Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2002, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2002, Side 17
 16 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvœmdastjóri: Hjalti Jónsson Aóalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson A&stoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Skaftahliö 24,105 Rvík, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.ls Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plótugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Ávinningur launafólks í kjarasamningunum árið 2000 var tekið upp það nýmæli að vinnuveitendur greiddu mótfram- lag gegn viðbótarframlögum launamanna til lífeyrissparnaðar. Frá miðju ári 2000 til ársloka 2001 námu mótframlögin 1% gegn 2% sparnaði launamanns en í ár hækkaði mótframlagið í 2%. Áður hafði verið sett í lög að viðbótarframlög launamanna, allt að 2% fyrst og síðar 4%, væru skattfrjáls. Auk þess greiddu vinnuveitendur mót- framlag sem næmi tíunda hluta viðbótarframlags launa- mannsins. Þetta viðbótarframlag, tíundin, er frádráttar- bært hjá launagreiðendum við uppgjör tryggingagjalds. Verji launamaður 4% launa sinna til viðbótarlífeyrissparn- aðar fær hann nú 2% mótframlag frá launagreiðanda auk tíundarinnar, 0,4%, og renna því samtals 6,4% af launum hans til viðbótarsparnaðar. Því var lýst svo eftir þessa samninga aðila vinnumarkað- arins og stjórnvalda að svo vel hefði verið búið um hnút- ana að það væri beinlínis glapræði fyrir launamenn að leggja ekki til hliðar í viðbótarlífeyrissjóðssparnað. Fýrir launamanninn munar verulega um viðbótarframlag vinnu- veitandans, sem og skattfrelsið. Ekki þarf að greiða íjár- magnstekjuskatt vegna þeirra vaxta og verðbóta sem menn ávinna sér á sparnaðartímanum og eignin sem myndast er eignarskattsfrjáls. Sparnaðurinn er þannig ekki skattlagð- ur fyrr en við útborgun og þá eins og tekjur almennt. Launþegar létu ekki segja sér þetta tvisvar. Fram kemur á fréttavef Samtaka atvinnulífsins að viðbótarlífeyrissparn- aðurinn hafi bæði reynst meiri og jafnari milli starfsstétta en áætlað var við gerð kjarasamninga. Samtökin segja að einkum hafi mikil þátttaka verkafólks komið á óvart. Framlag atvinnulífsins vegna viðbótarsparnaðarins er þeg- ar orðið um 4-4,5 milljarðar króna á ári, eða hálfum öðrum milljarði króna meiri kostnaður en reiknað var með. Þessi þróun er jákvæð. Aukinn sparnaður í samfélaginu er æskilegur. Séreignarlífeyrissjóðurinn kemur til viðbótar skyldulífeyrissjóðunum og mun tryggja fólki betri lífskjör þegar kemur að starfslokum og er sérlega hentugur þeim sem eru að hugsa um sveigjanleg starfslok en úttekt viðbót- arlífeyrisins má heíja við 60 ára aldur. Þróunin sést best á því að árið 2000 nam meðalframlag vinnuveitenda til lífeyr- issparnaðar 6,7% af launum, þ.e. 6% skylduframlag og hærri greiðslur til félagsmanna Samvinnulífeyrissjóðsins, auk kjarasamninga nokkurra stétta sem samið hafa um hærra framlag vinnuveitenda en almennt gerist. í mars á þessu ári var framlag vinnuveitenda orðiö 8,1% að meðal- tali. Á fréttavef Samtaka atvinnulífsins segir að tölur í gögn- um Kjararannsóknarnefndar bendi til þess að 55% launa- manna hafi í mars á þessu ári fengið