Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2003, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2003 Tysr Fréttir Skiptaverð lækkar Skiptaverð miðað við sölu á fersk- um fiski innanlands lækkar úr 72% í 71% þann 1. janúar 2003 vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. Kauptrygging og aðrir launa- liðir sjómanna hækka um 3,4% þann l. janúar nk. Fæðispeningar verða óbreyttir frá síðustu kaup- skrá. Kauptrygging skipstjóra, 1. stýrimanns og yfirvélstjóra verður 190.564 krónur, hjá matsveinum, 1. vélstjóra, vélaverði, 2. stýrimanni, netamanni og bátsmanni 158.802 krónur og 127.043 krónur hjá háseta. Timakaup háseta verður 733 krón- ur, skipstjóra og 1. stýrimanns 1.099 krónur en hæst hjá yfirvélstjóra, eða 1.179 krónur. Fuglar taldir á sunnudag Á annað hundrað fuglaáhuga- menn munu taka þátt i árlegri vet- urfuglatalningu sem verður sunnu- daginn 5. janúar næstkomandi. Talningin, sem er sú fimmtugasta af sínu tagi hér á landi, er mjög mikil- væg, m.a. til að fylgjast með stofn- sveiflum fuglastofna sem hafa vet- ursetu á íslandi. Það var Finnur Guðmundsson fuglafræðingur sem átti frumkvæðið að þessari talningu en skipulag hennar er í höndum Náttúrufræðistofnunar íslands. Fikniefni í fangelsi Fangaverðir á Litla-Hrauni fundu um liðna helgi töluvert magn amfetamíns og kannabisefna á fanga. Fanginn sætti leit eftir að hafa tekið á móti gestum í fangels- ið. Rannsókn málsins stendur enn yflr en lögregla hefur á síðustu mánuðum lagt hald á töluvert magn fíkniefna sem gestir hugðust flytja inn í fangelsið. Mótmæla hækkun Stjóm Alþýðusambands Austur- lands sættir sig ekki við úrskurð Kjaradóms um 7% launahækkun til ráðamanna þjóðarinnar á sama tíma og flestir launþegar fá 3% launahækkun. Stjórn ASA sættir sig ekki við slík vinnubrögð og bendir á að með slíkum vinnubrögð- um sé verið að auka launamuninn í landinu. Einnig mótmælir stjóm ASA hækkunum á þjónustugjöldum sveitarfélaganna sem verið sé að ákveða þessa dagana. Milljón lítrar seldir Á tímabilinu 1.-24. desember seld- ust 1.146.972 lítrar af áfengi sem er 5,29% aukning frá árinu 2001. Hösk- uldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, seg- ir að aukningin, mæld í hreinum vínanda, hafl verið 1,48% á tímabil- inu, sem þýðir að aukin neysla hafi verið í veikum drykkjum, þ.e. borð- víni og bjór. Þá segir Höskuldur að rauðvínssala hafi aukist um 10,04%, hvítvínssala um 6,46% og bjórsala um 5,76%. Athyglisvert er þó að sjá að sala á vodka minnkaði um 10,37% á tímabilinu frá árinu í fyrra. ÁTVR mun senda frá sér söluskýrslu með verðmætistölum og magntölum fyrir árið 2002 þann 3. janúar næstkomandi. -ss/aþ/GG Loðdýrabændur segja iðgjöld tryggingafélaga alltof há: Loðdýrabúin flest ótryggð - heildarverðmæti getur numið um 600 milljónum króna Loðdýrabændur eru undantekn- ingarlítið, jafnvel alveg, með bú- stofninn ótryggðan og þannig er ástatt i flestum búgreinum lands- manna. í landinu eru um 40.000 minkalæður og um 4000 refalæður og gæti verðmætið numið um 600 milljónum króna þegar það er mest í nóvembermánuði. Heildar- framleiðsluverðmæti nam á þessu hausti allt að 500 milljónum króna. Þéttleiki skinnanna verður meiri í hlýindum eins og hafa verið í haust og hárin verða fínni. í frosti leggja dýrin af sem gerir feldinn erflðari til vinnslu. í Danmörku og Finnlandi er loð- dýraræktin rekin með miklum hagnaði en ekki hér vegna smæð- ar hennar sem veldur því m.a. að fóðurverð er mjög hátt. Bjöm Halldórsson, loðdýrabóndi að Engihlíð í Vopnafirði og for- maður Sambands íslenskra loð- dýrabænda, segir að ástæða þess að dýrin séu ekki tryggð sé ein- föld: Iðgjöld íslenskra tryggingafé- laga