Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Blaðsíða 18
18 Tilvera FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 X>V 1* Það var mikið um dýrðir á Broadway í gærkvöld þegar keppnin um Herra ísland fór fram. Ails kepptu fimmtán frískir og myndarlegir strákar víðs vegar af landinum um titilinn. Það fór svo að tuttugu og tveggja ára gam- all Reykvíkingur, Sverrir Kári Karlsson, stóð uppi sem sigurveg- ari. Jón Björgvin Hermannsson hreppti 2. sætið og Elís Bergmann Blængsson hafnaði í 3. sæti. Krist- inn Óli Hrólfsson var valinn Ljós- myndafyrirsæta DV en Baldvin Jón Hallgrímsson var kosinn sá vinsæl- asti. Allir þessir strákar fengu vegleg verðlaun. Sverrir Kári er fæddur og uppalinn Reykvíkingur og er á samningi í trésmíði. Á næsta ári verður hann fulltrúi íslands í keppninni Mr. International. -HK Herra ísland valinn á Broadway: Trésmíðanemi úr Reykjavík sigraði Anægöur sigurvegari Sverrir Kári Karlsson, Herra ísland, fyrir miðri mynd. Á bak við hann eru þeir sem komust \ úrslit. Lengst til vinstri er Kristinn Óli Hrólfsson sem valinn var Ljósmyndafyrirsæta DV. DV-MYNDIR SIG. JOKULL SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum og breyting- um á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í Reykjavík: Reitur 1.172.0 Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Laugavegi, Vatns- stíg, Hverfisgötu og Klapparstíg. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í borgar- ráði 12. nóvember 2002. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að áfram verði blönduð byggð íbúðarhúsnæðis og verslunar- og þjónustu, fyllt verði í skörð sem eru bæði við Laugaveg og Hverfisgötu. Á Laugavegi er lagt til að heimilt verði að rífa hús nr. 23, 27 og 29. " Þá gerir tillagan ráð fyrir að heimilt verði að byggja á lóð nr. 40 við Hverfisgötu sem aðlagi sig að aðliggjandi húsum. Sérstaklega er bent á glæsileg hornhús við Vatns- stíg, bæði við Laugaveg og Hverfisgötu og er vert að vernda þau. í tillögunni er m.a. áréttað að á götuhæð jarðhæða húsa á Laugaveginum gildi skilmálar um landnotkun sem sam- þykktir voru með breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, sem staðfest var í júlí 2000. Jafnfram að óheimilt verði að reka næturklúbba á reitnum. Hádegismóar, við Rauðavatn, breyting á deiliskipulagi. Tillagan tekur til reits sem afmarkast af borgarfriðlandi á Hólmsheiði við Rauðavatn til austurs, fyrirhugaðri götu til suðurs, Suðurlandsvegi til vesturs og golfvelli GR til norðurs. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi sem sam- þykkt var til auglýsingar í borgarráði 12. nóvember 2002. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir tveimur lóðum undir atvinnu- starfsemi með aðkomu frá hringtorgi og fyrirhugaðri götu. Á hvorri lóð er einn byggingarreitur. Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingar sviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 22.11.2002 - til 05.01.2003. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skrif- lega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 05.01 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 22.11. 