Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Side 10
10 Útlönd FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 Imam Samudra Indónesíska lögreglan segir aö þessi tölvusérfræðingur, sem var handtekinn á Jövu í gær, hafi veriö aöalskipuleggiandi sprengjutilræöis- ins á Balí í síöasta mánuöi. Fimm handteknir fyrir Balí-tilræðið Lögreglan í Indónesíu hefur handtekið fimm menn í tengslum við sprengjutilræðið á Balí í síðasta mánuði þar sem tæplega tvö hundr- uð manns týndu lífi. Meðal hinna handteknu er meintur skipuleggj- andi tilræðisins, svo og tveir menn sem taldir eru vera lífverðir hans. Imam Samudra, meintur skipu- leggjandi tilræðisins, var handtek- inn i héraðinu Banten á vestan- verðri Jövu í gær. Handtaka hans þykir mikilvægur áfangi i rannsókn tilræðisins. Að sögn lögreglunnar verður hann fluttur til Balí í næstu viku. Fullyrt hefur verið að samtökin Jemaah Islamiah og al-Qaeda hafi staðið fyrir tilræðinu en lögregla hefur engar sannanir þar um. Konan hótaði að Powell Blaðamaður- inn Bob Wood- ward, sem fræg- ur varð fyrir þátt sinn í Watergate-mál- inu, segir í ný- útkominni bók sinni að Alma Powell, eigin- kona Colin Powells, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi sett eigin- manni sínum stólinn fyrir dymar þegar hann hugð- ist bjóða sig fram sem forsetaefni repúblikana árið 1996. Powell, sem þá hafði nýlega dregið sig í hlé sem hershöfðingi, þótti eiga góða möguleika á að hljóta útnefningu en hætti við þegar eiginkonan hótaði að yfirgefa hann, að hennar sögn vegna þess að hún óttaðist um líf hans færi hann i framboð. yfirgefa Colin Powell. ísraelar hefna sjálfsmorðsárásarinnar í gærmorgun: Réðust í morgun inn í Betlehem ísraelskar hersveitir réðust i bítið í morgun inn í bæinn Betle- hem á Vesturbakkanum og storm- uðu beint að Fæðingarkirkjunni, að þeirra sögn til að koma í veg fyrir að palestínskir hryðjuverkamenn leituðu þar hælis eins og þeir gerðu fyrr á árinu í 39 daga umsátrinu um kirkjuna. Áður höfðu ísraelskar skrið- drekasveitir umkringt Dheisheh- flóttamannabúðirnar í nágrenni bæjarins og var óttast að fljótlega yrði látið til skarar skríða í leit að grunuðum hryðjuverkamönnum í hefnd fyrir sjálfsmorðsárásina í Jerúsalem i gærmorgun, þar sem ellefu ísraelskir borgarar létu lífið. Sjálfsmorðsliðinn hefur verið nafngreindur sem Nael Abu Hilail, 23 ára Betlehem-búi og þess vegna mun aðgerðum beint þangað, en að sögn talsmanna ísraelska hersins hafa palestínsk hryðjuverkasamtök stýrt aðgerðum þaðan síðan Israelar Fæöingarkirkjan umkringd ísraelskar hersveitir hafa umkringt Fæöingarkirkjuna í Betlehem til aö koma í veg fyrir aö palestínskir hryöjuverkamenn leiti þar hælis. drógu herlið sitt út úr borginni í ágúst sl., en það var gert eftir að samkomulag náðist við palestínsk stjórnvöld um hert öryggiseftirlit í bænum. „Með sjálfsmorðsárásinni í gær teljum við samkomulagið fallið úr gildi,“ sagði Doron Spielman, talsmaður ísraelska hersins eftir aö Hamas-samtökin höfðu lýst ábyrgð á árásinni og nefnt fyrmefndan til- ræðismann. í tilkynningu frá samtökunum sagði að árásin væri viðbrögð við stöðugum árásum ísraelska hersins inn á heimastjómarsvæði Palest- ínumanna og dráp á saklausum borgurum og því hótað að fleiri