Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2002, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 27 Það er stór helgi fram undan hjá körfuknattleiksmönnum en þá fer fram úrslitakeppnin í Kjörísbikarn- um í íþróttahúsinu í Keflavík. í kvöld fara fram undanúrslitaleik- imir og ríða Haukar og Grindvík- ingar á vaðið i fyrri leiknum klukk- an 18.30 og i seinni slagnum eigast við Keflavík og KR kl. 20.30. Sigur- vegaramir i þessum leikjum heyja síðan úrslitaleik sem verður háður í Keflavík á laugardag og hefst hann klukkan 16.30. Þessi keppni fer nú fram í sjötta sinn. Keflvíkingar unnu fyrstu þrjú árin, en hafa tapað í úrslitaleik í tvígang á síðustu þremur árum. í fyrra tapaði Keflavík fyrir Njarðvík með 40 stiga mun, sem er stærsti ósigur liðs í úrslitaleik þessarar keppni. Keflavíkingar töpuðu einnig í úrslitaleik árið 1999 er þeir mættu Tindastól. Árið 2000 voru Keflvíkingar ekki meðal þeirra fjögurra fræknu í eina skiptið í sögu keppninnar. Áður en Keflvíkingar töpuðu með 40 stiga mun í úrslitaleiknum í fyrra áttu þeir stærsta sigurinn i úrslitaleik keppninnar, en þeir unnu Tindastól með 38 stiga mun í úrslitaleik árið 1997. Njarðvík hefur alltaf komist í undanúrslit keppninnar þangað til nú. í fyrra komst liðið í fyrsta sinn alla leið í úrslitaleikinn. í undanúr- slitum hefur Njarðvík tapað fyrir Keflavik, Tindastóli og Grindavík Grindavík er nú að taka þátt í undanúrslitum keppninnar í fimmta sinn. Liðið komst ekki í undanúrslitin 1997. Árið 1998 komst Grindavík alla leið í úrslitin en tap- að þar fyrir Keflavík. Fyrir tveimur árum sigraði Grindavík í keppninni eftir úrslitaleik gegn KR. KR-ingar hafa ávallt leikið í und- anúrslitum keppninnar utan einu sinni en það var árið 1999. KR hefur aldrei náð að sigra í keppninni þrátt fyrir að hafa komist tvívegis í úr- Þeir standa í ströngu með liöum sínum í kvöld þessir kappar en í húfi er sæti í úrslitum Kjörísbikarsins í körfuknattleik. Hér eru KR-ingurinn Arnar Kárason og Grindvikingurinn Darrel Lewis í leik liðanna á dögunum. í kvöld mæta KR-ingar Keflvíkingum í undanúrslitunum og Grindvíkirrgar kljást viö Hauka. Afangi hjá Guðjóni Guðjón Skúla- son leikur sinn 700. leik fyrir Kefl- víkinga í kvöld þegar liðið mætir KR í undanúrslit- um Kjörísbikars- ins í körfuknatt- leik. Guðjón er að leika sitt 20. tíma- bil hér á landi. Guðjón hefur skorað langflestar þriggja stiga körf- ur í úrvalsdeild- inni. Guðjón á að baki einn far- sælasta feril sem til er í íslenskum körfubolta. -JKS Úrslitahelgin í Kjörísbikarnum í körfuknattleik: Horkurimmur - segir Friðrik Ragnarsson, þjáifari Njarðvíkinga, sem spáir í spilin keppm i hverju oroi Rafpostur: dvsport@dv.is slit, 1996 og 2000. Haukar eru nú í hópi hinna fjög- urra fræknu í fyrsta skipti. Haukar hafa alltaf komist upp úr 16-liða úr- slitum keppninnar en ávallt fallið úr keppni i 8-liða úrslitum. Sigurvegari keppninnar fær 250.000 kr. í sinn híut frá Kjörís í verðlaunafé og liðið sem verður i öðru sæti fær 50.000 frá Kjörís. Þess má geta að þetta er í fyrsta skipti sem núverandi íslandsmeistarar, Njarðvík, komast ekki í úrslit keppninnar. Miðaverð verður kr. 1.000 fyrir fullorðna og 500 fyrir böm á grunnskólaaldri. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, var fenginn til að spá í undanúrslitaleikina í kvöld og sagðist hann eiga von á hörku viðureignum. Fyrirfram eru Grindvíkingar sterkari „Fyrirfram myndi ég telja Grind- víkinga sigurstranglegri í viður- eigninni gegn Haukum af þeirri ein- fóldu ástæðu að þeir hafa meiri reynslu af svona leikjum. Styrkleiki Grindvikinga liggur í sterkum bak- vörðum og þeir sjá um 70% af stiga- skoruninni og lykilatriði fyrir Haukana er að stöðva þessa menn. Ef það tekst geta Haukamir tví- mælalaust lagt Grindvíkinga að velli. Aftur á móti liggur styrkleiki Haukamanna í því hversu sterkir þeir em í teignum. Þar fínnst mér Predrag Bojovic