Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Page 9
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 DV Fréttir Sérfræðilæknar og Tryggingastofnun ríkisins: Ekki hægt að vísa sjúklingum frá - í skjóli þess að kvótinn sé búinn - slíkur samningur ekki til Fjöldi öryrkja og fleiri viðskipta- vinir Tryggingastofnunar hafa haft samband við stofnunina undanfarið til að kanna hvort rétt sé að ekki sé hægt að fá tíma eða aðgerð hjá sér- fræðingi, þrátt fyrir brýna þörf, vegna þess að „kvóti“ sé búinn, að sögn Guðrúnar E. Jónsdóttur hjá Tryggingastofnun ríkisins. Guðrún sagði að kvóti í samning- um Tryggingastofnunar við sér- fræðinga væri ekki til. Sérfræðing- um væri óheimilt að bjóða umbeðna eða tiltekna þjónustu utan kvóta gegn því að sjúklingur greiddi sjálf- ur samningsbundinn hluta Trygg- ingastofnunar. „Ef læknar bjóða sjúklingum til- tekna þjónustu gegn því að þeir greiði sjálftr að fuilu er það brot á samningum," sagöi Guðrún. „Hið rétta er að læknar sem starfa samkvæmt sérfræðisamning- um hafa ekki nokkra heimild til að láta sjúkratryggða sjúklinga greiða hærra gjald en tiltekið er í reglu- gerð um hlutdeild sjúkratryggðra i kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, nema sjúklingarnir óski þess sér- staklega að halda viðskiptum sínum utan við almannatryggingakerflð. það er skýrt tekið fram í samning- um við sérfræðilækna að þeir skuli aldrei veita viðtöku úr hendi sjúk- lings þeim hluta greiðslu sem Tryggingastofnun ber að greiða." Læknum sem starfa samkvæmt samningum við Tryggingastofnun Frá Hofsósi. Rætt við Skag- strendinga um sorpurðun Að undanförnu hafa verið uppi áform um urðun sorps við Kolku- ós í Skagafirði sem áður tilheyrði Viðvikursveit. í ljósi nýrra hug- mynda um verndun og uppbygg- ingu Kolkuóssvæðisins telur meirihluti sveitarstjórnar Skaga- fjarðar áriðandi að kannaðir verði fleiri kostir varðandi sorpförgun í Skagafirði. Þessi áætlun var sam- þykkt samhljóða en fulltrúar Framsóknarflokks sátu hjá við af- greiðsluna. Þeir hafa emdregið viljað að sorpurðun yrði í Kolku- ósi. Gísli Gunnarsson, forseti sveit- arstjórnar, segir að kanna eigi aðra möguleika. T.d. sé svæði utan við Hofsós sem komi til greina og eins Fell í Sléttuhlíð. Einnig hafi verið rætt við Skag- strendinga um samstarf um sorp- urðun í nánustu framtíð. „Sorp er í dag urðað skammt utan Sauðárkróks og er að komast á tíma svo það fer að líða að því að við þurfum að finna stað fyrir sorpurðun. Það verður að gerast fljótlega á næsta ári. Það eru komnar upp nýjar hugmyndir varðandi Kolkuós sem framtíðar- ferðamannastað. Valgeir Þor- valdsson, sem rekur Vesturfara- setrið, er með hugmyndir um að byggja upp gamla Kolkuósbæinn og slík starfsemi fer illa saman með sorpurðun," segir Gisli Gunnarsson. -GG ber skylda til að starfa eftir þeim í hvívetna en geta ekki á sama tíma látið eins og þeir væru utan samn- inga. Þetta þýðir sem fyrr segir að þeim er óheimilt að bjóða sjúkling- um að komast fyrr i aðgerð gegn því að þeir greiði hana að fullu. Það er og hefúr aldrei verið stefna heil- brigðisyfirvalda að sjúklingar geti keypt sig fram hjá biðlistum lækna sem starfa samkvæmt samningi við Tryggingastofhun. -JSS DVWND PETRA