúr- arnir að hrynja eins og veggir Jeríkóborgar forðum. Auðlindagjald eykur kvótasamþjöppun Einar K. Guðfinnsson, formaöur Sjávarútvegsnefndar Alþingis Kjallari Þaö er rétt sem lesa má út úr leiðara Óla Björns Kárasonar sl. laugardag hér í DV að upptaka auö- lindagjalds/veiði- leyfagjalds - í hvaða mynd sem er, eykur sam- þjöppun á kvóta í þjóðfé- laginu. Þess vegna er það meira en lít- ið hlálegt að sjá talsmenn stórkost- legs veiöileyfagjalds lýsa áhyggj- um sínum yfir því að kvóti sé að safnast á hendur færri fyrirtækja. Þar stangast bersýnilega allt, hvað á annars horn. í árdaga umræðunnar um auð- lindagjald voru menn ekkert að fela þessa staðreynd um samhengi kvótasamþjöppunar og auðlinda- gjalds. Þvert á móti. Ein af höfuð- röksemdunum fyrir því að leggja veiðileyfagjald í einhverri mynd á sjávarútveginn var einmitt efna- hagsleg. Það var talið stuðla að hagræðingu (les: kvótasamþjöpp- un) og lægri kostnaði við veiðam- ar. Átti að knýja fram „hagræðingu" Röksemdin var einhvern veginn svona: Það er of mikill floti að veiða of lítið magn á íslandsmið- um. Það er óhagkvæmt. Fyrir vik- ið em laun í fiskveiðum og fisk- vinnslu of lág. Því þarf að breyta. Það þarf að stuðla að því að skip- unum fækki; flotinn aðlagi sig veiðimöguleikunum. Auðlinda- gjald myndi neyða menn til þess vegna þess að öðruvísi yrðu menn einfaldlega undir. Tvær aðferðir geta komið til greina í þessu skyni. Innheimta sérstaks gjalds hins opinbera sem útgerðin yrði að greiða. Eða fyrn- ing aflaheimilda, sem síðan yrðu boðnar út á markaði. í þessu sambandi gildir í raun einu hvor leiðin er farin. Báðar höföu þann yfirlýsta tilgang að knýja menn til hagræðingar. Ella gætu þeir ekki staðið undir því að kaupa til baka veiðiheimildirnar, ýmist að lokinni fyrningu eða í formi sérstaks gjalds sem ríkið innheimti. Eru röksemdirnar gleymdar? Einhverra hluta vegna eru menn meira og minna hættir að beita þessum rökum fyrir sig í baráttunni fyrir veiðileyfagjaldi. Það þýðir hins vegar ekki að rök- in eigi ekki jafnvel við nú og þá. En trúlega þykir það ekki henta í þjóðmálaumræðunni að flagga þessu. Það er sennilega ekki talin góð latina að tala um gildi þess að nota auðlindagjald til þess að knýja á um hagræðingu, á sama tíma og menn hafa áhyggjur af þvi að kvótasamþjöppun sé orðin of mikil. Þaö er svo aftur annað mál að veiðileyfagjaldið sem Alþingi hef- ur samþykkt að innheimta og var viðleitni til sátta um umdeilt mál mun ekki íþyngja svo sjávarútveg- inum að það gefi tilefni til að rýmka möguleikann til samþjöpp- unar aflaheimilda. Það er nefni- lega rétt sem stjómarandstaðan sagði, að menn stigu afskaplega varlega til jarðar. Veiðigjaldið verður lagt á í áföngum, á talsvert löngum tíma, sem gefur færi á að- lögun sem kemur í veg fyrir rösk- un af völdum gjaldtökunnar. „Rökin fyrir kvótaþaki sem við settum fram í nefndinni eiga við í dag og er enn augljósara flestum. Því var haldið fram að slík lagasetning dygði ekkert. Reynslan hefur sýnt annað. “ Engin grundvallarbreyting gerð Sjálfur sat ég í nefnd á árinu sem undirbjó lagasetninguna um hámarkskvótaeign einstakra fyrir- tækja og fyrirtækjablokka. Þau lög tóku gildi árið 1998. Það sem við sögðum þá um nauðsyn slíks kvótaþaks hafa reynst orð að sönnu. Rökin fyrir kvótaþaki sem við settum fram í nefndinni eiga við í dag og er enn augljósara flestum. Því var haldið fram að slík lagasetning dygði ekkert. Reynslan hefur sýnt annaö. í grundvallaratriðum hefur þessi lagasetning gilt síðan. Þær breytingar sem gerðar hafa verið hafa ekki raskað lögunum í nein- um grundvallaratriðum. Þvert á móti hefur komið í ljós aö það er mikill stuðningur við skorður á hámarkskvótaeign og engin ástæða til að ætla aö gerðar verði breytingar á þeirri lagaumgjörð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.