vera sterkur en hann er hins vegar vanmetinn, Hann getur skorað þriggja stiga körfur og gert allt undir körfunni. Svo eru þeir einnig með ógnvaldinn sjálfan Stevie Johnson sem hefur verið að flengja hvert liðið á fætur öðru. Eins og staðan er í dag er hann langbesti erlendi leikmaður- inn í deildinni. Það halda honum engin bönd og því er það grundvall- ar atriði fyrir Grindvíkinga að stöðva þennan leikmann. Ef Stevie kemst á skrið geta Haukamir unnið hvaða lið sem er,“ sagði Friðrik. Besta Haukaliðið sem ég hef séð í 10 ár „Mér finnst Haukarnir vera miklu betri en í fyrra og það kemur mörgum á óvart hversu sterkir þeir eru. Fyrir tímabilið töluðu menn um það hvað Haukamir væru vængbrotnir og sumir spáðu því jafnvel að liðið færi niður um deild. Það hefur bara komið í ljós að strák- arnir sem tóku viö eru betri en þeir sem fóru. Haukaliðið í dag er það besta sem ég hef séð í 10 ár.“ „Það er eins og reynsluboltarnir hjá Grindavík séu bara ekki komn- ir í toppform. Þeir eru hins vegar vel mannaðir í öllu stöðum og því spuming í hversu góðu ásigkomu- lagi Grindvíkingar verða í kvöld. Þeir hafa nokkra leikmenn sem geta hæglega skorað 15-20 stig í leik en það verður ekki tekið af þeim að þeir em gríðarlega vel mannaðir. Þetta veröur jafn leikur en Hauk- amir eru orðnir allt of góðir til að láta valta yfir sig.“ Styrkur KR-inga liggur í há- vöxnu liöi Viðureign Keflvíkinga og KR-inga Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarö- víkinga, spáir í spilin fyrir leiki kvöldsins. er mjög athyglisverð en þetta er fyrsti innbyrðisleikur liðanna í vet- ur. KR-ingar hafa komið mér á óvart og tefla þeir fram sterkum Bandaríkjamanni sem er Darrel Flake. KR-ingar hafa verið að leika vel og eru sérlega duglegir i fráköst- unum og skotnýting þeirra er góð sem skiptir miklu máli. Þeir eru líka komnir með hávaxið lið sem er til alls líklegt á góðum degi. Styrkur KR-inga liggur fyrst og fremst í mik- illi hæð og sterkri liðsheild. Það er í ökkla eða eyra hjá Keflvikingum. Ef þeir fmna sinn leik þá halda þeim engin bönd. Aftur á móti ef andstæðingurinn nær að hanga í þeim þangað til á síðustu mínútu þá getur komiö upp sú staða að þeir verði svolítiö hræddir og tapi þá leikjum sínum þess vegna. Mögu- leikar KR-inga felast í því að halda leiknum í jafnvægi og ef það gengur eftir vinnur KR leikinn." Keflvíkingar meö stjörnu í hverri stööu Styrkur Keflvíkinga liggur í þriggja stiga skotunum en þegar þeir hrökkva í gang í þeim þá valta þeir yfir hvern sem er. Keflvíkingar eru hins vegar smáxaxnir í saman- burði við KR-inga og það gæti vegið þungt þegar upp verður staðið. KR- ingar eru meö töluvert breytt lið frá því í fyrra og að mínu mati eru þeir með mun sterkari útlending núna en á síðasta tímabili. Þeir eru nú með mann sem skilar miklu skori og fráköstum en samt er liðið stjömulaust ef þannig má að orði komast. Þeir vinna vel sem liösheild en liðið er ekki síðra en í fyrra. Keflvíkingar eru með stjörnu í hverri stöðu og þeir hafa í kringum átta leikmenn sem geta skoraö 20 stig á eðlilegum degi. Þeir finna alltaf einhvern sem er heitur og get- ur klárað dæmið. Mér fmnst KR- ingar vera í hörkugír þessa dagana og held að þeir vinni þennan leik. KR-ingar koma til með að koma vel úti á móti skyttum Keflvíkinga og ég held að Keflvíkingar höndli ekki KR-inga inni í teig,“ sagöi Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvikinga, í spjallinu við DV. Hann sagðist vera viss um helgin yröi mjög fjörug og fram undan væru hörkurimmur. Þama væm á ferð fjögur skemmtileg lið og öll vel að því komin að berjast um sigur- inn í þessari keppni. Spurður hvort hann væri ekki súr að hafa ekki sitt lið í þessum hópi sagði Friðrik. „Við emm einfaldlega ekki nógu góðir til að vera þama. Maður verð- ur bara að kyngja því en ég hlakka til helgarinnar," sagði Friðrik. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.