Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2002, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002
DV
Fréttir
Gjaldþrot sænsku ferðaskrifstofunnar Traffic Europa teygir anga sína til íslands:
Áfall fyrir íslenska flug-
félagið MD Airlines
- sem er í eigu Ingimars Hauks Ingimarssonar arkitekts
Gjaldþrot
sænsks ferðaskrif-
stofufyrirtækis,
Travel Europa
Group, og dóttur-
fyrirtækis þess,
Traffic Europa, er
verulegt áfall fyrir
íslenska flugfélag-
ið MD Airlines,
MD Airlines er í
eigu Ingimars
Hauks Ingimarssonar ju-kitekts að
hálfu en hinn helminginn á einmitt
TrafFic Europa. Samkvæmt sænskum
fjölmiðlum námu viðskiptin við
Traffic Europa um 30 prósentum af
veltu MD Airlines. Velta MD Airlines,
samkvæmt grein Frjálsrar verslunar
frá því fyrr á árinu, mun nema
„nokkrum milljörðum króna“. Er því
ljóst að veltutapið skiptir hundr-uðum
milljóna króna og að helmingur eign-
arhlutsins í MD Airlines er í upp-
námi. Samkvæmt heimildum DV mun
Traffic Europa hafa skuldað MD Air-
lines verulegar fjárhæðir við gjald-
þrotið.
MD Airlines er með íslenskt flug-
rekstrarleyfi. Tiðindin af gjaldþrotinu
í Svíþjóð hafa borist Flugmálastjórn
sem átt hefur óformlegar viðræður
við forsvarsmenn félagsins. Mjög stif-
ar reglur gilda um skilyrði flugrekstr-
arleyfis, þ. á m. eiginfjárstööu, en
óvissa er um hana í kjölfar gjaldþrots
Traffic Europa. Að sögn Heimis Más
Péturssonar, upplýsingafulltrúa Flug-
málastjórnar, er beðið gagna frá MD
Airlines svo meta megi stöðu félags-
ins.
Travel Europa Group, sem á Traffic
Europa og systurfélag þess, Dest-
ination Europa, lýsti yfir gjaldþroti
fyrir rétti í Stokkhólmi á fimmtudag í
liðinni viku. Hafði félagið, sem var
brautryðjandi í lágfargjaldaflugi í
Evrópu, átt í verulegum greiðsluerfið-
leikum í kjölfar hryðjuverkanna 11.
september í fyrra. Samkvæmt sænsk-
um dagblöðum hafði gjaldþrotið legið
í loftinu um nokkurt skeið. Engu að
síður seldi félagið í flugsæti og ferðir
sem leiddi til þess að um 1000 manns
urðu strandaglópar á ýmsum áfanga-
stöðum og álíka margir kröfðust end-
urgreiðslu fyrir keypta miða. Hefur
málið vakið talsverða athygli í Sví-
þjóð, ekki síst meö tilliti til réttar-
stöðu viðskiptavina þess.
MD Airlines hefur verið með 2-4
flugvélar í blautleigu, þ.e. með áhöfn,
tryggingum og viðhaldi, og í farþega-
flutningum fyrir ýmsa aðila. Sá MD
Airlines m.a. um að fljúga með far-
þega Traffic Europa frá Stokkhólmi til
Alicante, Aþenu, Bologna, Palermo,
Rómar og fleiri áfangastaða í sunnan-
verðri Evrópu.
Samkvæmt yfirliti Lánstrausts er
Traffic Europa helmingseigandi að
MD Airlines á móti Ingimar Hauki
Ingimarssyni arkitekt. Samkvæmt
sömu heimild mun eigið fé MD-flugfé-
lagsins vera um 50 milijónir króna. Er
því ljóst að rekstrargrundvöllur fé-
lagsins hefur veikst umtalsvert við
gjaldþrotið í Svíþjóð.
MD Airlines er með aðsetur í Kópa-
vogi. Starfsmenn félagsins eru um 100
en um tugur þeirra er hér á landi.
Ekki náðist í Ingimar Hauk Ingi-
marsson þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir. -hlh
Ingimar Haukur
Ingimarsson.
Kosið aftur í
Borgarbyggð
„Það eru mikil vonbrigði að málið
skyldi fara svona en þetta var ekki
100% niðurstaða þar eð tveir af þrem-
ur dómurum Hæstaréttar vOdu stað-
festa dóm Héraðsdóms. Við göngum
ótrauð til kosningabaráttunnar," segir
Helga Halldórsdóttir, oddviti sjálfstæð-
ismanna og forseti Borgarbyggðar um
dóm Hæstaréttar frá í gær en sam-
kvæmt honum ber að efna til nýrra
kosninga í sveitarfélaginu. Forsaga
málsins er sú að Framsóknarfélag
Mýrasýslu kærði framgang kosning-
anna og felldi félagsmálaráðuneytið
þann úrskurð að kosningamnar væru
ógUdar. Héraðsdómur dæmdi hins veg-
ar kosningamar gUdar í september.
