Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Page 11
11 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 PV_________________________________________________ Útlönd Stuðningsmenn Árásin á Limburg Al-Nashiri er talinn hafa skipulagt árásina á olíuskipið Limburg. Kennsl borin á hátt settan al- Qaeda-foringja Fulltrúar bandarísku leyniþjónust- unnar CIA, sem yflrheyrt hafa meintan háttsettan foringja al-Qaeda- samtakanna sem handtekinn var í Kúveit fyrr í mánuðinum, hafa nafn- greint fangann sem Abd al-Rahim al- Nashiri, náinn samstarfsmann Osama bin Ladens og segja hann grunaðan um að vera helsta stjórnanda og skipuleggjanda aðgerða al-Qaeda á Persaflóasvæðinu. Al-Nashiri, sem strax eftir handtök- una var afhentur bandarískum stjóm- völdum, er talinn heOinn á bak við flest hryðjuverk cd-Qaeda á Persaflóa- svæðinu á síðustu árum og þar á með- al sprengjuárásina á herskipið USS Cole þar sem það lá í höfninni í Aden í Jemen, en sautján bandarískir sjó- liðar létu lífið í árásinni. Hann er einnig talinn hafa verið viðriðinn árásirnar á bandarísku sendiráðin í Kenía og Tansaníu árið 1998, þar sem meira en 200 manns, mest óbreyttir borgarar, létu lífið. Þá er al-Nashiri, sem er hæst setti foringi al-Qaeda-samtakanna sem handtekinn er síðan Abu Zubaydah var handtekinn í Pakistan í mars sl., einnig grunaður um að hafa lagt á ráðin um árásir á bresk og bandarísk herskip á Gíbraltar. Olíumengunín ógnar sjófuglunum. Veöur hamlar enn hreinsunarstarfi Slæmt veður úti fyrir Spánar- ströndum kemur enn þá í veg fyrir að björgunarskip búin hreinsibúnaði geti lagt úr höfn til að koma í veg fyr- ir aukna olíumengun á strönd Galíc- íu-héraðs, en stórir olíuflákar úr flaki olíuskipsins Prestige, sem nú liggur á hafsbotni í um 200 kílómetra fjarlægð frá landi, stefna nú beint á land í óhagstæðri vindátt. Talið er að olíuflákarnir, sem bár- ust upp á ströndina fljótlega eftir að leki kom að skipinu í síðustu viku, sé að mestu eigin brennsluolía þess, en brákin sem nú stefni á land sé aftur á móti þykkolía úr flutningatönkum skipsins. Stjórnvöld á Spáni hafa auknar áhyggjur af frekari leka úr flakinu og er nú spurt hver beri ábyrgðina og hver borgi brúsann, en ljóst er að efnahagsafkoma Galicíu-héraðs, sem að mestu byggir afkomu sína á fisk- veiðum og ferðaiðnaði, er í mikilli hættu. Ljóst er að kostnaður við hreinsun strandarinnar mun hlaupa á tugum milljónum dollara, en sam- kvæmt aþjóðlegum reglum á hann að greiðast úr alþjóðlegum sjóðum. Fylgir sannfæringu sinni Rödd hins hófsama sjálfstæðismanns Eini læknirinn á Alþingi NATO gengur í endurnýjun lífdaga í Prag: Tilbúið fyrir verk- efni nýrrar aldar Leiðtogar Atlantshafsbandalags- ins (NATO) lýstu því yfir á fundi sínum í Prag í gær að bandalagið hefði gengið í endumýjun lífdaga eftir að samþykkt var að bjóða sjö ríkjum Austur-Evrópu inngöngu og ákveðið var að koma á laggimar viðbragðssveit til að mæta nýjum ógnum í heiminum. „Þetta er ekkert venjulegur fund- ur, heldur kemur hér fram nýtt og nútímalegra NATO, tilbúið til að mæta erfiðum verkefnum nýrrar aldar,“ sagði George Robertson, framkvæmdastjóri hins 53 ára gamla bandalags, þegar leiðtogarnir höfðu samþykkt tillögu hans um upptöku nýju ríkjanna sjö. Nú þegar það er afgreitt ætla leið- togamir að snúa sér að Rússlandi og reyna að bæta samskiptin við það og aðrar þjóðir allt austur til Mið-Asíu. Rússar, sem eitt sinn lögðust hart gegn því að fyrrum ríki á áhrifa- svæði þeirra gengju í NATO, hreyfðu engum mótmælum við inn- göngu Eistlands, Lettlands, Lithá- ens, Búlgariu, Slóvakíu, Slóveníu og Rúmeníu sem gengur í gildi 2004. ígor ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði að einu áhyggjur Rússa vegna stækkunarinnar væru þær að nýju aðildarríkin hefðu ekki undirritað samkomulagið um að ekki skyldi fjölgað í hefðbundnum herafla í Evrópu. REUTERSMYND Robertson og Davíð George Robertson, framkvæmdastjóri NATO, býður Davíð Oddsson forsætis- ráðherra veikominn á leiðtogafundinn í Prag þar sem söguleg stækkun bandalagsins til austurs var samþykkt með lófataki. Hann hvatti NATO til að stað- festa að það liti á Rússland sem jafn- ingja sinn. ívanov hittir starfsbræður sína í NATO á fundi í öryggissamvinnu- ráðinu sem komið var á laggirnar á fundi NATO í Reykjavík i vor. George W. Bush Bandaríkjafor- seti hittir Valdimír Pútín Rúss- landsforseta í Pétursborg síðar í dag til að draga enn frekar úr áhyggjum ráðamanna í Moskvu. Forsetamir munu einnig ræða írak, Tsjetsjeníu og stríðið gegn hryðjuverkum. Öryggisráðgjafi Bush, Condo- leezza Rice, sagði að með ferðinni til Pétursborgar vildi Bush sýna að niðurstöður fundarins i Prag væra Rússum til hagsbóta. \m. limburg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.