Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2002, Qupperneq 26
26
MIÐVTKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002
2
*
Rafpóstur: dvsport@dv.is
Raul tryggði
Spænski framherjinn Raul tryggöi
Real Madrid eitt stig þegar liðið mætti
Real Betis í gærkvöld. Aðeins voru
leiknar síðustu 46 mínútur leiksins í
gærkvöld en honum var frestað eftir 44
mínútna leik á dögunum vegna bilunar
Madrid stig
í flóðljósum. Þá leiddi Real Betis, 1-0, en
það tók Raul aðeins fimm mínútur að
jafna metin. Ronaldo (á myndinni til
vinstri) var í liði Real Madrid en tókst
ekki að nýta þau færi sem hann fékk í
leiknum. -ósk
keppni i hveriu oröi
Netsölu á
Skotaleik-
inn lokið
Miðasölu á Netinu fyrir lands-
leik íslendinga og Skota lauk í
gær og geta áhugasamir nú nálg-
ast miða á Nestisstöðvum Esso
fram á föstudagskvöld. Þeim sem
hafa ekki enn tryggt sér miða er
bent á að hafa hraðan á því ekki
voru margir miðar eftir þegar
DV fór í prentun í morgun.
Það er öruggt mál að það verð-
ur uppselt á leikinn á laugardag-
inn og ljóst að enginn sannur
knattspymuáhugamaður ætti að
láta þennan leik fram hjá sér
fara. Fjölmargir Skotar munu
koma tÚ landsins vegna leiksins
og þónokkrir ætla að koma þrátt
fyrir að þeir hafl ekki miða á
leikinn undir höndum.
Skotar fengu úthlutað um 1000
miðum en hefðu þurft til muna
fleiri til að fullnægja mikilii eft-
irspum.
Framstelpurnar
áfram í bikarnum
Litháinn Robertas Pauzolis lék sinn fyrsta leik meö Haukum í gærkvöld gegn Víkingi. Hér skorar Pauzolis eitt af sex
mörkum sínum í leiknum ón þess aö Víkingurinn Benedikt Jónsson komi vörnum viö. DV-mynd Hari
Celtic mætir
Blackburn
í gær var dregið í 2. umferð
Evrópukeppni félagsliða í knatt-
spymu. Ljóst er að Englendingar
og Skotar munu bíða viðureignar
Celtic og Blackbum með mikilli
eftirvæntingu en eftirtalin lið
drógust saman:
Fenerbahce-Panathinaikos,
Malaga-Amica Wronki
Lazio-Rauða Stjarnan
Ipswich-Slovan Liberec
Ferencvaros-Stuttgart
Anorthosis-Boavista
Dinamo Zagreb-Fulham
Parma-Wisla Krakow
Anderlecht-Midtjylland
Slavia Prag-Partizan Belgrad
APOEL-Hertha Berlin
Alaves-Besiktas
Legia Varsjá-Schalke
Sturm Graz-Levski Sofia
PAOK-Grasshoppers
Djurgárden-Bordeaux
Viktoria Zizkov-Real Betis
Leeds-Hapoel Tel Aviv
Austria Vín-Porto
Sparta Prag-Denizlispor
N. Búkarest-PSG
Celtic-Blackburn
Vitesse-Werder Bremen
Celta Vigo-Viking
Fyrri leikimir fara fram 31.
október en seinni leikimir 14.
nóvember. -ósk
Staðan í Essodeild karla: 1
I Valur 5 4 1 0 141-103 9 1
1 Haukar 6 4 0 2 180-144 8 I
1 Þór Ak. 5 4 0 1 140-113 8
1 IR 5 3 0 2 151-139 6
1 HK 5 3 0 2 148-140 6
1 FH 5 3 0 2 144-138 6
1 Stjarnan 5 3 0 2 130-136 6
1 Grótta/KR 5 2 1 2 119-113 5
1 KA 4 2 1 1 115-110 5
1 Afturelding 5 2 0 3 113-131 4
I Fram 5 1 1 3 123-139 3
1 ÍBV 5 1 1 3 114-147 3 1
1 Vikingur 5 0 1 4 134-156 1 I
I Selfoss 5 0 0 5 112-155 0 I
Fram komst í gær í átta liða
úrslit i SS-bikar kvenna í hand-
bolta eftir 20-21 sigur á FH2 í
Kaplakrika. Linda Björk Hilm-
arsdóttir skoraði 6 mörk fyrir
Fram og þær Guðrún Þóra Hálf-
dánardóttir og Katrín Tómas-
dóttir skoruðu fjögur mörk hvor.