framlög umfram 6%, samanborið við 22% tveimur árum áður. Hækkunin er um- talsverð en samtökin segja þó að skýring þess að hlutföllin séu ekki enn hærri bendi til þess að þeir sem hafa lægstu tekjurnar og minnsta vinnuframlagið, t.d. fólk í aukastörf- um, taki ekki þátt í viðbótarlífeyrissparnaðinum. Rétt er að hvetja þá sem hafa látið hjá líða að nýta sér séreignarlífeyrissparnaðinn til þess að hefja slíkan spam- að. Þar er um að ræða hreina viðbót á lífeyri, eigin eign sem erfist. Þessum sparnaði fylgir að auki skattalegt hag- ræði. Sparnaðurinn færir einstaklingum og fjölskyldum aukið öryggi til viðbótar því kerfi sem við búum við, al- mannatryggingakerfið og skyldulífeyrissjóðakerfið. Ævi- kvöldið verður auðveldara. Ávinningur launafólks er ótví- ræður. Jónas Haraldsson 17 ’ DV Skoðun Vitum við hvað við greiðum í skatta? Birgir Ármannsson aðstoöarfram- kvæmdastj. Verslunarráðs, í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Er ekki nokkuð mikilvægt að skattgreiðendur viti fyr- irfram, með nokkurri ná- kvæmni, hversu há greiðsla þeirra kemur til með að vera? Er ekki um leið nauðsynlegt að menn geti með tiltölulega lítilli fyrirhöfn fundið út hver skattbyrði þeirra er? Og er það þá ekki grundvallarfor- senda að skattkerflð sé með þeim hætti að fólk fai einhvem botn í það án sér- stakrar aðstoðar sérfræðinga? - Ég, fyr- ir mitt leyti, svara þessum spumingum játandi. Ég hef hins vegar fyrir löngu gert mér grein fyrir því að gjaldheimta hins opinbera er langt því frá að vera gagnsæ, einfold eða réttlát. Hversu hár er viröisaukaskattur? Flestir telja sig þekkja vel þá skatta sem þeir borga. Öll vitum við að af laun- unum okkar em tekin 38%- 45% í skatt sem rennur til ríkis og bæjar. Virðis- aukaskattur er almennt 24,5% og talað er um að af matvælum sé hann 14%. En hér er rétt að staldra við því það rétta er að virðisaukaskattur er einungis af ein- staka tegundum matvæla. Það þarf að grafa upp viðauka við lög um virðis- aukaskatt til að komast að því að í raun er það frekar takmarkað vömúrval sem fellur undir lægri skattinn. Hvaða rök skyldu vera fyrir þessu misræmi? Af hverju er mjólk niður- greidd á kostnað þeirra sem drekka ávaxtasafa? Þetta misræmi væri kannski ekki eins alvarlegt ef þetta væri það eina sem væri að mgla neytendur i „Það eru mýmörg dœmi um furðulegheit í tolla- og vörugjaldsmálum, allt dæmi sem standa nœrri al- mennum neytendum. Af handahófi má taka sem dœmi vinsæla vöru, kakó.“ ríminu. En það er nú öðm nær. Tollar og vömgjöld leggja sitt af mörkum til að gera flókið kerfi enn flóknara. Tollur er ein tegund skattheimtu Ætli fólk átti sig almennt á því hver munurinn sé á tollum og vömgjöldum? Ég gæti best trúað því að neytendur geri sér almennt ekki nokkra grein fyrir því hvort vara beri toll eða ekki, hversu hár sá tollur sé eða hvort til viðbótar sé einnig lagt vömgjald. Trúlega ekki, og enda ekki nema von. Þetta sérstaka skattkerfi er með þeim hætti að fólk, sem ekki hefur sérstaklega af því at- vinnu, hefur ekki nokkrar forsendur til þess að kynna sér uppbyggingu þess, hvað þá ástæðumar fyrir því. Það em mýmörg dæmi um furðuleg- heit í tolla- og vörugjaldsmálum, allt dæmi sem standa nærri