Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2003, Side 9
FIMMTUDAGUR 2. JANUAR 2003
DV
Fréttir
Erlendir ferðamenn óánægðir með lokanir yfir hátíðirnar:
Bitnar á öllum á landinu
- segir formaður Ferðamálaráðs
Nokkuð mikið
var um að erlend-
ir ferðamenn leit-
uðu til upplýs-
ingamiðstöðva í
Reykjavík yfir
hátíðirnar þar
sem þeir voru
með fyrirspurnir
um afþreyingu og
þjónustu sem
stæði til boða um
jólin. Margir þeirra voru sárir og
reiðir yfir litlum aðgangi að ýmissi
afþreyingu, þó mest furðuðu þeir
sig á afgreiðslutíma veitingahúsa,
sem flestöll eru lokuð frá aðfanga-
degi þar til annan i jólum. Magnús
Oddsson, formaður Ferðamálaráðs,
segir þetta einkum stafa af auknum
fjölda erlendra ferðamanna sem
Magnús
Oddsson.
koma til landsins yfir hátíðimar á
eigin vegum.
„Það er nú bara þannig að sam-
setning ferðamannahópsins er að
breytast. Það er sífellt hærra hlut-
fall fólks sem kaupir aðeins farseðla
til landsins og veit ekki alveg að
hverju það gengur í framhaldinu.
Svo eru aðrir sem koma með hefð-
bundnum og skipulögðum ferðum
sem hafa dagskrá. Þeir hafa fyrir
fram fengið upplýsingar um hvaða
dægradvöl er boðið upp á yfir helstu
hátíðadagana," segir Magnús en ít-
rekar um leið að þetta þjónustuleysi
bitni alveg jafnmikið á okkur ís-
lendingum eins og það geri á útlend-
ingum.
„Á íslandi fer öll þjónusta í stopp
yfir hátíðarnar og það bitnar á öll-
um sem á landinu eru. Við íslend-
ingar þekkjum þetta og erum vanir
þessu. Hvað varðar veitingastaðina
þá eru einhverjir opnir, en ég viður-
kenni fúslega að þeir eru ekki marg-
ir og bjóða kannski ekki upp á það
sem fólk hafði hugsað sér yfir jól-
in,“ segir Magnús. -vig
DVJHYND HA
Heitt helgarblað - helt jól
Jólasveinar Breiðdælinga örkuðu um götur í nánast sumarblíðu. Jólin á
Breiðdalsvík voru friðsæl og falleg. Jólasveinar gengu í húsin í bænum og
færðu börnum gjafir. Eftir törnina í 12 stiga hita þótti þeim gott að hella sér í
lestur á jólablaði DV.
Akureyri.
Verkalýðsfélögin:
Minna á ábyrgð í
verðbólguslag
Formenn sjö stéttarfélaga á
Eyjafjarðarsvæðinu hafa sent Ak-
ureyrarbæ og Dalvíkurbyggð bréf
til að minna á að í byrjun þessa
árs var farið i mikið átak til að
hemja verðbólguna, sem var þá á
fullri ferð upp á við. Þar tóku
sveitarfélög á með verkalýðshreyf-
ingunni. í bréfinu kemur fram að
að undanförnu hafi heyrst um boð-
aðar hækkanir hjá ríki og fyrir-
tækjum.
Hækkanir sem eru langt um-
fram hækkun á neysluvísitölu. í
þennan hóp hafa ýmis sveitarfélög
nú verið að skipa sér. Nái þessar
hækkanir fram að ganga er hætta
á að sú mikla vinna sem lögð var í
að ná niður verðbólgunni fyrr á
árinu sé unnin fyrir gýg.
Akureyrarbær boðar hækkanir
á ýmsum þjónustugjöldum um allt
að 8% sem eru allverulega meiri
en t.d. neysluvísitalan hefur
hækkað. Félögin skora því á bæj-
ar- og sveitarstjórnir að þær skjóti
sér ekki undan þeirri ábyrgð sem
á þeim hvilir að taka þátt í að
tryggja lága verðbólgu og stöðugt
efnahagslíf á íslandi. -GG
TF-hús:
Fjöldaframleiðsla
húsa áfram
Gengið hefur verið frá samkomu-
lagi um sölu á 90% hlutafjár í Tré-
smiðju Fljótsdalshéraðs hf. til
nýrra eigenda. Kaupendur eru þeir
Garðar Eymundsson, Jónas Á.Þ.
Jónsson og Ómar Bogason, allir á
Seyðisfirði, og Ragnar J. Bogason
og Stefán Guðbergsson í Reykjavík.
Seljendur eru Orri Hrafnkelsson og
Valgerður Valdimarsdóttir, en þau
hsifa starfað við rekstur félagsins
nær 30 ár.
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs hf.
var stofnuð 1973 í þeim tilgangi að
framleiða einingahús úr timbri.
Framleiðsla hófst um mitt ár 1974
og fyrsta TF-húsið var reist á Eski-
firði. TF-hús eru nú 500 talsins,
langflest i þéttbýli og dreifbýli á
Austurlandi en einnig norður um
Þingeyjarsýslur, Eyjafjörð og
Skagafjörð.
Yfir 20 TF-hús hafa einnig verið
reist á höfuðborgarsvæðinu. Nyrsti
bóndabær í byggð á íslandi er TF-
hús, svo og flugstöðin í Grímsey
sem stendur á heimskautsbaug.
Stærsta TF-húsið er flugstöðin á Eg-
ilsstaðaflugvelli. -KÞ
*'"um við ÚrS4M...
* ábyt9*
Verð frá kr.
M DVD spitarar
19.800.-
Verð frá kr.
33.900.
Verð frá kr.
12.900.
Verð frá kr.
Verð frá kr.
i)jóDt>örp
20" Verð frá kr.
22.800.-
19.900.-
Verð frá kr.
39.900.
[Barkalausir þétti-
með rakaskynjara
49.900.-
Verð frá kr.
Komdu núna og
gerðu kaup ársins!
11.900.
jlsísf
Verð frákr.
17.940.'
Verð frá kr.
21.900.-
Verð miðast við staðgreiðslu
‘Miðast við að greitt sé með Visa- eða Euroraðgreiðslum
RílFTíEKJflPERZLUIÍ ÍSLflNDSlf
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660