eru svo há að enginn ráði við þau og líkur á því að lenda í tjóni eru það litlar að loðdýraræktend- ur meti það þannig að það svari ekki kostnaði. Munur á kjörum „Tjónið á Dýrholti í Svarfaðar- dal, í dýrum talið, gæti numið um 5 milljónum króna, varlega reikn- að, en þar brunnu inni um 1000 minkar. Það er skyldutrygging á húsum. Miðað við líkurnar á tjóni og hversu mikið það kostar að tryggja þarf að vera með dýrin tryggð í áratugi til þess að fá eitt svona tjón bætt. Það geta allir reiknað út að það borgar sig alls ekki. Það er gríðarlegin- munur á þeim kjörum sem loðdýrabændur annars staðar á Norðurlöndum fá hjá þarlendum tryggingafélögum og þeim sem íslensk tryggingafé- lög bjóða okkur. Við höfum verið að leita eftir samningum við er- Bruni í Svarfaðarda! Milljónatjón er þar brunnu inni um eitt þúsund minkar. lend tryggingafélög en það hefur ekki gengið. Tryggingafélögin hér hafa sýnt okkur gríðarlega ósann- girni en í svokallaðri altryggingu er krafist sömu prósentutrygging- ar allt árið eins og í nóvember, þegar hún er hæst, þegar dýrin eru flest og fram undan pelsun. Um 1000 lífdýr með 5000 hvolpa eru tryggð fyrir 10 til 11 milljónir króna en í janúar, þegar ekki eru nein dýr í búinu, nema kannski 1000 læður, er krafist iðgjalds af sömu upphæð. Það er hreint rán og einu svörin sem við fengum voru að þetta væri svo þungt í vöf- um,“ segir Björn Halldórsson. Danir tilbúnir Sum loðdýrabúanna fá afurðalán erlendis frá en skilyrði lánsins er að dýrin séu brunatryggð og skinnin seld í ákveðnum söluhúsum. Flest búanna hætta með afurðalán eftir að pelsun lýkur og þar með falla er- lendu tryggingamar niður. Upp á það bjóða íslensku tryggingafélögin ekki. „Kandamenn bjóða uppbygg- ingu ef loðdýrabændur falast eftir bestu þekkingunni til loðdýrarækt- ar, sem er t.d. í Danmörku. Hingað eru Danir tilbúnir að koma ef hér fæst einhver viðunandi fyrir- greiðsla. Þar er hins vegar talað fyr- ir daufum eyrum ráðamanna sem hafa meiri áhuga á verðbréfum og álverum." -GG DV-MYND GVA Hafrannsóknaskip í jólaskapi Skiþ Hafrannsóknastofnunarinnar lágu bundin við bryggju um jól og áramót, Ijósum skreytt. Um jólin var aöeins eitt fiskiskip á veiöum í íslensku land- helginni, Stígandi VE sem var á Reykjaneshrygg aö fiska í sölutúr á nýbyrjuöu ári. Daginn fyrir gamlársdag voru hins vegar 110 bátar á sjó, þó aöallega smábátar því togarar leysa ekki festar fyrr en á þessu ári. Aðalfundur Vélstjórafélags íslands: Landhelgisgæslu verði tryggt nægt fjármagn - svo hún geti sinnt skyldum sínum Á aðalfundi Vélstjórafélags Is- lands 28. desember sl. var bent á að samkvæmt niðurstöðum nýj- ustu rannsókna á heyrn vélstjóra komi skýrt fram að vélstjórar séu að jafnaði I mun meiri hættu á að verða fyrir heyrnarskaða en aðrir launþegar á hinum íslenska vinnumarkaði. Nauðsynlegt sé að Vélstjórafélag íslands, Samtök at- vinnulífsins og ríkisvaldið taki höndum saman við að upplýsa einstaka atvinnurekendur og vél- stjóra um leiðir til að afstýra frek- ari heilsuskaða af þessum sökum. Bent er á að útgerð kvótalítilla og kvótalausra báta geti ekki stað- ið undir sér ef ekki komi til brot á ákvæðum kjarasamninga sjó- manna og útvegsmanna. í raun séu slíkir útgerðarhættir niður- greiddir af einstökum sjómönnum sem á sama tíma undirbjóða aðra sjómenn á ólögmætan hátt sem neitað hafa að taka þátt í slíkum lögbrotum. Þá liggi fyrir að fjöldinn allur af útgerðarmönnum sem stundi slíka atvinnustarfsemi hafi á síð- ustu misserum orðið gjaldþrota með tilheyrandi skaða fyrir þjóð- félagið. Fundurinn samþykkti að beina því til stjórnvalda að grípa nú þeg- ar i taumana og stöðva viðstöðu- laust framsal