almennum neytendum. Af handahófi má taka sem dæmi vinsæla vöm, kakó sem notað er til að búa til kakódrykki, heita eða kalda. Kakó eða kakó Á einni gerð af kakódufti, sem notað er saman við heitt vatn, er tollurinn 20% af innkaupsveröi vörunnar. Svo leggst sérstakur magntollur upp á 50 kr/kg. Og af því að einhveijum hefur ekki fundist þessi tvöfalda tollálagning næg skattheimta leggst svo hið sérstaka Sandkom Enn skyggnst á bak við Ijöldin Hið ágæta Ijóð Þórarins Eldjáms hefur verið vinsæl fyrir- mynd hagyröinga frá því að Þórarinn sjálfúr uppfærði það í tilefhi af umræðu um þá almennu skelfingu sem sumir töldu að Bláa höndin hefði valdið í þjóðfélaginu. Nýjasta vísukom- ið í þessum dúr gerði Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfónn og tilefnið að sjálfstöðu nýafstaðið prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Prófkjör lítinn fœra ffiö, fúlt það dœmin sanna. Uppá Skaga er öflugt lió, atkvœðagreiðslumanna. Flokksástin er fyrir bí, fast er sótt í völdin. Greinilega grillir í, Guðjón bak vió tjöldin. Ummæli Inntökuskilyrðum fullnægt „Kannski eiga stóryrði [Magnúsar Hafsteinssonar fréttamanns] líka skýringu i því, að hann segist nú hyggja á framboð til Alþingis fyrir Frjálslynda flokk- inn. Ef marka má grein hans verður ekki betur séð en hann uppfylli öll þekkt skilyrði fyrir því, að sá draum- ur geti orðið að veruleika." Jón Steinar Gunnlaugsson lagaprófessor í aösendri grein í Morgunblaöinu, um svargrein Magnúsar viö fyrri grein Jóns, „Víst var hún sviösett", þar sem Jón færöi rök fyrir því aö umdeildar fréttamyndir af brottkasti heföu veriö sviösettar. Kennarar verði kapítalistar „Til þess að vinda ofan af þessu ríkisrekna mennta- kerfí, sem oft virðist i sjálfheldu, verður að vinna með kennurum að breytingum. Ein leið er að fá þá sjálfa til að reka menntastofnanimar sem þeir vinna á. Ríkið afhendir kennurum skólana og fær hver og einn kenn- ari hlut í samræmi við starfsaldur og vinnuhlutfall. Með því eru þeir orðnir atvinnurekendur, fjármagns- eigendur og hugsa fyrst og fremst um hag sinnar stofn- unar. Samhliöa þessu heldur hið opinbera áfram að sandkorn@dv.is Sveitarslúðrið á netinu Gamli sveitasíminn var á sinni tíði ótæmandi uppspretta kjaftasagna, enda gat hver sem er hlustað á símtöl sveitunga siima með því að lyfta upp sinu eigin tóli. Það kann að virð- ast þversagnakennt, en segja má að nútímatækni hafi fyllt þennan foma slúðurbrunn að nýju; núna eru sögumar birtar - og sóttar - í spjallþræði á netinu, þar sem hægt er að slúðra um náungann opinberlega án þess að skrifa undir naíhi. Einn slíkur vefhr hefur valdið miklu fjaðrafoki á Patreksfirði, en það er spjallvefur Skjald- borgar. Þar hefur undanfama daga mátt lesa alls kyns nafhlaust slúður um tiltekna einstaklinga í bænum og sveitinni í kring, þeir þjófkenndir og fleira í þeim dúr. Rit- stjóri vefsins hefur beðið menn að gæta sín - ellegar verði spjallþræðinum lokað. Burtfluttir Patreksftrðingar skrifa á vef- inn að þar sé þjóðaríþróttin greinilega stunduð af sama kappi og fyrr ... greiða fyrir menntun bama og unglinga. Hins vegar ráða foreldrar í hvaða skóla þeir senda böm sin. Greiðsla fyrir menntunina fylgir baminu og kennarar, sem reka skólana, kappkosta að fá sem flesta nemend- ur til sín. Aödráttaraflið er að veita fyrsta flokks þjón- ustu og menntun. Þannig verða skólar eftirsóknarverð- ir fyrir metnaðarfulla foreldra og böm þeirra.