2002. Skipulagsfulltrúi Herra Island og unnustan Unnusta Sverris Kára Karlssonar, Helena Kristinsdóttir, var aö vonum ánægö meö sinn mann og á myndinni fagnar hún sigrinum. Kammerkór Suðurlands með tvenna tónleika: Kemur víða að til að syngja saman Kammerkór Suðurlands, undir stjóm Hilmars Amar Agnarssonar, heldur tvenna tónleika á næstunni. Á morgun, 23. nóvember, í Skálholti og 28. nóvember í Kristskirkju á Landakotshæð. Organisti á tónleik- unum verður Steingrímur Þórhalls- son og einsöngvari Loftur Erlings- son. Hildur Hákonardóttir sér rnn listræna umgjörð og mun fyrst og fremst styðjast við verk eftir Willi- am Blake. Yngvi Karl Jónsson er að- stoðarmaður hennar. Fluttir verða m.a. kaflar úr sálu- messum eftir Gabriel Fauré, Duruflé, Jón Leifs, Jehan, Alain og fleiri. Kórinn hefur starfað frá árinu 1997. Félagar koma víðs vegar að af Suðurlandinu, s.s. frá Selfossi, Þor- lákshöfn, Hveragerði, Hellu, Hvols- velli, Höfn í Homafirði og uppsveit- um Árnessýslu. Margir þeirra starfa að tónlistarmálum á sínum heimaslóðum, stjóma kórum og hljómsveitum og kenna við Tónlist- arskóla. Kórinn hefur það meðal annars á stefnuskrá sinni að halda tónleika að minnsta kosti tvisvar á ári. Einnig hefur hann gefið út geisla- diskinn „Ég byrja reisu mín“ og hlaut fyrir hann lofsamlega dóma. -EH Ustrænt Kammerkór Suöurlands á æfingu í Hverageröiskirkju. Lífsgleði í Fold Harry (Harald- ur) Bilson opnar málverkasýningu í Gallerí Fold á Rauðarárstíg á morgun sem hann nefnir Lífsgleði. Það er 6. einkasýn- ing hans hér á landi. Harry er heimshornaflakkari og hefur sýnt í virtum sýningarplássum í öllum heimsálfum og verk eftir hann eru í eigu safna og fagurkera um víða ver- öld. Hann fæddist 1948 hér á íslandi og er stoltur af þeim uppruna sínum en hann flutti ungur að árum til Bret- lands. Móðir hans er íslensk og faðir- inn breskur. Nafhið á sýninguna valdi hann í tilefni þess að hann hefur ný- lega staðið upp úr erfiðum veikind- um. Byggingarlist í Berlín Raðmyndasýningin Nýr arkitektúr í Berlín var opnuð í morgun í Ými, húsi Karlakórs Reykjavíkur, og stend- ur til 24. þessa mánaðar. Hún er safn af dæmum um fjölbreytileika bygging- arlistar og skipulags við endurgerð Berlínar á tíunda áratugnum. Sýning- in er opin milli kl. 10 og 17. List í ýmsu formi í Alaska Huginn Þór Arason, Magnús Sig- urðarson og Gabríela Friðriksdóttir opna sýningu á morgun kl. 15 í vinnu- stofu sinni í gróðurhúsinu Alaska við Miklatorg. Ásamt þeim ætlar hópur sem kallar sig „Vinahót" einnig að sýna verk í ýmsu formi, meðal annars nýja fatalínu og flytja bæði talað orð og tónlist. Það eru: Ásmundur Ás- mundsson, Gunnhildur Hauksdóttir, Haraldur Jónsson, Ragnar Kjartans- son, Sigrún Hrólfsdóttir og Þorgeir Guðmundsson. Allir eru velkomnir á opnunina að njóta lista og léttra veit- inga, Sýningin verður opin frá kl. 14-19 sunnudaginn 24. nóvember en frá kl. 16-21 út vikuna. Upp úr skúffunum íslensk grafik opnar á morgun kl. 16 sýningu sem nefnist Skúffugallerí í sal félagsins í Hafnarhúsinu, Tryggva- götu 17, hafnarmegin. Með skúffugall- eríi gefst almenningi kostur á að kynnast á einum stað fjölbreyttum grafikverkum íslenskra listamanna. Úrval þeirra verka er nú til sýnis á veggjum sýningarsalarins til 8. des- ember. Sýningin er opin frá fimmtu- degi til sunnudags frá kl. 14-18. Listaverk og söngur Ami Sighvatsson opnar myndlist- arsýningu í Félagsstarfi Gerðubergs í dag, 22. nóvember, kl. 16.00 og mun Gerðubergskórinn syngja við opnun- ina. Árni sem er barítonsöngvari og starfar í dag sem söngkennari mun einnig taka lagið og syngja lög eftir Sigvalda Kaldalóns og fleiri við undir- leik Jóns Sigurðssonar. Ámi hefur sótt námskeið undanfarin ár í olíu- málun, vatnslitamálun, tréskurði ásamt fieiru. Sýningin er opin mánu- daga til föstudaga kl. 10-17 og laugar- daga og sunnudaga kl. 13-17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.