grimmilegar árásir fylgdu í kjöl- farið í morgun var einnig ráðist inn í þorpið Al-Khader í næsta nágrenni Betlehem og íbúum að minnsta kosti 25 heimila skipað að yfirgefa híbýli sín meðan hryðjuverkamnna væri leitað. REUTERSMYND Brabra truflar umferöina Þaö er víöar en á íslandi sem andaflokkar rölta eftir götunum og trufla með þvi umferö fótknúinna og vélknúinna far- artækja. Þessi mynd var tekin í Dhaka, höfuöborg Bangladess, í morgun eftir aö fuglarnir höfðu fengiö sér baö í Buri- ganga-ánni sem rennur þar i gegn. Ekki er annaö aö sjá en brabra séu bara ánægöar með lífiö eftir baðiö. Leiðtogar NATO styðja af- vopnun Saddams Husseins UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háö á þeim sjálf- _______um sem hér segir:_______ Bergstaðastræti 10B, Reykjavík , þingl. eig. Hjördís Brynja Mörtudóttir, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Sparisjóður Reykjavíkur og nágrenn- is, útibú, þriðjudaginn 26. nóvember 2002 kl. 13.30._______________ Eyjar H, 030101, 124,8 fm íbúð á 1. hæð m.m. ásamt bílageymslu, 51,55% í húsi og 50% í lóð, Kjósarhreppi, þingl. eig. Guðrún Ólafía Tómasdóttir og Magnús Sæmundsson, gerðarbeið- endur íbúðalánasjóður og Lánasjóður landbúnaðarins, þriðjudaginn 26. nóv- ember 2002 kl. 10.00.__________ Jörfagrund 42, 010102, Kjalarnesi, þingl. eig. Brynja K. Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 26. nóvember 2002 kl. 10.30._________________________ Laugavegur 27A, 010201, Reykjavík, þingl. eig. Einar Þór Karlsson, gerðar- beiðendur íbúðalánasjóður og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 26. nóv- ember 2002 kl. 15.00. Skeiðarvogur 13, Reykjavík, þingl. eig. Ólafur Garðar Eyjólfsson, gerðarbeið- endur Byko hf., Kreditkort hf., Lands- banki íslands hf., aðalstöðv., Spari- sjóður Reykjavíkur og nágrennis, úti- bú, Traust þekking ehf. og Trygginga- miðstöðin hf., þriðjudaginn 26. nóvem- ber 2002 kl. 14.00._______________ Skeljagrandi 7, 0201, Reykjavík, þingl. eig. Þórarinn Gunnarsson og Álfhildur S. Jóhannsdóttir, gerðar- beiðandi íbúðalánasjóður, þriðjudag- inn 26. nóvember 2002 kl. 15.30. Skeljanes 4, 0001, Reykjavík, þingl. eig. Hellen Linda Drake og Einar Þor- steinn Einarsson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 26. nóvember 2002 kl. 16.00. Spilda úr Hurðarbaki, Kjósarhreppi, þingl. eig. Sigríður Aðalheiður Lárus- dóttir, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóð- ur, þriðjudaginn 26. nóvember 2002 kl. 11.00. Stigahlíð 18, 0102, Reykjavík, þingl. eig. Valgerður H. Valgeirsdóttir, gerð- arbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 26. nóvember 2002 kl. 14.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK, Aðildarríki Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) lýstu í gær yfir stuðningi sínum við tilraunir Sameinuðu þjóðanna að losa íraka við gjöreyðingarvopn sín. Þau gengu þó ekki svo langt að lofa að þau myndu leggja út í styrjöld til að ná því markmiði fram. Bandarískir ráðamenn reyndu hvað þeir gátu til að fá afdráttar- lausari stuðning leiðtoga NATO, sem sitja nú á fundi í Prag í Tékklandi, við herskáa stefnu sína í að afvopna Saddam Hussein íraksforseta. Andstaða sumra aðildarlandanna varð þó til þess að orðalag yfirlýsingar NATO