Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 Fréttir DV Skoðanakönnun DV um leiðtogaefni listanna í NV-kjördæmi: Flestir nefna Vilhjálm Magnús óskoraður foringi Framsóknar Vilhjálmur Egilsson er oftast nefndur sem leiðtogaefni framboðslista í skoð- anakönnun DV sem gerð var á þriðju- dagskvöld. Nafn Sturlu Böðvarssonar ber næstoftast á góma og þá nafn Magn- úsar Stefánssonar, Einars K. Guðfinns- sonar og loks Jóns Bjamasonar. 600 kjósendur í Norðvesturkjördæmi voru spurðir eftirfarandi spumingar: Hver vilt þú að leiði lista þess flokks sem þú styður í kjördæminu? Var úr- takinu jafnt skipt á miili karla og kvenna. 56,5 prósent tóku afstöðu til spumingarinnar, aðrir vom óákveðnir eða neituðu að svara. Fyrmefnd niðurstaða fæst þegar svör allra þátttakenda sem afstöðu tóku í könnuninni eru skoðuð. Er þá gert ráð fyrir að þetta sé afstaða stuðnings- manna flokkanna. Sé litið til þeima sem sóttust eftir sæti á lista Sjáifstæðis- flokksins nefndu 14,7 prósent Vilhjálm Egilsson, 13,9 prósent Sturlu Böðvars- son, 10,9 prósent Einar K. Guðfinnsson, 6,2 prósent Einar Odd Kristjánsson og 3,5 prósent Guðjón Guðmundsson. Þegar litið er til framsóknarmanna nefndu 12,1 prósent Magnús Stefánsson, 4,7 prósent Kristin H. Gunnarsson og 2,1 prósent Pál Pétursson. Af samfylkingarmönnum nefndu flestir Gfsla S. Einarsson eða 5,9 pró- sent, 4,4 prósent nefhdu Jóhann Ársæls- son og 2,9 prósent Karl V. Matthíasson. Jón Bjamason ber höfuð og herðar yfír aðra Vinstri græna en 10,3 prósent nefndu hann. Aðrir sem sækjast eftir eða hafa sóst eftir sætum á listum í NV-kjördæmi voru nefndir mun sjaldnar. Greint eftir stuöningi við flokk Þegar svör við spumingunni að ofan eru greind eftir beinum stuðningi við stjómmálaflokka í könnun DV, þ.e. hvemig fólk svaraði spurningunni um hvaða lista það mundi kjósa ef þingkosningar fæm fram núna, verð- ur niðurstaðan á aðeins annan veg. Mismuninn má rekja til þeirra sem Hlutfall D-llstamanna? - miöað við svör allra í könnuninni Vilhjálmur Egilsson Sturia Böövarsson Einar K. Guðflnnsson □nar Oddur Kristjánsson Gubjón Guömundsson Magnús Stefánsson Krlstinn H. Gunarsson Páll Pétursson Aftrlr Óákv./svara ekki Hver viit þú að leiði listann? - greint eftir stuðningi við flokka o% 10% 20% 30% 40% 50% Sturia Böftvarsson Einar K. Guftfinnsson Vllhjálmur Egllsson Elnar Oddur Krlstjánson j ^ Guftjón Guftmundsson ani‘1 Aftrir Óákv./svara ekkl i l 0% 10% 20% 30% Jón BJamason Aftrlr Óákv./svara ekki a 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% ■MMMMMnSHB V* 0% 20% 40% 60% 80% 100% Dökki liturinn sýnir hlutfall þeirra sem sögöust einnig mundu kjósa D-listann í NV-kjördæmi ekki tóku afstöðu til flokka í könnun- inni, vom óákveðnir eða neituðu að svara. Þetta á sérstaklega við um Sjálf- stæðisflokkinn. Vilhjálmur Egilsson er ágætt dæmi um þetta. Af öllum þeim sem vildu að Vilhjáimur leiddi lista sögðust 72 pró- sent mundu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef þingkosningar fæm fram núna en 28 prósent neituðu að svara spuming- unni um stuðning við flokka eða vom óákveðin. Sjálfstæðisflokkurinn sker sig úr að þessu leyti því mikill meiri- hluti þeirra sem neftidu leiðtogaefni úr öðrum flokkum lýstu einnig yfir stuðningi við sama flokk. Þess vegna er sérstakt graf hér til hliðar yfir hlut- fall þeirra sem nefndu einhvern sjáif- stæðismannanna og lýstu jafnframt yfir stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn. Meðal þefrra sem sögðust mundu kjósa lista Sjálfstæðisflokksins færa þingkosningar fram nú sögðust 23,1 pró- sent vilja sjá Sturlu Böðvarsson sem leiðtoga en 21,8 prósent Einar K. Guð- fmnsson. Vilhjálmur er þriðji þar sem 21,3 prósent nefndu hann. 9,5 prósent nefndu Einar Odd Kristjánsson og 7,1 prósent Guðjón Guðmundsson. 