“ Björgvin Guömundsson á Frelsi.is Sinnar gæfu smiður „Ég held að það sé bara ímyndun að láta sér líða illa. Auðvitað koma tímabil þegar fólki líður illa og þá er það yfírleitt vegna annarra. En þessi daglega líðan, maóur ræður henni dálítið mikið sjálfur. [...] Það er alltaf visst gefið á höndina svo er spurning hvemig maður spilar úr því. Eitt er víst að þaö er miklu minni áreynsla að vera jákvæður heldur en neikvæður. Það er voöalega slítandi að vera neikvæður." Hákon Aöaisteinsson, skáid og sagnamaöur, í viötali viö héraösfréttablaöiö Austurgluggann vömgjald á vöruna, 50 kr. á hvert kg. Önnur gerð af kakódufti ber með sama hætti 20% toll og 50 kr/kg vöra- gjald en magntollurinn er allt í einu orð- inn 139 kr/kg. í báðum tilvikum er um venjulegt kakó að ræða sém neytendur er hrifhir af og nota til að búa til kakó- drykki. Nú mætti ætla að þessir kakóskattar legðust líka á kakó sem notað er í bakst- ur en því er nú öðra nær. Á þess háttar kakó leggst enginn tollur en þó sama vörugjald og áður er minnst á. Og auð- vitað falla þessar vörur ekki undir mat- vælavirðisaukaskattinn. Verum ekki fljót að strauja Er það ekki með ólíkindum að venju- legar brauðristarvélar séu skattlagðar á mismunandi hátt eftir því einu hvort þær taka á móti brauðinu lóðrétt eða lá- rétt? Á brauðristar er hvorki lagður toll- ur né vörugjald. Á hin svonefndu sam- lokugrill, sem er ekkert annað en brauðrist sem ristar brauðið lárétt, er hins vegar lagður 7,5% tollur og hvorki meira né minna en 20% vöragjald. Ofan á allt saman leggst svo eins og alltaf 24,5% vsk. Svipaða sögu má segja um strauvélar og straujám þar sem straujámin hefð- bundnu bera enga tolla eða vöragjöld en strauvélin (sem hentar vel til að strauja stærri stykki) fær á sig 7,5% toll og'20% vörugjald. Úr sér gengið kerfi Jafiivel þótt fallist væri á það, rök- ræðunnar vegna, að tollar væra illnauð- synlegir er ekkert sem réttlætir það að þeir séu lagðir á með tilviljanakenndum hætti. Svona misræmi i skattlagningu og ógagnsæi er ekki bara óréttlátt held- ur líka afar kostnaðarsamt fyrir ríkið sjálft. Er hægt að draga aðrar ályktanir af þvílíku misræmi en að verið sé að stýra neytendum í neyslu sinni? Fá fólk frek- ar til að rista brauðið sitt án þess að rista um leið áleggið og fa fólk til að hætta að strauja dúkana sína. Eða er þetta misræmi kannski bara tilkomið vegna misskilnings sem svo hefur undið upp á sig og bíður þess eins að verða kveðinn niður? Um Mikka, Úllu og annað fólk Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður ; • j Kjallari Eg sat agndofa fyrir fram- an sjónvarpiö miðviku- dagskvöldið 7. nóvember og horfði á Úlfhildi Dags- dóttur í bókahorni Kast- Ijósþáttarins hakka nýja bók Mikaels Torfasonar, Samúel, í sig:..engin hugmyndafræðileg átök „... þreytandi og óspennandi aflestrar..." Vá! Og áfram héldu lýsing- arnar:,,... flatneskjuleg ...“, „... vettlingatök á hugmyndurh ...