Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Blaðsíða 21
i
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002
21
DV
Tilvera
Robert Vaugn sjötugur
Bandarlski leikarinn
Robert Vaugn á stóraf-
mæli í dag. Frægðar-
tími Vaugns var sjö-
undi áratugurinn þegar
hann lék stór hlutverk
í vinsælum kvikmyndum og lék aðal-
hlutverkið í einni vinsælustu sjón-
varpsseríu áratugarins, The Man
From U.N.C.L.E. Vaughn byrjaði leik-
feril sinn glæsilega, fékk óskarstil-
nefningu fyrir leik í The Young Phila-
delphians (1959) sem var fyrsta mynd-
in sem hann lék í. Vaughn útskrifað-
ist frá háskólanum í Suður-Kaliforníu
í stjómmálum og hefur ætíö verið
eitilharður málsvari demókrata.
■P
tjörnuspá
Gildir fyrir laugardaginn 23. nóvember
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.t;
I Ekki eyða tímanum í
' alltof mikla skipulagn-
ingu. Þú veist hvað þú
þarft að gera og ættir
að koma þér strax að efninu. Dag-
urinn verður ánægjulegur.
nskarnir(19. febr.-20. mars):
Dagurinn verður frem-
lur viðburðasnauður en
kvöldið verður hins
vegar fjörugt og þú
skemmtir þér vel í góðra vina
hópi.
Hrúturlnn (21. mars-19. apríll:
fXFarðu varlega i tjár-
málum og ekki treysta
VÁ hverjum sem er. Þú
ættir að gefa
þér tima til að slappa af og gera
eitthvað nýtt og skemmtilegt.
Nautið (20. april-20. maíi:
/ Vinnan á hug þinn all-
an þessa dagana. Þú
r y"' verðiu- að gæta þess að
særa engan þótt þú
hafir litinn tíma til að umgangast
ástvini.
Tvíburarnlr (21. maí-21. iúníi:
Ýmislegt skemmtilegt
y7**"gerist í dag og þú verö-
/ m- fyrir óvæntu happi
seinni hluta dagsins.
Nú er góður timi til að gera breyt-
ingar.
Krabblnn (22. iúní-22. iúlíl:
Einhver er í vafa um að
| það sem þú ert að gera
' sé rétt. Þú skalt hlusta
á það sem aðrir hafa að
segja en endanlega ákvörðunin
verður þó að vera þín.
Llónlð (23. iúlí- 22. áeústl:
i Þú ættir að láta meira
* að þér kveða í félags-
■ w lifinu. Vertu óhræddur
við að láta skoðanir
þínar í Ijósi og koma hugmyndum
þínum á framfæri.
Mevlan (23. áeúst-22. sept.l:
Þú átt rólegan dag í
vændum sem einkenn-
V\'lList af góðum samskipt-
^ ■ r mn við fjölskyldu og
ástvini. Rómantikin liggur í loft-
inu.
Vogln (23. sept-23. okt.l:
J Þér gengur vel að
Oy leysa verkefni sem
Vollu þér vandræðum
r f fyrir nokkru. Þú
ert í góðu jafnvægi og dagurinn
verður skemmtilegur.
Sporðdreklnn 124. okt.-?i. nftv.i:
Einhverjar tafir verða
á skipulaginu en ekki
1 jláta þær koma þér úr
SHPHjafnvægi. Dagurinn
verður að öðru leyti ágætur og
ekki verður kvöldið verra.
Bogmaðurlnn.(22 .DQv-2i ijg?.):
[Vinur þinn á í basli
Fmeð eitthvað og þú
hefur aðstöðu til að
hjálpa honum. Þú ger-
ir eitthvað sem þú hefur ekki gert
lengi og sérð alls ekki eftir því.
Stelngeitin (22. des.-19. ian.l;
Þú kynnist manneskju
sem á eftir að hafa
djúpstæð áhrif á þig.
Rómantíkin
liggur í loftinu og þú ert afar
ánægður með gang mála.
Lesið í hús
pggggjpttt-
Þegar Finsenar bjuggu á Hressó
McDonalds hefur nú hætt starfs-
semi sinni í Austurstræti 20. Fyrir-
tækið opnaði þar útsölustað 1995 og
starfrækti hann þar til um síðustu
mánaðamót er staðnum var lokað.
Málsvarar fyrirtækisins bera fyrir
sig dauf viðskipti yfir vetrartímann
og leita því á fengsælli mið. Þessi
þáttaskil gefa okkur tilefni til að
stikla á stóru um sögu hússins.