Hjá FH, sem er skipað göml-
um kempum, skoraði Björg Gils-
dóttir 9 mörk og Una Steinsdótt-
ir var með 5. Björg sýndi að hún
hefur engu gleymt en dóttir
hennar Ragnhildur Guðmunds-
dóttir, leikur einmitt með Hauk-
um i Essodeild kvenna.
Frítt á æfingar
ÖU körfuboltafélög í landinu
bjóða bömum og unglingum fritt
á körfuboltaæfmgar dagana
7.-21. október. Hér er kærkomið
tækifæri fyrir krakka aö mæta á
körfuboltaæfíngu hjá félaginu í
sínu hverfi og prófa þessa
skemmtUegu íþrótt.
Upplýsingar um körfuboltafé-
lög landsins og hvaða aldurs-
flokka þau bjóða upp á er að
fmna hér á kki.is eða hjá KKÍ í
síma 514 4100. -ÓÓJ/ósk
Einn leikur i Essodeild karla í gærkvöld:
Skyldusigur
- Haukar unnu Víkinga auðveldlega, 33-24, í Víkinni
Það fór ekki á miUi mála hvort lið-
anna var í toppbaráttunni og hvort lið-
ið var í bombaráttu EssodeUdar karla
þegar Víkingur og Haukar mættust í
VUcinni í gærkvöld. Haukar sýndu
mátt sinn og megin í fyrri hálfleik og
ekki bætti úr skák að Guðjón og Ólaf-
ur, dómarar leUcsins, vom ansi hlið-
hoUir Haukamönnum. Staðan í leik-
hléi var, 16-10, fyrir Hauka og því var
seinni hálfleUcurinn nánast formsat-
riði.
I síðari hálfleik tókst V&ingum þó
að halda í við Haukamenn þrátt fyrir
að vera einum tU tveimur færri nánast
allan hálfleUcinn. Haukar spUuðu mjög
kæraleysislega og náðu Víkingar mest
að minnka muninn niður í sex mörk
en komust þó aldrei nær. öraggur sig-
ur Hauka var staðreynd, án þess að
þeir þyrftu að hafa mikið fyrir honum.
Stórkyttan Robertas Pauzolis spUaði
sinn fyrsta leUc fyrir Hauka á þessu
tímabili og ljóst að hann mun styrkja
liðið mikið, sérstaklega þegar hann er
kominn í betri leUcæfmgu.
VUcingar mættu ofjörlum sínum að
þessu sinni en eiga heiður skUinn fyr-
ir að leggja aldrei árar i bát.
Birgir Sigurðsson, þjálfari VUcinga,
fékk að líta rauða spjaldið um miðbUc
síðari hálfleiks fyrir mótmæli og hann
var ómyrkur í máli í garð dómaranna
í leikslok.
„Þeir dæmdu mjög Ula og það var
ekki spuming að það hallaði verulega
á okkur. Ég var hins vegar ánægður
með baráttuna hjá mínum strákum og
það styttist í fyrsta sigurinn hjá okkur.
Við erum með ungt lið og ég vU sjá
fleiri Víkinga mæta tU að styðja okk-
ur,“ sagði Birgir eftir leUcinn. -ósk
Aldrei sést færri fuglar
J Veiðivon L
„Við sáum ekki mikið af rjúpu, eiginlega mjög lítið og aldrei
eins fáa fugla og núna, yflrleitt höfum við séð nokkra hópa. Það
er ekki svoleiðis núna,“ sagði einn sem leitaði vestur í Dölum
fyrir fáum dögum að kindum sem voru miklu, mUdu fleiri en
rjúpurnar.
Af öðrum leitarmönnum fréttmn við sem voru í Þingeyjar-
sýslu og þar sást varla fugl, staðan er aUs ekki góð þessa dag-
ana.
Leitarmenn og skotveiðimenn sem DV-Sport hefur rætt við
síðustu daga segja flestir sömu söguna. Einn og einn fúgl sést,
varla miklu meira.
Margir hafa haft samband og vUja láta friða fúglinn sem
lengst. Fyrir skömmu ákvað umhverfisráðuneytið aö stækka
svæðið kringum ReykjavUc þar sem er bannað aö skjóta rjúpu.
Neðra svæðið markast af lögsagnarumdæmi ReykjavUcur, hluta
Mosfellsbæjar, Grímsnesi, Bláskógabyggð og Kjósarhrepp.
Friðaða svæöið í SkálafeUi og Skálafellshálsi markast af
Kjósarskarösvegi, frá vegamótum ÞingvaUavegar að vegamót-
um við MeöalfeUsveg, og þaðan að brú á SvínafeUsvegi og aUa
leið austur í ölfus. Svæðið hefur verið stækkaö mikið og þetta
bann gUdir til ársins 2007.