“, „... bragðdauf..." Ég hef sjald- an eða aldrei orðið vitni að annarri eins slátrun og hef ég þó í gegnum tíðina fylgst með krítíkerum á borð við Kollu kúpu taka til hendinni. Satt best að segja hafði ég beðiö þessarar gagnrýni Úlfhildar með nokkurri eftirvæntingu. Áður hafði ég nefnilega fylgst með ýfmgum á net- timaritinu kistan.is sem þessu tengj- ast. Þar birtist fyrir nokkru viðtal Mikaels við sjálfan sig og kom fram sú skoðun hans að Úlfhildur væri vitleys- ingur. Þetta viðtal var fjarlægt því ummæli rithöfundarins fóra líkast til þversum í ÚlfhOdi sem mun í kjölfar- ið hafa ætlað að hætta skrifúm fyrir Kistuna. Reyndar hefði ég nú talið að Úlfhildur ætti að líta á þessar glæfra- legu og taugasýkislegu yfirlýsingar Mikaels sem hrós fremur en gerast hysterisk. Og nú er leikurinn rétt að hefjast. Tekinn á teppið? Næsta skref; Hallgrimur Helgason skrifar grein í Fréttablaðið þriðjudag 6. nóvember þar sem hann fjallar um þennan geming. Hallgrímur er mis- gáfulegur að vanda - hann hnýtur í sí- fellu um sjálfhverfuna. í greininni býsnast hann yfir því að Matthías Við- ar hafi talað yfir hausamótunum á Mikka Torfa í bréfi sem birtist á Kist- unni. Einhvem veginn heitir það hjá Hallgrími að Mikki Torfa hafi verið tekiirn á teppið?! Og Hallgrímur gerir betur: „Hann [Matthías] ætti að vita að það að taka rithöfund á teppið er að bjóða hættunni heim í kaffi.“ Nú vita það allir sem vita vilja að það er ger- samlega hættulaust að taka Hallgrím sjálfan á teppið því ekki hefur heyrst múkk frá honum um „hina bláu hönd“ síðan Davíð bauð honum í kaffi fyrir skemmstu. En nú er ég fallinn í sömu gryfju og Mikael Torfason, Hall- grímur Helgason og Ágúst Borgþór ríthöfundar, og Soffía Auður Birgisdóttir og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntagagnrýnendur. - „En svona eru jólin og nú er gaman“, segir grein- arhöfundur hér í lokin. Hallgrímur, það er að tala um Hall- grim. Hins vegar er ekki annað hægt en vera sammála honum um að það hafi verið ákveðin mistök hjá Kistumönn- um að fjarlægja þessi skrif. Því um, að hafi Úlfhildur ætlað að hætta, er ekki annað hægt að segja en farið hafi fé betra en sá gagnrýnandi sem ekki þolir að rithöfúndur í jólabókaflóði kalli sig vitleysing. Marktækur dómur? En það sem svo toppar alla þessa stórkostlegu vitleysu er ákvörðun Úlfhildar að halda sínu striki og dæma bók Mikaels. Hvemig í ósköp- unum ætlast hún til, i ljósi alls þessa, að dómur hennar um Samúel sé marktækur? Og ætlist hún ekki til þess; notar hún þá þennan vett- vang til að hefna sín á æstum rithöf- undi? Og hvað þá með umsjónar- menn Kastljóss? Éru þeir bara úti á túni, úr snertingu við það sem er að gerast? Eða finnst þeim þetta við hæfi? Ég hef lesið allar fyrri bækur Mikaels Torfasonar og þótt fetta megi fingur út í ýmislegt sem frá honum hefur komið telst hann seint „bragðdaufur" eða „óspennandi". Annað það sem gerir dóm Úlfhildar sérkennilegan er að bókin hefur hjá öðrum gagnrýnendum fengið mjög góða dóma. Bréf - og svarbréf Nú er ég í sjálfu sér ekki að efast um heilindi Úlfhildar almennt sem er í einkar vanþakklátu hlutverki gagnrýnandans sem stöðugt þarf að eiga við bamaskap rithöfunda. Ekki öfundsvert hlutskipti það. En hún hefur að mínu viti gert sig seka um dómgeindarskort og raunar dottið