200 ára sýslumannssetur
Miðhluti Austurstrætis 20 er með
elstu húsum í Reykjavík, reist fyrir
sýslumanninn í Gullbringu- og
Kjósarsýslu 1805. Þá var Reykjavík
aðeins fáein hús við Aðalstræti og
Hafnarstræti auk Dómkirkjunnar
og Stjórnarráðshússins.
Sýslumannshúsið var stokkahús,
líklega flutt tilhöggvið frá Svíþjóð.
Austan við það var enn eldra hús,
Bökunarhúsið, fyrsta brauðgerð
bæjarins, starfrækt af O.P.Chr.
Möller kaupmanni.
Fyrsti íbúi miðhluta hússins var
H.W. Koefoed sýslumaður, tengda-
sonur Bjarna riddara Sívertsen.
Hann hélst þar ekki við nema í tvö
ár enda frágangur hússins svo léleg-
ur að það var tæplega íbúðarhæft.
Síðan bjó þar Halldór Thorgrímsen
sýslumaður.
Finsenar í Austurstræti
Ólafur Finsen yfirdómari settist
að í húsinu 1820. Embættismenn af
Finsenætt bjuggu síðan lengi í hús-
inu en niðjar Hannesar Finnssonar
biskups voru voldug embættis-
mannaætt á 19. öld. Ólafur keypti
húsið, festi síðan kaup á Bökunar-
húsinu og sameinaði þau 1831.
Ólafur varífæddur 1793, sonur
Hannesar Finnssonar biskups og
faðir Óla Péturs, síðar póstmeistara
í Pósthússtræti. Hann var í hópi
helstu embættismanna á sinni tíð,
sýslumaður, yflrdómari í Landsyfir-
dómi, gegndi lands- og bæjarfógeta-
störfum og stiftamtmannsstarfi.
Hann lést á besta aldri, 1836.
Kristján Kristjánsson, land- og
bæjarfógeti, eignaðist húsið 1851 en
ári síðar keypti húsið Vilhjálmur
Finsen, land- og bæjarfógeti, sonur
Ólafs. Vilhjálmur bjó í húsinu um
skeiö en flutti síðan til Danmerkur.
Hann var mikill fræðimaður í ís-
lenskri réttarsögu og er eini íslend-
ingurinn sem gegnt hefur embætti
hæstaréttardómara í Danmörku.
Árni Thorsteinsson
Enn einn land- og bæjarfógetinn í
Austurstræti 20 var Árni Thor-
steinsson, frændi Vilhjálms og
Ólafs. Ámi var sonur Bjama Thor-
steinssonar, amtmanns á Amar-
stapa og síðar lengi í Thorvaldsen-
stræti, og k.h., Þórunnar, systur
Ólafs. Árni var bróðir Steingríms,
skálds og rektors Lærða skólans.
Ámi eignaðist Austurstræti 20
1861 og lét reisa tvílyfta viðbygg-
ingu við austurenda þess ári síðar.
Ámi var lengi einn helsti emb-
ættismaður landsins, land- og bæj-
arfógeti frá 1861, landfógeti
1874-1904, konungskjörinn alþingis-
maður, bæjarfulltrúi og kanzellíráð.
Steingrímur Thorsteinsson hjó
því nokkuð nærri sér er hann réðist
á yfirstéttina í Reykjavík, 1872, kall-
aði þá broddborgara og klíku og
sagði þá óþjóðlega og drembiláta.
Líklega hefur þó gagnrýni Stein-
gríms átt einna síst við Árna, bróð-
ur hans, því Ámi var eljumaður og
áhugasamur um allt er laut að prýði
og framförum. Hann kom sér upp
einum fyrsta og glæsilegasta skrúð-
garði bæjarins, sunnan við húsið,
var áhrifamaður í bæjarstjóminni,
stofnaði Sparisjóð Reykjavíkur og
var helsti hvatamaður aö stofhun
sjúkrahúss í Reykjavík og endur-
byggingar Skólavörðunnar.
1 Sögu Reykjavíkur - Bærinn
vaknar, 1870-1940, fyrri hluta, eftir
Guðjón Friðriksson, er ítarleg lýs-
ing á Austurstræti 20 frá velmektar-
dögum Áma landfógeta. Þar er lýst
húsinu, lóðinni, herbergjaskipan,
heimilishaldi, heimilisbrag, hús-
gögnum og máltíðum hjá þessum
helsta höfðingja bæj-
arins um 1870.
Tónskáldið og
bankastjórinn
Er Ámi var allur
bjó sonur hans, Árni
yngri, í húsinu.
Hann var ljósmynd-
ari og eitt ástsælasta
tónskáld þjóðarinnar
á fyrstu áratugum
20. aldar. Meðal vin-
sælla sönglaga hans
má nefna Áfram
(Láttu gamminn
geisa); Nótt (Nú ríkir
kyrrð); Þar sem háir
hólar, og Enn ertu
fogur sem forðum.