í dómi Hæstaréttar segir m.a. að
ranglega hefði verið farið með utan-
kjörstaðaatkvæði og það hefði leitt tU
ógUdingarinnar. Segir Hæstiréttur að
við meðferð félagsmálaráðuneytisins á
kæru framsóknarfélagsins hefði blas-
að við aö utankjörfundaratkvæði með
sams konar ágaUa hefðu ekki fengið
sömu meðferð við talningu atkvæða í
Borgarbyggð. Kosningar geta í fyrsta
lagi orðið að fjórum vikum liðnum.
-GG
DV-MYND HARI
Lífssaga KK
Flestir þekkja KK (Kristján Kristjánsson) sem einstakan tónlistarmann sem hefur nokkra sérstööu hér á landi. KK er
meö mikla lífsreynslu aö baki sem fáir þekkja til. Nú gefst kostur á aö lesa hvaö er á bak viö manninn því Einar Kára-
son hefur skrifaö lífssögu hans og kom bókin út í gær. KK ætlar svo aö fyigja bókinni eftir meö útgáfu á plötu. Þeir
félagar KK og Einar Kárason ræddu yfirleitt saman á Umferöarmiöstööinni og þar var bókin kynnt ígær. Á myndinni
fær KK sér sopa af appelsíni meöan Einar Kárason les kafla úr bókinni.
Þingsályktunartillaga um afnám virðisaukaskatts af barnafötum:
Mjög freistandi leið
- segir Bryndís Hlöðversdóttir. Almenn lækkun vsk vænlegri, segir Pétur Blöndal
„Hátt hlutfall
barnafata sem
keypt eru erlend-
is kemur ekki á
óvart. Það er
mjög freistandi
leið að afnema
virðisaukaskatt
af bamafótum og
barnavörum yfir-
leitt og ég er já-
kvæð gagnvart
því. Þá yrði mikU söluaukning á
barnafatnaði og í þessu fælist bein
kjarabót fyrir bamafólk þar sem
mjög dýrt er að eiga börn á íslandi.
En áöur en ég samþykki að afnema
virðisaukaskatt af bamafótum held
ég að við verðum að skoða málið í
stærra samhengi, líta á verðsam-
setninguna hér á landi, hvort álagn-
ing sé t.d. hærri hér en annars stað-
ar eða eitthvað annað sem hefur
áhrif á verðmyndunina," sagði
Bryndís Hlöðversdóttir, formaður
þingflokks Samfylkingarinnar, við
DV vegna þingsályktunartiUögu og
umræðu um afnám virðisauka-
skatts af barnafótum og hátt hlutfall
barnafata sem keypt eru erlendis.
Bryndís var með fyrirspum á Al-
þingi fyrir tveimur ámm um opin-
ber gjöld á bamavörum, hvernig
gjaldtöku væri almennt hátað af
barnafótum, bamabUstólum, vögn-
um og fleira sem barnafólk þarf
nauðsynlega á að halda. Nú viU hún
spyrjast fyrir um verömyndun á
bamavörum, viU sjá hver hlutur op-
inberra gjalda er og álagningin.
„Það verður að skoða heUdará-
hrifin af svona aðgerð. Bamafólk er
fjölbreyttur hópur sem við verðum
að beina athyglinni að. Þá á ég ekki
aðeins við þá sem hafa lægstu laun-
in heldur einnig hina sem hafa
þokkalegar tekjur en eru í vítahring
skulda sem fylgja því aö koma und-
ir sig fótunum.
Meira svindl
„Ef menn vilja búa tU möguleika
á meira svindli í skattkerfinu er
sjálfsagt að taka virðisaukaskattinn.
af vörum eins og
barnafotum. Það
má endalaust
taka vörur sem
sérstakir hópar
þurfa á að halda
eins og lífeyris-
þegar og öryrkj-
ar. En þá verður
kerfið flókið og
það galopnast
leiðir fyrir mis-
notkun og svindl. Því flóknara sem
kerfið er og undantekningarnar
fleiri því erfiðara verður að fram-
fylgja lögunum og skattheimtunni.
Svona tiUaga eins og fram hefur
komið á þingi er ekkert annað en
lýðskrum," segir Pétur Blöndal,.