niður á sandkassaplanið með þeim sem elska hana og hata í senn - það eru þeir sem hún er að fjalla um. Og samsæriskenningamar grassera. Ágúst Borgþór Sverrisson skrifar harðort bréf til birtingar á kistan.is þar sem hann gerir því skóna að dómur Úlfhildar sé eins konar hefnd eins og nefnt er hér að ofan. Reynd- ar, þegar betur er að gáð, hlýtur hver maður að sjá að sem hefndar- aðgerð er þetta gersamlega mislukk- að því betri auglýsingu fær rithöf- undur tæpast. Soffia Áuður Birgisdóttir svarar og segir það af og frá að rithöfundar eigi að geta komist upp með það að slá krítíkera úr leik með dólgshætti í þeirra garð og gera þá þar með ómarktæka. (Reyndar efast ég stór- lega um að Mikael sé líkur nafna sínum Corleone í svo úthugsuðum plottum.) Út í hvað er þetta komið? En svona era jólin og nú er gam- an. Ég bíö spenntur bæði eftir því að lesa Samúel og fylgjast með næsta skrefi í þessum farsa. Samspil náttúru og nytja Rúnar Guðbjartsson sálfræðingur og fyrrv. flugstjóri Eg skoðaði virkjunarfram- kvæmdirnar í Þjórsárdaln- um nýlega. Þar hefur mikið afrek verið unnið. Þarna malar Þjórsá gull 24 tíma á sólarhring allt árið. Virkjanimar era snyrtilega felldar inn í fell og hæðir. Maður gat ímyndað sér að þar væra álfar að spinna gull, þegnum þessa lands til gagns. Mér fannst yndislegt að njóta íslensku nátt- úrurmar, skynja hreina loftið, vindinn, útsýnið og kyrrðina. Aðeins inni í stöð- inni heyrði ég dyn koma upp úr iðram jarðar. Nú er mikil umræða um hvort eigi að leyfa Norðlingaölduveitu sem myndi gera virkjanimar í Þjórsárdal enn hag- kvæmari. Á móti kemur, að friðlýst svæði Þjórsárvera, sem er 375 kms, myndi skerðast um 7 kms. - Langar mig að ræða þetta nánar. Lífskjör og forsenda þeirra Fiskimiðin, hitaorkan, vatnsorkan og vindorkan era okkar mikilvægustu auðlindir og hafa skapað okkur lífskjör, sem era með þeim bestu í heiminum. Ef við hefðurn frá byijun raf- og hita- væðingar keypt inn olíu og kol til að lýsa og hita upp húsin þá væra lífskjör- in ekki eins góð. Ég álít lífsnauðsyn fyr- ir íslendinga, að vera stöðugt í sókn, og að auka gullvinnsluna úr ánum og jarð- hitanum. Tímaspursmál er hvenær tæknin til að nýta vindinn kemur. Við þurfúm að halda þessum góðu lifskjör- um og að bæta þau, og það er alveg ótrúlega margt sem er knýjandi að framkvæma til að færa okkur ham- ingjusamara og öraggara líf. Ef ég lít í eigin barm, ég er maöur á besta aldri, aðeins 67 ára gamall, er samt kominn á viðhaldsaldurinn. Læknavísindin era komin langt, fyrir mig og mína líka, til að gera okkur lif- ið betra, bæði með lyfjum og aðgerðum. Eins er með bömin, bamabömin og bamabamabömin mín, þau eiga mörg- um sinnum meiri líkur á að fá bata við hinum ýmsu sjúkdómum og slysum sem geta heijað á þau í framtíðinni, vegna þess að vísindunum hefur fleygt fram. Við höfum þekkingu, aðstöðu og starfsfólk sem er með því besta í heim- inum í dag. En okkur vantar greinilega peninga til þessa málaflokks, þess vegna verðum við að mala meira gull. Við erum einnig með ákaflega frum- stætt vegakerfi sem skapar mikla slysa- hættu og margir íslendingar farast eða örkumlast vegna þess. Það er löngu tímabært að byggja fleiri umferðar- mannvirki og tvöfalda