veiðiheimilda til kvótalausra og kvótalítilla útgerð- armanna. Vélstjórar telja að Landhelgis- gæslan búi við slíkt fjársvelti að henni sé fyrirmunað að annast þau störf sem henni eru ætluð samkvæmt lögum, en þau felast að stórum hluta í því að tryggja ör- yggi sjómanna á hafi úti eins og kostur er. Fundurinn skorar því á íslensk stjómvöld að tryggja Landhelgisgæslunni strax það fjármagn sem henni sé nauðsyn- legt til þess að gegna lagalegum skyldum sínum. -GG Erlend skip veiddu 206 þúsund tonn við ísland: Svartsýnn á samninga við Norðmenn Landhelgisgæslan hefur eftirlit með veiðum allra erlendra fiski- skipa innan íslenskrar fiskveiðilög- sögu. Skipunum er yfirleitt gert að vera búin fjareftirlitsbúnaði sem til- kynnir sjálfvirkt staðsetningu skip- anna á klukkustundar fresti til stjómstöðva heimalanda sinna. Upplýsingar um staðsetningu skipanna eru síðan sendar sjálfvirkt til stjómstöðvar Landhelgisgæsl- unnar um leið og þau sigla inn í ís- lenska efnahagslögsögu. Gagn- kvæmir samningar um fjareftirlit eru nú í gildi milli íslands, Færeyja, Grænlands, Noregs og Rússlands. Auk þess tilkynna skipin daglega um veiddan afla, komur og brottfar- ir úr fiskveiðilögsögunni. Um 150 erlend fiskiskip tilkynntu stjómstöð Landhelgisgæslunnar um afla árið 2002, samtals um 206.330 tonn. Þar af tilkynntu bresk skip um 1141 tonn, þýsk um 522 tonn, færeysk um 105.972 tonn, grænlensk um 42.167 og norsk skip um 56.529 tonn. Af afla færeysku skipanna voru um 70.095 tonn kolmunni og 31.855 tonn loðna en Færeyingar eru ekki búnir með loðnukvót- ann sinn á vertíðinni. Fær- eyskum skipum var heimilt að veiða samtals 5000 tonn af botnfiskafla í íslenskri fisk- veiðilögsögu árið 2002 en þau tilkynntu um 4.022 tonna botnfiskafla. Af afla norsku skipanna voru 56.130 þúsund tonn loðna. Norskum skipum sem höfðu leyfi til línuveiða í ís- lenskri fiskveiðilandhelgi var heimiít að veiða samtals 500 tonn af keilu, löngu og blálöngu m.v. afla upp úr sjó. Auk þess var þeim heimilt að veiða alls 125 tonn af öðrum tegundum. Norsku línuskipin tilkynntu samtals um 399 tonna heildarafla. Skipum frá Evrópusambandinu var heimilt að veiða 3000 lestir í lögsögunni. Þau tilkynntu 1663 tonna afla, þ.e. bresk og þýsk skip. Norskum skipum var heimilt að veiða 94.200 tonn af sUd innan íslenskrar fiskveiðUög- sögu á árinu 2002, færeyskum skipum 46.420 tonn og rúss- neskum skipum 3.700 tonn. Engar tUkynningar um sUd- arafla hafa borist á árinu. Kristján Ragnarsson, for- maður LÍÚ, segir að samstarf viö Færeyinga hafi verið mjög gott og þeir hafi fengið aukalega nokkurn veiðirétt í loðnu en samningar séu allir bundnir tU eins árs. „Loðnusamningi milli íslands, Grænlands og Noregs hefur verið sagt upp og gildir því ekki nema tU vors og ekkert hefur gerst í samningum um norsk-íslensku síldina þó nýtt ár sé komið. Samn- ingar um kolmunna eru líka í upp- námi. Við vUjum óbreytta samn- inga um norsk-íslensku sUdina en Norðmenn hafa gert óbUgjarnar kröfur um stóraukinn hlut á okk- ar kostnað. Evrópubandalagið má veiða 3.000 tonn af karfa í íslenskri lögsögu en það er bundið því að nota ekki skip sem frysta aflann um borð. Það þykir þeim mikU hindrun. Ég get ekki verið bjart- sýnn á að samningar náist við Norðmenn með hliðsjón af fram- komu þeirra og þeirra óskynsam- legu kröfur leiða tU uppnáms í samskiptum þessara þjóða og setja okkur í þá pressu að reyna að veiða sem mest og þannig getur innbyrðis samkeppni þjóðanna leitt tU þess að veiðar á þessum fisktegundum fari algjörlega úr skorðum," segir Kristján Ragnars- son. Talað er um að fundur geti orðið i þessum mánuði. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.