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Pétur bendir á að með sömu rök-
um megi feUa niður skatt á bama-
rúmum og taka ýmsa hópa í þjóðfé-
laginu fyrir og veita þeim skattaaf-
slátt, hópa sem eiga síður um sárt
að binda en bamafólk. En um leið
sé verið aö grafa undan skUvirkri
innheimtu skatta.
Pétur segir flóknara skattkerfi
kaUa á meira og dýrara eftirlit af
hálfu hins opinbera og á meiri
vinnu og þar með kostnaðarauka í
fyrirtækjum. Pétur segir þekkt að
fólk leiti tU útlanda tU að losna viö
háan virðisaukaskatt hér á landi.
„Það er mun vænlegra að athuga,
eins og ég hef margsinnis bent á,
hvort virðisaukaskatturinn sé al-
mennt ekki of hár. Lækkun virðis-
aukaskattsprósentunnar er tilraun
sem vert er að athuga en hún mundi
bæta lífskjör þjóöarinnar í heUd
sinni. En þá yrði að gera það mynd-
arlega, t.d. með lækkun um 5 pró-
sentustig. Hins vegar blasir sá
vandi við að mæta yrði því tekju-
tapi með niðurskurði og lækkun
ríkisútgjalda," sagði Pétur.
Pétur bendir á að skatturinn
drepi niður ýmsa starfsemi í land-
inu. Atvinnugreinar eins og ferða-
þjónusta mundi t.d. græöa heilmik-
iö á lækkun virðisaukaskattsins.
-hlh
Bryndís
Hlööversdóttlr.
Pétur Blöndal.
Hafró veröi flutt
Kristinn H.
Gunnarsson alþing-
ismaður hefur lagt
fram á Alþingi
frumvarp tU laga
um flutning Haf-
rannsóknastofnun-
ar frá sjávarútvegs-
ráðuneyti tU um-
hverfisráðuneytis. Bæjarins besta
greindi frá.
Öllum sagt upp
Laugafiskur hf., dótturfélag Út-
gerðarfélags Akureyringa, sagði
upp öUum starfsmönnum i verk-
smiðju sinni í Innri-Njarðvík í gær,
samtals 21 starfsmanni.
Ný ferðaskrifstofa
Helgi Jóhanns-
son, fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Samvinnuferða-
Landsýnar, hefur,
ásamt fleirum, sótt
um leyfi tU að starf-
rækja nýja ferða-
skrifstofu, Exit.
Tap á kjúklingum
Þrír af fjórum stærstu framleið-
endum í kjúklingarækt töpuðu rúm-
lega 600 miUjónum á síðasta ári.
Tveir af stærstu framleiðendunum,
Móar hf. og Reykjagarður hf., voru
með neikvætt eigið fé um síðustu
áramót.
Þrefalt meira tap
Þrefalt meira tap varð af rekstri
deCODE fyrstu níu mánuði ársins
en á sama tímabUi síðasta árs. Tap
þessa árs nemur 113,7 miUjónum
Bandaríkjadala, um 9,7 miUjörðum
íslenskra króna. Tapið á sama tíma
i fyrra nam 37,2 mUljónum dala eða
um 3,2 mUljörðum króna.
Vill refsitolla
Jón Bjamason,
þingmaður vinstri
grænna, telur að tU
greina komi að
setja refsitoUa á
innflutt sement tU
að rétta við hag
Sementsverksmiðj-
unnar á Akranesi.
RUV greindi frá.
Endurgreiðslur
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
hefur endurgreitt tæpar 63 miUjónir
króna, samkvæmt lögum um tíma-
bundna endurgreiðslu vegna kvik-
myndagerðar sem sett voru fyrir
tveimur árum. AUs hafa sex verk-
efni fengið endurgreiðslu, flest er-
lend. Mbl. greindi frá. -hlh
helgarblað
Prímadonnur
I Helgarblaði DV á morgun verða
viðtöl við tvær virtustu leikkonur
íslands um þessar mundir. Annars
vegar er það Elva
Ósk Ólafsdóttir,
sem fékk Edduverð-
launin á dögunum
fyrir leik sinn í Haf-
inu, og hins vegar
Edda Heiðrún
Backman. Þær tala
opinskátt um líf sitt
og leikhúsið.
í blaðinu verður einnig rætt við
Viktor Amar Ingólfsson glæpa-
sagnahöfund, fjóra TanjUa sem fá ís-
lenskan ríkisborgararétt innan
skamms og sagt fré. fyrstu ferðinni
yfir Vatnajökul fyrir 130 ámm.
Keppendur um titUinn herra Is-
land verða kynntir, skyggnst í nýjar
jólabækur og rætt við Katrínu Júlí-
usdóttur frambjóðanda og Hauk
Hauksson ekkifréttamann.
iriTQl
Rúv greindi frá