12,3 pró- sent voru óákveðin eða svömðu ekki. Niðurstöðurnar má sjá á meðfylgj- andi grafl. Magnús foringi Nær allir þeir sem nefndu framsókn- armenn á nafn lýstu einnig yfir stuðn- ingi við Framsólmarflokkmn í NV-kjör- dæmi. Þannig þarf enginn að efast um foringjastöðu Magnúsar Stefánssonar, nýkjörins leiðtoga, en helmingur fram- Hver vilt þú að leiði lista þess flokks sem þú styður - könnun DV í NV-kjördæmi 19/12 2002 1. Vilhjálmur Egilsson 14,7 2. Sturla Böövarsson 13,9 3. Magnús Stefánsson 12,1 4. Einar K. Guöfinnsson 10,9 5. Jón Bjarnason 10,3 6. Einar Oddur Kristjánsson 6,2 7. Gísli S. Einarsson 5,0 8. Kristinn H. Gunnarsson 4,7 9. Jóhann Ársaslsson 4,4 10. Guöjón A. Kristjánsson 3,8 11. Guöjón Guömundsson 3,5 12. Karl V. Matthíasson 2,9 13. Aðrir 6,5 sóknarmanna vill að hann leiði listann. Kristinn H. Gunnarsson er langt á eftir og sömuleiðis Páll Pétursson. 17,3 pró- sent framsóknarmanna voru óákveðin eða svömðu ekki spumingunni um leið- togaefni. Uppstillingarslagur Stillt verður upp á lista hjá Samfylk- ingunni og Vinstrihreyfmgunni grænu framboði í NV-kjördæmi og er vinna þar að lútandi í gangi þessa dagana. Meðal þeirra sem sögðust styðja Sam- j fylkinguna nefndu flestir Gísla S. Ein- arsson eða 24,1 prósent. 20,4 prósent nefndu Jóhann Ársælsson og 7,4 prósent Karl V. Matthíasson. 42,5 prósent vom óákveðin eða svömðu ekki. Jón Bjamason kemur nánast einn til greina sem leiðtogi hjá þeim sem styðja Vinstri græna en 64,2 prósent vilja hann sem leiðtoga listans í NV-kjördæmi. 11,3 prósent nefndu ýmsa aðra en 24,5 pró- sent vom óákveðin eða svöruðu ekki spumingunni um leiðtogaefni. -hlh Foreldrar Hjálmars Björnssonar, piltsins sem fannst látinn í Rotterdam í sumar: íhuga að fara til umboðs- manns þingsins í Hollandi Foreldrar Hjálmars Bjömssonar, 16 ára, sem lést með voveiflegum hætti i Rotterdam i júní, íhuga að leggja fram erindi til umboðsmanns þingsins í Hollandi á hendur yfirsaksóknaranum í Rotterdam. Er það gert í ljósi þess að þeir telja rannsókn lögreglunnar á láti piltsins ófullnægjandi og afskipti og stjóm embættis saksóknarans á henni ekki sem skyldi. „Við höfum gefið yfirsaksóknaran- um, Henk van Brammen, frest til mánudags til að svara þeirri beiðni okkar að hann hlutist til um að sak- sóknarinn fari með, málið af meiri festu," sagði Bjöm Hjálmarsson, faðir piltsins, í samtali við DV. Hann segir að fjölskyldan sé mjög þakklát Sólveigu Pétursdóttur dóms- málaráðherra fyrir að hafa ákveðið að hafa samband við dómsmálaráðherra Hollands vegna rannsóknar málsins, hins vegar kunni þau afskipti að hafa komið of seint. Bjöm segir að hér sé um þrjú áfóll og í raun glæpi að ræða - að missa son- inn en það verði að sjálfsögðu aldrei bætt - að hann hafi verið rændur mannorði sínu, og foreldramir þar með einnig, með því að á hann hafi ver- ið borin ýmis ósannindi, eins og að honum hafi gengið illa í skóla - og að fá svo ekki þá sjálfsögðu og eðlilegu hjálp af háifu hollenskra stjómvalda sem ætla mætti að almenningur fái þegar einstaklingar látast með voveif- legum hætti. Pilturinn fannst látinn með ýmsa höfuðáverka niður við ána Oude Maas eftir að hans hafði verið saknað í tvo daga. Félagar hans höfðu þá fyrst sagt að þeir vissu ekki hvar hann væri en síðan hefðu þeir orðið margsaga um tfl- drög þess hvar og hvemig hann lést. Fjölskyldan hefur lagt áherslu á að það verði rannsakað frekar hvers vegna það gat gerst að pilturinn fannst ekki fyrr en einum og hálfum sólarhring eft- ir að hann lést og það á mjög fjölfóm- um stað, þar sem hundruð skipa fara um á hverjum degi. Fjölskylda Hjálmars heitins er mjög Hjálmar Björnsson, 16 ára Hann var nemandi á