Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 Skoðun DV Hvað er besta bók sem þú hefur lesið? Eva BJörg Hafsteinsdóttir nemi: Hann var kallaður þetta, áhugaverð saga. Kári Viöarsson nemi: Mýrin, hún er spennandi, áhugaverð og skemmtiteg. Sigfús Steingrímsson nemi: Heimskringlan. Sindri Kristjánsson nemi: Grútur og Gribba, fyndin bók. Snorri Gíslason neml: Snorra-Edda, góö bók. Pétur Guömundsson nemi: Ég veit það ekki, ég les alltof iítið. Ráðherra í efstu sætin Áhersluatriði frambjóðenda Magnús Sigurösson skrifar: Það hefur gengið yfir prófkjörs- hrina. Fyrst var það samfylkingar- fólk sem fylkti liði hér í Reykjavík. Þar fór sem fór, nánast engin endur- nýjun. Ástæðan? Jú, nýliðar sem vildu upp á dekk komu ekki með nýjar áherslur. - Ekkert nýtt og af- gerandi, eitthvað sem stakk í stúf við málflutning og stefnu þeirra sem fyrir sátu og hamra á daginn út og inn. Prófkjör sjálfstæðismanna í norð- vesturkjördæminu nýja fór alfarið í vaskinn, má segja. Hvílíkt dóm- greindarleysi af hálfu kjörstjórnar að halda því fram blákalt að ekkert hafl verið svindlað! Auðvitað var svindlað, og það um aflt kjördæmið. Líka á Vestfjörðum! Þingmaðurinn Vilhjálmur Egilsson á samúð allra réttsýnna áhugamanna um stjóm- mál. Enginn láir honum gremju og réttláta reiði. Og senn hefst síðasta prófkjörið fyrir næstu þingkosningar. Nú hjá sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Aflt virðist þar i góðum farvegi, sýnist manni. Eitt finnst mér þó á skorta hjá sumum frambjóðendum, einkum hinum eldri: að sýna ekki á öfl spilin. Eða: hvað leggja þeir sjálf- ir mesta áherslu á? Fyrir sitt kjör- dæmi - og á landsvisu að sjálf- sögðu? Yngri frambjóðendur hafa verið framtakssamari og sent frá sér sundurliðuð áhersluatriði. Menn ættu kannski að vita hvað sitjandi þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa staðið fyrir. En tím- amir breytast og málefnin líka og nú eru önnur viðhorf í þjóðfélaginu fyrir ýmissa hluta sakir en fyrir fjórum árum. Alþjóðlegt öryggi er minna, það er ólga í utanríkismál- um, einnig hér á heimavefli vegna ESB, og skattamál eru ofarlega í huga fólks, einkum aldraðra og ungs íjölskyldufólks. Einn og einn A kjördag Kosið eftir minni? „Menn ættu kannski að vita hvað sitjandi þing- menn Sjálfstæðisflokksins hafa staðið fyrir. En tím- arnir breytast og málefnin lika og nú eru önnur við- horf í þjóðfélaginu fyrir ýmissa hluta sakir en fyrir fjórum árum. “ eldri frambjóðandi hefur þó auglýst sína stefnu og það er vel þegið. Það er t.d. nýtt að þingmaður vifl vekja þjóðina til vitundar um það öryggisleysi, sem felst í því aö eiga ekki sjálf farþegaskip, hvorki til siglinga í kringum landið eða milli landa. Það er og eftirtektarvert hve hart oddviti Sjálfstæðisflokksins i minnihluta borgarstjórnar (fyrrv. menntamálaráðherra) bregst við þeirri ósvinnu borgarstjórnar að loka og/eða gjörbreyta fyrirkomu- lagi nokkurra þjónustumiðstöðva aldraðra i Reykjavík. Sannleikurinn er sá að kjósendur vilja mjög gjarnan sjá og lesa um hvað frambjóðendur í prófkjörum til Alþingis leggja áherslu á og það hefur mörgum þeirra tekist. Aðrir láta sem það skipti ekki máli. Aflt sé óbreytt frá þeirra hálfu. En ekk- ert er óbreytt, allra síst í stjórnmál- um. Ellen Ingvadóttir, iöggiltur dómtúlkur og skjalaþýöandi, skrifar: