Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002
Tilvera DV
Einstæðar bítla-
myndir finnast
Um flmm hundruð ljósmyndir af
Bítlunum, margar þeirra óbirtar,
fundust nýverið í skjalageymslu
Dundee-háskóla í Skotlandi. Mynd-
imar hafa safnað ryki í skjala-
geymslunni í rúm þrjátíu ár. Þær
tilheyra gríðarstóru fllmusafni ung-
verska ljósmyndarans, Micahels
Petos. Háskólinn eignaðist
filmusafnið við dauða Petos árið
1970.
Ljósmyndirnar þykja um margt
merkilegar; einkum þær sem Peto
tók af fjórmenningunum þegar þeir
voru við tökur á kvikmyndinni
Help. „Þetta eru aö mörgu leyti ein-
stæðar ljósmyndir sem sýna í fyrsta
sinn hvemig var umhorfs baka til
við gerð myndarinnar," sagði yflr-
safnvörður Dundee-háskóla í sam-
tali við fjölmiðla.
Peto er annars þekktastur fyrir
ljósmyndir sínar af rússnesku ball-
ettdönsurunum Rudolf Nurejev og
Margot Fonteyn annars vegar og
leikurunum Richard Burton og
Elizabeth Taylor hins vegar.
DV-MYND HARI
Anglst
Brynja Valdís Gísladóttir í hlutverki sínu sem ógæfustúlkan.
í FÓKUSI Á FÖSTUDAGINN
VERÐUR ÍTARLEG UMFJÖLLUN UM
FARSÍMA, TÆKI SEM ENGINN
KEMST AF ÁN í DAG. VIÐ SKOÐUM
M.A. NÝJUNGAR Á MARKAÐINUM
OG SMS-ÁSTARBRÉF NÚTÍMANS.
FYLGSTU MEÐ Á FÖSTUDAGINN.
í gegn um eldinn:
Fáum unglingana
til að tala saman
- segir Eggert Kaaber hjá Stopp-leikhópnum
„Verkið lýsir lífl tveggja ung-
menna sem ánetjast hafa eiturlyfj-
um,“ segir Eggert Kaaber um leik-
ritið I gegn um eldinn sem Stopp-
leikhópurinn frumsýnir kl. 12 á
morgun i Foldaskóla í Grafarvogi. í
gegn um eldinn er eftir Valgeir
Skagfjörð, sem einnig leikstýrir en
byggir á samnefndri bók ísaks
Harðarsonar og Thollýar Rós-
mundsdóttur. Það er sönn saga
stráks og stelpu sem segja frá dvöl
sinni og angist í heimi fíkniefna.
Leikritið er ætlað til sýninga í 7.-10.
bekk grunnskólanna og foreldrafé-
lög hafa sýnt því áhuga. „Við teljum
að fjölbreytt fræðsla nái best til ís-
lenskra ungmenna. Með því að segja
þeim sögur af fólki í gegnum spegil
leikhússins fáum við þau til að tala
saman og sjá hlutina í nýju ljósi,“
segir Eggert sem leikur í sýning-
unni ásamt Brynju Valdísi Gísla-
dóttur.
Stopp-leikhópurinn sérhæfir sig í
unglingaleikritum með forvarnir að
leiðarljósi. Hann hefur farið marga
hringi um landið á síðustu sex
árum og sýnt í grunnskólum. í gegn
um eldinn er 10. verkefnið. -Gun
Tvöfaldur sigur í bikarmóti Norðurlands:
Ætla að taka alla
„baukanac< næst
DVWYND HIÁ
Fánaberinn
Stefán Friögeirsson lét sig ekki muna um aö
leggja Dag frá Strandarhöföa þótt hann væri
meö Hringsfánann meöferöis.
Bikarmót Norðurlands
fór fram við Hringsholt í
Svarfaðardal á dögunum.
Fimm sveitir reyndu með
sér að þessu sinni, og fóru
leikar svo að Skagfirðing-
ar höfnuðu í tveimur efstu
sætunum og höfðu á orði
eftir keppnina að þeir
myndu mæta með þrjár
sveitir á næsta ári og
hirða alla bauka sem í
boði væru. Keppnin var
jöfti allan timann, það réð-
ust ekki úrslit fyrr en í
síðustu greinunum. Akur-
eyrska sveitin varð í
þriðja sæti en tvær sveitir
Eyfirðinga í 4. og 5. sæti.
Bikarmót Norðurlands
er árviss viðburður, eins
konar uppskeruhátið norð-
lenskra hestamanna og
hefur tvö undanfarin ár
verið haldið í Svarfaðardalnum, og
verður svo einnig á næsta ári. Enda
róma keppendur mjög alla aðstöðu,
hesthúsin við hliðina á vellinum og
stutt í allt.
Sigurvegarar urðu: Tölt unglinga:
Tinna Ingimarsdóttir og Tývar frá
Þrándarstöðum, UMSS. Fjórgangur
unglinga: Sæunn Kolbrún Þórólfs-
dóttir og Spói frá Fjalli, UMSS. Fjór-
gangur - opinn flokkur: Heiðrún
Ósk Eymundsdóttir og Gola frá
Ysta-Gerði, UMSS. Tölt - opinn
flokkur: Heiðrún Ósk Eymundsdótt-
ir og Gola frá Ysta-Gerði, UMSS.
Fimmgangur - opinn flokkur: Stef-
án Friðgeirsson og Dagur frá
Strandarhöfða, UMSE. Gæðinga-
skeið: Þorvar Þorsteinsson og Þrótt-
ur frá Skíðbakka, ÍBA. 100 m skeið
m/fljótandi starti: Jakob Einarsson
og Gjafar frá Sjávarborg, UMSS.
Tölt T2: Friðgeir Jóhannsson og Óð-
inn frá Hofi, UMSS. -hiá
DV-MYND GARÐAR HARÐARSON
Fór á kostum
Guöni Franszson er kraftmikill og skemmtilegur listamaöur og hreif fólk meö
sér í túlkun sinni á Hafið bláa hafiö. Hér er hann kominn í gólfiö.
Tónlist fyrir alla:
Guðni fór um öll
heimsins höf
Tónlistarmaðurinn Guðni Franzson
heimsótti Grunnskólann á Stöðvarflrði
í liðinni viku er hann var á ferð um
Austurland með tónleikadagskrána
Tónlist fyrir alla sem flutt er í flestum
grunnskólum landsins. Var gerður góð-
ur rómur að leik hans, sem hann
byggði upp á ljóðinu og laginu Siglingu
(Hafið bláa hafið) og ferðaðist hann um
öll heimsins höf og heimsálfa á milli í
verkinu og túlkaði sjó, menn og dýr
með miklum tilþrifúm. -GH