var mjög mildað. Frakkar og Þjóðverjar lýstu andstöðu sinni við suma þætti stefnu Bandaríkjamanna en studdu þó yfirlýsingu NATO. Og Gerhard Schröder Þýska- landskanslari ítrekaði að þýskar hersveitir myndu aldrei taka þátt í hernaði gegn Irak. Bandarískar og breskar her- þotur héldu í gær áfram árásum sínum á hernaðarskotmörk á flugbannssvæðinu í sunnan- verðu Írak í gær. Að sögn banda- rískra hernaðaryfirvalda var skotið á loftvarnaratsjá þar sem sést hafði til íraka þar sem þeir voru að flytja loftvamaflaugar inn á flugbannssvæðið yfir sunnanverðu landinu. írakar sögðu að ráðist hefði verið á borgaraleg skotmörk. Colin Powell, utanrikisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að Bandaríkjamenn gætu allt eins háð styrjöld gegn írök- um í sumar, einkum þó á svöl- um kvöldum, ef Saddam Hussein bíður til vors með að koma í veg fyrir að vopnaeftirlitsmenn SÞ geti sinnt störfum sínum, í sam- ræmi við ályktun Öryggisráðs- ins. _ Löggan skoðar Jackson HÞýska lögreglan greindi frá því í gær að hún mýndi rann- saka hvort poppar- inn Michael Jackson hefði framið glæp með því að lyfta ungu barni sínu yfir svalahandrið og láta það dingla í lausu lofti litla stund, frammi fyrir hundruðum aðdáenda sinna í Berlín. Mannfall í Nígeríu Á fimmta tug manna hefur týnt lífi og um fimm hundruð slasast í uppþotum múslíma í borginni Kaduna í norðanverðri Nígeríu vegna fegurðarsamkeppninnar Miss World sem á að halda þar. Hættulegir í Jemen Yfirvöld í Jemen hafa handtekið þrjá „hættulega" liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna sem kunna að leiða þá til helsta manns Osama bin Ladens í Jemen, að sögn mál- gagns ríkisstjómarinnar. Flugráni afstýrt Vél franska flugfélagsins Air France lenti heilu og höldnu í París í morgun eftir misheppnaða tilraun eins farþega til að ræna henni. Flug- vélin var að koma frá Montréal. Brunalið í verkfall Slökkviliðsmenn í Bretlandi ákváðu í morgun að halda til streitu átta daga verkfalli sínu eftir að samningaviðræður um kaup og kjör báru engan áranur. Anna prinsessa sektuð ■ Anna Breta- prinsessa, einka- dóttir Elísabetar drottningar, varð i gær fyrst konung- borinna í 350 ár til að vera fundin sek um glæp. Það gerð- ist eftir að prinsess- an lýsti sig seka um að hafa látið hund sinn bíta tvö böm. Prinsessan var sektuð um tæplega áttatíu þús- und krónur fyrir vikið. Gamlingi rænir viagra Fullorðinn karlmaður í Marseille í Frakklandi hefur rænt sama apó- tekið í fjórða sinn á tæpu ári og horfið á brott með allar birgðir þess af stinningarlyfinu viagra. Verkfall gegn Chavez Andstæðingar Hugos Chavez, for- seta Venesúela, meðal verkalýðs- hreyfingarinnar og kaupsýslumanna, hafa boðað til alls- herjarverkfalls 2. desember til að þrýsta á um að forsetinn boði tO þjóðaratkvæðagreiðslu um eigin setu á forsetastólnum. Óttast fleiri skjálfta Þúsundir manna sváfu undir ber- um himni í Pakistan í nótt af ótta við frekari jarðskjálfta, eftir 23 lét- ust í skjálfta í vikunni. Bush er ekkert fífl Jean Chrétien, forsætisráðherra Kanada, lýsti því yfir í gær að Bush Bandaríkjaforseti væri vinur sinn og alls ekkert fifl. Kanadiskur stjórnarandstöðuþingmaður hafði áöur sagt forsetann fifl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.