Stutt er í prófkjör sjálfstæðis- manna í Reykjavík sem haldið verð- ur á íostudag og laugardag. Mikil- vægt er að við tryggjum ráðherrum flokksins efstu þrjú sætin, þeim Davíð Oddssyni forsætisráðherra, Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Sólveigu Pétursdóttur, dóms- og kirkjumálaráðherra. Sjálfstæðis- flokkurinn býr yfir góðum forystu- mönnum sem tryggja verður efstu þrjú sætin á listanum. Sólveig Pétursdóttir hefur unnið ötullega og af mikilli festu að þeim fjölda málaflokka sem falla undir ráðuneyti hennar. Hún hefur lagt ríka áherslu á eflingu löggæslu og „Mikilvœgt er að við tryggjum ráðherrum flokks- ins efstu þrjú sœtin, þeim Davíð Oddssyni forsætisráð- herra, Geir H. Haarde fjár- málaráðherra og Sólveigu Pétursdóttur, dóms- og kirkjumálaráðherra. “ aðgerðir gegn flkniefnabrotum, mansali og vændi, kynferðisafbrot- um gegn börnum, lagt fram frum- varp til nýrra bamalaga, persónu- vernd hefur verið aukin, réttarstaða brotaþola hefur verið bætt til mik- illa muna og alþjóðlegt samstarf á sviði löggæslu, tollgæslu og öryggis- mála hefur verið aukið. Ráðuneyti hennar er mun um- fangsmeira en margir gera sér grein fyrir og nægir þar að nefna al- mannavamir, mannréttindi, kosn- ingar, ríkisborgararétt, kirkju- og safnaðarmál, öryggiseftirlit, áfengis- löggjöf, landhelgismál, umferðar- mál, dómstóla og fangelsismál, svo fátt eitt sé talið. Mikilvægt er að við sjálfstæðis- menn í Reykjavík Ijáum Sólveigu liðsinni okkar til áframhaldandi góðra starfa. - Það gerum við með því að tryggja henni þriðja sætið um næstu helgi. Garri Andlegt fóöur Eitt er það, sem er ákaflega brýnt að mati Garra, og það er þetta: að hafa „kerfT. íþróttalið þarf til dæmis að hafa „kerfl“ ætli það sér að eiga möguleika á sigri. Og það er ekki nóg að hafa vegi - við þurfum vegakerfi. Kerfl er skipulag. Skipulag er árangur. Árangur er gleði og hamingja. Þess vegna höfum við ekki bara landbúnað, heldur landbúnaðarkerfi. Fegurð kerfisins Gott kerfi gengur snilldarlega upp, rétt eins og reikningsdæmi. Það er einhverju spýtt inn í það, úrvinnslan er hröð og fumlaus, og út úr hinum endanum á kerfinu kemur út glæsileg, sönn og fogur niðurstaða. Svona er landbúnaðarkerfið. Það er beinlínis fallegt kerfi. Lögin og reglugerðirnar eru slík snifld að jafna má við fagurbókmenntir. Skýr og meitluð hugsun býr þar í hverjum bókstaf, hvert úrlausnarefnið af öðru er leyst og ekkert fer á milli mála. Marga kvöldstundina hefur Garri notið þess að næra sálina meö þessu andlega fóðri. Sjóðurinn Gott dæmi um þetta - sem ætti beinlínis að hafa fyrir grunnskólabömum til marks um feg- urð kerfa - em lagaákvæði um fóðursjóð. Þau hefur Garri lesið oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, og afltaf haft jafnmikla unun af. Nú mætti líkja því við guðlast að reyna að hafa þessi ákvæði eftir án þess að vitna beint í frumheimildina. Snilld af þessari gráðu skyldu menn almennt forðast að hafa eftir öðruvísi en orðrétt. En tilgangurinn helgar meðalið og Garri lætur gossa. Þannig er mál með vexti, að á það fóður sem flutt er inn til landsins eru lagðir tollar. Þessir tollar renna í svonefndan fóðursjóð, sem land- búnaðarráðherra hefur umsjón með. Og hvað skyldi vera gert við féð sem þannig safnast í fóð- ursjóð? Jú, þar liggur snifldin: landbúnaðarráð- herra ráðstafar fé úr fóðursjóði þannig, að hann greiðir innflytjendum og kaupendum fóðurs upp- hæð, sem samsvarar þeim tollum sem þeir voru látnir greiða af fóðrinu þegar þeir keyptu það. Svona eiga kerfi að vera. Skipulag - árangur - gleði og hamingja. (\xrrl Pétur fundar stíft Ragnar Haraldsson skrifar Pétur Blön- dal alþm. boð- ar bætta og heilbrigða viðskipta- hætti. Hann beitir sér líka fyrir umræðu um Evrópu- sambandið og er eindreginn andstæðingur þess að íslendingar gangi þar inn, a.m.k. við núverandi aðstæður. Á fundi hjá hon- um sl. mánudag var troðfuilur salur og fékk Pétur góðar móttökur, þótt menn greindi á um málefhið. Mér fannst skorta að ekki skyldi ítarlegri umræða spinnast um endurreisn EFTA-ríkjanna, en fyrir- spum barst úr sal um það efni. En nú er einmitt lag að losa okkur undan EES- samningnum sem annars mun varða veg- inn inn í ESB. Við ættum því að bindast samtökum með Sviss og hinum ríkjunum sem tilheyra EFTA-hópnum og endur- vekja þetta trausta bandalag. Innherjafrétt í Mbl. P.Ó. skrifar Ég sé ekki betur en sumir „alvöru" flölmiðlamir hér séu famir að sækja fréttir sínar á vefsíðu Netsins. Margir vef- miðlar hafa sótt í sig veðrið, svo sem vef- urinn Visir.is eftir nýleg eigendaskipti. Maður vafrar þama um og oft með bæri- legum árangri varðandi eitt og sumt sýn- ist verða að „frétt“, bæði í ríkisfjölmiðl- unum og hinum. Þama vom „innherjar" td. nýlega að ræða um að „maðurinn i brúnni" hjá EJS (Einari J. Skúlasyni), stjómarformaður og forstjóri frá 1991, væri aö láta af störfum í kjölfar skipu- lagsbreytinga og einn stjómarmanna tæki við af honum. Þetta var svo komið sem frétt í Mbl. sl. miðvikudag. - En pass- að að hafa hana stuha og neðst í vinstra homi innsíðu blaðsins! Traustar konur áþingi Friftrik Guðmundsson skrifar: í fjölbreyttri um- ræðu og greina- skrifum vegna próf- kjörs sjálfstæðis- manna fallast mörg- um hendur í að fók- usa á sérstaka fram- bjóðendur og áhuga- mál þeirra. Hart er barist og nýir og eldri sækja að sama marki; að komast á þing. Tvær era þær konur þama á með- al sem ekki fara með miklum hávaða en hafa báðar mikla þekkingu á þeim málefnum sem þær hafa beitt sér fýrir. Önnur þeirra er Ásta Möfler sem hefúr látið heilbrigðismálin til sín taka eftrminnilega. Hin er Lára Margrét Ragn- arsdóttir sem er orðin þekkt fyrir störf sín á alþjóðavettvangi þar sem hún hefur m.a. unnið að mannréttindamálum í Evr- ópuríkjunum. Ég tel að atkvæðum kjós- enda sé skynsamlega varið með þvi að tryggja þeim Ástu og Lám Margréti ör- uggt sæti í komandi prófkjöri. Fréttastjóri Sjónvarps Karólina hringdi: Nú er upplýst að ekki hefur enn verið ráðið í starf fréttastjóra Sjónvarpsins þótt fyrrv. fréttastjóri sé kominn í nýtt starf hjá stofhuninni en gegnir starfi fréttaþul- ar jafnframt. Útvarpsráð getur ekki varið það mikið lengur að taka afstöðu til ráðn- ingar í starfið, og þá með því að ráöa jafn- framt nýjan varafréttastjóra samtímis. DV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Skaftahlíð 24,105 ReyKJavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang. Asta Möller og Lára M. Ragn- arsdóttir alþm. Hafa beitt sér fyrir viðamiklum málaflokkum. Pétur Blöndal á fundi í Odda. Kröftugur andstæð- ingur ESB.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.