Fyrsta íbúðarhúsiö byggt í tólf ár Sá merki atburður varð nú í vikunni að hafist var handa við að taka grunn fyr- ir einbýlishúsi við Starmýri í Neskaupstaö. Ibúöarhús hefur ekki veriö byggt í bænum í tólf ár og er það von margra heimamanna að þetta sér bara byrjun- in - enda sé hallæri á húsnæðismarkaði og skortur á íbúðarhúsnæöi. , SIGURÐ KÁRA I 7. SÆT Ð KARA Við styðjum Sigurð Kára í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Guðmundur H. Garðarsson Fynverandi alþingismaður „Ungan mann á þing!" Stefán Karl Stefánsson Leikarí „Ég mæli með Sigga Kára á þing. Góður vinur og ábyrgur." Hörður Sigurgestsson Stjórnarformaður „Sigurður Kári er traustsins verður og góður fulltrúi sinnar kynslóðar." Ellen Ingvadóttir Löggiltur dómtúlkur og skjalþýðandi „Þróttmikill maður með víðtæka reynslu." Orri Hauksson Fyrrv. aðstoðarmaður irsætisróðherra Guðrún Ebba Ólafsdóttir Borgafulltrúi „Sigurður Kári er ungur og upprennandi maður, sem ég styð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksi ns." „Sigurður Kári er dýrmætur tiðsmaður í baráttunni fyrir auknu frelsi." Jón Steinar Gunntaugsson Hæstoréttarlögmaður „Kjósum fulltrúa frelsisins." „Ég veit að Sigurður Kári hefur rika réttlætiskenna og er baráttumaður fyrir jöfnum rétti og jöfnum tækifærum fótks." Hetgi V. Jónsson Löggiltur endurskoðandi og hæstaréttarlögmaður „Ég tel að það sé fengur fyrir þjóðina að fá mann eins og Sigurð Kára á þing." Arí Edwald Framkvæmdastjóri „Sigurður Kári er ötull talsmaóur þess að álögum á fólk og fyrirtæki verði stillt í hóf og þess vegna styð ég hann." Guðrún Helga Theodórsdóttir Stjórnarmaður i hverfafélagi Sjólfstæðisflokksins i Arbæ „Sigurður Kári er frambærilegur ungur maóur sem ég styð á þing." Gísli Marteinn Batdursson Varaborgarfulltrúi Gunntaugur Sævar Gunntaugsson Framkvæmdastjórí „Sigurður hefur vaxið með hveiju verkefni sem hann hefur tekið að sér fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þannig hefur hann unnið sér stuðning þeirra sem best þekkja tiL" „Af 20 ára reynslu veit ég að Sigurður Kári er rétti maðurinn á þing. Heiðarlegri og betri mann þekki ég ekki." Ólafur B. Thors Stjórnarformaður Ásdfs Halla Bragadóttir Bæjarstjórí og fyrrv. formaður SUS „Einstaktega góður drengur, traustur og heilsteyptur." Hannes Hólmsteinn Gissurarson Prófessor „Ég veit, að ég er ekki einn um það að vona, að Sigurður Kári fái brautargengi í prófkjöri sjálfstæðismanna nú um helgina." Krístfn Guðmundsdóttir Fyrrv. form. Hvatar j styð kraftmikinn ungan mann sem hefur skoðanir." Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Borgarfulltrúi og formaður Sambands islenskra sveitafélaga „Þessi ungi maður úr Breiðholtinu er maður framtfðarinnar f Sjálfstæðisflokknum." Þorgerður K. Gunnarsdóttir Alþingismaður „Ég vil Sigurð Kára i þingftokki Sjálfstæðiflokksins vegna þess að hann er málefnalegur og það er gott að starfa með honum." Erna Hauksdóttir Framkvæmdastjórí „Mér líst ákaflega vel á að fá Sigurð Kára á þing. Hann er drífandi og kraftmikill og með hugsjónir sem eiga heima á Alþingi." Sigurður Lfndal Prófessor „Ég styð réttsýnan mann sem ég tel líklegan til góðra verka."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.