Síðastur Finsena
og Thorsteinsona
sem bjuggu í húsinu
var Hannes banka-
stjóri, bróðir Árna
tónskálds. Bróðir
þeirra var Bjami en
systur þeirra bræðra
voru Þórunn, kona Franz Siemsen
sýslumanns, og Sigríður, fyrri kona
Páls Einarssonar, fyrsta borgar-
stjórans.
Hressingarskálinn
Árið 1931 festi KFUM kaup á
Austurstræti 20 og hefur félagið átt
húsið siðan. Ári síðar var húsinu
breytt í kaffihús og þar var síðan
Hressingarskálinn í marga áratugi.
Stofnandi Hressingarskálans var
Bjöm Björnsson kaupmaður sem
einnig starfrækti Bjömsbakarí.
Hann var hálfbróðir, sammæðra,
Haraldar Ámasonar kaupmanns.
Hressingarskálinn var rekinn í
Austurstræti 20 frá 1932. Þar var
griðastaður margra kynslóða og
ólíkra þjóðfélagshópa í 60 ár.
Skáli skálda og fræðimanna
Jón Óskar skáld getur þess í end-
Austurstræti 20 í seinni tíð.
urminningabókinni, Gangstéttir í
rigningu, að fram aö seinni heims-
styrjöld hafi Skálinn fyrst og fremst
verið griðastaður skálda og fræði-
manna, eins og Ólafs Friðrikssonar
verkalýðsleiðtoga og Jóns Árnason-
ar stjörnuspekings. Þekktasti fasta-
gesturinn var þó Steinn Steinarr
sem ætíð hélt tryggð við Skálann og
dró að sér ungu skáldin eftir stríð.
Hressó rokkkynslóðar
Árið 1957 var byggð við húsið ein-
lyft álma í suður meðfram austur-
hlið lóðarinnar og 1959 var húsið
klætt með móasaíkflísum að utan.
Skáldin, kaffihúsasérvitringar og
eldri kynslóðirnar kölluðu staðinn
alltaf Skálann og héldu sér í eldri
hlutum hússins. Rokkkynslóðin
lagði hins vegar undir sig suður-
álmuna, talaði alltaf um Hressó en
Útsýnl yfir norðausturhluta mlðbæjarins úr glugga á Hótel Borg
Myndin er líklega tekin á fyrri helmingi fjórða áratugaríns en 1937 var hinn
veglegi inngangur á Útvegsbankanum færöur fyrir hornið á austurgaflinn.
heyrði aldrei minnst á Skálann. Þá
mátti á laugardagseftirmiðdögum
sjá stælgæja og skvísur ganga með
kæruleysislegri Presley-sveiflu inn
alla álmuna, bregða sér inn á snyrt-
inguna innst við ganginn, renna
greiðunni einu sinni yfir brillant-
ínklfstrað hárið eða laga aðeins
túperinguna, koma aftur fram, velja
sér borð, panta shake og ieggja á
ráöin um rúnta og sveitaböll.
Menningarsnobbaðir menntskæl-
ingar hippatímans kunnu hins veg-
ar ekki að meta Hressó. Þeir sátu í
lopapeysum og Álafossúlpum á
Mokka eða á Tröð og þráttuðu þar
um dielitíska efnishyggju Marx.
Endurbætur Völu Matt
Árið 1985 var Hressingarskálinn
gerður upp svo um munaði. Glugg-
ar á neðri hæð og húsið að utan
voru færð til upprunalegra horfs,
staðurinn endurskipulagður að inn-
an, gert ráö fyrir veitingum í garð-
inum eins og áður hafði tfðkast og
settar nýjar innréttingar. Þessar
breytingar voru lokaverkefni Val-
gerðar Matthíasdóttur sem þá var
að ljúka námi í arkitektúr við
Kunstakademiets Arkitektskole í
Kaupmannahöfn. Sama ár var hún
einn af stofnendum Stöðvar 2 og ári
siðar var hún orðin þjóðþekkt sjón-
varpskona.
Ýmsir aðUar starfræktu svo veit-
ingarekstur í húsinu til 1995 er
McDonalds kom til sögunnar.
Nú er svo bara að bíða og sjá
hvort bráðum verði hægt að fá sér
kaffi þar sem um áratuga skeið var
vinsælasta kafFihús Reykjavíkur,
eða hvort sá staður verður eina hús-
ið f miðbænum sem ekki er kaffihús
eða krá.
-KGK
•4
Bæjarlind 4 • 201 Kópavogur • 5ími 544 5514