hringveginn, sem myndi gera hann miklu öraggari, o.fl. o.fl. En til að framkvæma þetta allt þurfúm við meiri peninga. Þess vegna þurfúm við að mala meira gull og virkja meira en við verðum að gera það í sátt við landið og náttúruna. Mér finnst ásættanlegt að láta af „Það er löngu tímabært aö byggja fleiri umferöarmannvirki og tvöfalda hring- veginn, sem myndi gera hann miklu öruggar, o.fl. o.fl. En til aö framkvæma þetta allt þurfum viö meiri peninga. Þess vegna þurfum viö aö mala meira gull og virkja meira, en viö veröum aö gera þaö í sátt viö landiö og náttúruna.“ hendi þessa 7 kms af friðlýstu svæði Þjórsárvera. Ég sé ekki svo mikið eftir landinu, sem mér skilst að sé að hluta til ógróið, en verra finnst mér með heiðargæsina. Um það bil 3-400 hreiður myndu fara undir vatn. Til að bæta það legg ég til að heiðargæsin verði friðuö allt árið meðan stofiiinn er aö jafiia sig. Hér á landi eru skotnar um 14.000 heið- argæsir á ári, friðunin gerði meira en að vega upp á móti fækkun hreiðranna Gæs og lax í fóstur Einnig mætti athuga hvort ekki er hægt að stækka friðlýsta svæðið, ann- aðhvort til austurs eða vesturs, til hags- bóta fyrir heiðai-gæsina. Mér fmnst að Landsvirkjun ætti að taka heiðargæs- ina í fóstur og sjá til þess að stofninn nái sinni upprunalegu stofnstærð sem hefúr farið minnkandi undanfarin ár. Heiðargæsin er skynsamur fúgl og at- huga má hvort ekki sé hægt að útbúa fýrir hana floteyjar nyrst á lónið sem hún getur notað til hreiðurgerðar. Eða hjálpa henni á einhvem annan tækni- legan hátt sem sérfræðingar teldu lík- legan til árangurs. Landsvirkjunin væri þá í líkum sporum og Rafveita Reykjavíkur var í árdaga virkjana á íslandi þegar hún tók laxinn í Elliðaánni í fóstur með góðum árangri. Rafveitan tekur laxinn í kistu fyrir neðan stíflu og flytur hann upp fýrir stífluna. Landsvirkjun þarf líka að halda vörð um Þjórsárver og vemda þau gegn ágangi ferðamanna, sem í vaxandi mæli fara um hálendið á fjalla- bílum. Smá þjóðremba Talandi um ferðamenn, í umræð- unni hefur verið mikiö rætt um að ferðamannaþjónustan gæti komið í staðinn fyrir virkjanimar á hálendinu og malað fyrir okkur gull. Ég hef ekk- ert á móti ferðamönnum, en þeir era líka mengunarvaldur. Nauðsynlegt yrði að byggja varanlega vegi og alls konar aðstöðu fyrir þá ef vel á að vera og fyllsta öryggis gætt. Þetta yrði til lýta á hinni óspilltu náttúra hálendis- ins, ekki síður en rafmagnsmöstrin sem fylgja virkjunum. Á móti kemur að tækninni fleygir fram í gerð rafmagns- kapla og ég tel að eftir nokkra áratugi verði allar raftnagnslínur á íslandi komnar í jörð til mikillar prýði og ör- yggis, engin meiri ísingarhætta. í mér er smá þjóðremba og eitt hefur mér ekki líkað í sambandi við bygg- ingu álveranna, Af hveiju getum við ekki sjálf byggt okkar álver? Það er ákveðin nýlendulykt af því að láta út- lendinga græða á okkur. Því geta ekki íslenskir auðjöfrar, eins og til dæmis Björgólfs- eða Bónusfeðgar, farið í ál- viðskiptin? Eflaust era til eölilegar skýringar á þessu, sem ég kann ekki Bót er í máli að eigandi Norðuráls virö- ist vera besta skinn, hann fjárfestir mikið af gróðanum sinum á íslandi. +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.