menntaskóla- stigi í úthverfinu Hoogvliet í Rotterdam. ósátt við framgöngu lögreglunnar sem „lokaði rannsókninni" án þess að kryfja málið til mergjar. Ríkislögreglu- stjóraembættið hefur frá því í byijun júlí unnið að máli Hjálmars eins og kostur hefur verið að þvi er varðar þátt málsins héðan frá íslandi. Frá því í byijun júlí hefur embætti ríkislög- reglustjórans komið að málinu hér á landinu. Að beiðni foreldranna var framkvæmd réttarkrufhing hér og embættið heíúr þvi haldið tii haga öll- um þeim sönnunargögnum sem fjöl- skyldan hefur lagt fram. Rannsóknar- gögn frá fóðumum hafa jaftióðum ver- ið lögð fyrir aðstoðaiyfirlögregluþjón ríkislögreglustjórans. í því ljósi harm- ar fjölskyldan að embættið hafi ekki enn fengið neina beina aðild að rann- sókn málsins ytra. Utanríkisráðuneytið og dómsmála- ráðuneytið hafa einnig komið að máli Hjálmars. Björn segist vonast til að Davíð Oddsson forsætisráðherra muni einnig beita sér gagnvart hollenskum stjómvöldum enda megni einstakling- ar og ftölskyldur ekki að láta til sín taka eins og þörf væri á þó vilji og mik- il samheldni sé fyrir hendi. -Ótt Aukatónleikar Nick Cave Ástralski rokkarinn Nick Cave er að koma tfl landsins og heldur tón- leika 9. desember á Broadway. Það var greinilegt að fiðringur fór um marga við þessar fréttir því þegar miðasala hófst þá var löng biðröð fyrir framan Japís á Laugavegi og seldust miðamir upp á 45 mínútum. Áður hafði það verið fært í mál við Nick Cave að halda aukatónleika og var hann til í það. Það var því haf- ist handa strax þegar ljóst var hvert stefndi að koma þeim á. Nú er búið að ganga frá öllum lausum hnútum og verða aukatónleikarnir á Broad- way 10. desember. Miðasala á þessa tónleika hefst næstkomandi þriðju- dag. Skriða úr hlíðum Aurskriða féll úr fjallshlíðinni sunnanvert ofan við byggðina á Seyðisfirði í gærkvöld. Ekkert tjón hlaust af og ekki kom til þess að íbúar í húsum neðan skriðunnar þyrftu að yfirgefa þau. Sú varð nið- urstaðan af fundi almannavama- nefndar bæjarins sem kom saman til fundar i kjölfar þessara atburða. Engu að síður voru ibúar beðnir um að hafa varann á sér. Mikið hetúr rignt eystra síöustu daga en stytt var upp þegar DV ræddi við fólk þar snemma í morgun. Þá bjóst lögregla við að mál yrðu könnuð frekar í dag - og athugað yrði hvort hætta væri á frekari skriðufóllum. DV-MYND GVA Hversdagshetjur verðlaunaöar Lögregla, læknir á slysadeild, slökkviliösmenn og Rauði krossinn skipa viöbragðsteymiö sem fer á vettvang þegar tilkynning um slys berst Neyöarlínu. Hér veita þeir verö- skuldaöri viöurkenningu viötöku. Veitt verðlaun fyrir öryggi Umferðarljósið, verðlaunagripur Umferðarráðs, var veittur í gær við upphaf Umferðarþings 2002. Gripurinn er veittur þeim sem hafa unnið sérstak- lega árangursríkt starf á sviði umferð- aröryggismála. Verðlaunagripinn hlutu viðbragðs- aðilar á vettvangi umferðarslysa. Lög- regla, læknir á slysadeild, slökkviliðs- menn og Rauði krossinn skipa við- bragðsteymið sem fer á vettvang þegar tilkynning um slys berst Neyðarlínu. Óli H. Þórðarson, framkvæmda- stjóri Umferðarráðs, afhenti viður- kenninguna og sagði við það tækifæri að viðbragðsaðilarnir væm hvers- dagshetjur. Metsláturtíð fyrir norðan Slátrað var 65 þúsund íjár hjá Slátur- húsi Norðlenska á Húsavík á þessu hausti og er það mesti fjöldi íjár sem slátrað hefur verið á Húsavík frá upp- hafi. Meðalfallþungi dilka var 15,1 kg. Sala á fersku kjöti frá Húsavík hefur stóraukist með nýrri vinnslulínu. Þótt hetðbundinni sláturtíð sé nú lokið verður dilkum slátrað á Húsavík vikulega út desember og fer það kjöt hvort tveggja á innlendan markað og tfl Bandaríkjanna. -GG/sbs/HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.