Það þarf að ganga harðar fram i því að veiðimenn fari á
tveimur jafnfljótum tU rjúpnaveiða og hætti að fara á sleðum og
fjórhjólum. -G.Bender
Það sáust ekki margar rjúpur vestur f Dölum á
dögunum og staöan er ekki góö.
Víkingur-Haukar 24-33
1-0, 1-3, 2-3, 3-3, 5-9, 3-14, 9-16, (10-18), 11-18,
13-21,14-21,16-24, 13-25, 21-27, 22-30, 24-33.
Vikineur:
Mörk/viti (skot/víti): Eymar Kruger 6/2
(11/2), Sverrir Hermannsson 4 (5), Bjöm
Guðmundsson 3 (6), Ragnar Hjaltested 2 (4),
Hafsteinn Hafsteinsson 2 (4), Ágúst
Guðmundsson 2/2 (4/3), Þórir Júlíusson 2 (6),
Benedikt Jónsson 1 (1), Davíð Guðnason 1 (1),
Bjami Ingimarsson 1 (3).
Mörk úr hraóaupphlaupunu 3 (Benedikt,
Eymar, Sverrir). Vitanýting: Skoraö úr 4 af 5.
Fiskuö vitú Davíð 2, Hafsteinn, Þórir,
Sverrir.
Varin skot/viti (skot á sig): Sigurður
Sigurösson 14/1 (43/5, hélt 6, 33%, eitt víti í
stöng), Jón Á. Traustason 1 (5/1, hélt 1, 20%).
Brottvísanir: 16 mínútur (Birgir þjálfari
rautt).
Dómarar (1-10):
Guðjón Sveinsson
og Ólafur Haralds-
son (3).
GϚi leiks
(1-10): 4. Áhorf-
endur: 150.
Maöur leiksins:
Þorkell Magnússon, Haukum
Haukar:
Mörk/víti (skot/viti): Þorkell Magnússon 6/1
(7/2), Robertas Pauzolis 6 (10), Halldór
Ingólfsson 5/4 (6/5), Aron Kristjánsson 5 (9),
Ásgeir Hallgrímsson 4 (8), Vignir Svavarsson
3 (6), Andri Stefán 2 (3), Pétur Magnússon 1
(1), Jason Ólafsson 1 (4), Siguröur Þóröarson
(1), Vigfús Gunnarsson (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 7 (Þorkell 4,
Vignir, Pauzolis, Andri).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 7.
Fiskuö vítv Vignir 3, Þorkell 2, Aron, Ásgeir.
Varin skot/víti (skot á sig): Birkir ívar
Guömundsson 10/1 (20/3, hélt 7, 50%), Bjami
Frostason 4 (18/2, hélt 1,22%)..
Brottvisanir: 12 minútur.
Hermann
verður með
gegn Skotum
Hermaim Hreiðarsson var ekki
í leikmannahópi Ipswich í gær-
kvöld þegar liðið tapaði fyrir
Grimsby, 3-0, í ensku 1. deildinni.
Hermann á við meiðsli aö stríða í
baki og hefur
misst af
tveimur síö-
ustu leikjum
Ipswich.
Atli Eð-
valdsson
landsliðs-
þjálfari sagði
í samtali við Hermann Hreiö-
DV-Sport í arsson
gærkvöld að hann hefði talað við
Hermann um helgina og Hermann
sjálfur hefði ekki búist við því að
spila leikinn þá.
„Ég hef ekki nokkra trú á öðra
en Hermann verði klár á laugar-
daginn. Hann fékk hnykk á bakið
en ég hitti hann og hópinn á morg-
un (í dag) og þá kemur þetta end-
anlega í ljós,“ sagði Atli Eðvalds-
son. -ósk
Hlynur stendur
sig vel hjá Stord
Hlynur Jó-
hannesson, fyrr-
um markvörður
HK í handbolta,
hér til hægri,
stendur sig vel
með norska úr-
valsdeildarlið-
inu. Aðeins tveir
leikmenn í Nor-
egi hafa fengið fleiri stjörnur frá blað-
inu Verdens Gang í fýrstu flmm um-
ferðum norsku úrvalsdeildarinnar.
Hlynur hefur fengið átta stjömur í
fimm leikjum en lið hans Stord er í 4.
sæti með sex stig.
Hlynur var auk þess í miklu stuði
þegar Stord vann kýpverska liðið
Strovolas Nikosia, 27-18, í fyrri leik
liðanna EHF-keppninni en þess má
geta að Guðjón L. Sveinsson og Ólaf-
ur Haraldsson dæmdu leikinn sem
fram fór i Noregi. -ÓÓJ